Þjóðviljinn - 13.03.1941, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 13.03.1941, Qupperneq 4
Tónlistarfélagið og Leikfélag Reykjavíkur. „NITOUCHE" operetta í þrem þáttum eftir Harvé. Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag. ATH. Frá kl. 4 til 5 verður ekki svarað í síma. Næturlæknir í nótt: Karl S. Jonasson, Laufásveg 55, sími 3925. Næturvörður er þessa viku í Reykjavíkur-apóteki og Lyfja- búðinni Jðunni. Útvarpið í dag: 12.00—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 MiÖdegisútvarp. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19.00 Þýzkukennsla, 1. fl. 19.25 Þingfréttir. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Æskuár Winston Churchills (Sigurður Gríms- son lögfr.). 20.55 Hljómplötur: Létt lög. 21.00 Minnisverð tíðndi (Sig- urður Einarsson}. 21.20 Útvarpshljómsveitin leik ur lög úr óperettunni „Ni- touche“, eftir Harvé. 21.40 „Séð og heyrt“. 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. Óperettan „Nitouche“ verð- ur sýnd annað kvöld og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag. Revían „Hver maður sinn skammt“ verður leikin í kvöld kl. 8. Aögöngumiðasala eftir kl. 1. Lækkað verö eftir kl. 3. Hænsnabu brennur Framhald af 1. síóu. Það gekk vel að slökkva eld- inn, hafði hann verið slökktur að fullu klukkutíma eftir aö kviknaði í. En allmikið verk varð þó að vinna eftir það við að ganga tryggilega frá öllu saman. Dr. Helgi Tómasson kom þarna að frá Kleppi og bauð hjálp, ef þess þyrfti með. En til þess kom ekki. I Æ- F. R. 5» ♦!* **• Áhugasamir félagar beðnir að mæta á skrifstofunni Lækj- argötu 6 A milli kl. 6 og 7 í dag. KAUPUM FLÖSKUR OG GLÖS háu verði. — Sækjum samstund- is. — Sími 5333. Flöskuverzlunin Kalkofnsveg við Vörubílastöðina þJÓÐVILllNN MW M x SflW * Reybíavífeur Annáll hX Revyan verður sýnd í kvöld (fimmtu- ciag) kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1. Lækkað verð frá kl. 3. Það sem Þjóðvíljínn sagðí er þýzku feafbátarnír komu 1939 22. júli 1939 birti Þjóðvilj- inn fregnina um komu þýzku kafbátanna U 26 og U 27 hing- að. Fyrirsögnin var á þessa leið: „Þýzku kaíbátarnir komu í gær. íslenzki skipaflotinn fær að kenna á „kurteisi“ U 26 og U 27 þegar til ófriðar kemur“. Síðan hófst greinin í blað- inu með þessari setningu: „Við Löngulínu getur nú að líta drápstæki þau, sem m. a. eru ætluð til þess aö tortíma íslenzkum skipshöfnum og ís- lenzkum skipum í förum landa á milli“. Réöst Þjóðviljinn skarplega á þessa ,,kurteisisheimsókn“ og sýndi fram á hvað á bak' við byggi, en MorgunblaÖið hafði þá birt þær upplýsingar eftir þýzka konsúlnum, að kafbát- c-.rnir væru í heræfingum hér við land og heimsóknin í Reykjavík væri liður í heræf- ingunum. Blöð stjórnarinar töl uðu mikið um kurteisi þýzku stjórnarinnar og var þeim boö- ið um borð í kafbátana. Ærásiti á Fróda Framh. af 1. síðn. ar voru dregnir á hálfa stöng, búðum lokað og vinna stöðvuö. Hinir 5 skipverjar, sem eftir lifa, dvelja um borð í Fróða. Eru þeir ósærðir. Þorsteinn Eyfiröingur, eig- andi Fróða, sem venjulega hef- ui verið skipstjóri á honum, var ekki með þessa ferð. Sjópróf fara fram í málinu í dag. Það verður að gera ráðstafanir til að draga úr hættunni. Þaö veröur ekki annað álykt að en að hér hafi verið um þýzkan kafbát aö ræða, er hryðjuverk þetta framdi. Það var niðamyrkur, svo skipverjar gátu ekkert greint, en ganga verður út frá því. Það er heldur ekki hægt að álykta að hér sé um nein mis- tök“ að ræða, að Fróði hafi ver ið tekinn fyrir t. d. vopnað brezkt skip, — því það væri þá undarlegt, ef slík mistök hefðu ekki komið fyrir fyrr. Hér mun vera um það að ræða aö árásin á skipaleiðir vorar til Englands er að hefj- ast í sambandi viö þá sókn, sem þýzka herveldið hefur boð að nú í vor. Þannig verðum við að taka þetta hryðjuverk. íslenzka þjóðin vottar að- standendum fyrstu Islending- anna, sem með vopnum eru vegnir í því styrjaldarmyrkri, sem yfir oss grúir, dýpstu hlut tekningu sína og virðingu. En samtímis legst sú skylda css á heröar að finna leiðir til að dragaúr hættunni fyrir þá. sem eftir lifa af sjómönnum vorum. Mun það verða tekið nánar til athugunar í sam- ræmi við þau úrræði, sem á er bent í blaðinu í dag. 8 nýír kaup- endur í marz í marz hafa Þjóðviljan- um bætzt 8 nýir kaupend- ur. Allir sem skilja nauðsyn þess að gagnrýnin á gerð- um valdhafanna kæmi fyr- ir sem flestra augu ættu að vinna enn betur að því ætti enginn dagur að líða svo að ekki bættust við tveir nýir kaupendur að minnsta kosti. Ríkíssf jórnín kem ur loks með frv, um dýrtiðarupp~ bóf ftl handa starf smönnum rik ísíns í gær var útbýtt á Alþingi frumvarpi frá ríkisstjórninni um fulla dýrtíðaruppbót til starfsmanna ríkisins. Er auð- séð, aö ríkisstjórnin hefur farið að flýta sér með málið, eftir að þingmenn Sósíalistaflokks- ins komu fram með sitt frum- varp um helgina síðustu. Er það og auðséð á frágangi þessa stjórnarfrumvarps að kastaö. hefur veriö til þess höndunum, því á því eru ýmsir gallar. Mun vart hjá því fara að í meðferð málsins verði að sníða stjómarfrumvarpið eftir frum- varpi Sósíalistaflokksins, til aö gera það sómasamlega úr garði. ý<XXXXXX><XX>O^OOOOO«OOOOOO0OOO«>®C«OOC 63 Anna Liegaard Skéldsaga eftir Nini Noll Anker Henni varð það allt í einu ljóst, ef hún léti -ekki undan nú, missti hún hann. Hún varð að sleppa hon- um, ef hún vildi ekki missa hann það hafði móðir hennar sagt. ískaldur ömurleiki altók hana, án þess að líta upp sagði hún: „Eg skal fara, Roar. Það skal verða eins og þú vilt“. ÞaÖ varð þögult í húsinu eins og einhver lægi á lík- börum. Móðirin vék ekki að heiman dag eftir dag. Hún sýslaöi við ýmislegt smávegis, gerði að fötum, og sagði varla orð. Faðirinn var stilltur og vingjai’nlegur, næst- um hlýlegur við Önnu. Við boröið sagði hann: „Helltu öli í glasið hennar mömmu þinnar, Per. — Réttu mömmu þinni brauðið“. Þegar Per og Ingrid voru komin upp á kvöldin, heyrðu þau að foreldrarnir ræddust við lágt og ró- lega niðri 1 stofunni. Anna og Roar höfðu komið sér saman um, að þau skyldu ekki segja börnunum neitt fyrr en Per hafði lokið stúdentsprófi. Það gat haft slæm áhrif á hann. Smám saman komu þau sér saman um fleira, fyrst um sinn ætluðu þau ekki að láta yngstu börnin vita neitt, þeim átti að segja, að móðirin færi með Per til Oslo af því að hann ætlaði á háskólann. Eldri börn- unum ætluðu þau að segja eins og var þegar Per hafði lokið prófi. En ástæðuna ætti helzt ekki að láta þau vita fyrr en endilega þyrfti, fannst Önnu. Roar gerði ekki kröfu til aö halda neinu barnanna, en Anna hélt því fram að Sverre ætti að vera hjá honum. Hann væri á þeim aldri, að hann þyrfti föður við. Roar þakkaði henni. Ingrid ætti að fá að kjósa, sagði Anna, en líklegt var að hún vildi verða með tilöslo. Og hún bað manninn aö tala ekki um þetta við aðra, þau tvö ár sem tilskilin voru þar til hann mátt'i gifta sig aftur. „Það er ekki nema eitt ár“, sagði Roar, ef við kom- um okkur saman“. Það gat hún ekki ákveðið nú. Hún varð að tala við móður sína og Hans Jóhann. „Þeim get ég 'treyst“. Þegar sumarfríin byrjuðu í skólunum, ætlaði hún með öll börnin norður í Guöbrandsdal. Um haustið kæmi skilnaðurinn til framkvæmdar. Fyrr ekki. Frá því varð henni ekki þokað. • „Þú getur reynt að venja þig við einveruna í sumar“, sagði hún og leit rannsakandi til hans. Nóttina eftir að þetta var afráðið, ásóttu hana hugs- anir, sem hún ætíð síðan minntist með blygðun. Hana hafði langað til að fyrirfara sér. Hún hafði fróaö sér við tilhugsunina um að Roar fyndi þana. Það hafði komiö yfir hana eins og ölvun, hún hafði hugsað sér framkvæmdina alveg nákvæmlega. Eitur var til á heim- ilinu, það var bæði morfín og veronal í töskunni, sem Roar hafði með sér á læknisferðunum utanbæjar. Hún skyldi klæða sig í brúðarkjólinn sinn og leggjast á rúm- ið. Þar átti hann að finna thana. Þegar sólin skein inn um gluggann morguninn eftir, fannst henni hún verða að fela sig af blygðun. En sól- skinið yljaði höndum hennar eins og venjulega. Og í fyrsta og síðasta sinni þennan erfiða tíma grét hún milt og fróandi. Illar vættir höfðu sótt að henni, hún haföi ætlað að svíkja lífiö, sem lá og teygði sig langt frameftir og krafðist af henni kjarks og vinnu. Og hún ætlaði ekki að gefast upp. ! I Per varð hæstur við stúdentsprófið. Það var ef til vill ekki sérstaklega þakka vert, en foreldrana gladdi þaö innilega. Þeim fannst báðum það vera gjöf sem þau höfðu þörf fyrir. Daginn sem hann útskrifaðist, höfðu þau steik og vín til miðdags. Börnin voru kát og fjörug,

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.