Þjóðviljinn - 20.03.1941, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.03.1941, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 20. marz 1941. PJOÐVILJIN N þJÓOVllJINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Sigfús Sigurhjartarson (áb.) Einar Olgeirsson Ritstjóm: Hverfisgötu 4 (Víkings - prent) sími 2270. Afgreiðsla og auglýsinga- skrifstofa: Austurstræti 12 (1. hæð) sími 2184. Áskriftargjald á mánuði: Reykjavík og nágrenni kr. 3,00. Annarsstaðar á Iand- lnu kr. 2,50. I lausasölu 15 aura eintakið. Víkingsprent h.f. Hverfisg. Mannslifín eða Mammon Islenzka þjóðin hefur beðið ó- bætanlegt tjón síðustu vikurnar. Tugum saman hafa hinir hraustiu og djörfu sjómenn vorir sokk- :ið í saltan mar fyrir ógnum Ægis eða morðvélum brjálaðra hervalds sinna. Ekkert, engar tryggingar, eng- ar skaðabætur megna að bæta að- standendum þeim ,sem misst hafa það, sem þeim var kærast í lífinú, — Enn einu sinni minna kald- ar staðreyndir oss á það lögmál, að vér getum lagt öll auðæflii jarðar að fótum manns eða manna, en vér getum ekki gef- ið aftur það líf, sem einu sinni er týnt. Samúðin með þeirri djúpu sorg, sem ríkir nú á tug- um islenzkra heimila er ekki nóg. Við íslendingar verðum semheild, sem . þjóð, lóksins að læra að bera virðingu fyrir heilagleika mannlífsins, sýna þá virðingu í verki og kenna þeim hana, sem enn líta á miennina sem verkfæri til þess að afla sjálfum sér aiuðs og valda. bað finnst vafalaust flestumað af því vér íslend'ingar erum svo fáir og þjóðartjónið við missi hvers einstaklings því svo tilfinn- anlegt, þá hljóti líka sú skoðún að vernda mannslífin, svo Lengi sem hætta á enn meira tjóni af skorti hér ekki neyðir oss til á- hættu, auðveldLega að verða iof- an á. En þetta er ekki eins auðvelt og menn halda undir fyrstu á- hrifum voveiflegra atburða. Allt núverandi auðvaldsskipulag bygg ist á þeirri skoðun auðmannanna að meirihluti mannanna, vinnahdi stéttirnar, séu bara verkfæri, sem auðmennirnir kaupa eða Leigja til að skapa handa sér gróða. Og aldrei sjáum vér átakanlegar en í sjálfu samkeppnisstríði auð- drottnanna hið takmarkalausa virð ingarleysi valdhafanna fyrir rnánns lífunum, fyifr lífshamingju og vel ferð mannanna. Þegar íslenzka þjóðdn nú krelst þess að togararnir hætti England.s ferðum, að þeir taki upp salt - fiskframleiðslu eða fiski til flök- unar, — þá er þjóðin að rísa upp gegn hinni drottnandi fyrirlitn - ingu auðmannanna á mannslífinu. til að knýja það fram að líf og lífshamingja séu sett ofar öllum auði og gróða. KVEIMASÍD Mæðraslyrksnefndiii skorar á Alþingi að láta reikna fnlla dýrtíðarnppbót á barnsmeðlig mánaðarlega Réykjavík, 17. marz' 1941. Mæðrastvrksnefndina, Kvenrétt- Til ALÞINGIS. I sambandi við frumvarp það, er nú liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum nr. 39, 28- jan. 1935, um breytingu á lögum nr. 46, 27. júní 1921, um afstöðu for- eldra til óskilgetinna barna, vil'l Mæðrastyrksnefnd skora á Alþingi að bæta inn í frumvarp þetta á- kvæði um að full dýrtíðarupp- bót skuli K'eiknuð á hvert meðal- meðlag, hvar á landi sem er, sé uppbótin greidd mánaðarlega og miðist fyrsta greiðsla hennar við janúarmánuð þessa árs, eða, ef það þykir heppilegra að ákveða þetta með sérstökum lögum. Sé dýrtíðaruppbótin veitt skv. sömu reglum og dýrtiðaruppböttil starfs manna ríkisins, og bætist hún vdð meðlögin eins og þau voru átima bilinu frá 14. maí 1937, til 14. maí 1940. Eitt af þeim félögum, er skipa Vér vitum að það verða ekki spöruð h,in fögru orð til að fá sjómennina út. Auðmennirnir munu frýja þeim hugar — og fátt þiola djörfustu menn Islainids ver. Þedr munu verða minntir á hvað í húfi er, — milljónir pappírspen- inga — ef 'siglingarnar leggjast niður. Þeir verða hræddir á at- vinnuleysinu. Og svo mun verða lokkað með því að ein ferð geti tekizt. En nú dugar ekki að þjóðin gefi ósvífnasta hluta auðmanna- stéttarinnar neitt tækifæri til að stofna sjómönnunlum í bráða lifs- hættu- Því þó einn togari eða nokkrir kæmust í gegn inú, þáyrði það til þess að fLeiri færu svo á eftir og því næst dyndi svo sam:a skelfingin yfir skipin aftur eins og gerzt hefur þessa dagana, — þvi hér eftir munu jafnvel þeir sem áður höfðu ednhverjar tál- vonir um „hlífð“ við Islendinga, viðurkenna, að síður sé nú misk- unnar að vænta af kafbátunum en af tígrisdýrum frumskóganna eða hákörlum hafsdns- Það er hart að það skuli ekki öll islenzku blöðin geta staðið saman um að krefjast þess að | Englandsferðum togaranma sé hætt- Það er hart að Morgunblað- ið skuli dirfast að halda hlifi- skildi fyrir þá útgerðarmenn, sem enn vilja siga sjómönmum í ó]i- in dauðann. Krafa þjóðarinnar er: Það verður að sietja mamnslif- in ofar en fjármuni og auð. Það verður að beygja dýrkendur Mammons til virðingar fyrir Lífi og lífshamingju. Það verður tafar- Iaust að banna Englandsferðir tog aranna. indafélag Islands hefur þegar sent Alþingi erindi um þetta efni, er Mæðrastyrksnefnd fyllilega samþykk því bréfi og þykir því ekki nauðsynlegt að senda frekari greinargerð. Þess er sjálfsagt heldur ekki þörf að færa frek- ari rök fyrir kröfu þeirri, sem hér er um að ræða. Nauðsynin er svo augljós- — Barnið lifir ekki ár á þeim peningum, sem móðurinni kunna að verða borg- aðir næsta ár, og þegar lánstraust hennar er ekkert, hlýtur drátt- urinn á útborgun dýrtíðarupp- bótarinnar að verða til þess, að allur aðbúnaður barnsins sé svo lélegur að heilsu þess sé hætta búin. Ekkert þjóðfélag má við því að ungviðið vanti him nauð- synlegustu skilyrði til þess að ná eðlilegum þroska. Væntir Mæðrastyrksnefnd þess að Alþingi hafi fullan skiLning á kjörum ekkna og einstæðra mæðra á þeim alvörutímum, sem nú standa yfir og veiti þessu máli fljóta afgreiðslu, því það þolir enga bið. Virðingarfyllst « í Mæðrastyrksnefnd f.h. Kvenréttindafélag Islands Laufey Valdimarsdóttir, f.h. SjálfstæðiskvennaféLagsins „Hvöt“. Góð ráð Ef slétta þarf flauel með heitu járni, skal þess gætt að láta það ekki liggja á borði á mleðan, hield ur skulu tveir halda því á rnilli sín, þanmig að réttan snúi niður lO'g strjúka síðan með línjárndmu fram og aftur yfir ranghverfuna á lofti, einnig yfir sauma, sem þarf að slétta út. Klæði má ekki pnessa mieð vot- uim klút, nema þykkar fellingar, en gæta verður þess að ekki vökni í gegn, annars verður það „skýj að“ á rétthverfunni. Þvoið ullarföt úr köldu eða aðeins ilvolgu sápuvatni, svo að siður hlaupi eða láti lit. Berið ekki sápu í ullarföt, þvoið held- ur úr fleiri vötnum og sfierkari, séu fötin mjög óhrein. Skolið þau úr köldum vötnum. Ullarefnj þófna meira í heitu >en köldú. ÞesB vegna þurfti þófið að vera hlýtt ef vel átti að ganga. Hengið ull- arkjóla og treyjur á herðatré til þerris, en prjónuð föt, sem ekki mega tapa lagi, er bezt að Leggjia á slétt borð ofan á handklæði eða samanbrotið lak. , Si. f. h. Mæðrafélagsins, Unnur Skúladóttir. f. h. Lestrafélags kvenna, Inga Lárusdóttir. f. h. Verkakviennafél. Framsókn Jónína Jónatansdóttir. f. [ h. Kvenstúdentafélag Jslands Thyra Loftsson. f. !h. Þvottakvennafél. „Freyja“. Þuríður Friðriksdóttir. f. h. Starfsstúlknafél. „Sókn“ Aðalheiður Hólm. f. h. Thorvaldsensfélagsins, Jónína Guðmundsdóttir. f. h. Ljósmæðrafél. Islands, Þórdís J. Carlquist. f. h. Kvenfél. Fríkirkjusafnaðarins Bryndís Þórarinsdóttir. f. h. Systrafélagsins „AIfa“ Steinunn Guðmundsdóttir f. h. Barnavinafélagsins „Sumar gjöf‘‘* Steinunn Bjartmarsdóttir. f. h. Húsmæðrafélagsdns, Kri.stin Sigurðárdóttir. f. h. Kvenfélags AlþýðufLokksins Svava Jónsdóttir. f.h. Kvenfél. Sósíalistaflokksins Hallfríður Jónasdóttir. f. h. A. S. B. \ Guðrún Finnsdóttir. f. ‘h. Hins ísl. kvenfélags, Soffia Jónsdóttir. f. h. Hvitabandsins, Jóhanna Árnadóttir. f. h. A. S. V. Katrín Pálsdóttir. f. h. Trúboðsfélags kvenna, Bentína Hallgrímsson. HM tæturna Þeir, er þurfa að vera mikið á ferð allan daginn eða stainda að staðaldri við einhverja vinnu, kvarta oft yfir þreytu og ónotum í fótum. Ef mikil brögð eru að slíku, er sjálfsagt að fara til lækn is, en oft getur maður sjálfur hjálpað upp á sakimar með lít- ilsháttar fyrirhöfn. Að kvöldinu til, eftir .rerfiði dagisins, er ágætt að taka ylvolgt fótabað, ekki heitt, með dálitlu af salti í, þurrka fætuma vel og vandlega og simyrja þær á eftir með fleiti eða einhverri feitri olíu, t. d. bómolíu og láta hana þorna vel inn í, áður en farið er að sofa- Fyrir þá, sem eiga vanda til fótakulda er gott að þvo fætur að morgninum upp úr köldu vatni og bursta þær með mjúkum bursta á eftir, þangað til manni fer að hitnia í þeim: það er merki þess að blóðrásin hefur örfazt iog er að komasít í lag. Á kvöldin er bezt að nota heit og köld böð til skiptis. Tvær djúpar þvotta- skálar eru fylltar með vatni, önn- Framhald á 3. siðu. Guðrún Pétursdóttir. Saumaskrínid 1 þetta skipti sjáið þið hér myndir af svuntum á smátelpur- I svuntu nr. l er bezt að hafa gróft léreft. Litlu krossisaumsmyndirnar eru saumaðar með mislitu garni þar sem mierkt er fyrir á svuntunni með A og B. Svunta nr. 2 er „Hjarta svunt- an“, sem allar litlar stúlkur eru nú hrifnar af. Þetta snið er ágætt að sauma úr pjötlum, mega þær vera sitt ínieð hverjum lit. Stærð- ina verður hver að ákveða og klippa hjörtun fyrst út úr papp- ír. Ávarp frá Vorbodanum: SnnrM barna Um leið og við hefjum und- irbúningsstarfið fyrir sumardvöl barna á vegum Viorboðans á komandi sumri, verðuim við enn á ný að reyna á höfðingstund Reykvíkinga, sem á undanförnum árum ávallt hafa sýnt starfi okkar samúð og skilning og stutt okkur á drengilegan hátt, og vottum við þeim okkar innilegasta þakklæti fyrir það. Við höfum ákveðið að halda hlutaveltu sunnudaginln 30. þ. m. til ágóða fyrir sumarstarfið, og eru konur nú á ferðinini að safna munum. Við treystum ykkur, góð- dr Reykvíkingar, að bnegðast vel við, því aídrei hefur þörfin verið meiri en nú að vel takist ogað börnin komist í sveit og það sem allra fyrst. Takmarkið er: ÖIl börn úr bænum í öryggi sveitanna, frá allskonar hættum á þessum alvarliegu tímium. Barnaheimilisnefnd VorboðainS TílbYnníng Að gefnu tiliefni viljum við taka það fram, að Kvennasíðain getur ekki birt greinar, er henni berast nafnlausar. Dulnefni skal ætið notað, þar sem þess er ósk- að, en sendandi hverrar greinar verður að láta nafn sins getið. Þess mun vandlega gætt að birta þ<\u ekki nema gneinarnar séu greinilega skrifaðar undir nafni. Kvennasíðan-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.