Þjóðviljinn - 20.12.1939, Síða 1

Þjóðviljinn - 20.12.1939, Síða 1
IV. ARGANGUR. MIÐVIKUDAGINN 20. DES. 1939. 294. TÖLUBLAÐ. Eíga hundrud manna að sífja i margföldum embæft~ um og víð hálaun, meðan skorfurínn sverfur að alþýðu Reiði fólksins út af bitlingaaustri og hálaunum valdaklíkunnar hefur farið sívaxandi. Það er blóðugt að horfa upp á það, þegar vinn andi stéttirnar skortir hið nauðsynlegasta til lífsins, að milljónum króna skuli vera eytt í hálaun og óþarfa bitlinga. Hinsvegar hefur valdaklíkan ekki hreyft við þessari spillingu í þjóðlífinu, því stjórn- arflokkarnir eru allir samábyrgir orðnir um þetta. Nú hafa því þingmenn Sósíalistaflokksins, Brynjólfur, Einar og ísleifnr, lagt fram þingsályktunartillögu, sem stefnir að því að framkvaema nauðsynlegan sparnað á þessu sviði. Tillaga þeirra er á þessa leið: Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjórnina: 1. Að láta endurskoða launalög- gjöf landsins í því skyni, að lækka hálaun og draga úr óþörfum launa greiðslum, og sé sú regla upp tek- ín, að hámark árslauna sé 8000 krónur. Skal rikisstjórnin leggja tillögur sínar fyrir næsta reglulegt Alþingi. 2. Að láta gera nákvæma skýrslu um allar launagreiðslur hins opinbera og á grundvelli þeirra athugana að draga úr út- gjöldum fjárlaganna, með afnámi óþarfra launaðra embætta og starfa og með því að láta allar ó- þarfa greiðslur niður falla. Greinargerð. Tillögur þessar þurfa ekki langra skýringa við. Aílir tala nú um, að ástandið sé þannig, að nauð syn beri til þess að grípa til gagn- gerðra sparnaðarráðstafana, meira að segja verði ekki hjá því komizt að draga stórlega úr útgjöldum sem ekki orkar tvímælis um, að telja verður til allra óhjákvæmi- legustu útgjalda ríkisins, ekki sízt á þessum tímum. T. d. hafa komið tillögur um að draga stórlega úr útgjöldum til opinberra fram- kvæmda, og hafa sumar þeirra verið samþykktar, enda þótt at- vinnuleysi sé eins og það hefur mest verið og yfir vofi, að það auk ist stórum, samtímis því, sem stöð- ugt fækkar úrræðum alþýðu manna til þess að geta framfleytt lífinu. — En hvað sem líður rétt- mæti þess, að nauðsyn beri til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs venju fremur, þá er það víst, að öll alþýða til sjávar og sveita vill hafa ódýra ríkisstjóm, og er sam- mála um, að ef þarf að spara, þá á að byrja á því að draga úr hálaun um, „bitlingum”, aukagreiðslum og allskonar óþörfum greiðslum, en hitt þykir alveg furðulagt, að ráða menn þjóðarinnar skuli fyrst láta sér detta í hug að draga úr at- vinnu og framkvæmdum af hálfu hins opinbera, en hirði ekkert um hitt, þótt hundruðum þúsunda af útgjöldum ríkisins sé varið til ó- þarfrar eyðslu. Samkvæmt tillögum milliþinga- nefndar í launamálum 1934 var hægt að spara yfir 700 þúsund krónur. Lítinn vafa teljum við á því, að við samvizkusamlega athug un myndi koma í ljós, að nú væri hægt að spara mun meira. Látið Mæðrastyrksncfndina koma iólagiðfam yfefear til hinoa snauöu Ef þú vilt og getur lagt eitthvað , af mörkum til þess að gleðja I snauða um jólin, þá annast Mæðra j styrksnefndin milligöngu fyrir þig - ef þú óskar þess. Nefndin hefur um margra ára skeið haft samband við fjöldann allan örsnauðra fyrir- vinnulausra heimila, og fáir munu þekkja þessi heimili eins vel og þær konur, sem í nefndinni starfa, Flest þessi heimili fá að vísu styrk frá bænum. Hann er eins og allir vita ekki til þess að lifa á honum sómasamlegu lífi, og má þá nærri geta hvort hann endist til þess að gera dagamun á jólum eða endra nær. Á þessum heimilum er ekki um neina jólaglaðningu að ræða nema að til komi hjálp góðra manna. Mæðrastyrksnefndin hefur skrifstofu í Þingholtsstræti 18. Þangað géta menn komið jólagjöf- um, peningum, fötum eða mat- vöru, eftir því sem hver getur helzt látið af hendi rakna til nefnd arinnar, þeim er veitt viðtaka alla daga frá kl. 4—7. Nefndinni er kærkomið að fá jólapakka sem hver og einn getur útbúið eins og handa sínu eigin bami, og hún mun koma þeim til þeirra, sem annars fá engan jólapakka, Æ. F. R. Annað kvöld kl. 8 halda Æ. F. R. stúlkur brúðu- og leikfangabazar. Verður þar fjöl- breytt úrval af brúðum og jóla- sveinum, stórum og smáum. Ef þið viljið gefa börnum ykkar brúðu í jólagjöf, fáið þið hana ó- dýrasta og bezta á bazar Æ. F. R. stúlkna. Chamberlain. Herirád Banda~ manna á fundí í Paris, EINKASKEYTl' TIL ÞJÓÐVILJ. Æósta herráð Bandamanna kom saman í París í dag, og voru m. a. viðstaddir Chamberlain forsætis- ráðherra Bretlands og Daladier. forsætisráðherra Frakklands, og hershöfðingjarnir Gamelin og Iron side. Á fundinum hélt Daladier ræðu og óskaði hann Bretum til hamingju með sigurvinninga þeirra í sjóhernaðinum. Eftir fund- inn var tilkynnt, að fullt samkomu lag hefði náðst um öll þau mál er rædd hafi verið. Þýzkar fregnir skýra frá því að fjöldi brezkra flugvéla hafi reynt að ráðast á hernaðarbækistöðvar Þjóðverja á Frísnesku eyjunum og norðurströnd Þýzkalands, en orðið frá að hverfa án þess að þeim hefði tekizt að valda tjóni. Lögðu þýzkar flugvélar til orustu við brezku flugvélarnar og telja Þjóð- verjar að þeir hafi skotið niður um 30 flugvélár en aðeins misst fáar. Frá Alþíngí í gaer, Fátt merkilegra tíðinda gerðist á Alþingi í gær. I neðri deild voru framfærslulögin til fyrstu um- ræðu og var þeim vísað til annarr- ar umræðu og nefndar. Annars fór mestur tími þingmanna í að ræða um eyðingu hrafns og svartbaks og virtust þingmenn hafa stórum rneiri áhuga fyrir þeim málum en vandamálum þeim er snerta fólkið. I efri deild voru bráðabirgða- breytingar á ýmsum lögum (band- ormurinn) til umræðu. Þar á með- al var rætt um fólksflutninga úr Rússnesldr sjóliðar. Sovéthersækirfram í Norður-Finnlandi Lítíð um bardaga á öðrum vígstöðvum SAMKVÆMT EINKASKEYTUM TIL ÞJÓÐVILJANS I GÆR. Öllum iregnum ber nú saman um að sovétherinn sæki fram á nyrztu vígstöðvunum í Finnlandi og sé finnsld herinn þar á undan- lialdi. Hinsvegar virðist vera mjög litið um orustur á öðrum vístöðv- um, því að hvorugur aðili birtir þaðan stríðstilkynningar. Loftárásir voru gerðar á Helsinki og ýmsa aðra staði í Finnlandi I dag. Segja fiimskar fregnir að 12—18 sovétflugvélar hafi tekið þátt í árásurium, en aðeins nokkrar þeirra komizt inn yfir borgina. Um skaða af árásunum hefur ekki frétzt. Síðasta hernaðartilkynning for- ingjaráðs Leningrad-hemaðarsvæð is er svohljóðandi: „Sovéther sótti fram á Norður- vígstöðvunum 18. des., og tók á vald sittPitkajárvi, sem er 85 km. suður af Petsamo. Á öðmm víg- stöðvum urðu aðeins skærur milli könnunarflokka, nema hvað nokk- uð var um stórskotahríð á Kyrjála eiðinu. Talsvert var um hemaðar- aðgerðir í lofti. Nokkur skip Eystrasaltsflotans héldu uppi skot hríð á strandvirkin á Björkö-svæð- inu”. > Yfirherstjóm Bandaríkjanna hefur samþykkt að stuðla að því að Ryti-stjóminni verði veitt öll hugsanleg efnaleg hjálp. Fjórða bób Máls og menn- íngar ,Húsakostur og híbýla- prýdí' kemur út í dag. Fjórða bólí Máls og menningar á þessu ári kemur út eftir hádegi í dag. Er það bókin Húsakostur og híbýlaprýði, rituð af ýmsum ung- um sérfræðingum í húsagerðarlist, en auk þeirra eiga þeir Gunnlaug- ur Claessen dr. med., Aron Guð- brandsson forstjóri og Halldór Laxness rithöfundur sína greinina hver í bókinni. Bókin er 122 blaðsíður í sama broti og Vatnajökull, sem flestir af meðlimum Máls og menningar kannast við. En auk þess eru í bók inni 118 myndir og teikningar, flestar prentaðar á gljápappír. kaupstöðum upp í sveitirnar. Páll Zophoníasson talaði meðal annars um, hvernig þingað hugsaði sér að flytja fólk upp í sveit á sama tíma og lífsmöguleikar í sveitum væru stórlega skertir frá því sem nú er og styrkir lækkaðir. Fletti Páll miskunnarlaust en góðlátlega ofan af grilllum ýmsra þjóðstjórnar- manna í þessum efnum og sýndi fram á, hve fráleitar þær eru allri rökhyggju og viti. Bókin hefst á grein eftir Hörð Bjarnason húsagerðarmeistara og er grein hans sögulegt yfirlit um byggingar og byggingastil aftan úr grárri fomöld. Sigurður Guð- mundsson húsameistari ritar um „Húsastíl og stílmenning”. Þór ir Baldvinsson húsameistari ritar um „Heimili sveitanna”. Einar Sveinsson húsameistari um „Fýr- irkomulag og gerð íbúðarliúsa í kaupstöðum”, Helgi Hallgrímsson „Ágrip af sögu húsgagnanna” Skarphéðinn Jóhannsson „Heimili og húsgögn”. Sigurður Guðmunds- son „Hitaval”. Eirikur Einarss'oh „Skrúðgarður”. Gunnlaugur Claes sen dr. med. „Hollustuhættir”, Ar- op Guðbrandsson forstjóri „Um lán til bygginga”, og Halldór Kilj- an Laxness „Sálarfegurð í manna- bústöðum”. Bókin verður afgreidd til félags- manna í Máli og menningu, en nokkur eintök verða til sölu í bóka verzlunum og kosta þau kr. 9,00 óbundin en kr. 11.50 í bandi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.