Þjóðviljinn - 06.12.1939, Side 1
IV. ARGANGUR.
MIÐVIKUDAGINN 6. DIiS. 1939
282. TÖLUBLAÐ
Vcrbfallsalda
á IndlandL
Hundrud þúsundír
manna krefjasf baeffra
lífskjara o$ áukins
sjálfsfæðís.
Á að svípfa verklýðsfélögín fundafrelsí?
Hve lengi þolír verkalýdurínn slíkt framferdí ?
Javaharlal Nehru,
leiðtogi indverskra sjálf-
stæðismanna.
Stórkostleg verki'allsalda ílæðir
nú yíir Indland. Kveður mest að
henni í stórborgunum Bombay,
Calcutta og Madras og er talið að
í þessum þremur borgum séu nú
um 159 þúsund manns í verkföll-
um.
Verkföllin eru gerð til þess að
liækka launin, en verkafólk á Ind-
landi hefur mjög lág laun, og til
að knýja fram styttingu vinnu-
daga og bætt vinuskilýrði.
Víða eru þó bornar fram póli-
tískar kröfur samhliða atvinnu-
legu kröfunum, og hafa á nokkr-
um stöðum verið farnar kröfugöng
ur til að mótmæla stjóm Breta á
Indlandi og krefjast sjálfstæðis.
Heiztu afrek hinna „vlrðingaverðu” þingmanna „þjóðstjórnar-
innar” í garð verkalýðshreyfingarinnar eru þessi:
1) Vinnulöggjöf, sem tekur verkfallsréttinn að miklu leyti af
verkalýðsfélögunum.
2) Lögþvingaður gerðardómur í kaupgjaldsmálum.
3) Banu við kauphækkun og bann við því að verklýðsfélögin
semji sjálf um kaup og kjör.
4) Vægðarlaus barátta gegn einingu verkalýðsins á stéttarleg-
um grundvelli í einu óháðu fagsambandi.
5) Stofnun ríkislögreglu, sem dómsmálaráðherra getur sent
hvert á land sem hann vill, hvenær sem hann vill, búa hvaða
vopnum sem honum þóknast, og gilda þessi ákvæði öll um alla lög-
regluþjóna landsins, jafnt fastráðna, sem varalögreglu, þegar frum-
varp Hermanns Jónassonar er orðið að lögum.
6) Þjóðstjórnayílialdið í Reykjavík hefur komið í veg fyrir að
verkalýðsfélög bæjarins geti haldið fund til þess að ræða framkomu
„liinna virðingarverðu” í garð stéttarinnar.
7) MEÐAN ÖLLU PESSU FER FRAM SITJA ÞEIR ÖLAF-
UR THORS OG STEFAN JÓHANN OG SEMJA UM VERIÍ-
LÝÐSHREYFINGUNA. HfJN A AÐ VERA GJALDEYRINN 1
PÖLITÍSKU GJALDÞROTABRASKI ÞESSARA AUÐNULEYS-
INGJA.
Hver hugsandi stéttvís verka-
maður hefur gert sér ljóst, að meg
inþátturinn í starfi þjóðstjórnar
íhaldsins er að eyðileggja verka-
lýðshreyfinguna og villa svo um
verkamenn, að þeir komi ekki leng
ur auga á stéttarafstöðu sína í
þjóðfélaginu. Að þessu miðaði setn
ing vinnulöggjafarinnar, lögþving-
uðu gerðardómarnir í kaupgjalds-
málum, bannið við kauphækkun í
samræmi við vaxandi dýrtíð, bar-
áttan gegn stofnun Landsambands
íslenzkra stéttarfélaga, hin vænt-
anlega stofnun ríkislögreglu, og
tilraunir þjóðstjórnaríhaldsins til
þess að koma í veg fyrir að verka-
lýðsfélögin haldi fundi um hags-
munamál sín.
Allt er þetta ofur skiljanleg bar
átta, hún er sem sé bein afleiðing
þeirra stéttarlegu andstæðna, sem
eru og ætíð hljóta að vera í hverju
auðvaldsþjóðfélagi. Hin „virðing-
Sovétstjórnin neitar Dátttöku I foodam
DjöðabaodaÍaBSins nm Finnlandsmálin.
Molofoff affekur að reyna samkomufagsumleífanír
víð Ryfí~sfjórnína, — Víggírðing Alandseyja hafínT
arverða” þingmannaklíka ,,þjóð-
stjórnarinnar” hefur beint og ó-
beint, náð í sínar hendur megin-
hlutanum af auðæfum þjóðarinnar
Svo að segja hver einasti hinna
,,virðingarverðu” þingmanna lifir
á ríkisfé. Pjölmargir þeirra hafa
fjölda embætta og 10—20 þús. kr.
árslaun. Þeir hafa bein og óbein
áhrif á allar launagreiðslur ríkis-
ins, en þær nema nú yfir 10 millj-
ónum króna á ári. Þar við bætist
svo að ýmsir þingmanna ráða yfir
stærstu verzlunum og stórvirkustu
framleiðslutækjum þjóðarinnar.
í sem fæstum orðum sagt, í
höndum þessara manna er auður
íslenzku þjóðarinnar. Það er því
upphafið og endirinn í allri þessari
stjórnmálabaráttu, að verja sína
stéttarlegu hagsmuni gegn stéttar
hagsmunum verkamanna og smá-
framleiðenda. Bóndi einn úr þeirra
hópi, Jón Pálmason frá Akri, sem
er heiðarlegur maður og að vissu
Framhald á 4. siðu.
Vídsfáín I dag
SAMKVÆMT EINKASKEYTUM TIL ÞJÓÐyiLJANS í GÆR.
Molotoíí, forsætis- og þjoðfulltrúi Sovétríkjanna hefiu- svarað
tiikynningu Avenols, aðalritara Þjóðabandalagsins, um samankvaðn
ingu Þjóðabandalagsráðsins 9. des. og fundar bandalagsins 11. des.
Telur sovétstjórnin samankvaðningu ráðsins og fundarins á-
stæðulausa. Sovétríkin hafi viðurkennt alþýðustjórn Finnlands og
gert við hana samning er útkljái öll þau mál, er ágreiningur hafi
verið um við hina fyrrverandi ríkisstjóm Finnlands.
Aljiýðustjórn Finnlands hafi 1. des. snúið sér til sovétstjórnar-
innar með beiðni um hernaðarhjálp til að binda enda á það öng-
þveitisástand, er fyrrverandi valdhafar Finnlands hafi steypt landi
sínu í. Sovétstjórnin neitar því að stjórnin í Helsinki séu hinir
sönnu fulltrúar þjóðarinnar.
En þar sem Þjóðabandalagsráðið liafi samt verið kvatt sam-
an að beiðnir þessarar stjórnar, sjái sovétstjórnin sér ekki fært
að taka þátt í þeim samkomum
Samkvæmt fregnum frá Genf \ eyja, og sé það gert í samráði við
hefur Ryti-stjórnin tilkynnt Þjóða j sænsku stjórnina. Finnar hafa þeg
bandalaginu að hún hafi þegar haf j ar flutt lið til eyjanna og lagt
izt handa um víggirðingu Álands- tundurdufl í kringum þær.
Fregn frá London hermir að
Ryti-stjórnin hafizt enn við í Hel-
sinki, en áður höfðu borizt fregnir
um að hún hefði yfirgefið borginá
og tekið sér aðsetur í smáþorpi
skammt frá höfuðborginni.
Talið er að aðeins fjórði hluti
íbúanna sé eftir í Helsinki, og er
stöðugt unnið að brottflutningi
fólks úr borginni.
Samkvæmt finnskum heimildum
standa yfir ákafir bardagar nyrzt
í landinu, í grend við Petsamo.
Hafi finnskar flugvélar haft sig
mjög í frammi, og m. a. kastað
eldsprengjum yfir flugvöllinn í
Múrmansk og ráðizt á sovétherlið
er var á leið til Petsamo frá Múr-
mansk og tvístrað því.
Halldór Kiljan Laxness.
I Víðsjá Þjóðviljans í dag skrif-
ar Ilalldór Kiljan Laxness um
Sjtephan G. Stepliansson og útgálu
Máls og menningar á „Andvökum”
Samkvæmt opinberri tillcynn-
ingu fór Winter, sendiherra Sví-
þjóðar í Moskva, á fund Molotoffs
í gær (4. des.) og tilkynnti hon-
um að Ryti-stjórnin væri fús til
að hefja að nýju saœkornulagsum-
leitanir við- soovétstjórnina.
Molotoff svaraði því, að sovét-
stjórnin viðurkenndi ekki Ryti-
stjórnina sem löglega stjórn Finn-
lands, enda væri liún búin að yfir-
gefa höfuðborg landsins, Helsinki,
og enginn vissi hvar hún hefðist
við. Sovétstjórnin taldi allar sam-
komulagsumleitanir við slíka
Fjölgad í at~
vínnubótavínn-
unnL
Atvinnuleysisnefnd Dagsbrún
ar átti í gær tal við borgar-
stjóra. Ræddi hún við hann um
^tvinnuleysisinálin og gerði
kröfur fyrir hönd félags síns
um að þegar yrði f jölgað í at-
vinnubotavinnunni. Lofaði borg
arstjóri því, að næsta fimmtu-
dag skyldi fjölgað í atvinnu-
bótavinnunni upp í 400. Með
þessi málalok fór nefndin og
mun hún endurtaka viðræður
sínar við borgarstjóra í næstu
vikm
Frá Alþingí.
Á fundi neðri deildar í gær var
samþykkt að vísa til stjómarinn-
ar frv.. til laga um verkstjórn í
opinberri vinnu. Tilgangur frum-
varpsins var að tryggja það að
ekki hefðu aðrir verkstjóm í opin-
berri vinnu en þeir, sem staðizt
hefðu próf því skyni. Afturhalds-
klíkunni mun hafa þótt vald sitt
of rýrt með þessu fmmvarpi, en
^erkstjórasamband Islands hafði
átt frumkvæði að því. Talaði Her-
mann Jónasson mjög á móti frv.
og fékk það fram að því var vís-
að til ríkisstjómar með 15 atkv.
gegn 2.
Annars var tíðindalaust á þingi.
Ekki bólar enn á hagsmunamálum
fólksins. Dýrtíðin vex, en þjóð-
stjórnarliðið situr rólega við bitl-
ingajötuna og lætur sig vandræði
alþýðu engu varða.
Bæjarstjómarfundur verður
haldinn í Kaupþingssalnum á
morgun kl. 5 síðdegis. Fyrir fund-
inum liggja 15 mál, þar á meðal
reikningar Reykjavíkurbæjar og
hafnarinnar fyrir síðastliðið ár.
Ríkisskip. „Esja” var væntanleg
til Vopnafjarðar kl. 8 í gærkvölai.
Tílkynníng Rdssa
um hernaðarað-
gerðír 4. des.
Hernaðartilkynning foringja-
ráðs Leningrads-hemaðarsvæðis:
„Her Leningrad-hernaðarsvæðis
ins hélt áfram sókn sinni 4. des-
ember. 1 átt frá Múrmansk sækir
herinn fram eftir sigursælar or-
ustur við Petsamo, og hefur fylgt
eftir finnska hemum sem þama
er á undanhaldi, 25 km. suður sf
borginni Sovétherskip vinna að
slæðingu tundurdufla í höfninni
Petsamo. 1 stefnuna Uchts, Re-
pola Prososero hefur sovéther sótt
ram 45—50 km. frá landamærun-
um. I stefnu frá Petrosavodsk hef
ur sovétherinn eftir töku bæjarins
Salmis á Ladogaströnd og jám-
brautarstöðvarinnar Leimola nor
ur af Salmis, haldið áfram sókn.
Á karelsku landræmunni hefur
sovéther nú sótt fram 45—-50 km.
frá landamærunum. Vegna óhag-
stæðra veðurskilyrða hefur loft-
flotinn ekkert haft sig í frammi”
stjórn óhugsandi. Sovétstjórnin
viðurkenndi hinsvegar stjóm al-
þýðulýðveldisins Finnlands og
hefði gert við hana samning um
vináttu og gagnkvæma hjálp, og
væri hann öruggur grundvöllur að
þróun friðsamlegrar og farsællar
sambúðar ríkjanna.