Þjóðviljinn - 06.08.1942, Side 2
2
þjSðvilsjinn
Fímmtudagurínn 6. ágúst 1942.
. ... — ■■ ■■■ — ■■■■■■■■■ - 11 V" 1
Bifreiðastjórafélagið „Hreyfill“.
FUNDUR
cBccjat yóstwwnn
verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
fimmtudaginn 6. ágúst 1942 kl. 12,30 eftir miðnætti.
Fundarefni: Bifreiðaúthlutunin o. fl.
Fjármálaráðherra Jakob Möller og forstjóra Bif-
reiðaeinkasölunnar, Sveini Ingvarssyni er boðið á
fundinn.
Stjómin.
Mat
á fasteignum við eftirtaldar götur í Reykjavík liggur
frammi á skrifstofu yfirfasteignamatsnefndar, Amt-
mannsstíg 1, dagana 6. ágúst til 6. september, að báðum
dögum meðtöldum.
Egilsgata, Einholt, Eiríksgata, Engjavegur, Fálka-
gata, Faxagata, Ficherssund, Fjólugata, Fjölnisvegur,
Flókagata, Flugskálavegur, Fossagata, Fossvogsvegur,
Frakkastígur, Framnesvegur, Freyjugata, Fríkirkju-
vegur, Garðastræti, Garðavegur, Geirsgata, Granda-
vegur, Grensásvegur, Grettisgata, Grjótagata, Grund-
arstígur, Guðrúnargata,- Gunnarsbraut, Háaleitisveg-
ur, Haðarstígur, Hafnarstræti, Hallveigarstígur, Há-
teigsvegur, Hátún, Hávallagata, Hellusund, Hlíðarveg-
ur, Hofsvallagata, Hofteigur, Hólatorg, Hólavallagata,
Hólsvegur, Holtavegur, Holtsgata, Hrannarstígur,
Hrefnugata, Hringbraut, Hrísateigur, Hverfisgata,
Höfðatún, Hörpugata, Ingólfsstræti.
Reykjavík, 6. ágúst 1942.
Fasteignamatsnefndin.
Hámarksverð á fiski
í ReYkjavík og Hafnarfírðí,
gíldandí frá 1. ágúst 1942
Nýr þorskur, slægður með haus ..... kr. 0.70 pr. kg.
Nýr þorskur, slægður hausáður ...... — 0.90--------
Nýr þorskur, slægður og þverskorinn
í stykki ......................... — 0.95--------
Ný ýsa slægð með haus............... — 0.75--------
Ný ýsa slægð hausuð.................— 0.95---------
Ný ýsa slægð hausuð og þverskorin í
stykki ........................... — 1.00 — —
Nýr fiskur (þorskur og ýsa) flakaðúr
með roði og þunnildipn............ — 1.50--------
Nýr fiskur (þorskur og ýsa) flakaður
, með roði án þunnilda ............. — 2.10 — —
Nýr fiskur (þorskur og ýsa) flakaður
roðflettur án þunnilda............. — 2.50-------
Nýr koli ........................... — 2.40--------
Ofangreint verð er miðað við það, að kaupandinn
sæki fiskinn til fisksalans. Fyrir heimsendinguna má
fisksalinn reikna kr. 0.10 pr. kg. aukalega.
Fiskur, sem frystur er sem varaíorði, má vera kr.
0.40 dýrari pr. kg. en að ofan greinir.
Dómnefnd í kaupgjalds- og verðlagsmálum.
Sjálfstæðisflokkurinn á
ekkert blað.
Burgeisarnir eiga blöðin og
flokkinn.
Á íramboðsfundunum í Borgarnesi
sagði frambjóðandi Sjálfstæðisflokks
ins, Friðrik Þórðarson, mcðal annars:
„Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur
allra stétta, og hann er eini flokkur-
inn, sem ber hag allrar þjóðarinnar
fyrir brjósti“. í svarræðu sinni sýridi
frambjóðandi Sósíalistaflokksins, Jó-
hann Kúld, fram á það, hver regin-
fjarstæða slík fuilyrðing væri, og m.
a. komst hann þannig að orði: „Við
getum alveg slegið því föstu, að Sjálf
stæðisflokkurinn er aðeins sérhags-
munaafl þeirra, er hafa andstæða
hagsmuni við alla alþýðu í landinu,
svo sem braskararnir á verzlunar- og
útgerðarsviðinu ásamt ýmsum fleir-
um. En hitt skal viðurkennt, að þess-
um flokki hefur tekizt að blekkja til
fylgis við sig fjölda manna úr alþýðu
stétl, og getur hann þakkað þann ár-
angur hinum miklu áróðurstækjum
sínum, blöðum flokksins.
í næstu ræðu sinni gerði Friðrik
þessa athugasemd við ræðu Jóhanns:
„Frambjóðandi Sósíalistaflokksins
heldur því fram, að Sjálfstæðis-
flokkurinn eigi fylgi sitt að þakka
áróðri, sem rekinn sé í blöðum
flokksins, og hann geti því þakkað
fjárráðum sínum fylgið. Eg vil lýsa
því yfir í þessu sambandi, að mér
vitanlega, á Sjálfstæðisflokkurinn
ekkert blað“.
Þegar Jóhann talaði næst, hóf
hann mál sitt á þessa leið:
„Þar sem við sósíalistar viljum
hvorki gera mönnum eða flokkum
rangt til, þá vil ég biðja Friðrik Þórð
arson afsökunar á því, að hafa sagt
hér, að Sjálfstæðisflokkurinn ætti sín
blöð. Hið rétta í þessu máli er, að
Fjallfoss
fer í kvöld vestur og norður.
burgeisarnir, sem eiga flokkinn, þeir
eru einnig eigendur málgagnanna og
hvorutveggja er aðeins tæki þeirra í
baráttunni móti hagsmunum fólksins
í landinu“.
Við þetta gerði Friðrik enga at-
hugasemd.
Fleiri molar af sama fundi.
Á þessum sama fundi lýsti fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins því yf-
ir, að ef hann kæmist á þing, þá
myndi hann vinna ötullega að því, að
útvega landbúnaðinum vinnuafl. Og
leiðin, sem hann vildi fara, var þessi:
Unnið skyldi að því við herstjórnina,
að hún hefði ekki íslendinga lengur
í vinnu. Svo skyldu fluttir inn Fær-
eyingar, því hann sagði, að atvinnu-
leysi væri mikið í Færeyjum. Við
þessar ráðstafanir sagði hann, að
skapast mundi hér á íslandi heppi-
leg eftirspurn eftir vinnunni.
Frambjóðandi Sósíalistaflokksins
vildi hinsvegar leysa þetta vandamál
með samningum við verkalýðssam-
tökin, og upplýsti í því sambandi um
tilboð Dagsbrúnar frá síðastliðnum
vetri og vori. Ýmsir bændur, sem
ekki höfðu heyrt þessara tilboða get-
ið urðu mjög hissa, þegar þeir vissu
að slikt tilboð hefði fram komið, án
þess að því væri gaumur gefinn af
ríkisvaldinu. Eftir fundinn komu
tveir bændur úr héraðinu til fram-
bjóðanda Sósíalistaflokksins og
spurðu nánar um þessi mál.
Þess skal getið, að á Borgarness-
fundinum, þar sem saman var kom-
ið sambland bænda og verkamanna,
þá varaðist Bjarni Ásgeirsson, fram-
bjóðandi Framsóknar, að minnast á
þessi mál. En á Hrafnkelsstaðafund-
inum lýsti hann yfir samskonar af-
stöðu og frambjóðandi Sjálfstæðis-
flokksins, að öðru leyti en því, að
hann talaði ekki um innflutning Fær
eyinga. Bændur virtust ekkert hrifn-
ir af úrræðum fulltrúa hinna ábyrgu
flokka í þessu vandamáli.
Hamll WMllliMI
ooooooooooooooooo
Munið
Kaffísðluna
Hafnarstræti 16
XXXXXXXXXXXXXXXXX
Krahka vðntnr
til að bera Þjóðviljann til kaupenda.
GOTT KAUP
Talið við afgreiðsluna Austurstræti 12,
8Ími 2184.
TILKYNNING
Allir þeir, sem kynnu að eiga kröfur fyrir vinnu, vör-
ur eða annað á hendur Georg A. Fuller Company og
Merritt Chapmann & Scott Corporation, verða að fram-
vísa þeim fyrir 31. ágúst 1942.
Nánari upplýsingar eru gefnar hjá Fleet Air Base,
U. S. Navy, eystri skrifstofunni í Fossvogi.
GEORG A. FULLER COMPANY og
MERRITT-CAPMAN & SCOTT CORP.
Slcfán Jóhann lét ljós sitt skina i
Alþýðublaðinu í gær, og skrifar uni
„lýðræðið i Rússiandi".
Enn sem fyrr er það kommúnista-
hatrið, sem knýr hann til þessara
skrifa.
Hyggst liann cnn að sanna, að „ein
ræði kommúnista“ sé ríkjandi í Sov-
étríkjunum, en vesaiings maðurinn
virðist liafa gleymt því, að tímar
Finnagaldursins eru nú löngu liðn-
ir, en honum er svo sem ekki of gott
að berja höfðinu við steininn —
söm cr hans gerð.
Ef til vill getur Stcfán Jóhann lifað
alla sína ævi, án þess að Iáta sér
skiljast, að lýðræðið í Sovétríkjun-
um verður ekki afnumið, hve mikilli
prentsvertu sem Alþýðublaðið eyðir
til þess að segja fólki að það sé ekki
til.
*
Stefáni er í nöp við bók dónipró-
fastsins af Kantaraborg um Sovétrík-
in og skrifar uni hana sem liina
„barnalegu lofgerðarollu“ og hið „ein
feldnislega áróðursrit“.
Það er nú nokkuð annað eða skrif
Stefáns Jóhanns um Sovétríkin! Þar
er hvorki barnaskap né einfcldni fyr-
ir að fara!
Ilér er lítið dæmi. Á fjórðu síðu
Alþýðublaðsins vitnar Stefán Jóhann
í stjórnarskrá Sovétrikjanna, þar seg
ir: „Réttur til framboðs cr tryggður
félagslegum samtökum alþýðunnar,
deildum Kommúnistaflokksins, verka
lýðsfélögum, samvinnufélögum og
menningarfélögum.“
Af þessu dregur St. Jóliann svo-
hljóðandi ályktun á 6. síðu Alþýðu-
blaðsins: „Kommúnistar og samtök
þeirra, ráða EINIR hverjir eru í kjöri
til þings“.
. =i:
Þá ræðir hann á 4. síðu Alþýðu-
blaðsins um „málfrelsi, funda- og
samkomufrelsi, og frelsi til að fara
skrúðgöngur og kröfugöngur, og vitn
ar síðan í stjórnarskrá Sovétríkj-
anna:
„Þessi réttindi þegnanna eru tryggð
með þvi, að liið vinnandi fólk og
samtök þess liefur umráð yfir prcnt-
smiðjum, pappírsbirgðum, opinber-
um byggingum, götum, samgöngu-
tækjum og öðrum efnalegum skilyrð-
um“.
Af þessu dregur St. Jóhann þessa
ályktun, er hann birtir á G. síðu Al-
þýðubiaðsins:
„Kommúnistar einir og félög og
samtök undir stjórn þeirra, hafa
EINIR málfrelsi, prentfrelsi, funda-
frelsi og samkomufrelsi“.
Slíkur rökstuðningur á víst ekki
mikið skylt við „barnalegan“ og „ein
feldnislegan" áróður!!
*
Og svo getur St. Jóhann ckki stillt
sig um að minnast á „samherja“ sinn
„jafnaðarmannaforingjann Tanner“,
sem til þess að „vernda til hins ýtr-
asta frelsi finnsku þjóðarinnar, að
vernda lýðræðið í Iandinu“ o. s. frv.
er nú þátttakandi i stríði Hitlers,
þátttakandi í „menningarhlutverki
nazismans að útrýma kommúnisman
um“!!
„Undir þetta taka allir finnskir
jafnaðarmenn“, segir St. Jóhann!!
Það hefur sjálfsagt verið af sömu
ástæðum, sem Finnar Iétu erlend her
veldi byggja hina marg umtöluðu
IHannerlieimlínu og önnur hervirki,
til þess að nota sem stökkpall til á-
rása á Sovétríkin!
Þýzki lierinn, sem ræiur Iögum og
Iofum i Finnlandi, er þar sjálfsagt
til þess „að vcrnda til liins ýtrasta
frelsi finnsku þjóðarinnar11!!
Útbreiðið
Þjóðviljann