Þjóðviljinn - 11.10.1942, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 11.10.1942, Qupperneq 1
Sfendur Framsókn víð sfóru orðin? fyrir kosmngar er 1 dag. — Flokksmenn og fylgismenn! Notið nú daginn í dag til þess að heimsækja kosningaskrif- stofu C-listans og inunið eftir kosningasjóðnum. Kosninganefndin biður éinn- ig alla þá sem geta aðstoðað á kjördaginn að gefa sig fram sem sjálf- boðaliða í dag. Það léttir mikið undir með starfinu síðustu viku kosn- ingabaráttunnar. — Allir eitt fyrir stórum sigri C-listans! Svars óskad fyrír 14« okfóber Miðstjórn Sósíalistaflokksins hefur ritað miðstjórn Fram- sóknarflokksins bréf og afhent það í gær formanni flokksins. Tilefnið eru yfirlýsingar Tímans um eindregið fylgi Framsóknar við stefnuskrá Sósíalistaflokksins gegn dýrtíðinni Bréfið skýrir sig að öllu leyti sjálft og birtist hér á eftir í heild. Muh marga fýsa að sjá hverju Framsókn svarar. Bréfið frá miðstjórn Só- síalistaflokksins hljóðar svo: „í forustugrein í Tímanum 9. þ. m. er ótvírætt gefið í skyn að Framsóknarflokkurinn sé sam- þykkur dýrtíðarstefnuskrá Sósí- alistaflokksins og viíji vinna með honum að framkvæmd hennar. f tilefni af grein þessari, sem er í algerðri mótsögn við alla fortíð Framsóknarflokksins og allt starf hans og stefnu á.und- anförnum árum, biðjum vér mið stjórn Framsóknarflokksins að svara eftirfarandi spurningum: 1. Er miðstjórnin samþykk þessari forystugrein? ' 2. Munu þingmenn Framsókn arflokksins greiða atkvæði með tillögu frá Sósíalistaflokknum um afnám allra tolla á nauð- synjavörum meðan stríðið steríd ur yfir? 3. Munu þingmenn Framsókn arflokksins greiða atkvæði með tillögu um lándsverzlun með all ar innfluttar vörur meðan stríð- ið stendur yfir? 4. Vill Framsóknarflokkurinn vinna með Sósíalistaflokknum að því að hækka hið skráða gengi krónunnar? 5. Vill Framsóknarfl. vinna að því með Sósíalistafl. að verka- kaup verði samræmt um land allt með verulegum kjarabótum fyrir verkamenn og er Fram- sóknarflokkurihn nú skilyrðis- laust andvígur því, að kaupið verði lögfest með þvingandi geíðardómi? i 6. Vill Framsóknarfl. vinna að því með Sósíalistafl. að vísitalan verði leiðrétt og verkalýðsfélög- in fái fulltrúa við útreikning hennar? 7. Vill Framsóknarfl. vinna að því með Sósíalistafl. að samið verði um fast grunnverð á land- búnaðarafurðum, er hækki sam- kvæmt sérstakri vísitölu og vill Hiner lífláfnu Mnem hli engln sheniíM uenlð Norðmennirnir níu sem Þjóð- verjar dæmdu til dauða og líf- létu 8. þ. m. hétu: Johan Audun BogfjelLmo frá Bogfjellmo, Jhan 0ygaard og Einar Oygaard, báð ir frá Aursletten, Ole Sæter, Olav Svebakk, Alf Stormo frá Trofors, Emil 0ylum og Peder Forsbergsskog, báðir frá Maja- vatni og Rasmus Skjærpe frá Þrándheimi. Rolf Laraas frá Majavatn var dæmdur til dauða, en vegna æsku hans var dómn um breytt í 15 ára harða hegn- ingarvinnu. Ákæra gegn Inge og Lars Stormo um skemmdar- verk var látin niður falla. Þjóðverjar lýsa því yfir að nú sé allt með kyrrð og reglu í þeim héruðum þar sem herlög hafa verið sett. Norðmennirnir, sem líflátnir voru, höfðu verið ákærðir fyrir flutning á sprengiefni, er hefði verið notað til skemmdarverka. Þeir hafa sýnilega verið hafðir í haldi sem gislar. Þrír þeirra höfðu verið fangelsaðir fyrir 15 dögum þegar þýzkur hermaður var drepinn, og hinir sex voru handteknir þegar Kvislingléns- maðurinn Fossen í Bindalen var drepinn. En fangarnir sem skotnir voru síðast eru saklaus- ir jafrit af morðunum og skemmdarverkunum, segir í fregn frá Noregi. Flestir hinna líflátnu voru ungir menn, um tvítugt, sem unnmá smábýlum fyrir móður sinni og systkinum. Annars er sagt íregnum að í september hafi fjöldi manna verið handtekinn í héruðunum kringum Majavatn og Trofors. Engar fregnir hafa borizt um skemmdar verk á Nordlands- brautinni, en orðrómur hefur Framheld á 4. sfðu. Janusarhöfuð Frainsóluuu' Það brosir bæði til hægri og vinstri. En hverju svarar höfuð- ið spurningum Sósíalistaflokks- ins? Framsóknarfl. nú jafnframt fall ast á tillögur Sósíalistafl. sem hann hefur áður borið fram á Alþingi um tvöföldun jarðrækt- arstyrksins til smærri býla og aðra aðstoð við fátæka bændur, og munu þingmenn Framsókn- arfl. greiða atkvæði með þessum tillögum sósíalista á næsta þingi, þrátt fyrir, fyrri andstöðu sína gegn þeim? 8. Mu»u þingmenn Framsókn arfl. greiða atkvæði með tillög- um sósíalista um þá breytingu á skattalögunum, að varasjóðir og nýbyggingasjóðir fyrirtækja verði teknir í vörzlu ríkisins og skattur af stríðsgróða hækkað- ur? 9. Munu þingmenn Framsókn arfl. greiða atkvæði með tillögu um að banna kaup og sölu á fast eignum í gróðabrallsskyni? 10. Vill Framsóknarfl. nú fall- ast á tillögur þær, sem Sósíal- istafl. hefur áður borið fram á Alþingi, en Framsóknarfl. hafn- að, um samvinnu við verkalýðs- félögin til þess að útvega land- búnaðinum og öðrum nauðsyn- legum atvinnugreinum vinnu- afí? Vér biðjum miðstjórnina að svara þessum spurningum fyrir 14. þ. m. skýrt, ótvírætt og af- dráttarlaust. Ef fyrrnefnd for- ystugrein er í samræmi við nú- verandi stefnu og fyrirætlanir miðstjórnarinnar, hlýtur henni að vera það hið mesta áhuga- mál, að allur vafi sé tekinn af um afstöðu hennar fyrir kosn- ingar. En verði ekkert svar kom ið fyrir 14. þ. m. lítum vér á það sem neitandi svar við öllum spurningum vorum og fulla Framhald á 4. síðu. Deilan um Menntaskólann harðnar Kennarar og nemendur styðja krðfu rektors - kennslumálaráðfierra neitar að verða við þeim Eins og áður hefur verið frá , skýrt hér í blaðinu, skrifaði Pálmi Hannesson rektor bréf til j kennslumálaráðuneytisins, þar sem hann krafðist umráðaréttar yfir húsnæði Menntaskólans og hótaði að segja af sér að öðrum kosti. Kennslumálaráðherra Magnús Jónsson, hefur svarað bréfi rek- tors og hafnað kröfu hans um umráðarétt yfir húsnæði Menntaskólans, og krefst svars af rektor um það, hvort hann ætli að segja af sér eða ekki. Afstaða kennara og nem- - enda. Nemendur Menntaskólans héldu fund í fyrradag og ræddu þetta mál. í ályktun fundarins sem samþykkt var nær einróma segir m. a.. „.. Við styðjum eindregið kröfur rektors í hús- næðismálum skólans og lýsum óánægju okkar vegna seina- gangsins og umhirðuleysisins við viðgerð hans;“ lí fer al nrfla snaiandi að fylla í eyðuna á verðlauna getraunaseðlum kosninga- sjóðsins. Hvað fá sósíalistar mörg at- kvæði í Reykjavik? Hver verður atkvæðatala þeirra imi allt land? Þetta er umræðuefnið í dag. Takið þátt í verðlaunaget- raun kosningasjóðsins. Þið getið fengið 500 kr. í verð- laun og þið styrkið kosninga- sjóðsins. Flokksmenn og aðrir fylgis- menn sem enn ekki hafa tek- ið getraunablokkir til sölu, ættu að gefa sig fram á kosn- ingaskrifstofu C-listans, Skólavörðustíg 12. - Þjóðviljinn hefur frétt, að í gær hafi kennarar Menntaskól- ans haldið fund, og samþykkt þar áskorun á þessa leið: „Að gefnu tilefni skorar kenn arafundur á Pálma Hannesson rektor að segja ekki af sér em- bættinu." Yfirlýsing. „Vegna villandi ummæla Morgunblaðsins 10. október þar sem gefið er í skyn, að Pálmi Hannesson rektor hafi á ein- hvern hátt staðið á bak við fund nemenda Menntaskólans 8. þ. m., viljum vér taka fram: Orð Morgunblaðsins „fór að styðja sig með traustsyfirlýs- ingu“ (bls. 3, 2. dálkur) og „tók að leita sér samúðar11 (bls. 6, 4. ‘ dálkur), eru á engum rökum reist, þar eð rektor gerði ekki minnstu tilraun til þess að hvetja nemendur til fundar- halda um þessi mál. Nemendur áttu að öllu leyti frumkvæðið að aðgerðum sínum. Ámi Bjömsson, fundarstjóri. Skúli Guðmundsson, ritari.“ -Utankjörstaðakosninffin fer nú fram í Alþingishúsinu Skrifstofan er opin í dag kl. 2—4 | á morgun kl. 10—12, 1—5 og 8%—9%. Aðeins ein víka er nú til kosninga og eru því síðustu forvöð fyrir þá sem staddir eru í bænum, en eru á kjörskrá annarsstaðar, að neyta atkvæðisréttar síns. Kosningaskrifstofa C-listans veitir allár upplýsingar varð- andi kosninguna. — Opin 10— 10. Sími 4824. Engar breyíingar við Stalíngrad í miðnæturtilkynningunni frá Moskva segir að engar meiri- háttar breytingar liafi orðið á vígstöðvunum í Stalíngrad í gær. Rauði herinn hafi styrkt stöðvar þær, er unnizt hafa síð- ustu dagana.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.