Þjóðviljinn - 17.05.1942, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN
Or borglnnt
Helgidagslœknir: Pétur H. Jakobsson,
Karlagötu 6, sími 2735.
Nœturlœknir: Gísli Pálsson, Laugaveg
15, sími 2474.
Nœturvörður er í Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ í DAG:
10.00 Morguntónleikar (plötur) : Norsk
tónlist.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (séra Friðrik
Hallgrímsson).
12.15 Hádegisútvarp.
13.15 Útvarp Norræna félagsins:
a) Lúðrasveit leikur á Austurvelli.
b) 13.30 Avarp af svölum Alþing-
ishússins (herra Sigurgeir Sig-
urðsson biskup).
c) 14.00 Norsk messa í Dómkirkj-
unni.
15.30— 16.30 Miðdegisútvarp (plötur) :
Norsk tónlist.
18.30 Barnatími.
19.25 Hljómplötur: Lyrisk svíta eftir
Grieg.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.20 Einsöngur (Einar Markan) : Norsk
lög. a) Neupert: Syng mig hjem.
b) Grieg: 1. Med en vandlilje. 2.
En svane. 3. Ungmöen. 4. Váren.
c) Johs. Svendsen: Serenade. (Páll
Isólfsson leikur undir).
20.40 Erindi: Noregur (Thorolf Smith).
21.00 Upplestur: Dagur Noregs, kvæði
eftir Tómas Guðmundsson (höf.
flytur).
21.05 Norsk kórlög (plötur).
21.15 Upplestur úr norskum bókmenntum:
a) Friid blaðafulltrúi: Norsk kvæði.
b) Magnús Ásgeirsson : . Bréfið
heim; kvæði eftir Nordahl-
Grieg.
21.35 Útvarpshljómsveitin: Norsk tónlist.
21.50 Fréttir.
22.00 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
ÚTVARPIÐ Á MORGUN:
12.15—13.00 Hádegisútvarp.
155.30— 16.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Líí og barátta í Austurlönd-
um Asíu, I (Björgúlfur Olafsson
læknir).
21.00 Um daginn og veginn (Skúli Skúla-
son ritstjóri).
21.20 Útvarpshljómsveitin: ,,Brúðkaups-
ferð um Norðurlönd“, tónverk eftir
Emil-Júel Fredriksen.
Einsöngur (frú Elísabet Einarsdótt-
ir) : a) Sigurður Ágústsson: Sumar-
morgunn. b) Grieg: Jeg reiste en
deilig sommerkveld. c) Sigf. Ein-
arsson: I. Nú er glaft í borg og bæ.
2. Sumarkvöld. 3. Sofnar lóa.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Jón Hjaltalín Sigurösson prójessor hef-
ur verið kosinn rektor hásólans til næstu
þriggja ára.
Íslandsglíman verður háð í Reykjavík
4. júní n. k. Keppt verður um glímubelti
í S. í., handhafi Kjartan B. Guðjónsson
úi Ármanni. Einnig verður keppt um
hans er einnig Kjartan B. Guðjónsson.
fegurðarglímuskjöld I. S. í., handhafi
Ollum glímumönnum innan I. S. I. er
heimil þátttaka. Keppendur gefi sig fram
skriflega við Gunnlaug J. Briem. Baróns-
stíg 65 fyrir 1. júní n. k.
17. júni íþróttamótib 1942. Keppt verð-
ur í þessum íþróttagrehium: Hlaupum:
100 m., 800 m., 5000 m. og 1000 m.
boðhlaupi. Stökkum: Hástökki og lang-
stökki. Köstum: Kringlukasti og kúluvarpi
Ollum félögum innan I. S. I er heimil
þátttaka. Tilkynningar um þátttöku í mót-
inu sendist formanni í. R. R. Stefáni
Ruuólfyyyni, Gunnarsbraut 34, fyrir 10.
júnf n. k. it
Vorsýníng Handídaskólans
HandíÓaskólinn opnaÓi Vorsýn-
ingu stna í Miöbaijarbarnaskól-
anum í gœr:
Jakob Kristinsson ávarpaÖi
sýningargestina me8 stuttri rœÖu,
þar sem hann drap á helztu at-
riðin úr sögu skólans.
Saga skólans er ekki löng, því
hann var stofnaður haustið 1939,
og hefur því aÖeins starfað í 3 vet-
ur. En s. 1. vetur var aðsókn að
skólanum sexföld við það, sem
hún var fyrsta veturinn, og sýnir
það betur en allt annað, hve brýn
þörf hefur verið fyrir slíkan skóla.
Fór Jakob hinum lofsamlegustu
orðum um Lúðvík Guðmunds-
son, skólastjóra handíðaskólans,
sem með miklum dugnaði og ó-
bilandi þrautseigju hefur beitt sér
fyrir vexti og viðgangi skólans,
og ennfremur um Kurt Zier, sem
mun vera einhver fjölhæfasti
kennari í þessum greinum, sem
hér er völ á.
Vafalaust hafa þessir tveir
menn, með starfi sínu við skól-
ann, unniÖ menningarstarf, sem
þeim hefur ekki veriÖ fullþakkað
enn.
Á s. 1. vetri starfaði skólinn í
þrem deildum og mörgum síðdeg-
is- og kvöld-deildum.
í einni deild skólans nutu kenn
arar og kennaraefni kennslu í ým-
iskonar handíðum, en handa-
vinnan hefur fram til þessa orð-
ið útundan í barnaskólunum, og
þá einkanlega í farskólunum, en
með starfsemi handíðaskólans
ætti að verða ráðin nokkur bót.
í handíðaskólanum er lögð
stund á teikningu, meðferð lita,
bókband, smíðar og leðurvinnu
o. m. fl.
Eitt hið veigamesta atriði í starf
semi skólans er það, að nú geta
þeir, sem hyggjast að leggja stund
Lúðrasveit Reykjavi'kur
Framhald af 2. síðu.
En aðstaðan er slæm. Það vant-
ar pall með einhverju skýli
(,,pavillon“), þar sem við gætum
verið. Og nú er það næsta verk-
efni okkar og áhugamál, að koma
upp slíku skýli, þar sem við, og
máske aðrir, gætum skemmt
bæjarbúum þegar tök væru á. —
Við erum þess fullvissir, að t.
d. karlakórarnir okkar mundu
oftar láta bæjarbúa heyra til sín
ef slíkt skýli væri til, því að eins
og nú er ástatt, má heita ógerlegt
fyrir þá að syngja úti, þeir eru að
því leyti ver settir en við . . .
Okkur finnst, að við séum, með
þessu starfi okkar, að styðja að
menningu þessa bæjarfélags“.
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur
veitt bæjarbúum það margar á-
nægjustundir, að ekki er að efa,
að þeir vilji styðja að því, að hún
fái viðunanlegan stað, þar sem
hún getur látið til sín heyra.
Lúðrasveitin lék fyrir bæjar-
búa á Austurvelli í fyrrakvöld og
mátti heyra greinilegan mun á þvx
hve leikur hennar hefur batnað.
Lxiðrasveitin á 20 ára starfsaf-
mæli á þessu ári. Stjórnandi
[ hennar nú er Karl Ó. Runólfsson,
á dráttlist og málaralist, sótt und-
irstöðumenntun sína til skólans,
og má vænta, að þar geti fengizt
úr því skorið, hvort um lista-
mannsefni sé að ræða. Hér hej-
ur því meS starfsemi handíÖaskól-
ans veriÖ lagÖur grundvöllur aÖ
listamannaskóla.
Það er ekki tilgangurinn með
línum þessum, að fara að dæma
einstök verk, sem á sýningu skól-
ans eru. Það eitt skal sagt, að á
sýningu þessari er fjöldi mjög vel
gerðra verka, og eru lesendur
blaðsins hér með eindregiÖ hvatt-
ir til þess að skoða sýninguna.
Farið og sjáið sjálf. Með því
móti kynnist þið bezt því ágæta
starfi, sem skólinn leysir af hendi.
Í3 ára mynd-
lístamadur
Það var fjölmennt við glugga
Jóns Björnssonar í Bankastræti
í gær, það voru myndir í gluggan
um, sem vöktu athygli vegfar-
enda. Sá sem myndirnar sýnir er
13 ára drengur, Pétur Sigurðsson
aö nafni. Meðal myndanna eru
blýantsmyndir af afa og ömmu
þessa unga ,,myndagerðarmanns”
þeim heiðurhjónum Hansínu og
Þórði Bjarnasyni frá Lambastöð-
um. Þessar og fleiri myndir eru
mjög vel gerðar, þegar tekið er
tillit til aldurs listamannsins. Má-
verkin vekja þó meiri athygli. 1
sem fæstum orðum sagt, mynd-
irnar fá menn til að spyi'ja hvort
hér sé ekki málaraefni á ferðinni.
Pétur litli hefur engrar til-
sagnar notið í málaralist, aðeins
fengið venjulega barnaskóla-
kennslu í teikningu.
Antonescu hótar
Ungverjum
Antonescu, rúmenski einræðis-
lierrann, hefur í ræðu hótað því,
að Rúmenar muni taka af Ung-
verjum lönd þau, er látin vom af
hendi samkvæmt Vínarsamningun
um. Var ræðan haldin við hátíða-
höld hjá gröf óþekkta hei'manns
ins. „Óþekkti hermaðurinn mun
hjálpa oss til að eyða skugganum
af vesturhluta lands vors”, sagði
Antonescu.
t
Laval neitar að ganga
að skilyrðum Banda-
ríkjamanna
Laval liefur lýst yfir þvi að
Viehy-stjórnin geti ekki gengið að
sainkomulagstillögurn Bamlaríkja
stjórnar varðandi nýlendur Frakka
í Amerikii.
Cordel Hull, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur lýst yfir
því, að samkomulag hafi þegar
náðst við franska landsfjórann á
Martinique um eitt þýðingarmesta
atriðið, afvopnun herskipanna.
StfrieldaF hlara-
lahr HMuMH
Gerdardómurínn þorir
cbbí að hindra fram*
bvasmd þeírra
I fyrradag var undirritaður' nýr
samningur milli Félags bifvéla-
virkja og bílverkstæðiseigenda í
Keykjavík.
Með þessunu nýja samningi fá
bifvélavirkjar allverulegar kjara-
bætur, uni 20% grunnkaupshækk
un, helmingi lengra sumarfrí en
áður, fullt kaup í 4 vikur, ef þeir
slasast í vinnu, en ekkert áður.
Gerðardómurinn hefur ekki séð
sér fært að hindra að þessar
kjarabætur bifvélavirkja næðu
frani að ganga.
Helztu kjarabæturnar eru þess-
ar:
Vinnutíminn styttist um tvær
stundir á viku, niður í 48 stund-
ir. Áður unnu þeir til kl. 1 á
laugardögum, en nú til kl. 11 f.
h.. Grunnkaup á viku er 100 kr.
Timakaup var áður samkv. samn-
ingi kr. 1,75. Eftirvinna var áð-
ur greidd með 2,50 á klst. en nú
með 3,22. Nætur- og helgidága-
vinna var áður greidd með kr.
3,50 á klst. cn er nú greidd með
kr. 4,30. Áður höfðu bifvélavirkj-
ar 6 daga sumarfrí, nú fá þeir
12 daga.
Nú fá þeir greiddar allt að 4
vikur i liverju tilfelli, ef þeir slas
ast við vinnu, en fengu ckkert
greitt áður.
OOOOOOOOOOOOOOOOO
Gerizt
áskrifendur
Þjóðviljans!
ooooooooooooooooo
Prír metitt
drukkna á Mið~
fírdí
I gær lögðu 6 menn af stað
frá Hvammstanga á litlum bát
og ætluðu að Útibleiksstöðum,
sem eru vestan við Miðfjörð gegnt
Hvammstanga. Höfðu þeir segl
uppi og réru einnig. Á miðjum
firðinum hvolfdi bátnum án þess
að menn gætu gert sér grein fyrir
ástæðunum. Þrír af bátverjum
di ukknuðu en þrír komust á kjöl
og var þcim von bráðar bjargað
því bátar lögðu þegar af stað,
er slyssins varð vart.
Þeir sem dukknuðu voru:
Þorvaldur Kristmundsson, Ög-
mundur Árnason og Jósef Jakobs-
son.
Heíf og höld
svíð
allan dagínn
Kaffísalan
Hafnarstrætí 16
ooooooooooooooooo
x>ooooooooooooooo<
Sími 2597
Svarað aðeins kl. 7—8
síðdegis.
Guðjón Gíslason.
>000000000000000<X
oo ooooooooooooooo
Sundnámskeið
hefjast að nýju í Sundhöllinni mánud. 18. þ. m.
Þátttakendur gefi sig fram sem fyrst. Upplýs-
ingar í síma 4059.
Ath. Fullorðnir þurfa nú aðeins að greiða
aðgangseyri. Kennslan ér ókeypis.
SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR.
Leíbfélag Reybjavíbur.
„Gulliia hliðið"
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag.
REYKJAVÍKUR ANNÁLL H.F.
Revýan
Hallð Amerika
Sýning á morgun, mánudag, kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 í dag og eftir kl.
2 á morgun.
Aðeins nokkrar sýningar ennþá.