Þjóðviljinn - 19.02.1941, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 19.02.1941, Blaðsíða 4
Þín sekt er uppvís, afbrot mörg og stór, og enginn kann að verja málstað þinn. Ó, græna jörð, þar Shakespeare forðum fór til fundar við hinn leynda ástvin sinn. Þú brennur upp, þér gefast engin grið, og gamalt bál þú hefur öðrum kynt. Ó, lát þér hægt, þó lánist stundarbið, að lokum borgast allt í sömu mynt. \ Og jafnvel þó á heimsins nyrztu nöf þú næðir þrælataki á heimskum lýð, það varð til einskis, veldur stuttri töf. Það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð. Steinn Steinarr. Sfyrkþcgamíir glcycndusf Framhald af 1. síðu. umskapað almenningsálitið í hverju máli varðandi kaup og kjör verkalýðsins sér í hag. Einnig gera nú hinir opinberu starfsmenn hjá ríki og bæ, sem bundnir eru á klafa ríkis- valdsins og mega sig hvergi hræra, geta ekki einu sinni boðið hinum háu herrum að horfast í augu við beittasta og bezta vopn verkalýðsins: verk- fallsréttinn — kröfur um launabætur. Þeir verða því aö fara bónarveginn, sem auð- mjúkir þjónar og láta ráðast hvað milljónamæringunum þóknast að skammta þeim úr sínu nægtabúri. — Hefur þá enginn gleymzt? Eru þá allir saddir, eða hafa góða von um að seðjast? Þess væri óskandi. en mikið mætti þá högum vor- um vera breytt til batnaðar í þessu litla auðvaldsþjóöfélagi okkar, sem Jónas frá Hriflu og Ólafur Thors reka sem gróða- fyrirtæki, ef hvergi væri til hinir útskúfuöu. Jú, þeir eru til, því miður. Það eru styrk- þegarnir, menn og konur, sem sökum veikinda, slysfara og fyrirvinnumissis — ekkjur og aldraðir foreldrar — sem geta ekki unnið erfiðisvinnu og verða því eftir langvinnt sál- arstríð og jafnvel hungur, að taka þá ákvörðun, sem er sú hryggilegasta í ævi flestra styrkþega, að biðja hið opin- bera um lífeyri, sem það er þó lagalega skylt að veita án þess að viðhafa nokkur undan. brögð, eöa að reyna með sví- virðilegum ráðum að drepa sjálfsvirðingu þeirra, sem til bæjarins leita og láta líta svo út, sem styrk urinn sé ölmusa, er veittur sé frekar af hjarta- gæzku en þjóðfélagslegri skyldu. Haft er það eftir óljúg fróðum manni, að einn „fá- tækrafulltrúinn”, sem kunnur er aö fruntaskap við styrkþega hafi sagt við unga konu, sem vinnur fyrir börnum sínum einsömul og leitaði til hans um styrk, að svona ung og girnileg kona þyrfti ekki að biðja um styrk eins og ástand- ið væri nú hagstætt fyrir ung- ar konur! Þetta er táknrænt svar við málaleitun alþýðunn- ar, frá valdhöfunum. Margur heidúr mann af sér, má segja um'þá menn, sem nú sitja að völdum hér á landi og eru orðnir svó sýktir af mútustarf- semi og sannfæringarsölu, af öllu frjálsu og stolnu — og ekki sízt síðan sá kom, sem hefur full efni á að greiða vel fyrir sálirnar — að þeir gera ser ekki grein fyrir því, að til eru íslendingar, sem enn eru óspilltir af þessari mútusýki, þó hún dafni nú vel á hærri stöðum og sé að kæfa alla frjálsa hugsun og athafnir þrátt fyrir hinn óþjóölega og hættulega fleðuskap og undir- lægjuhátt valdhafanna við hinn brezka „verndara”, eru þó til menn og konur, :sem liafa þann þjóðarmetnað að .vilja ekki selja líkama sinn eða sál fyrir hið brezka gull, en slíkt athæfi er nú talið land- ráð, að vilja halda hinum ís- lenzka málstað óflekkuðum og menn dæmdir í margra ára fangelsi fyrir það, að vilja vera íslendingar! Við þurfum ekki að öfunda Norðmenn yfir Quislingunum. Þeir íslenzku fara í fötin þeirra! — Styrk- þegar eru búnir að sannreyna það, að frá „fulltrúum“ sínum fá þeir þetta eina svar: Seldu þig, og ef það er ekki gerlegt, þá leptu dauðann úr skel. Sósí- alistar einir hafa munað eftir styrkþegum og borið fram til- lögu á bæjarstjórnarfundi um að hækka framfærslustyrkinn, en því hefur ekki veriö sinnt og er þaö ekkert undarlegt, þó að bæjarstjórnaríhaldið látl sig litlu varöa um kjör þeirra, því aö þaðan er einskis góös Orrborgtnnt Næturlæknir í nótt: Pétur Jakobsson, Vífilsgötu 6, sími 2735. Næturvörður er þessa viku í Reykjavíkur apóteki og Lyfja- búðinni IÖunni. Dtvarpið í dag: 12,00 Hádegisútvarp. 13,00 Þýzkukennsla, 3. flokkur 15,30—16,00 Miödegisútvarp. / 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19,00 Þýzkukennsla, 1. fl. 19,25 Þingfréttir. 19.50 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a) Knútur Arngrímsson kenn- ari: Robert Bruce, þjóöhetja Skota. Erindi. / b) 21,00: Skozk þjóðlög (plöt- ur). c) 21,10: Vigfús Guðmundsson gestgjafi: Frá Yellowstone- garði. Erindi. a) 21,30: Ragnar Ásgeirsson ráðunautur: Strokið úr vist- inni í Danmörku. Frásaga. 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. að vænta, en hitt er því undar- legra að fulltrúi alþýðunnar í framfærslunefnd, Arngrímur Kristjánsson — hann telur sig, vist vera þar fyrir alþýðuna — skuli ekkert láta heyra frá sér um afstöðu sína í þessu máli, og ekki einu sinn taka málstaö hennar. Og það er ekki nóg með það, að styrkþegar séu ennþá sveltir með 80 aura líf- eyri á dag fyrir hvern mann, lieldur er þeim, sem áöur hafa verið styrkþegar, en eru nú famir aö vinna, íþyngt svo með sköttum — jafnvel farið að innheimta margra ára gamlan framfærslustyrk, sem á aö vera óafturkræfur, — aö það liggur við borö, að menn séu verr settir en áður og verða aö beita ýtrustu spar- semi til þess að hafa ofan í sig að éta. Það virðist vera. takmark stjórnarvaldanna að mynda hér einskonar City- auðvald nokkurra milljóna- mæringa og stjórna í krafti þessa auðmagns að fasista- hætti, en verkamenn skulu aldrei mega um frjálst höfuð strjúka og rétta sig úr krepp- unni, rétt aðeins að þeir geti skrimt þaö af. Krafa okkar verkamanna er sú, að við fáum að njóta arðs- ins af vinnu okkar og verðum gerðir skattfrjálsir á meðan við erum að koma fótum undir okkur, svo að við getum sóma- samlega séð fyrir fjölskyldum okkar og alið upp hreina ís- lendinga, án þess að óttast landráöaákæru fyrir slíka starfsemi! Hollt er heima hvað — nema þjóðstjórnin. Verkamaður. <><><><><><><><><><><><><><><><>0<><><><><><><><><><><><><><><><><><>C 35 Anna Liegaard Skéldsaga cftir Nini IRoll Anker Hann fann að þetta gat ekki gengið svona til lengd- ar. Sumarið hafði aðeins verið undirbúningur að úr- slitaátökunum. Um miðjan september gerði versta fárveður. Storm- urinn stóð af hafi, öðru hvoru komu rigningardembur svo að dundi á rúðunum, en stytti fljótt upp aftur, ský- in æddu um himininn, en máttu ekki vera að því aö gefa frá sér regnþungann. Fjörðurinn var allur í kófi, laufið sópaðist af trjánum við efra veginn. Uppi á ásn- um var veðurofsinn svo mikill að grenitré fifnuðu upp, og í skóginum dundi og ýlfraöi rokið. Um miðja nótt eftir þriðja óveðursdaginn hringdi sím- inn við rúm Roars. Anna var nýbúin að kveikja, hún sat uppi í rúminu og hlustaði á skröltið 1 lausu þak- hellunum. Og meðan Roar var enji með símtólið við syr- að, sagði hún: „Það mætti segja mér, að það tæki af öllu þakinu í nótt. Það hefur verið lag á því hjá okkur þegar þið lögð- uð á nýju þakhellurnar. Þaö var hringt eftir lækni frá Reistad, Helvig gamli konsúll hafði fengið nýtt hjartaáfall. Hestur og vagn voru á leiðinni að sækja lækninn. Meðan hann klæddi sig, hélt Anna áfram að mæöast um þakið. Hann svaraöi gremjulega, að hann heföi gam- an að sjá aö hægt væri að ganga svo frá þakhellum að svona rok hreyfði þær ekki. Þaklagning væri heldur ekki atvinna sín. Nei, en það reið á því, aö gera allt samvizkusamlega. Hún minntist þess, að þegar hún loks gat drifið þá Per til að gera við þakið, höfðu þeir verið grunsamlega fljót- ir að því, höfðu sjálfsagt kastaö til þess höndunum. Ro- ar kærði sig ekkert um að halda húsinu við. Já, hún hafði oft hugsaö um það meöan hún var veik, að allt yrði látið drabbast niður, ef hennar missti við. Stund- um efaðist hún um að hann kærði sig um þetta heimili þeirra. Vindhviða skall á húsveggnum svo að allt inni hrist- ist. Þannig hafði veðrið látið dögum saman, og það hafði tekið á þau bæði. Roar svaraði Önnu fullum hálsi og hún lét sig ekki. Þegar hann sat í einéykisvagninum og ók 1 áttina til Reistad í rokinu og myrkrinu, óskaði hann þess að hann mætti'halda áfram að aka burt, burt, og snúa aldrei við. Á Reistad tók gamla frúin á móti honum í forstof- unni. Gráklædd, meö hvíta slæðu um höfuðið, stóð hún hreyfingarlaus við breiða stigann, líkari myndastyttu en manneskju. Stóru, djúpu augun voru líkust augum blindra. Án þess að taka hendurnar fram undan slæð- unni, sagði hún: „í þetta sinn hefur hann þaö ekki af, Liegaard. En hann vill ekki deyja. Ef þér gætuð fengið hann til að vilja það, læknir. En hann trúir því enn að hann sé sterkari: Hann trúir því enn”. Þegar Roar gekk á eftir konunni upp stigann, minnt- ist hann Helvigs eins og hann sá hann síöast í klúbbn- um, — með þurrkuna undir hökunni og stóra blóðríka andlitið beygt yfir disk með ostrum. „Fimmtíu smádýr eða ekki neitt, læknir. í gamla daga voru menn sex um tunnuna — öllu fer aftur, bæði fólkinu og ostrunum. Nægjusamir eru þeir einir, sem eru ónýtir, kai'linn, það getiö þér borið Lars Helvig fyrir!” Og hann minntist þess góða tilboðs, sem þessi gamli herra hafði laumaö að honum fyrsta sinn, sem þeir hitt- ust í veizlu. „Ef þér lendið í einhverju klandri hér í bænum, ungi maður, skuluð þér bara skrifa það hjá mér. Við erum ekki ókunnug, kirkjubókin og ég!” Það var karl, sem hafði andað með báðum lungum alla ævi! Hann gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana, nei... Roar átti bágt með að trúa því, að hann væri bú- ínn að vera, það var ekki í fyrsta sinn, sem hann gekk upp þennan stiga, til þess að horfa á hann berjast og sigra. 0 ú ú ó <> 0 ■0 $ 0 0 OOOOOOO<OOOOOOOOOOO<OOOOOOOOOOOOOOOOO<

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.