Þjóðviljinn - 17.10.1942, Síða 4

Þjóðviljinn - 17.10.1942, Síða 4
þJÓÐVILJINN Ræða Katrínar Thóroddsen Framhald af 2. síðu. það lika, en kalt finnst okkur bros hins milda manns, er við minnumst vopnakaupa hans og vígbúnaðar. Ein fróm kvinna viknaði til tára við útvarpsræðu Hermanns Jónas- sonar á dögunum. Ræðan minnti hana á raunalega sjón: Bendlur. Henni flaug í hug frjálshuga fjalla- gimbur, fjötruð með priki við óþjála, staða gamalær, mestu meinakind, sem hvergi unir nema á Kveldúlfs- fjörunum. En Hermann er hvergi smeykur og furðu frakkur, og með venjulegu lítillæti býður hann sig fram sem forustusauð í förinni miklu til vinstri, þó hann hafi engin skilyrði til að rata leiðsögulaust. Ekki hafa ennþá sést nein áþreif- anleg merki til hugarfarsbreytingar hjá honum. Bendillinn er órofinn enn. Rollan gamla ræður enn hvar hafst er við. Engin svör eru enn kom in við spumingum þeim, er sósíalist- ar lögðu fyrir Framsóknarflokkinn, um lausn dýrtíðarmálanna. Gaspur Hermanns um vinstri stefnu glepur engan og má ekki gera. Öllum verð- ur að vera það ljóst, að það er að- eins eitt, sem ráðið getur þar um, og það er stórsigur Sósialistaflokks- | ins. Hvert atkvæði á þjóðstjómarlið- | in skoðast sem velþóknunarvottur á fyrra framferði og hvatning um á- framhaldandi ofbeldi og óstjóm. Þess vegna fylkja sér nú allir þeir, sem öryggi þrá og umbætur, í Sam- einingarflokk alþýðu. Þjóðstjómarflokkarnir munu að kosningum loknum halða áfram að traðka á hagsmunum almennings. Nýlega hefur okkur verið heitið því, að krónan skuli ekki felld verða. Hinu sama lofuðu kratamir líka fyr- ir kosningarnar 1937. En við emm farin að þekkja of vel á þessi : „óvenjulegu ástönd" sem allt eiga að afsaka, brygðmælgi og leynisamn- inga, til að treysta slíkum loforðum. Hver trúir því að íhaldið láti það af- skiptalaust að launtakar og verka- fólk hafi viðunandi kjör til lang- frama? Fari þjóðstjómarliðið aftur með völd að þessum kosningum loknum, verður krónan felld. Annað hvort með gengislækkun vegna „ófyrirsjá- anlegra atvika“, sem auðvitað er óttalegur leyndardómur hver eru, eða kaupmáttur krónunnar verður rýrður með síaukinni dýrtíð. Kapphlaupið mikla um afurðaverð ið var ekki eingöngu runnið til að veiða sveitaatkvæði þau, sem á milli flokkanna bar, heldur var hér bein- línis stefnt að verðfellingu peninga. Þessir „klóku“ heiðursmenn vita vel, að það er tvennt ólíkt, að kúga nið- ur kaup manns, sem á peninga á sparisjóði, og það eiga nokkrir verkamenn nú, og hins, sem ekkert á nema soltinn kvið. íhaldið hikar ekki við að fóma sparifé sinna tryggustu manna, ef því finnst þess þörf. En einmitt þeir menn hafa verið íhaldinu öruggasta stoðin, er lagt höfðu lítilsháttar fé til hliðar, sem framtíðartryggingu til elliár- anna, eða kannske bara fyrir útför- inni sinni. Fólk þetta trúði ihaldinu bezt til að gæta sparifjárins og ávaxta það. Nú þegar það sér í hvert öngþveiti íhaldið stefnir, þegar það ekki veit lengur frá degi til dags, hvort það á eyrisvirði eða ekki, flýr það í stríðum straumum til Sósíal- istaflokksins, án þess að nema staðar í Múlakvísl, vegna þess að það er farið að skilja, að hjá sósíalistum einum er að vænta aðgæzlu á allra hag. Sjálfir hafa hinir háu herrar kom- ið sínu fé fyrir í jörðum, fasteignum, framleiðslu og farartækjum. Því meira sem verðgildi þeninganna fellur, því ríkari verða þeir og valda- meiri. Komizt íhaldið i meiri hluta, halda þeir áfram að vera máttar- stólpar sem ekki má íþyngja með sköttum. Vinnuveitendur sem ekki láta vinna nema þegar þeim sjálf- um lízt, gróðavonin er nóg og þeir ráða einir kaupi og kjörum. Vald- hafar sem traðka áfram á hag al- mennings, beita þjóðina ofbeldi, of- ríki og kúgun. Hver vill slíka ráðsmenn? Athugaðu það í einrúmi, kjósandi góður, hvort þú mundir kjósa þá stjórn á þínu eigin heimili, sem ís- lenzka þjóðin hefur átt við að búa nú og undanfarið. Heldurðu að þú mundir vera ánægð, frú mín góð, með slíka ráðsmennsku í veikinda,- forföllum. Ráðsmenn sem ekkert hirtu um hver kjör heimafólk hefði, ef þeir sjálfir gætu sölsað til sín nóg af lífsins gæðum. Ráðsmenn sem með fádæma fyrirhyggjuleysi hugsa ekkert um aðdrætti nauð- synja fyr en í ótíma. Ráðsmenn sem úthýsa heimilisfólkinu sjálfu, ung- börnum, vanfærum konum og fæð- andi konum. Ráðsmenn, sem ýmist ofbjóða heimilisfólkinu með vinnu eða eyðileggja þá með iðjuleysi. Ráðsmenn sem svipta heimafólk mál- frelsi og hugsanafrelsi, ofsækja listir og bókmenntir. Ráðsmenn, sem meina fólkinu þjóðlega og heilnæma kjarnfæðu, en ala þá á gutli og gamsi, og skattleggja hvem bita sem í það fer. Ekki held ég að þurfi mat- sára manneskju til að svíða það, að þurfa að borga stórfé með hverjum bringukolli sem Bretinn étur. En það er líka ráðsmönnum þinum að þakka, að svo er gert. Aulaskapurinn og fyrirhyggjuleysið kemst fyrst í al- gleyming, er þjóðstjórnarherramír fara að skammta matinn. Haldið þið að nokkur óvitlauS mað ur framlengdi vistráðningu svona manna. Væri það ekki sinnuleysl sem gengur geðbilun næst að kjósa þá á þing, til að fara með þjóðar- stjórn áfram. Sósíalisminn og þú. Kjósandi góður, ég ætla líka að biðja þig að hafa hliðsjón af eigin heimili, ef þú metur stefnu sósíalism- ans. Hún er: að tryggja öllum ör- ugga afkomu, það er auðgert. Þjóð- artekjurnar eru það miklar og vom það lika fyrir stríð, að allir geta haft allsnægtir. Með nútimatækni eru tekjulindir íslands ótæmandi séu þær hagnýttar til fulls. ísland þarf ekki að vera fátækt lepgur. Sósialisminn stefnir að því: Að allir hafi fullt frelsi til að þroskast samkvæmt einstaklingseðli og með- fæddum gáfum. Eitt hið andstyggi- legasta við auðvaldsskipulag;ið, er hin takmarkalausa sóun á mann- kostum. Gáfum sem kostað er á glæ, hæfileikum sem ekki ná að þroskast. f ríki sósíalismans fær mannleg margbreytni og fjölbreytni fyrst notið sín til fulls. Sósíalisminh stefnir að því að hver og einn eigi kost á, að hljóta þá stöðu og vinna þá vinnu, sem honum er ljúfust og lægnust. í ríki sósíalismans eru margar vist- arverur. t>ar er engum ofaukið nema svikurum. Tryggið sigur Sósíalista- flokksins. Sósíalistaflokkurinn stefnir að því, að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Minnist þess, konur, og minn- ist þess líka að fullt jafnrétti fáið þið ekki fyrr en í ríki sósíalismans. Þið eruð meiri hluti kjósenda og getið ■ ráðið þessu. Siðferðislega berið þið líka ábyrgðina á ósómanum í opin- berum málum. Minnist þess að sósíalisminn stefn ir að því, að tryggja öllum örugga afkomu, en ánægjusamt og iðjusamt líf. Sama mark hafa öll góð heimili. Sósíalisminn gefur fyrirheit um ó- teljandi þroskaleiðir, farsæld og vel- megun. Er þetta ekki mark sem vert er að stefna að og sem vert er að leggja lítilsháttar á sig til að ná. Þú færist nær markinu, kjósandi góður, með því að kjósa C-listann. Gerðu það. Góða nótt. TJARNARBÍÓ KI. 6,30 og 9- Lady Hamilton Laurence Olivier Vivien Leigh. Framhaldssýning kl. 3—6. Fréttamyndir -- hljómmyndir NYJA BIO Kvenna-hó'elið (Hotel for Women). Athyglisverð mynd sam- kvæmt víðfrægri sögu með sama nafni eftir Elsa Maxwell. Aðalhlutverk leika: LINDA DARNELL. ANN SOTHERN. LYNN BARI — og höfundurinn ELSA MAXWELL. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Komið í dag og á morg un með framlög ykkar í kosningasjóð C-listans. — Skrifstofan er opin í kvöld til kl. 12 á miðnætti. Nú eru síðustu forvöð að taka þátt í getrauninni um hvað Sósíalistaflokkur- inn fær mörg atkvæði. Getraunaseðlar fást í dag á Skólavörðustíg 19 og á morgun í Góðtemplarahús- inu. Félagar í Sósíalistafélag- inu og Æskulýðsfylking- unni komi í kvöld kl. 6—12 í kosningaskrif- stofu C-listans. Kosninganefndin. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR. Hedda Gftbler Sjónleikur í 4 þáttum, eftir H. Ibsen. Aðalhlutverk og leikstjórn: Frú Gerd Grieg Næsta sýning á mánudagskvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag. Kjördeíldafólb mæti kl. SVz í fyrramálið í Góðtemplarahúsinu. Hafnfírðíngar! Kjósíd frambjóðanda Sósíalistaflohksíns Næturlæknir: Kjartan Guðmunds- son, Sólvallagötu 3, sími 5351. Næturvörður er í Laugavegs- apóteki. Hedda Gabler verður sýnt næst á mánudagskvöld og hefst sala að- göngumiða kl. 4 í dag. Kosningaskrifslofa C-LISTANS Sósíalislaflokksins í Reykjavík, sunnudaginn 18. október verður í Góðtemplarahúsinu — Símar skrifstofunnar eru þessir: 1605 — 5199 — 5259 í þessum símum verða gefnar upplýsingar um þá sem kosið hafa. Bílasími: 4824. Þar sem bílakostur er lítill, eru kjósendur C-listans beðnir að nota bílana ekki nema nauðsyn beri til, og er bezt ef bílapantanir verða afhentar kosningaskrif- stofunni á Skólavörðustíg 19 (4824) fyrir kjördag. Kosningaskrifstofan verður opnuð kl. 8 f. h. Allt starfsfólk kjördeildanna er beðið að mæta stundvíslega kl. 8V2. Auk aðalskrifstofunnar verða starfandi 9 hverfaskrifstofur víðsvegar um bæinn. Flokksmenn og fylgismenn fá upplýsingar um hverfaskrif- stofurnar og síma þeirra á aðalskrifstofunni. Veitingar verða í litla salnum í Góðtemplarahúsinu eftir kl. 2 e. h. Sjálfboðaliðar sem vilja vinna fyrir C-listann á sunnudaginn, gefi sig fram á skrifstofu C-listans, Skólavörðustíg 19 (sími: 4 8 2 4) og á aðalskrifstofunni á sunnudaginn. Munið að kjósa fyrri hluta dags, ef þess er nokkur kostur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.