Þjóðviljinn - 14.12.1939, Side 3
þjóðvtljinn
Fimmtudagurinn 14. des. 1939,
Þörbergnr Þórðarsson
frædímadur, spámaður og sháld, fímmfugur
Effír dr. Sfefán Eínarsson. — Heímskríngla Reyhjavib 1939.
i " * *
I
f
Æ- P. R- E
Máli'undahópui’inn heldur fund
í kvöld kl. 9 í Hafnarstræti 21.
Félagar fjölmennið og mætið
stundvíslega.
Hæstarettardómur. 1 gær var
kveðinn upp dómur í Hæstarétti
yfir Ölafi Magnúsi Einarssyni,
fyrir þjófnað. Var hann dæmdur
í 6 mánaða fangelsi við venjulegt
fangaviðurværi. Ölafur hefur áð-
ur verið dæmdur fyrir sömu af-
brot.
Stefán Einarsson háskólakennari í
Baltimore, er all mikilvirkur rithöf-
undur um islenzkar nútímabókmennt
ir. Hefur alhnargt af ritgeráum
hans um þau efni birzt í íslenzkum
blöðlim og tímaritum og þó eink-
um Iðunni og Tímariti Þjóðræknisfé-
lagsins. Má af þessu nefna rit-
gerð um Jón Trausta, sem vafalaust
' er sú bezta, sem enn hefur verifí
skrifuð um þá mikilvirku hamhleypu
í íslenzkum bókmenntum. Þá hefur
hann ritað góða og all ýtarlega rit-
gerð um Einar H. Kvaran. Allt það,
sem Stefán skrifar ber á sér blæ
vammlausrar fræðimennsku, og
fyllstu nákvænmi.
Nýlega hefur Stefán sent frá sér
nýja bók, sem nefnist: Þórbergur
Þórðarson — fræðimaður — spámað
ur og skáld fimmtugur, og hef-
ur Heimskringla gefið hana út. Bók
þessi ber með sér öll hin sömu
einkenni og fyrri ritgerðir Stefáns
og er þeirra ýtarlegust, enda all-
stór bók, um hundrað blaðsíður.
Bókin hefst á kafla, sem Þórberg-
ur ritar sjálfur og nefnist hami End-
urfæðingarkronikan, telur Þórbergur
þar upp endurfæðingar sínar allar,
því að hann er maður marg endur-
fæddur. I raun og veru er þessi
innangskafli ramminn um bókinaog
markar útlínur allar í ævisögu Þór-
bergs. Nú má vera að ménn skilji
ekki við hvað Þórbergur á með end-
urfæðingu, því að menn hafa löng-
um talið þær til hins yfirskilvit-
lega. En Þórbergur hefur að jafnaði
verið svo hugfanginn af viðfangs
efnum sínum, að venjuleguni sljó-
um mönnum finnst furðu sæta og
áhugjnn svara til þess fyrirbrigð-
is, sem menn kannast við að af-
staðinni endurfæðingu eins og þær
gerðust á gömlum og góðum tfmum,
þegar kraftaverk áttu sér staðöðru
hvoru og ævintýrin voru í sköpun.
Þórbergur hefur endurfæðst sex
sinnum og það er þessi stöðuga
endurnýjung lífdaga hans, sem Stef-
án Einarsson lýsir i bókinni, þar
sem hann dregur upp myndina af
fræðimanninum, spámanninum og
skáldinu Þórbergi 'Þórðarsyni.
Þegar Stefán hefur Iokið stuttr,
annálskendri ævisögu, snýr hann
sér að ritferli Þórbergs, sem er hin
raunverulega saga hans. Qerir Stef
án fyrst grein fyrir störfum hans f
þágu íslenzkra fræða, sem eru
rakin með mikilli alúð. Því næst
hofst kafli um Þórberg Þórðarson
og austræn fræði, en um eitt skeið
var Þórbergur mjög upphafinn af
þeim og mundi sennilega hafa
gerst einn rammasti yoki, er aldur
færðist yfir hann, ef ekki hefði dun
ið yfir hann ný endurfæðing og
sveiflað honum yfir á svið sósíal1-
ismans, en um Þ. Þ. og jafnað(ár-
stefnuna fjallar fjórði kafli ritsins.
Þá ritar Þórbergur Bréf til Lár,u og
um liana varð meiri úlfaþytur en
dæmi eru til um nokkra íslenzka
bók. Rekur Stefán í kafla þessum
stjórnmálaferil Þórbergs og afskipti
hans öll og skrif ó þessu sviði. Hér
verður þó dálitil eyða í, því hvergi
er minnst á ritgerðir Þórbergs af
því tagi, sem birst hafa í Þjóðvilj-
anum í rúm tvö ár. Stafar þetta
vafalaust af ókunnugleika höfund-
Þórbergur Þórðai’son.
arins og löngum fjarvistum frá Is-
landi.
Þó kemur Stefán að baráttu Þór
bergs fyrir alþjóðamálinu, sem vitan
lega er runnin af sömu rót og
því hvernig á alþjóðlegasinnaður
barátta hans fyrir sósíalismanum,
maður að ganga fram hjá alþjóða
málinu, þó að esperanto sé eitt og
sósíalismi annað þá snertast bæði
þessi verkefni i því að rjúfa þá
múra, sem mennimir og marg-
breytileiki tungnanna hefur byggt á
milli þjóðanna, fáum til gagns en
fjölda manna til hörmunga.
Að lokum hefst síðasti meginkafli
bókarinnar og nefnist hann: Skáld-
ið. Gerir Stefán þar grein fyrir
skáldritmn Þórbergs, frá Hálfum
skósólum að íslenzkum aðli, skýrir
hvernig ritverk Þórbergs á þessu
sviði eru runnin úr jarðvegi sam-
tiðarinnar, lýsir sérkennum hansog
áhrifum á rithöfunda samtíðar sinn-
ar, og hvernig Þórbergur brýtur ó-
kunnar brautir og nemur ný lönd
á bókmenntasviðinu, og verður þar
fyxirmynd yngri rithöfunda, þó að
leiðir þeirra liggi mn önnur svið.
Það er einn fjölþættasti maður-
inn úr hópi íslenzkra nútímarithöf-
unda, sem Stefán Einarsson lýsir
i þessari bók. Slikum mönnum er
að jafnaði erfitt að lýsa. í fjöl-
breyttninni felast oft annmjarkar
þeirra, svo var það til dæmis um
Benedikt Gröndal, og af sömú rót-
um eru þeirra beztu verk oft runn
in. Aðeins marglyndir menn geta
samið Heljarslóðarorustu og Bréf
til Láru, Vitanlega hefði Þórbergur
unnið meira að íslenzkum fræðum,
ef hann hefði aldrei gefið sig við
öðru, en þá hefði hann aldrei ritað
Islenzkan aðal eða Bréf til Láru, og
án þess að vera slingur á íslenzk
fræði hefði hann aldrei ritað þær
þækuir í sinni núverandi mynd. Stef
áni tekst yfir höfuð vel að draga
upp heildannynd úr hinum mörgu
undstæðuni í lífi Þórbergs og verk-
um hans, enda hnígur fjöllyndi hans
að einum ósi, að leit hins sannasta
og réttasta í hverju máli sem er.
I dómum Stefáns gætir að jafnaði
þess sarna hófs, sem einkennir aðrj
ar ritgerðir hans, og bókin er ój
missandi fyrir hvem þann, er vill
lesa Þórberg niður í kjölinn.
Sagt er, að Stefán eigi í fórum
,sinum eða í smíðum, bók allmikla
um Halldór Kiljan Laxness. Þegar
lokið er lestri á ævisögu Þórbergs
spyr maður ósjálfrátt um fram-
haldið. Hvenær kemur bókJh um 1
Laxness og svo alla hina höfundana !
sem hafa gert garðinn frægan?
H. S. ,
Gúniinívlnna-
stofan
Aðalsfræíí 16
framhvæmír alíar gúmmí*
víðgerðir vandaðast og-
ódýrast.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Mar-
grét Þórðardóttir og Hans Jóns-
son starfsmaður hjá Rafveitunni
Nýsodín
Svíð
daglega
Kaffisalan
Hafnarstræfi 16
!
I
BYLTINGIN
Á SPÁNI
Áskriftarverð aðeins
kr. 7,50.
Ódýrasta jólabókin.
Fróðleg. Spennandi.
Ýfarlcgt yfírlít yfír
|borgarastyrföldína á
Spání og aðdraganda
hennar.
237 bls. Fjöldi mynda.
Kemur út á laugardag-
inn. — Þangað til geta
menn enn gerzt áskrif-
endur. — Listi í Bóka-
verzlun ísafoldarprent-
smiðju.
Til jólanna 1939
verður vissara að kaupa í tíma. Við höfum nokkuð
mikið úrval af hinum heimsfræga Schramberger
Kunst-Keramík, handslípuðum Kristal og ófal ieg-
undir af Barnaleíbföngum, Jólatrjám, Klemmum, Snjö
og Skrauti, Kerium, Spilum, Stjökum, Blysum, Kin-
verjum, Jólapokaörkum, Jólaservíettum o, s. frv.
K. Eínarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
Nýfræ$astí rífhöfundur Ameriku á íslenzku :
Kátir voru karlar...
eftír JOHN STEINBECK.
KARL fSFELD bladamaður íslenzkaðí.
Þessi saga gerist í Monterey, seni er smáborg á hinni sólgyltu
strönd Kaliíorníu. Segir hún á hnyttinn og sltemmtilegan hátt frá
nokkruin glaðlyndum náungum, er þar eiga lieima — frá ástaræv-
intýrum þeirra, því að þarna eru kátar og fjörugar konur, sem
setja sunnudagsandlitið oftar upp en tvisvar í viku, — frá drykkju-
skap þeirra og róstum — frá því livernig þeir tengdust vinabönd-
um og hvernig leiðir þeirra skildust að lokum. — Þetta eru heið-
ingjar með sólblik i augum, og öllum þykir vænt um þá, sem kynn
ast þeim.
Það leíðísf engum um jólín, sem les þessa bók
Hún er fílvalín jólagjöf handa kunnín$junum.
/Aikki Mús lendir í æYÍntÝrum. 218
En góði Músíus, ekki ferð þú að
lífláta Mikka fyrir það, að hann
hefur setzt í hásætið. Hann gerði
þar til að hjálpa þér,
Það er rétt og satt Pál-
ina. En þjóðin krefst
þess að konungurinn
framfylgi lögunum. Og
Mikki hefur
gert úr mér góðan konung
En Mikki vinur, ég elska
þig eins og bróður. Þú hef-
ur bjargað lífi mínu.
Eg get ekki afborið að sjá þig líf-
látinn, og ætla því ekki að vera
við, þegar þvi verður hengdur í
gálgann.