Þjóðviljinn - 19.04.1941, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 19.04.1941, Blaðsíða 4
Orbopglnnt Nœturlæknir í nótt: Kristján Hannesson, Mímisvegi 6, sínii 3836 Nœturvördur er þessa viku í Reykjavíkurapóteki og Lyfjabúð- inni IðunnL Útvarpid í dag. 12.00 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukennsla, 1. fl. 19,00 Enskukennsla, 2. fl. 19,25 Þingfréttir. 19.50 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20.30 Leikrit: „Fornar ástir“ eftir Benzon. Leikstjóri: Haraldur Björnsson. .21,20 Gamanvísur: Alfreð Andr- ésson. 21,40 Danslög. 21.50 Fréttir. 24,00 Dagskrárlok. Georg Ólafsson barikastjóri Landsbankans, sem andaðist á skírdag, verður jarðsettur í dag. Bönkunum er lokáð’ í dag sökum jarðarfararinnar. Og nú er það þe$n~ skylduvínna Framhald af 2. síðu. Bóndinn á að fá í sinn hlut vinnu unglingsins, sem sendur var til hans nauðugur, og sem auk þess kann ekkert til þeirra verka, sem hann á að vinna. Það er hætt við að báðir fái nóg af slíkum viðskiptum bónd inn og kaupstaðarp'ilturinn. Þegar alls þessa er gætt verð ur ljóst að þegnskylduvinnu- talið, sem hafið er 1 sambandi við þá vinnuaflseklu, semtalið er að muni veröa í sveitunum í sumar, er til þess gert að villa mönnum sýn. Það v'irðist eiga að tæla þá menn, sem sjá margt gott í sambandi við þegnskylduvinnuna, til þess aö fallast á að hafin verði nú þegar þrælavinna, t'il þess að fá vinnukraft í sveitirnar, sem með þarf í sumar. Sá hugsunarháttur, sem að baki þessu liggur er í fæstum orðum sagt þessi: Þegar kreppa og atvinnu- - leysi herja mega verkamenn, ung'ir jafnt sem gamlir, bera skort og neyð, þegar svo úr ræt ist og eftirspurnin eftir verka- mönnum verður mikil og kaup iö sæmilegt, þá er sagt við verkamennina: nú verður þú að gera svo vel og fara þang- aö, sem þér er sagt og vinna íyrir það kaup, sem þér er skammtað, þú þarft ekki að láta þér koma til hugar aö þú fáir að njóta þeirra beztu kjara sem fáanleg eru, þú þræll, — þræll skortsins þegar lítið er að gera, þræll þjóðfé- lagsins þegar vel blæs með vinnu. Rcykjavikar Annáll h.i. Revyan veröur sýnd á morgun (sunnu dagseftirmiðdag) kl. 3 e. h. Aðgöngumiðar seldir í dag kl. 1—7 og frá kl. 1 á morgun. Verð aðgöngumiða er nú lækkað og kostar sætið kr. 6,50 og 5,00 Ekki tekið á móti fyrirfram- pöntuum. lcikfclag Rcykjavíkur. „Á Ú T L E I Ð “ Sýning annað kvöld kl. 8. Hljómsveit undir stjóm Dr. V. Urbantschitseh aðstoðar Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag. Böm fá ekki aögang. Ilegna iarOarfarar Georgs Olafssonar banka~ stjóra verdur bðnkunum lok~ ad kL ll. L h, í dag (laug^ ardag) 19. apriL Ufvegsbankí Islands h.f. r Búnadarbankí Islands 'i I Flokkurinn Ý I V t ♦> Félagar og formenn deilda! Komið á skrifstofuna og ger- ið upp og takið við verkefnun- um handa deildunum. Það verður að herða innheimtustarfið. Maðurnokkur vaknaði sinemma á páskadagsmiorgun við svo und- urfagra tónlist, að honum datt helzt í hug að hann væri kom inn til Himnarikis. Að stundu liðinni þagnaði þessi fagra tónlist, en í hennar stað kom rödd dr. Guðbrands pró fessors Jónssoná'r, >og áttaði mað- urinn sig þegar á því, að honum hefði skjátlazt um staðinn. Bálfarafélctgi Iskmds hefur bor izt rausnarleg gjöf, 500 krónur, til byggingar bálstofu. Gefandinn er ekkjufrú austan fjalls, ier ekki vill láta riafn síns getið. Handknatf» leíksmótíð Hér fara á eftir úrslit í þeim leikjum Handknattleiksmóts- ins, er leiknir hafa veriö frá því að Íþróttasíða Þjóðviljans birti síðast úrslit. Áttu þau að koma í íþróttasíðunni í gær, en urðu að bíða vegna rúm- leysis: 1. flokkur. Valur—Víkingur 19:15. K. R.—Fiml.fél. Hf. 20:11. Fram—Valur (B) 16:15. í. R.—Ármann 21:13. Haukar—K. R. 20:18. 2. flokkur. Fiml.fél. Hf.—K.R. (B) 16:15. í. R,—Valur 18:15. Valur—Haukar 21:6. í. R.—F. H. 31:8. Þessi lið eru þegar „slegin út: 1 f 1. fl.: F. H., Valur (B), og K. R. f 2. fl. Ármann, Víkingur og F. H. Safnið ðskrifenðom 9^oooooo<c>oo-®<xxx>o<xx><xxxx>o<xxxxx>o^c 89 Anna Liegaard Skéldsaga cftir Nini Roll Ankei* Hann hafði meira að segja sagt við Ingrid, að það væri ekki nema eðlilegt aö foreldrar þeirra skildu. En — eftir giftingn fööur hans hafði álit hans gerbreytzt. Já, enn gat skollinn rokið í hann, ef Elí varð of nær- göngul. Þaö var ekki lengra síðan en við miðdagsborö- ið í dag að hann hafði sér til mikillar ánægju sneitt aö henni í viöræðunum svo hún roðnaði og varö þög- ul. En hún hafði gert föður hans fært að ná þýðingar- miklu markmiði. Gert honum fært að ganga í endur- nýjungu lífdaganna. Það gott gat komiö af kynferöis- lífinu, hugsaði hann sáttfús. Faðirinn tók aftur til máls: „AÖ deyja — án þess að hafa gert sér það úr hæfi- leikum sínum sem hægt er, með hugarfóstur sín ófull- burða gæti maður sagt — held ég að hljóti að vera þaö örðugasta sem fyrir hvern mann getur komið”. „Það var rétt, pabbi!” Hann sagði það svo hátt að hann hrökk við sjálfur. Svo bætti hann við lágmælt- ur og rólegri: „En þannig fer það líklega fyrir flestum, — mönnum verður ekki ljóst til hvers þeir ættu að verja lífinu fyrr en það er um seinan”. Það fór hálfgeröur hrollur um Roar, það var stund- um svo mikil lífsreynsla í oröum þessa tuttugu og þriggja ára manns, að honum varð ekki um sel. Eftir að Per kom heim til Oslo, hélt hann áfram að vinna úr þéim áhrifum, er þetta síðasta samtal hafði vakið. Hann athugaði alla afstöðu sína til föðursins, endurskoöaöi framkomu sína. Nú fannst honum hún nærri brosleg á köflum, — en never wince! Hatrið sem hann hafði eytt á „jómfrúna”, hefði hann getað sparaö sér. Hún var þegar til kastanna kom hvorki léttúðardrós eöa spillingarkvendi, heldur bara venju- leg kona. Og einu sinni haföi hann ætlaö að refsa fööur sínum með því að neita aö þiggja tíukrónaseðil. . Hann hafð slitið sambandi við Klöru Ringer, — og fundizt að hann væri líka aö refsa föðurnum með því! Skilji það hver sem getur.. I hinni eyöilegu stofu móöurinnar gekk hann fram og aftur, einmana, og athugaöi sjálfan sig,. Þar til kvöld eitt aö hann fann aö allt var orðiö ljóst, hann stanzaði og leit í kringum sig, horfði á borð og sófa og myndir, — og hann fann til skyndilegrar óþolin- mæöl eftir því að stytta bilið milli þessa hálfa heim- ilis og hins. ,,Þaö er kominn tími til aö við komum vitinu fyrir okkur á ný, gamli minn!” Hann hafði lagt höndina á bak gamla ,hægindastólnum, er afi hans hafði átt, ýtti honum dálítið frá sér org horföi inn í hið gam,alreynda gerfi hans., ,,Við höfum gert nóg af heimskupörum bæði hér og þar!” Þegar Anna Liegaard kom aftur úr sumardvölinni noröurfrá, varð hún þess brátt vör, að Per var eitthvað breyttur., Eins og venjulega, þegar eitthvert barnanna hafði veriö suðurfrá, spurði hún um alla hluti, smáa og stóra., Hún beið eftir svörunum með glampa af eftir- væntingu í augunum, og endurtók aftur svörin., Var Bverre alveg búinn aö ná sér? Og Ingrid — var Ing- rid lasin? Já, hún þreifst ekki í þessu nýja umhverfi, hún Ingrid, sem ekki var von., „En pabbi þinn?” spurði hún. „Hefur hann mikið að gera?” Hann er að ljúka verðlaunaverkefni, vísinda- starfi”, sagöi Per. „Fjandi góðri sýklafræöilegri rann- sókn”. , „Vísindastarfi?” „Hann hefur unnið að því í tvö ár”. „í tvö ár! Og þiö hafiö ekki minnst á það viö mig”. ,,í tvö ár! Og þið hafið ekki minnst á það við mig”‘ því”. r „Við vissum að þú mundir bara ergja þig út af

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.