Þjóðviljinn - 16.07.1942, Blaðsíða 4
þJÓÐVIUINN
Lifið um orusfur
i Egíffalandi
Flugher Brefa afhafna*
samur
Helztu hernaðaraðgerðirnar á
Egiftalandsvígstöðvunum síð-
ustu dægrin eru bardagar í lofti.
Tilraunir Þjóðverja og ítala til
að ná aftur strandskikanum
vestur af El Alamein, sem Bret-
ar tóku fyrir nokkrum dögum í
gagnárás, hafa mistekizt.
Bretar gerðu í gær 18 árásir á
skriðdreka- og vélahersveitir
Þjóðverja á þessum slóðum og
unnu þeim mikið tjón. Engin
brezku flugvélanna fórst.
í hernaðartilkynningu Breta
segir, að 6 fasistaflugvélar hafi
verið eyðilagðar yfir eyðimerkur
vígstöðvunum síðasta sólarhring
inn og 5 yfir Malta. Ein brezk
flugvél hafi farizt.
Nœturlœknir: Halldór Stefánsson, Rán-
argötu 12, sími 2234.
Nœturvörður er í Ingólfsapóteki.
Aðalbjörn Pétursson gullsmiður er nú
fluttur hingað til bæjarins og hefur sett
upp gullsmíðavinnustofu á Hverfisgötu
90. Hefur hann fyrirliggjandi mikið og
fjölbreytt úrval af allskonar gull- og silf-
urvörum.
Aðalbjörn hefur um margra ára skeið
stundað gullsmíði á Siglufirði og Akur-
eyri og er viðurkenndur fyrir vandaða
vinnu og smekklegar vörur.
Athygli skal vakin á auglýsingu frá
húsaleigunefnd á 2. síðu bjaðsins í dag,
um skráningu húsnæðislausra manna.
Ferðafélag íslands fer ekki hina fyrir-
huguðu skemmtiför til Gullfoss og Geys-
is næstkomandi sunnudag vegna þess að
bifreiðar fást ekki til ferðarinnar. Aftur
verður farin Þórsmerkurför um næstu
helgi: Lagt af stað á laugardag kl. 4 e.
h., ekið að Stóru-Mörk og gist þar í tjöld
um, en á sunnudagsmorgun farið ríðandi
inn á Mörk (í Stóraenda, Litlaenda, Húsa
dal og^/íðar). Þá komið í Stakkholtsgjána.
Mat og viðleguútbúnað þarf að hafa með
sér. Áskriftarlisti á skrifstofu Kr. Ó. Skog-
fjörðs, Túngötu 3, en farmiðar séu teknir
fyrir kl. 4 á föstudag.
Utvarpið í dag:
12,10—13,00 Hádegisútvarp.
15,30—16,00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómpjötur: Danslög.
19,40 Lesin dagskrá næstu viku.
19,45 Auglýsingar.
20,00 Fréttir.
20,30 Minnisverð tíðindi (Jón Magnússon
fil. kand.).
20.50 Hljómplötur: Forleikir úr óperett-
um, valsar o. fl.
21,10 Upplestur: ,,Skóarinn litli”, saga
eftir Davíð Þorvaldsson (Klemens
Jónssón kennari).
21.25 Hljómplötur: Lög leikin á ýms hljóð
færi.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Donsóknín
Framhald af 1. síðu.
Sunnar á vígstöðvunum hefur
þýzka hernum enn tekizt að
sækja fram eftir Dondalnum, en
mótspyrna rauða hersins er
mjög hörð.
Sovéfher vínnur á víd
Volhoff
Svo virðist sem bardagar séu
að blossa upp á nœr allri víglín-
unni norður til Leningrad. Á
Volkoffvígstöðvunum hefur sov
éther.inn frumkvæðið og hefur
náð nokkrum virkjum í hörðum
árásum.
FanHftU uerflur al leusasi
Framhald af 1. síðu.
að Jón Axel er einn þeirra fugla
sem tranað hafa sér mikið fram
í þeim flokki hin síðari ár. Sjó-
mannastéttin heimtar því hrein
ar línur í þessu máli. Undirmenn
Bækur
Jón Dúason, Landkönnun
og landnám íslendinga i
Vesturheimi I 1—6 h. —
Reykjavík.
Útkoma þessa mikla og merka
rits verður að geta, þótt enn sé
aðeins nokkuð á veg komin og
mér sé fjarri að skrifa um það
ritdóm nú. Eg rek auga í sitt
hvað, sem ég felst ekki á, en svo
er um rit flestra áræðinna manna,
og dr. Jón Dúason er landkönn-
uður á lítt förnum svæðum nor-
rænnar sagnfræði. Auk þessa rits,
sem verður á annað þúsund bls.,
hefur hann samið jafnstórt rit,
sem mun fullgert: Réttarstaða
Grænlands, nýlendu íslands, —
þar sem hann telur íslendinga
cnn eiga óskerta réttarkröfu til
Grænlands og eigi þeir að brigða,
því undan veldi Dana, þegar er
friður gefst til og gengið verður
frá málum, sem við höfum átt
sameiginleg • við þá. — Land-
könnun og landnám sýnir, að Is-
lendingar muni hafa blandazt frum
byggjum Grænlands og víðar um
Norður-Amcríkustrendur og lifi
þar niðjar þeirra, en ímyndun e:n
sé, að þeim hafi verið útrýmt.
Annað höfuðatriði cr þar að sýna,
hvernig vitneskja um Vínland
barst frá Islandi um alla. norour-
álfu ,,og jafnvel suður í hinn
arabíska menningarheim í Asíu
og Afríku, — og enda að ofurlitlu
leyti austur í Kína”, — brot úr
mynd íslendinga af ,,kringlu
heimsins” voru því tekin upp i
rit og landabréf lærðra manna á
miðöldum og gáfu ,,tilefni til
þeirar almennu villu, að hið
þekkta meginland Ameríku væri
Asía og að auðvelt væri að sigla
til austurstranda Asíu í vestur
frá norðurálfu”. Og Columbusi
hefur ekki verið ókunnugt um ís-
lenzka landafundi í vestri. —
Fróðleikur Jóns er geysilegur og
oft langt sóttur, en bókin engu
að síður lipurt skrifuð og læsileg
hverjum, sem er.
B. S.
Handknattleiksmót
fslands hefst í
kvöld á Akureyri
Handknattleiksmót Islands
lielst í kvöld kl. 8,30 norður á
Akureyri.
Þátttakendur í mótinu eru
írá 5 félögum. Héðan úr Reykja-
vík, tekur kvennailolíkur Ar-
manns þátt í mótinu og fóru stúlk
urnar norður í gær.
Islandsmeistari í handknattleik
er Þór á Akureyri.
Félögin, sem keppa, eru þessi:
Ármann frá Reykjavík, Þór frá
Akureyri, Knattspyrnufélag Ak-
ureyrar, Völsungar frá Húsavík
og Þróttur frá Norðfirði. Er búist
við spennandi leik.
skipanna gera Alþýðuflokkinn
ábyrgan fyrir því starfi, sem Jón
Axel Pétursson virðist vinna
sjómannastéttinni til óþurftar
nú í deilunni. Og það ættu bæði
Jón Axel og Alþýðuflokkurinn
að gera sér ljóst nú þegar, að
verði ekki látið af þessu skemmd
arstarfi, þá mun sú stétt, sem
einna drýgstan þáttinn átti við
sköpun Alþýðuflokksins gera
þennan sama flokk áhrifalausan
á næstunni. Þetta er ekki bara
hótun, heldur orð, sem staðið
verður við og efnd. Eins og marg
búið er að sýna fram á, þá var
rétta leiðin sú, að hækka áhættu
þóknun til yfirmannanna frá því
sem nú er, en gera hana um leið
jafnháa til allra skipverja. Það
eru ekki til frambærileg. rök,
sem réttlæti misjafna áhættu-
peninga. Enda þykir þeim, sem
reyna að spilla fyrir þessu máli,
vissara að vinna starf sitt bak
við tjöldin, heldur én á opinber-
um vettvangi. Undirmennirnir
munu halda fast við sína kröfu,
enda hafa þeir samúð allrar ís-
lenzku þjóðarinnar með sér að
undanteknum stórútgerðarmönn
um og þjónum þeirra.
Forsætisráðherrann biður nú
undirmennina að sýna nú þegn
skap og sigla fyrir fósturjörðina
í tvo mánuði, án þess að þeir fái
leiðréttingu mála sinna.
Hversvegna biður hann ekki
útgerðarfélögin að uppfylla kröf
ur farmannanna strax? Það
hefði þó verið ólíkt mannslegra.
Þykir honum kannske að útgerð
arfélögin hafi fórnað til jafns
við sjómannastéttina nú í þessu
stríði? Hverjir hafa orðið millj-
ónaeigendur nú í styrjöldinni?
Eru það sjómennirnir, sem hætt
hafa lífinu, ásamt ekkjum og
munaðarlausum börnum þeirra,
sem fallið hafa í þeirri baráttu?
Nei, það er enginn þessara aðila.
Heldur eru það mennirnir, sem
engu hafa hætt, hvorki fjármun
um né lífi sínu. Mennirnir, sem á
undanförnum árum hafa notað
sparifé landsmanna til allskon-
ar kaupskapar og brasks til
sinna eigin hagsmuna, fyrir sig
sjálfa og sig eina. Sjómennirnir
bera enga ábyrgð á því, þó skipa
félögin láti máske skipin liggja,
þar til hernðaryfirvöldin taka
þau til sinna þarfa. Sjómanna-
stéttin er orðin þreytt á því að
fórna sér fyrir auðkýfinga þessa
lands. En fyrir þjóðina er hún
reiðubúin að færa fórnir sé
henni sýnt réttlæti í viðskipt-
um.
Ármannsstúlkurnar fóru af stað"
norður í gær og eru þær gestir
Þórs á Akureyri meðan á mótinu
stendur. Norðurfararnir eru þess-
ar stúlkur (talið frá markverði):
Steinunn Jóhannesdóttir, Imma
Agnars, Imma Rist, Hekla Árna-
dóttir, Margrét ólafsdóttir, Magn-
ea ólafsdóttir og Fanney Hall-
dórsdóttir. Til vara: Hulda og
Hrefna Ingvarsdætur, Sigrún
Eyjólfsdóttir og ólöf Bjartmars-
dóttir. Fararstjóri er Gunnar
Vagnsson.
7.
DREKAKYN
Eftir Pearl Buck
sa hvorki fingur né tær, og ef þeir eru ekki skakkeygðir og
U sköllóttir, þá get ég ekki séð mun á þeim.
Faðir hennar lét því það ráða valinu, hvor faðirinn vildi
K greiða hærra verð fyrir Jadu, og ungu mennirnir tveir
^ angruðu feður sína með eilífu kvabbi og .hótuðu að drepa
^ sig ef þeir fengju hennar ekki og spilltu friðnum svo á báð-
ö um heimilunum að þegar Ling Tan hitti frænda sinn dag
æ einn í tekránni tók hann hann afsíðis og sagði: Leyfðu mér
ö að gefa þér þrjátíu silfurdali því ég er ríkari en þú, og þú
D segir syni þínum svo að sonur minn eigi að fá þessa stúlku,
X annars verður stöðug úlfúð úr þessu.
ö Frændinn var fús til þess, því þrjátíu dalir var jafnmikið
X og hann gat unnið sér inn sétn lesari og skrifari á hálfu
2* ári og svo var málið útkljáð. Lao Er var trúlofaður Jadu
Zi og gekk að eiga hana eins fljótt og því varð við komið. En
^ það undarlega var, að hann gat ekki fyrirgefið henni með
^ sjálfum sér að hún hafði ekki tekið hann fram yfir hinn,
sa og hann hafði enn ekki árætt að spyrja hana um ástæðuna.
a Stundum á nóttunni, þegar hann lá við hlið hennar, hugs-
æ aði hann sér að þegar hann þekkti hana betur, þegar hún
sa hefði opnað honum hjarta sitt, mundi hann spyrja hana:
sa Hvernig stóð á því að þú vildir mig ekki þegar þú áttir
sa kost á mér?
S3 En hann hafði ekki spurt hana enn. Þó hann gerþekkti
líkama hennar, þekkti hann hana ekki, og ást hans til henn-
^ ar var eirðarlaus, ör og full þjáningar.
^ Hann skundaði til þorpsins og skimaði án þess að á því
bæri eftir grannri stúlku með drengjakoll, í blárri kápu
sa og buxum, Hann hafði oi;ðið ofsareiður daginn þann fyrir
sa tæplega tuttugu dögum, þegar hann kom heim og sá að Jada
sa hafði klippt af sér síða dökka hárið.
sa Mér var heitt, svaraði hún reiðisvipnum á andliti hans.
a Eg átti hárið þitt hafði hann hrópað að henni. Þú hafðir
sa engan rétt til þess að henda því.
22 Hún hafði ekki svarað þessu og þegar hann sá að hún
^ vildi ekki tala, hrópaði hann aftur til hennar: Hvað hefur
^ þú gert af síða hárinu sem þú klipptir af þér?
Hún fór inn í herbergi þeirra, og mælti enn ekki orð
sa frá vörum og kom út með langt og laust hárið. Hún hafði
sa bundið um þykkri enda þess rauðu bandi, og hann tók það
sa úr hendi hennar og lagði það á hné sér, mjúkt og dökkt;
sa hluti af henni sem hún hafði viljandi skilið frá lífi sínu.
sa Hann fann tár koma fram í augu sér, eins og hann hefði
sa misst eitthvað lifandi.
^ Hvað eigum við að gera við það, sagði hann lágróma. Það
2* er ekki hægt að henda því.
Seldu það, hafði hún sagt.,Mig langar til að fá mér eyrna-
^ lokka.
^ Langar þig í eyrnalokka? spurði hann undrandi. Ekki ert
^ þú með göt á eyrnasneplunum.
sa Það er hægt að bæta úr því, sagði hún.
sa Eg skal kaupa eyrnalokka handa þér, svaraði hann þá,
u en ekki fyrir hárið bitt.
sa Svo tók hann hárið og setti það í litla svínsleðurskoffort-
sa ið, þar sem hann geymdi sparifötin sín og silfurhálsfestina,
u sem hann hafði borið þegar hann var barn, og eitthvað
sa annað dót sem hann átti. Þegar hún væri orðin gömul og
hárið á höfði hennar gránað, og þegar hann væri orð-
sa
u
sa
sa
inn gamall og hefði gleymt hvernig hún var nú, ætlaði hann
að taka langa hárið upp úr koffortinu og minnast liðins
tíma.
Hann hafði enn ekki haft tíma til að kaupa eyrnalokkana.
sa því hann hafði verið önnum kafinn við hrísplötunina frá
u morgni til kvölds þar til í dag. Hann hugsaði með sjálfum
u sér þar sem hann þóttist hangsast um þorpið, en skimaði
u raunar hvössum augum allt í kring um sig, að á morgun
^ skyldi hann fara til borgarinnar og kaupa þessa eyrnalokka
u
&
ef hann fyndi hana og' allt væri með feldu, og í kvöld ætl-
aði hann að komast að því hvernig hún vildi hafa þái Hann
sá hana ekki enn, tók að óttast um hana og unga frændann
sem var ókvæntur vegna þess að hann var leiður yfir því
££ að ná ekki í stúlkuna sem hann vildi. Hann fór heim til
X frænda síns og þar stóð húsfreyjan við dyrnar. Hún var stór
u