Þjóðviljinn - 17.07.1942, Blaðsíða 2
ÞJÖÐVIDJINN
FÖstudagur 17. iúlí 1942
oBccjat 'póoluZ'lnn
Munið
Kaffísðluna
Hafnarstræti 16
Auglýsíd í
Þjóðvíljanam
ummtímŒímmzí
„Saklaus er ég af tárum
þessara smælingja”
Síðan hið svarta atvinnuleysistímabil
leið undir lok í bráðina, í sögu Reykja-
víkur, hefur myndazt hér annað böl og
það lítið skárra, — húsnæðisleysisbölið.
Þó nú skíni sól um sæ og borg er alveg
víst að sólin lækkar á lofti og húmskuggar
hausts og skammdegis leggjast yfir þessa
borg og þetta land, og til þess tíma
hugsa nú þeir með kvíða og hrolli, sem
ekkert húsaskjól eiga í vændum. Feður
og mæður með oft ung og veikbyggð
börn og kujvís gamalmenni njóta illa
rómantískra sólarlaga júlíkveldanna. Þeir
máske njóta nú dýrðar líðandi dags, sem
tekið hafa að sér forustu þessa bæjarfé-
lags. En það kvöldar líka hjá þeim er
kuldi og loftleysi sverfur að smælingjun-
um, sem verður troðið í kjallaraholur
eða ruslaherbergi borgarinnar eða hrakt-
ir út um eyðiholt í skúra, byggða úr
kassafjöhim, gjörsneydda frumstæðustu
þægindum. Maður heyrir sagt: Þið eigið
ekki að flykkjast hingað úr svcitinni. Já,
mikið rétt. En hversu margir bornir og
barnfæddir Reykvíkingar eru nú ekki
skýlislausir? Og vantar Rcykjavík ekki
vinnukraft?
Blöðin skýrðu nýlega frá að um 200
manns í Skerjafirði yrðu húsvillt næstu
daga. Timbur er nú ófáanlegt og flcira,
ct að byggingum lýtur gengur líka til
þurrðar. Enginn veit nær úr rætist. L)ag-
arnir taka nú að styttast, allir vita að að-
eins fram í ágústlok verður fólkið dreift
út um sumarbústaði og sveitabýli. Þá verð
ur það að færast til vetursetu þangað sem
það á lieimili. Við íslendingar þökkum nú
forsjón guðs og manna að við höfum
sloppið við loftárásir og aðra eyðingu hern
aðarins, en þrátt fyrir það eru hundruð
jafnv. þúsundir íbúa höfuðborgarinnar hús
villtar. Hvað myndi verða ef eitthvað al-
varlegt skeði? Stutt er síðan að allsstaðar
var rætt og ritað um kosningarnar og for-
ráðamenn þjóðfélagsins þustu eins og líf
lægi við um byggðir landsins til að segja
þjóðinni, hve mikið gott þeir hefðu gcrt
og ætluðu að gjöra ef þeir fengju að
halda völdum og virðingarsætum. En þeir
hafa máske ekki talað um, að þeir hafi
látið hjá líða að leysa mest aðkallandi
vandamálin á hverjum tíma. Þessir menn
gátu ekki leyst úr atvinnuleysiserfiðleikun-
um, því þá vantaði fyrst og fremst viljann
og svo mátt hugkvæmninnar og þeir leysa
heldur ekki hin vandræðamálin af sömu
ástæðum. Það væri að fara öfugt að h'ut-
unum að ég benti þessum forsjármönnum
bæjar og ríkis á úrlausnir í þessu máli, því
það yrði þá máske ekki hægt að þakka
þær vissum stjórnmálaflokki (samanber
hitaveituafrekin) en alþýðufólkinu í þess
um bæ og þeim, sem ekki hafa neitt þak
yfir höfuðið vil ég segja, að ég sé dag-
lega húsnæði, sem taka mætti á þessum
óvenjulegu tímum. Það eru þau húsakynni
bæði í nýjum og gömlum húsum, sem
höfð eru fyrir veitingákrár fyrir erlenda
hermenn og íslenzka slæpingja. Og það
eru nýbyggingar, sem eiga að verða fyrir
ýmsan iðnað, sem lítil þörf er á, heimsku-
lega stórar skrifstofur o. þ. u. 1.
Það mætti skrifa um þetta mál langa
blaðagrein og benda á ótal mistök í þess-
um málum og líka úrláusnir, sem að gagni
mættu koma. En þeir forráðamenn, sem
ekki taka þessi vandamál fólksins hyggi-
legri tökum en ennþá hefur gert verið,
munu ekki virða mín ráð að miklu. Held
ur þegar vetrar og börnin gráta og gam-
almennin nudda beinaberar lúnar hendur,
þá segja þeir: Saklaus er ég af tárum
þessara smælingja.
Ilúsnœ&islaus.
N. D. Skrifar
Kæru ritstjórar!
Viljið þið ekki birtu liugleiðingar míuar
ana, einkabifreiðarnar, bcnzínnotkunina
og nauðsyn þess að ulþýðan taki völdin.
Eg bef tskrifað þetta í smáköflum, þannig
að það geti verið við hsefi Bæjarpóstsins.
Með beztu kveðju,
N. D.
Uthlutun bílanna
Það er fullkomið hneyksli, sem þó er
órannsakað niður í kjölinn, hvernig Bif-
reiðaeinkasalan hefur framkvæmt úthlut
un á nýjum bifreiðum, sem til landsins
hafa vérið fluttar. Þetta ástand stendur
ekki til bóta og má segja í því sambandi
að lengi getur vont versnað. Atvinnubíl-
stjórar með tíu til tuttugu ára reynslu að
baki, sem öóttu um bifreiðar fyrir einu til
tveimur árum, bíða ennþá án þess að fá
nokkra bifreið. Margir þessara manna
standa uppi bíllausir. En á umgetnu tíma
bili fá sumir einstaklingar ekki aðeins
eina bifreið, heldur margar, sem þeir svo
hafa selt öðrum með uppsprengdu okur-
verði. Það lítur út fyrir, að undir verndar
væng Bifreiðaeinkasölunnar sé að myndast
alveg sérstök kaupmennska, þannig að
ýmsir vildarvinir valdamannanna hafa
það bókstaflega að atvinnu að fá bifreiðar
hjá einkasölunni og selja þær svo aftur á
tvöföldu til þreföldu verði. Það er ckki
aðeins Bifreiðaeinkasalan, sem misbeitir
þannig valdi sínu, heldur mun þar ekki
síður vera sekur. sá ráðherra, sem þessi
mál heyra undir.
Vörubílar hafa ekki
pláss á götunum fyrir
lúxusbílum
Það er hart lil þess að vita, að á sarna
tíma sem ógerlegt er að fá leigubilreið
])ó að mannslíf liggi við, þá standa heil-
ar götur fullar af ónotuðum einkabifreið-
um, sem einkasalan og ráðherrann hafa
úthlutað til stríðsgróðamannanna. T. d. í
Hafnarstræti, þar standa allan daginn svo
margar einkabifreiðar, að vörubifreiðar
geta ekki komizt að gangstéttinni þó þær
eigi þangað brýnt erindi. Allar þessar
mörgu algerlega óþörfu einkabifreiðar
valda svo miklum truflunum á umferð-
inni um hinar alltof þröngu götur borgar
innar að til vandræða horfir.
Hvernig vaeri að hætta
að selja benzín til óþarfa
einkaaksturs?
Hvernig væri að setja lög, sem tækju
fyrir alla bensínsölu til allra óþarfa cinka
bíla, hinna svonefndu ,,lúxus,’bíla stríðs-
burgeisanna? Það er merkilegt, að hér úti
á Islandi skuli slíkur .óþarfa benzínaustur
vera leyfður á sama tíma sem aðrar þjóð-
ir banna slíkt eða takmarka og eiga þó
o.líunámur sjálfar svo sem Bandaríkja-
menn.
Alþýðan verður að taka
í taumana
Nei, það er sama hvernig á þetta mál
er litið. Það er eitt fádæmastórt hneyksli.
Hver vill láta svona lagað fá að þróast í
friði? Jú, það vilja s^ríðsburgeisarnir og
þeirra fylgifiskar. En hér verður alþýðan
að taka duglega í taumana, það er ekki
hægt að stöðva svona þneyksli nema með
því að taka völdin af burgeisunum. Al-
þýðan sjálf verður að taka við stjórninni
og hún gctur það, ef hún stendur sam-
einuð. Þetta, sem hér hefur verið minnst
á er ekkert einsdæmi, nei, það er aðeins
eitt dæmi af hinni miklu spillingu í opin-
beru lífi, sem risið hefur nú hærra en
nokkru sinni áður í sögu þjóðarinnar.
Það er verkefni alþýðunnar að hreinsa
duglega til í þjóðarbúinu, að uppræta
spillinguna, en setja í staðinn heiðarleika
í öllum viðskiptum. 1 kosningunum í
haust er tækifæri að kveða upp réttlátan
dóm yfir spillingaröflum þjóðfélíígsins, og
5. júlí síðastliðinn gefur góða von um
aö alþýðan fari bráðlega að þekkja sinn
vitjunartíma.
N. D.
cxx><>x>o<><>o<x><><><><><>
Útbreiðið
Þjóðviljann
ooooo<xxxx>ooooooo
y/udfiWijjíf
i m
yvrv&fcðiH
Þegar nazistar réðust á Sovét
ríkin 22. júní jyrra, varð Stefán
Pétursson harla feginn. „Þjóð-
verjar vaða inn í Rússland frá
Norður-íshafi til Svartahafs!”
hrópaði hann í óstjórnlegum
fögnuði. Og eftir því sem naz-
istar sóttu lengra austur í Rúss-
land, myrðandi óvopnaða borg-
ara, konur og börn, rœnandi eiy
um þeirra eftir því glæddust von
þeirra við Alþýðublaðið um að
nazistum mundi brátt takast að
Ijúka því „menningarhlutverki”
sínu að leggja verkálýðsríkið í
rústir. Stefán Pétursson settist
öðru hvoru niður með miklum
spekingssvip og skrifaði her-
frœðilega forystugreinar um
það, lwernig hann hugsaði sér
að framkvœmd þessa „menning
grhluverks” mundi ganga.
*
Svo kom veturinn og mestu
mannalœtin fóru af nazistapilt-
um Hitlers í Rússlandi. Þeim
fór að kólna því að þeir voru
illa búnir. Þeir dúðuðu sig í
teppi og dúka, sem þeir stálu í
þorpum Rússlands, svo að helzt
minnir á leikhústrúða, eftir því
sem myndir sýna. Hinir hraustu
Germanir forsmáðu jafnvel eklci
að fara í hnjáskjól kvenna sér
til hlýinda ’tt undanhaldinu.
*
Á meðan skólstæðingar Stef-
áns Péturssonar voru svona illa
á sig komnir austur í Rússlandi,
var hvergi nœrri annar eins völl
ur á honum sjálfum og áður,
meðan þeim gekk betur. Stefán
sJcrifaði víst ekki nema eina for
ystugrein um stríðið og var þar
eitthvað að nöldra um það, að
þessir vetrarsigrar Rússa vœru
nú svo sem engir sigrar. ■
*
En svo kom sumarið, og naz
istar hófu nýja sókn í Rúss-
landi með nokkrum byrjunar-
árangri. Og viti menn: Stefán
Pétursson tekst allur á loft og
verður nú alveg eins herskár
og í fyrrasumar. Hann er svo
hrifinn af sigrum nazista hjá
Don, að engu er líkara en að
þetta séu sigrar hans sjálfs, Og
hann sezt niður enn á ný og
skrifar forystugrein í Alþýðu-
blaðið um hina dásamlegu
stríðsvél nazista. Hrifninguna
og fögnuðinn yfir hinum ,góða’
árangri þessara stríðsvéla má
alstaðar lesa milli línanna. Sjáið
segir Stefán hróðugur, þið héld-
uð að búið vœri að stöðva Iiitl
er! Ónei, elclci alveg! Hann á eft
ir að jafna betur um bölvaða
bolsévikkana! Já, það er nú
meiri dugnáðarforkurinn, þessi
Hitler! (Stefán skellir á lærið).
Skyldi hann ekki fara það, sem
hann œtlar sér? Sá er nú ekki
af balci dottinn.
*
En verið gæti, að þeir Siefán
og Hitler yrðu báðir fyrir von-
brigðum í þessum, efnum, og
pað fyrr en varir.
L
17. þíng
verður háð í Reykjavík um eða fyrir miðjan nóv-
ember í haust.
Fundardagur og fundarstaður nánar auglýst
síðar.
Kosningar til sambandsþingsins fari fram í fé-
lögunum á tímabilinu 10. sept. til 10. október.
Reykjavík 17. júlí 1942
Sigurjón A. Ólafsson Guðgeir Jónsson
forseti ritari
Kaupið ÞJóðvilJauu
Krakka vantar
til að bera Þjóðviljann til kaupenda.
GOTT KAUP
Talið við afgreiðsluna Austurstræti 12,
sími 2184.
Nýkomaar vörur
Ódýr gluggatjöld, aðeins lítið eitt.
Karlm.vesti — ensk.
Ullar sundbolir og skýlur, „Meridian”.
Handklæði, baðhandklæði og mjög stór sól-
baðhandklæði.
Sokkabandabelti, fjölbreytt úrval.
Karlm. ullarsokkar, margar gerðir.
Satin og silki náttkjólar. Stakir undirkjólar
og buxur. Undirföt. Stakar skyrtur og Jer-
sey buxur.
Rykfrakkar og regnkápur á karla, konur og
börn, fjölbreytt úrval.
Ennf remur er nokkuð eftir af
.Modcil'-fejólum og feápum
Einnig Angoragarn, ullargarn, silkitvinni,
auroragarn, perlugarn, ísaumssilki o. fl.
Dragið ekki að kaupa það, sem þér þarfnizt
— það er ekki víst að það fáist seinna.
VESTA
Laugaveg 40 —---- Sími4l97