Þjóðviljinn - 19.04.1941, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.04.1941, Blaðsíða 3
PJOÐVILJINM Laugardagur 19. apríl 1941. Minningaporil vm Itn SleUisson oo Maron Eioorssoo Fjölmargir IsJiendingar, ekki sízt konur og börn, hafa lifað þungar stundir, ekki aðeilns eftir átök þau í styrjöldinni hér heima við, heldur og einnig eftir norðj anveðrið mikla í lok febrúarmán- aðar. Andvörp hafa liðið frá ang- urværnm og spyrjandi sálum, þær hafa hrópað út í myrkrið, hið óþekkta, og spurt, hvers vegna mannverurnar væru leiknar svo grátt- Vafalaust hefur mörgum legið nærri vonleysi um hinn góða tilgang lífsins, sem æðri tegund trúarbragða hefur ]agt mönnunum svo ríkt á hjarta. Harmþrungnar ekkjur og grátalndi börn standa á ströndinni og finnia ekki réttlæti i hinum grimmúðlegu lögum, er ungir, harðhrausör menn hvierfa skyndilega úr líf- inu hérnamegin, frá þúsundum ætlunarverka. Mieðál þieirra, sem orðið hafa ,fyrir hinum ómildu höndum örlaganna, eru þær syst- ur Anna og Stefanía, dætur Jó- hanns Sveiinbjörnssonar tollgæzlu- manns á Siglufirði. Báðar misstu þær unga menn sínia í sjóinn í norðanveðrinu mikla um mánaða- mótin, frá ungum börnum. Þess- ara ágætisdrengja vierður hér lít- illega getið, það er stutt kveðja til þeirra frá kunningja. Jón G. Stisfáns&on var Sigl- firðingur, þó hann væri fæddur að Máná „á Dölum“ vestan Siglu- fjarðar, 27. ágúst 1914. Foreldr- ar hans, þau Stefán Jónsson og Soffía Jónsdóttir fluttu lil Siglu- fjarðar 1915; eru bæði á lifi og hafa búið þar síðan. Systkini á Jón tvö á lífi, systur og bróður. Auðvitað varð það hlutskipti Jöns Stefánssonar, eins og flestra alþýðudrengja, að vinlnia strax og kraftar leyfðu. Og eftir að síld- arverksmiðjur ríldsins tóku til starfa á Siglufirði, vann hiann þiar látlaust að ýmsum störfum. Lítið stundaði Jón sjómeninsku og hafði ekki sérlegan áhuga á hienni, enda var þessi viertíð hin fyrsta, ier hann tók beint þátt, í sjómiennsk- unni, en áður var hainin jafnan við landstörf, er viðkiomu sjó- mennsku á bátum frá landi. Þetta var þvi í raun réttri fvrsta og síðasta vertíðin, er hann var á sjó- Alíur áhugi Jóns stefndi á öninur svið en þau, er haínn varð að heyja lífsbaráttu sína á- Mér var kunnugt um, að til íþrótta og skyldra hluta stefndi Hugur háns mest. Hefði hann helzt kosið að hafa efni á og kringumstæður til að helga sig íþróttum, námi þar og síðar kennsiu- Hann var skíða- maður ágætur, og varð 1938 „sldðakóngur Islands“. Fyrir skíðafélagið á Siglufirði vann hann mikið, og fórnaði því fjölda frístunda sinina. Var hann kapp- samur í íþróttum og vildi þar ekki síðastur vera. En ler hann ekki þóttist hafa ástæður til að stunda skíðaíþróttina með þeim krafti er hann kaus, lagði hianin hana að mestu leyti niður og fargaði útbúnaði sínum. Jón var hægur maður og prúður, við- fulldinn og drengur hinn béztíi. Var á seinni árum vaknaður hjá honum nokkur áhugi að hugsa um hin vandasamari áhugatniál og reyna eftir mætti að komast að nokkurri skýringu á þéim. — Jón var kvæntur önnu Jóhainns- dóttur, hinni prýðilegustu konu, Dg áttu þau eitt bam í sínu 4 ára hjónabandi. Jón Stefánsson var á m. b. Hirti Péturssyni er hann fórst með alTri áhöffn í ÍebiTúarveðrinu mikla í ár. Það virðist þó ekki að þetta hafi verið nægilegt strandhögg í fjölskyldu Jóhanns, því, í siama veðri fórst botnvörpungurinin Gull foss, á honum var aninar tengda- sionur hans, Maron Emars&on• Sigl firðingur var Manon eininig, og hafa foreldrar hans, þau Einar Halldórsson og Svanborg Bene- diktsdóttir búið þar lengst- Maron var fæddur 25. des. 1912. Af 9 börnum þeirra Einars og Svanborgar eru fimm á lífi. Það er sama áð segja um Maron sem um Jón svila hans, að strax og kraftar leyfðu kallaði starfið á alTia orku hans og tíma. Var því skiljanlega ekki um aðra mienintun að ræða en þau störf, sem vinua þurfti, þrátt fyrir góða hæfileika til hvers sem væri. Má glöggt sanna það með því, að vitiað var að Manon hafði mikinn áhuga fyr ir allsfconar vélum, enda hafði hann bæði mótormaininapróf og bifreiðapróf. Sömuleiðis hafði hann áhuga fyrir stærðfræði og stjömufræði, og er það ekki ó- títt um alþýðumenn þiessa lalnds. Það mun ekki einsdæmi að góðri greind og sæmilegum gáfum hief- ur orðið að beita á allt önnur svið en þau, er vilji og voinir hafa staðið til- Hlutsldpti Marons voru, ýms störf nálægt sjó, fyrst við byggingu Siiglufjarðarhafnar meðan á hienni stóð, þá sjó- mennska, síðast á togaránum Gull fossi. Maron var hinin beztí dreng ur, sterkur, viljafastur og ósér- hlífinn. Main ég eitt sinn er við ræddum 'um skyldur og tilgang lífsins, að hann sagði, að sér væá alveg sama hvað kæmi fyrir sig hann hefði ekkert að óttast, og engar vonir í þeim eflnum, rnema Kúgunaraðferðir nazista Póllandi og Noregi Hér fer á eftir kafli úr grein er enska blaðiö Illustrated birt1 nýlega um framferði Þjóðverja í hernumdu löndunum. Höf- undur greinarinnar er Harry Gregors. ,,í engu landi hefur meðferð nazista á Jiemumdri þjóð verið lirottalegri en í Póllandi, þar sem frægir vísindamenn hafa verið dregnir fram úr rúmum sinum um hánótt’ og fluttir tafarlaust í fangabúðir. í Krakoff, hinu fornfræga pólska menntasetri, kvöddu þeir prófessora háskólans á ráð stefnu og fluttu þá hópum saman til Þýzkalands. Næstum því hvert einasta pólskt þorp á sitt merki um píslarvotta. Ekki einu sinni öldruðu fólki er hlíft. Hvað eftir annað gerist það í Varsjá, að lögreglulið, vopnað kylfum og skammbyssum, lok- ar heilum götum, og tekur af handahófi alla, sem þar eru staddir karlmenn og konur eru dregin út úr strætisvögnum og kaffihúsum, og hver sem reyn- ir að komast undan, er skotinn Fólkinu er svo stillt upp fyrir einhverjum ruddafengnum lög reglustjóra, og hika undir- menn hans ekki við að láta högg og spörk dynja á hverj- um þeim, sem sýnir einhvern rnótþróa. Fólkinu er ekki leyft að fara heim til sín til að ná í dót sitt eöa kveðja ættingja sína. Þaö er rek'ið af stað eins og fénaður til nauðungarvinu við byggingu virkjalínunnar sem ííitler er aö láta reisa gegn So vétr ík j unum“. Um framkomu nazista gegn norskum menntamönnum, seg ir greinarhöfundur m. a.: „Prófessor Worm Muller, sér- fræðingur í pólitískri sögu, komst hjá fangelsun með því aö flýja til Svíþjóðar. Lund hershöfðingi, þekktur norskur íþróttamaður er í fangelsi sakaður um þá dauðasök, að hafa sent leynileg loftskeyti. Læknar og áhrifamiklir þá einu, að hjálpa og yera að liði hinni ungu kómi sinni og börnum, svo lengi siem kosturværi á. Hartn kvæntist 1937 eftirlifandi konu sinni, Stefaniu Jóhannsdótt ur og áttu þau tvö ung böm. Minning þessara ágætis dnenlgja mun lengi lifa; í :m)eðvitund þeirra sem til þieirra þiekktu. — Þeirra skyndilegu burtför mun saninfæra oss úm, að erfitt er að skilja líf- ið og þær flóknu ráðgátur um samband orsaka og lafleiðinga, er það mun ,að sjálffsögðu hlýða, bak við hin sýnilegu rök. Söknuð ur ástvina og kunningja er samur fyrir því. Þeim systrum viljum við votta okkar dýpstu samúð og vonum að þeim gefist þrótt- ur og styrkur að standa áfram í lífsbaráttunni við hlið siinna litlu barna. Har. S. Norddahl. menntamenn er grunaðir hafa verið um samúö með Hákoni konungi hafa verið handtekn- ir hópum saman. Þýzka lögreglan réðist tafar- laust á hinn fræga norska pró fessor, dr. Scharffenberg, sem er 75 ára gamall. Hann ritaði fyrir tveimur árum síðan grein þaf sem færð voru rök að því að Hitler væri brjálaður. Honum var skipað að aftur- kalla þetta álit sitt, en hann svaraði: „Læknir getur ekki gefið úrskurö án þess að at- huga sjúklinginn. Komið með Hitler til mín svo ég geti skoð að hann“. Fyrir þetta svar var hann fangelsaður, en nazistarnir voru neyddir til að sleppa hon- um, er hann var nær dauöa en lífi, vitandi það, að dauði Þ.ans í höndum nazista mundi geta þýtt alvarlegar óeirðir af hálfu Norðmanna“. íslenzkf malad Rú$mjði Hveífiklíd Heílhveíti Bakid braudin heíma cJiw. Gúmmískógerðín Laugavegi 68. — Sími 5113. Vinnuföt og vetlingar. — GÚMMÍSKÓR, gúmmístíg- vél há og lág. Ullarleistar herrasokkar o. fl. Beztu vor kaupin verða hjá okkur. nmmmmmmrm Daglegá nýsoðin S VIÐ Kaffistofan. Hafnarstræti 16. Mínníngaroirð Þó aðrir hafi orðið fyrri t'il aö minnast þessarar konu get ég ekki stillt mig um að fylgja henni úr hlaði með örfáum kveðjuorðum, svo mjög fannst mér til um hana. Frú Palína hefur verið rúm- lega fimmtug, þegar fundum okkar bar fyrst saman. Lífið var þá farið að sýna henni í tvo heimana. Áður hafði það örlátt verið, gefið henni góðan eiginmann og fjögur börn, vel gerð -og mannvænleg, og eitt barnabarn, sem hún fóstraði. Nú var starfsþrek þeirra lijóna fariö að gefa sig, fram- undan efnaskortur, erfiðleikar og það, sem sárast var, að þá höfðu þau fyrir skemmstu misst son sinn, glæsilegt mannsefni, og dóttir þeirra rúmlega tvítug, tekiö me'in það, er loks leiddi hana til grafar á síðastliönu ári. Þessi aðköst öll, höfðu að vísu sett sitt mark á Pálínu, því jafnan var hún alvarleg á svip, en hún var hress í bragði og svo tíguleg í framkomu allr^ að af bar, enda var konan hin glæsilegasta. Á seinni árum hefi ég haft náin kynni af frú Pálínu, og lært að meta mannkosti henn- ar, hjálpfýsi, örlæti um efni fiam og þessa dæmafáu híbýla prýði, sem ekki leyndi sér. — Kringum þau hjón var alltaf lúýtt og bjart, allt var þar hreint og fágað, þó íburður væri ekki áberandi, og viðmót- iö þannig, að engum gesti fannst sér þar ofaukið, enda voru vinsældir þeirra með af- brigöum, og ég tel víst, að margur hefur haft fúsan vilja á að létta undir raunabyrði þeirra, og hennar eftir hans dag, hefði þess verið kostur. Frú Pálína var greind kona og það um margt. Hún var frjálslynd í trúmálum og stjórnmálum og myndaöi sér sjálfstæöar skoðanir í þeim efn um. En það, sem ég dáðist mest að í fari hennar, var þetta éinstaka þolgæði og still- ing þegar á bjátaði. Eg minn- ist ekki að ég heyrði hana nokkru sinni tala æðru orð, eða vorkenna sjálfri sér, hvað sem á dundi. Eg tel mér happ að hafa kynnzt henni, og blessa minn- ingu hennar. 17. apríl 1941. Theodóra Thoroddsen.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.