Þjóðviljinn - 09.09.1942, Síða 1
7. árgangur.
105. tölublað.
Miðvíkudagur 9. september 1942
Chinllll jirihiF lilirðiR n fillsli
iliii iii SöiMani
Roosevelf segir að heímssðgulegar sóknaraðgerðir séu I undírbúníngí
Winston Churchill hélt ræðu um styrjöldina í neðri mál-
stofu brezka þingsins í gær, og kom víða við.
Þegar hann skýrði frá för sinni til Moskva, lét hann þess
getið, að Rússar litu svo á að Bretar og Bandaríkjamenn hefðu
ekki lagt sig nóg fram til hjálpar Sovétríkjunum, en leiðtogar
Sovétríkjanna væru sannfærðir um að Bandamenn þeirra í
vestri munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sigrast
á hinum sameiginlega óvini, eins fljótt og hægt er.
Churchill lauk miklu lofsorði á Stalín og kvaðst þess full-
viss að Rússar muni berjast gegn nazismanum þar til yfir lýkur.
í ræðu sem Roosevelt Bandaríkjaforseti hélt í fyrra-
kvöld gaf hann yfirlit um styrjöldina og lýsti því yfir að sókn-
araðgerðir, sem hafa munu heimssögulega þýðingu, væru í und-
irbúningi.
Churchill lýsti yfir því, að
hann hefði ekki komið tómhent
ur til Moskva. í júlí hefðu æðstu
yfirmenn hers og flota Banda-
ríkjanna komið til London, og
ó ráðstefnum sem þar hefðu ver
ið haldnar hefðu verið teknar
ákvarðanir, sem hafa munu
djúptæk áhrif á styrjöldina.
Það voru áætlanirnar og ákvarð
anirnar frá þessum ráðstefnum
sem Churchill fór með til
Moskva.
Um Egiftaland sagði Church-
ill að brezki herinn þar væri
nógu sterkur til að tryggja vörn
Nílardalsins mánuðum saman
að minnsta kosti.
Skipatap Bandamanna er enn
mjög mikið, sagði forsætisráð-
herrann, en hefur farið minnk-
andi í júlí, ágúst og það sem af
Bifreiðaúthlutunarnefnd
og flenntamúlarúð
er september. Baráttan gegn kaf
bátunum hefur einnig verið rek
in með betri árangri nú undan-
farið.
Churchill minntist á Dieppe-
árásina, og taldi að hún hefði
verið ómissandi undanfari hern
aðaraðgerða í stórum stíl, en um
áætlanir varðandi þær gæti
hann ekki gefið neinar upplýs-
ingar.
Gert hafði verið ráð fyrir að
umræður um styrjaldarmálin
stæðu í tvo daga, en skömmu
eftir að Churchill hafði lokið
ræðu sinni tilkynnti forseti að
umræðunni væri lokið. Var sára
lítil þátttaka í umræðunum og
tóku þingmenn að tínast burt
þegar er Churchill hafði lokið
máli sínu.
Stjórnarskrárbreyting sú,
varðandi æðstu stjórn íslenzka
ríkisins, sem ríkisstjórnin hefur
lagt fyrir Alþingi, var til um-
ræðu í efri deild í gær. Stóð
fyrsta umræða málsins yfir, með
smáhléum, frá því kl. 10 f. h. til
kl. 8,15 e. h.
Forsætisráðherra fylgdi frum-
varpinu úr hlaði með fáum orð-
um og óskaði eftir hraðri af-
greiðslu málsins í þingdeildinni.
En Framsóknarflokkurinn
þóttist eygja í þessu máli ágætt
tækifæri til árása á ríkisstjórn-
ina, sem hefði verið búin að lofa
því, að leysa þetta mál á rögg-
samlegri hátt á þessu næsta
þingi. Og þó sé hér um helgasta
mál allrar þjóðarinnar að ræða,
fannst framsóknarmönnum vel
við eiga að setja ímyndaða póli-
tíska hagsmuni flokks síns ofar
á blað. Hóf því Hermann Jón-
asson hinar svæsnustu árásir á
ríkisstjórnina og reyndi jafn-
framt að gera þessar aðgerðir í
sjálfstæðismálinu sem auðvirði-
legastar. Væru þær ekki spor
áfram, heldur aftur á bak, og
jafnvel, eins og hann orðaði það:
„ný hræsni í sjálfstæðismálinu“.
— Hefði ríkisstjórninni með að-
gerðum sínum í sjálfstæðismál-
inu, framið ,ófyrirgefanlegt pólit
iskc glappaskot“ — og „minnk-
að virðingu umheimsins fyrir
okkur meir en nokkurri ríkis-
stjórn nokkurntíma áður hefði
;tekizt“. Þessvegna væri heldur
i,,ekki hægt að þurrká af þjóð-
inni smánina, nema þurrka af
henni núverandi ríkisstjórn" —
og var auðheyrt, að þá var hann *
kominn að því, sem honum
fannst vera mergur málsins.
Jónas frá Hriflu stóð einnig
upp og sagði enn einu sinni í
löngu máli, sögu kjördæmabreyt
ingarinnar og líkti þeirri „árás
á Framsóknarflokkinn" við árás
ina á Singapoor, og önnur slík
hervirki nútímastyrjaldar.
Fannst honum engin von til að
Framsóknarmenn gætu unnið
með hinum flokkunum að
nokkru máli — ekki einu sinni
helgasta máli þjóðarinnar —
fyrst hann hefði orðið að þola
slíka árás.
Norskl bladatnaðurínn Ola
Hofmo myrfur
Á miðnætti í nótt kaus Al-
þingi 3 menn í bifreiðaúthlut-
unarnefnd. Þjóðstjórnarflokk-
árnir gömlu skiptu svo með sér
bitunum:
Stefán Jónsson, skrifstofustj
hjá gjaldeyris- og innflutningsn.
(Framsóknarfl.), Jón Sigurðs-
son erindreki Alþýðusambands-
ins (Alþýðufl., komst inn með
hjálp Framsóknar), Gísli Jóns-
son, alþingismaður (Sjálfst.fl.).
Varamenn:
Kristjón Kristjónsson (Fram-
sókn), Felix Guðmundsson
(Alþýðufl.), Jóhann G. Möller
(Sjálfstæðisfl.).
Almenningur heíur beðið þess
með nokkurri eftirvæntingu,
hvernig kosning í Menntamála-
ráð mundi fara. Nú hefur Al-
þingi kosið — og eru sömu menn
irnir endurkosnir.
Þrfr norskir verkam
Tilkynnt er frá Oslo að norski
blaðamaðurinn Ola Hofmo, hafi
verið myrtur af nazistum.
Hofmo var blaðamaður við að-
almálgagn Kommúnistaflokks-
ins „Arbeideren“. Hann var
heima hjá sér í Oslo þegar Þjóð-
verjar komu að handtaka hann.
Hofmo var ljóst hvað beið hans
í fangelsum þýzku nazistanna
og reyndi að flýja út um glugga,
en var skotinn til dauða. Hann
var 35 ára gamall og lætur eftir
sig konu og tvö böm.
Bróðir Ola Hofmo, Rolf, var
ritari íþróttasambands verka-
manna. Hann var dæmdur í
hálfs annars árs fangelsi, og þeg
ar hann hafði setið inni þann
tíma, var hann sendur til Þýzka
lands.
na dæmdir til dauða
Meðal þeirra Norðmanna, sém
nýlega hafa verið fangelsaðir í
Oslo, er hinn kunni guðfræðing-
ur Kristian Schelderup.
Frá Noregi berast þau tíðindi
um Stokkhólm að þýzki herdóm
stóllinn hafi dæmt. til. dauða 3
norska verkamenn, þá Alf -Krist
iansen, Hákon Eriksen. og S.ig-
urd Hansen. Þeir voru ákærð-
ir fyrir að hafa tekið þátt í
sprengjutilræði, sem framið var
fyrir' nokkru á lögreglustöð í
miðhluta Oslóborgar. éprengjan
drap 1 lögreglumann en særði
tvo aðra. Áður hafa Þjóðverjar
dæmt 5 Norðmenn til lífláts og
voru þeir einnig ákærðir fyrir
þátttöku í þessari sörpu sprengju
árás.
Forsætisráðherra svaraði af
hálfu ríkisstjórnarinnar og bar
Hermanni sízt betur sögu, en
Hermann honum, og var þessi
þáttur umræðanna lítið til fram
dráttar sjálfstæðismáli íslenzku
þjóðarinnar.
Brynjólfur Bjarnason talaði af
hálfu Sósíalistaflokksins. Lýsti
hann því yfir,..að á s.l. vori hefði
Sósíalistaflokkurinn ekki talið
neina sérstaka nauðsyn á að
gengið yrði frá endanlegum sam
þykktum um æðstu stjórn lands
ins, á þessu og næsta Alþingi.
En fyrst ríkisstjórnin hefði á-
kveðið að gera það, teldi Sósíal-
istaflokkurinn sér skylt að
stuðla að því, að málið yrði nú
leyst, þrátt fyrir þá .örðugleika,
sem á væru. Og fyrst ekki hefði
náðst samkomulag um þær leið-
Framhajd á 4. tíSu.
Frá satncinuðu
þíngí í gærkvöldi
Fundur var haldinn í samein-
uðu þingi kl. 11 í gærkvöldi. Þetta
gerðist helzt á fundinum:
1. Þingsályktun um skipuii .
nýrrar stjórnarskrárnefndar skip-
aða átta mönnum, tveim frá
hverjum flokki,,- skv. tilnefningu.
Þingsályktunin var samþykkt og
afgr. til ríkisstjórnar.
2. Þingsál. þeirra framsóknar-
manna um að Alþingi lýsi stuðn-
ingi við núverandi ríkisstjóm
fram til næstu Alþmgiskosninga.
Var ályktun þessi samþykkt með
36 atkv. , þeirra framsóknar- og
sjálfstæðismanna, en þingmenn
Sósíalistaflokksins og Alþýðufl.
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Gerði allur þorri þingmanna grein
fyrir afstöðu sinni til málsins og
er greinargerð fyrir afstöðu Sósíal
istafl. birt á öðrum stað hér í
blaðinu. —
Árúsum fasistaherjanna
við Stalfngrad hrundið
Litlar breytingar virðast hafa
orðið á austurvígstöðvunum síð-
astliðinn sólarhring.
Miðnæturtilkynning sovét-
stjórnarinnar segir, að harðir
bardagar hafi verið háðir í gær
vestur og suðvestur af Stalín-
grad, og á Novorossísk- og Mos-
dok-svæðunum. Var árásum fas
istaherjanna hvarvetna hrundið
Harshall hershSfðingi ú
Islandi
Amerísku hernaðaryfirvöldin
tilkynna að Marshall hershöfð-
ingi, King aðmíráll, Harry Hopk
ins og Steve Early hafi komið í
stutta heimsókn til íslands síð-
ari hluta júlímánaðar. Hershöfð
inginn skoðaði herstöðvar og lét
í ljósi ánægju sína yfir því, hve
varnir íslands væru góðar. Hann
tók það sérstaklega fram, að
starf hersins hér á íslandi væri
hið erfiðasta vegna þess, að her-
inn yrði að hafa stöðugan and-
vara á sér og gæta hinnar mestu
árvekni í hvívetna.
Þegar gestirnir héldu af landi
brott höfðu þeir með sér 20
punda íslenzkan lax og tvö pund
af Akureyrarosti handa Roose-
velt forseta.
Sveinn Björnsson ríkisstjóri
sat veizlu sem haldin var Mar-
shall hershöfðingja að skilnaði.
Víðskiptasamningur milli
Kanada og Sovétríkjanna
Víðtækur viðskiptasamningur
milli Kanada og Sovétríkjanna
var undirritaður í London í gær.
Hafa viðskipti landanna farið
mjög vaxandi síðustu misserin,
en ekki ei'u nema nokkrir mán-
uðir síðan Kanada viðurkenndi
sovétstjórnina.