Þjóðviljinn - 09.09.1942, Page 4
þJÓÐVILJINN
■H Tjarnarbíó HB
LYDIA
OG BIÐLARNIK FJÓRIR
Aðalhlutverk:
OrWglnnt
Nætiu'læluiir: Bjarni Jónsson,
Reynimel 58 sími 2472.
Næturvörður er, í Ingólfsapóteki
Leiðrétting. í tilkynningu Dags-
brúnar í blaðinu í gær stóð, „eftir-
farandi kauptaxta‘“, en átti að vera:
„eftirfarandi grunnkauptaxta."
Útvarpið í dag:
19.25 Hljómplötur: Létt lög, leikin ó
ýms hljóðfæri.
20.30 Samleikur á orgel og píanó
(Eggert Gilfer og Fritz Weiss-
happel): Hugleiðingar eftir
Schubert.
20.50 Upplestur: „Ökumannaskýlið“,
smásaga eftir A. J. Alan (Jón
Þórarinsson).
21.10 Hljómplötur: íslenzkir kórar.
Hai»pdrættið. Athygli skal vak-
in á því, að í dag er síðasti sölur
dagur í 7. flokki og síðustu for-
vöð að endurnýja miða. Þeir, sem
láta undir höfðuð leggjast að
endumýja í dag, verða ekki með
í drættinum á morgun.
I. R R. 10. sept. íþróttamótið
hefst á morgun kl. 7 e. h. á I-
þróttavellinum. Nafnakall fyrir
allra íþróttagréinarnar fer fram
kl. 6,45. í kvöld kl. 7 (nafnakall
kl. 6,45) fara fram undanrásir í
100 m. hlaupinu. Ennfremur fer
þá fram keppni í langstökki og
kúluvarpi fyrir öldunga.
Keppendur og starfsmenn cru
áminntir um að mæta tímanlega.
Alþingi slitið i dag kl. 2.
Samningar mflli ,,Þróttar“
á Siglufirði og verksmiðju-
stjórnarinnar
Verkamannafélagið Þróttur á
Siglufirði unditskrifaði í gær
samning við stjórn ríkisverk-
smiðjanna.
Samkvæmt honum verður
kaup verkamanna við verk-
smiðjurnar að viðbættri vísitölu
sem hér segir (í september);
Almenn dagvinna 4,72, eftir-
vinna 7.08, sunnudagavinna 9.34.
Skipavinna: dagvinna 5.34,
eftirvinna 8.01, helgidagavinna
10.68.
Mjölútskipun: samsvarandi
taxtar 5.85, 8.78. 11.28.
Kol-, salt-, sement-vinna: Dag
vinna 6.82, eftirvinna 10.23, eft-
irvinna 13.64.
8 tíma vinnudagur og fleiri
réttindi fást með samningi þess-
um.
•OOOOOOOOOOOOOOOdOOOOOOOOOOOOOÖOOOOO*
Iljartanlega þakka ég ollum þeim, fjar og nær, sem heiðr-)
>uðu mig með gjöfum eða á annan hátt á 85 ára ai'mæli mínu.)
Guðbjörg Halldórsdóttir,
Nýlendugötu 13.
a.^XASSHB
ÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOöOOOOv
Stefán Pétursson fær
ðflugan liðsauka i barðtt-
unni gegn kommðnistum
í útvarpi frá Berlín til Banda
ríkjanna sagði einn af áróðurs-
postulum nazista meðal annars:
„Dauði hertogans af Kent á
leið hans til íslands hefur orðið
til þess að augu manna beinast
að eyjunni. Nýafstaðnar kosn-
ingar sýna, að kommúnistum
fer þar mjög fjölgandi. Sjötti
hver íbúi landsins er orðinn
rauður.
íslendingar eru snauðir og fá-
fróðir. Vegna þess hve landið er
háð brezka auðvaldinu, urðu
landsbúar auðseld bráð fyrir
rauðliða(!!!) Kommúnistar
njóta vikulegs fjárstyrks frá
Moskva, og á þennan hátt er
verið að undirbúa að afhenda
Stalín landið!“
Það er eins og manni finnist
þetta eitthvað kunnuglegur
málaflutningur. Það skyldi þó
aldrei vera að íslenzk lýðræðis-
blöð noti samskonar barnalegan
áróður og Göbbelsútvarpið.
Væri ekki ómaksins vert að
fletta upp í leiðurum Stfáns Pét
urssonar og Reykjavíkurbréf-
um Valtýs Stefánssonar?
Roosevelt vill festa
vðruverð og vinnulaun
Roosevelt forseti hélt ræðu í
fyrrinótt um þær ráðstafanir er
l»ann telur að gera verði til að
koma i veg fyrir verðbólgu.
Hefur forsetinn farið þess á
leit við þingið að það veiti hon-
um vald til að festa verðlag á
vörum og kaupgjaldi er þurfa
þykir.
Bandaríkjaherstöðvðr
á Ga'apagoseyjum
Samfeomulag við stjórnína
í Efevador
Baudaríkjaflotinn og flugher-
inn haía komið sér upp stöðvum
á Galapagoseyjum í Kyrrahafi,
en þær eru um 1100 km. vestur
af strönd Ekvadors í Suður-
Ameríku.
Cordell Hull, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, skýrði frá
þessu í gær, og gat þess, að her-
stöðvarnar hefðu verið byggðar
með fullu samþykki stjórnarinn
ar í Ekvador.
Afstaðð Sósfðlista-
flokksins
til ríkisstjórnarinnar
Sósíalistaflokkurinn er í and-
stöðu við núverandi ríkisstjóm
og vill ekki veita henni stuðning.
En þar sem það fellst í tillögu
þeirri , sem fyrir liggur frá Fram
sóknarflokknum, að stjóm þessi
skuli sitja fram yfir kosningar
og Sósíalistaflokkurinn ekki vill
taka á sig neina samábyrgð með
Framsóknarflokknum á setu rikis
stjórnarinnar altt það tímabil, þá
greiðum sér ekki atkv. um þessa
tillögu.
Loft ðrásir á herstöðvar
Þjððverja í Hollandi
Bandarískar sprengjuflugvél-
ar gerðu í fyrrinótt harðar árás-
ir á herstöðvar Þjóðverja í Rott-
erdam og víðar í Hollandi, og
er talið að mikill árangur hafi
orðið af árásunum.
Öflugar sveitir brezkra
orustuflugvéla voru í fylgd
með sprengjuflugvélunum og
‘ háðu harða bardaga við orustu-
flugvélar Þjóðverja.
Skollaleikur Framsóknar
Framh. af 1. síðu.
ir, sem Sósíalistaflokkurinn
hefði lagt til, mundi hann þó
fylgja þessari leið, frekar en ekk
ert væri aðhafst. Hinsvegar
væri auðséð, ■ að Framsóknar-
flokkurinn vildi enga lausn í
þessu máli, heldur væri afstaða
hans í því sú sama, sem birst
hefði í hinu bréflega tilboði
Framsóknar til hinna flokkanna,
um að ganga til samstarfs við
þá um að bjarga þjóðinni frá
voða — ef þeir létu niður falla
leiðréttinguna í kjördæmaskip-
un landsins. Eins og þeir þá
hefðu metið sérréttindi flokks
síns ofar þjóðarhag, eins mætu
þeir meira í þessu máli, að
reyna að nota það flokki sínum
til pólitísks framdráttar, en að
bera fram í því nokkrar jákvæð
ar tillögur til lausnar — enda
hefði Framsóknarflokkurinn
engar slíkar tillögur gert.
Ymsir fleiri tóku þátt í um-
ræðunum, en ekki þykir ástæða
til að rekja það nánar.
Að lokinni fyrstu umræðu var
málinu vísað til þriggja manna
nefndar, sem kosin var til að
fjalla um það. Vo/u kosnir í
nefndina: Bjarni Benediktsson,
Haraldur Guðmundsson og
Brynjólfur Bjarnason.
Framsóknarflokkurinn afsal-
aði sér fulltrúum í nefndina.
43.
nnnnnnnnnnnnnnmmnnnnnnnn
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
g
n
n
n
n
n
n
J3
Ö'
n
n
n
u
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
u
n
ln
n
n
n
n
n
n
n
n
u
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
u
ná
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n'
n
n
n
n
n
n
n
rt
n
n
n
n
n
DREKAKYN
Eftir Pearl Buek
hverjir vildu taka þau með sér, og mörg dóu.
En það sem bjargaði Ling Tan var að engum fannst land
hans vera nógu fjarri óvinunum til þess að öruggt væri að
setjast þar að. Það var eirðarlaust unz það hafði lagt að
baki sér fljótið, vatnið og fjöllin, og komið inn í landið
bak við fjöllin háu þangað sem óvinurinn hætti sér ekki
svo hann yrði ekki króaður inni.
Nú var tækifærið komið fyrir Lao Er að fara líka, en
hann og Jada biðu þess að þeir kæmu sem þau vildu eiga
samleið með, þeir sem eklri voru gamlir né veikir né með
of mörg ungbörn. Dögum saman biðu þau þess að þeir
kæmu sem þau vildu eiga samleið með og dag einn kom
hópur ungra manna og kvenna, fjörutíu talsins. Konurnar
voru með fæturna óreifaða eins og karlmenn, og Jödu féll
vel við þær um leið og hún sá þær. Hár þeirra allra var
stuttklippt eins og hennar og þær báru bækur í bögglum.
Við erum nemendur í skóla nokkrum, sögðu þau henni,
og við höfum í hyggju að leita fjallanna í þúsund mílna
fjarlægð héðan þangað sem kennarar okkar eru þegar
komnir og þar ætlum við að halda námi okkar áfram í hell-
isskútum og þegar stríðinu er lokið ætlum við að koma
aftur til þess að starfa að uppbyggingunni.
Enginn þessara manna og kvenna talaði um að fórna sér
í styrjöldinni, og það féll Ling Tan vel í geð. Þau áttu ekki
viðdvöl í húsi hans um nóttina heldur aðeins um hádegis-
bilið til að fá te með brauðinu sem þau voru með sér, og þá
hlýddi Ling Tan á viðræður þeirra og hældi þeim:
Þeir sem ólærðir eru eiga aðeins líkami sína, og það
eru þeir sem eiga að berjast. En þið sem eigið vizku, eigið
fjársjóð, sem ekki má úthella sem blóði, og hann á að bíða
þess dags, er við verðum að notast við vizku til að kenna
okkur að lifa. Á tímum sem þessum er vizkan gagnslaus,
því ekkert getur bjargað okkur nema tilviljunin ein. En
þegar stríðinu lýkur verðum við að eiga vizku.
Og í skugga pílviðartrjánna fyrir utan hliðið, því hús-
garðurinn var of lítill fyrir slíkan fjölda, lagði Ling Tan
margar spurningar fyrir þessa ungu menn og jafnvel fyr-
ir konurnar, því honum til undrunar svöruðu þau öll jafn
greiðlega, og eftir nokkra stund tók hann ekki eftir því
hvort það var maður eða kona sem svaraði honum. Og nú
fékk hann fyrst að vita hvað skeð hafði á ströndinni og
hvers vegna óvinirnir höfðu yfirleitt ráðizt á þá, og þau
áttu langar viðræður saman.
Því þó Ling Tan byggi hér á landi feðra sinna eins og
þeir höfðu gert frá alda öðli, hafði hann góða greind. Líf-
ið, varð honum oft að orði við syni sína, breyttist ekki. Þó
mataráhöldin breyttust, var maturinn matur. Þó menn
breyttu um rúm, var svefninn sá sami. Og þvi hafði hann
þá trú að það væru einungis tímarnir sem breyttust en
ekki mennirnir. Þessvegna spurði hann þessa ungu menn
og konur frekar að því hvaða vopn óvinirnir hefðu, en að
því hverjir þeir væru. Þegar hann heyrði að óvinirnir öf-
unduðu þjóð hans vegna landsins sem hún bjó á, skildi
hann í einni svipan stríðið og orsök þess.
Landið, sagði hann og virti fyrir sér svip hinna mörgu
ungu áheyrenda sinna, og fyllti vatnspípuna sína um leið
og hann talaði, landið er grundvallarþörf hvers manns.
Meðan einn maður hefur of mikið land og annar of lítið,
munu styrjaldir geisa milli mannanna, því af landinu fá
menn mat og skjól, og ef landið er of lítið verður matur-
inn af skornum skammti og skjólið lítið, óg þegar svo er
verður maðurinn þröngsýnn og illgjarn.
Þau hlýddu á mál hans með virðingu eða vantrú, því
i þeirra augum var Ling Tan aðeins gamall bóndi sem
hvorki kunni að lesa né skrifa, og hvað vissi hann um áílt
það, sem þau höfðu lesið um í bókum? En af því að þau
höfðu enn ekki glatað allri þeirri k: eisi, sem foreldrar
þeirra höfðu innrætt þeim, flýttu þa : . ér að fallast á mál
hans.
Það er satt, faðir minn, sögðu.þau, þó þau í rauninni
tryðu honum ekki.
En honum féll vcl við þau hvort sem þau trúðu honum
eða ekki, og þegar Lao Er kom til hans og sagði honum að
hann og Jada vildu fara með þessum ungu mönnum og
u
n
u
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
D
n
n
n
u
n
n
n
u
n
u
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
nnnnnnnnnmmnnnnnnnnnnnm