Þjóðviljinn - 18.11.1942, Page 2

Þjóðviljinn - 18.11.1942, Page 2
2 Þ JÖÐVILJINN Miðvikudagur 18. nóv. 1942. EisaasaaananaaD (XX><XXKAX>vO<X/n><XX) Gullmunir handunnir — vanðaéttr Steinhringar, plötuhringar o. m. fl. Trúlofunarhringar alltaf fyrirliggjandi. Aðalbjöm Pétursson, gullsm., Hverfisgötu 90. Sími (fyrst um sinn) 4503. o^cxxxxxxxxxxxxx^ DDDDDDDDDDDD' H ’A I 'IJÍUki^RiLsJ i:ii rm Tekið á móti l'iutningi til Hornafjarðar fram til hádegis í d'ag. Útbreiðið pjóðviljann 3. þlng Æskulýðsfylkingarinnar, verður sett í kvöld (miðvikudag) kl. 8^2 e. h. á Skólavörðustíg 19. SAMBANDSSTJÓRNIN. STEIN STEINARR. í bókinni eru yfir 50 kvæði hvert öðru frumlegra. Bókin er prentuð í mjög litlu upp- lagi, og kostar kr. 20.00. — 100 eintök eru tölusett og á- rituð og kosta þau 50.00. Örfá eintök af öllum ljóða- bókum Steins fást enn í Vík- ingsprenti, Garðastræti 17. Eínn cr gcymdur ástarsaga eftir Johan Skjoldborg er góð gjöf handa ungum stúlkum. Ný Ijóðabók eftir smásögur Halldórs Stefáns- sonar hafa vakið geysi at- hygli. Fá eintök fást i vönd- uðu skinnbandi. Haustmarkaðí KRON Tfippa og folaldakjöfs Smábitar, súpukjöt kr. 4,00 pr. kg. Smábitar, steikarkjöt kr. 4,50 pr. kg. Heil læri kr. 3,80 pr. kg. Heilir frampartar kr. 3,30 pr. kg. Heilir skrokkar kr. 3 30 pr. kg. Reykfa kjöfíd er komíd affur og kosfar: í i'rampörtum kr. 5,40 pr. kg. í lærum kr. 6,00 pr. kg. Haustmarkaður K RO N Skólavörðustíg 12. IMl f Ul- MHIimllliai Framh. af 1. síðu. * <nn Hann færði söguna tii nútíma- stafsetningar og samdi formála bókai;innar. Kveður hann engar breytingar hafa verið gerðar á bókinni við útgáfu þessa, nema á stafsetningunni og nafni sög- unnar. Ef einhver ágóði yrði af útgáfu þessari, skyldi hann renna í sjóð til verndar andlegu frelsi íslenzkra rithöfunda. Kærði, Halldór Kiljan Laxness, hefur enga þóknun fengið fyr- ir störf sín við útgáfuna, og er það talið óumsamið, hvort hann fái nokkra þóknun, en hann hef- ur skýrt svo frá, að ef hann fái einhverja þóknun, skuli hún renna í nefndan sjóð. Um aldur Hranfkels sögu Freysgoða er álit fræðimanna, sem kunnugt er að rannsakað hafi það atriði, á þá’ lund, að leggja þykir mega það til grund vallar í máli þessu að hún sé samin fyrir 1400. Kennslumálaráðuneytið veitti eigi leyfi til útgáfu þessarar, enda var eigi um það sótt. Hinir kærðu hafa því með út- gáfu bókarinnar brotið gegn á- kvæðum 2. gr. laga nr. 127, 1941. „Eigi verður hinsvegar talið, að á ritinu hafi í útgáfu þessari ver ið gerðar neinar þær breyting- ar, er varði við 1. gr. nefndra laga. Af hálfu hinna kærðu er því haldið fram, að lög nr. 127, 1941, brjóti í bág við ákvæði stjórn- arskrárinnar um prentfrelsi, og séu brot gegn lögunum því refsi laus. Á þetta verður ekki fallist. Réttur manna samkvæmt stjórn arskránni til birtingar á prenti er takamarkaður á ýmsa lund m. a. af þeim reglum, sem á hverjum tíma gilda um eigna- rétt á ritverkum og um útgáfu- rétt, en slíkar reglur er almenna löggjafanum ætlað að setja. Sé brotið gegn gildandi réttarregl- um á þessu sviði, verður hlutað- eigandi samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar að sæta á- byrgð fyrir dómi. Með setningu umræddra laga hefur löggjaf- inn sett reglur um útgáfurétt tiltekinna rita, og verður ekki séð, að með því sé farið inn á það svið, sem ákvæði stjórnar- skrárinnar um prentfrelsi vernda.' Og með því að eigi verð ur heldur talið, að lögin fari í bág við ákvæði stjórnarskrár- innar um verndun eignaréttar og atvinnufrélsis, verður niður- staðan sú, svo sem áður greinir, að lögin hafi fullt gildi. Það ber því að dæma hina kærðu til greiðslu sekta sam- kvæmt 3. gr. laganna. Þykir sekt hvers þeirra um sig hæfi- lega ákveðin 1000 krónur til rík- issjóðs og komi varðhald í 45 daga í stað hverrar sektar, verði hún eigi greidd innan fjögra vikna frá birtingu dóms þessa. Um upptöku bókarinnar verð- ur eigi dæmt í þessu máli þar eð Miálshöfðunin tekur að fyrir- mælum dómsmálaráðuneytisins eigi til þess atriðis. Kærðu ber að dæma til Geirs útgerðin. Það hefur mælst mjög vel fyrir að yfirvöld bæjarins hlutuðust til um að togarinn Geir færi til fisk- veiða, og yrði aflinn seldur á bæjar- markaðinum. Hinsvegar hefur það valdið nokkurri óánægju, að eigend- ur togarans sömdu í fyrstu við eitt fisksölufirma, Jón og Steingrím, um að selja því allan aflan. Þetta nær auðvitað ekki nokkurri átt, og þess verður að krefjast af borgarstjóra, að hann komi því til leiðar, við eig-. endur togarans, að allir fisksalar bæjarins eigi kost á að kaupa af afla togarans, og að hann skiptist á milli þeirra í hlutfalli við fyrri við- skipti þeirra. En ekki er því að leyna í sam- bandi við þetta mál, að bæjarbúar almennt krefjast þess' að Geirs út- gerðin verði upphaf þess, að jafnan gangi héðan fiskiskip, á vegum bæj- arins, er selji aíla sinn fyrst og fremst á 'Reykjavíkurmarkaði. Þetta er orðin brýn nauðsyn nú þegar, all- ir fiskibátar selja afla sinn beint í fisktökuskip, og eru samningsbundn- ir um að láta þau fá sem mest fisk- magn. Þetta hiýtur að leiða til þess, þegar afli er tregur, að fisklaust verði með öllu hér í bænum. Bænum ber því að tryggja að skip gangi að staðaldri til veiða, til þess að fullnægja fiskþörf bæjarbúa. Megum við ekki fá lifrina með? Bæjarbúum finnst hart að göngu, að fá ekki lifrina með þegar þeir kaupa nýjan fisk. Það er þó öllum kunnugt, að lifrin er hin allra holl- . asta fæða, og okkur Reykvíkingum sannarlcjga þörf slíkrar fæðu, ekki sízt nú í skammdeginu. Væri ekki hægt að koma því til leiðar, að fisk- urinn sé seldur með lifur, að minnsta kosti yfir vetrarmánuðina? Kirkja eða æskulýðshöll. Það voru orð í tíma töluð, er Sverrir Kristjánsson ritar í Þjóðvilj- ann 12. þ. m. Það þ.vrftu fleiri að taka í þann sama streng. Og vonandi verður fleirum en mér gramt í geði að sjá skrif afturhaldsblaðanna þér um þetta mál. Það er næst því að vera grátbros- legt, að á öðrum eins tímum og þess- um skuli vera til menn, er eiga það áhugamál heitast að byggja stóra og helzt dálítið fallega kirkju hér í Rvík, höfuðborg hins húsnæðislausa fólks. Við höfum heldur ckki lengur greiðslu alls sakarkostnaðar in solidum. Þar með talin máls- varnarlaun skipaðs verjanda þeirra, hrm. Einars B. Guð- mundssonar, kr. 300,00. Rekstur málsins hefur verið vítalaus. Því dæmist rétt vera: Kærðu, Einar Ragnar Jóns- son, Stefán , Ögmundsson og Halldór Kiljan Laxness, greiði hv,er 1000 króna.sekt til ríkis- sjóðs og komi varðhald í 45 daga í stað hverrar sektar, verði hún eigi greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa. Kærðu greiði in solidum allan kostnað sakarinnar, þar með talin málsvarnarlauri skipaðs verjanda þeirra, hrm. Einars B. Guðmundssonar, kr. 300,00. Dómi þessum skal fullnægja með aðför að lögum.“ tíma til eða nenningu að krjúpa á kné inni í hálfrökkri kirkjunnar. Við lifum tíma raunveruleikans, starfs- ins, baráttunnar, tímum sem krefj- ast vakandi augna, vinnandi handa og hugar, sem stefnir að raunhæfara marki en því, að verða einhvern tíma góðu börnin, syngjandi sálma um aldir alda, hátt uppi í Himna- ríki og hljóta.að launum fæði, klæði og húsnæði í því dásemdarríki, ef því þá þóknaðist að opna okkur sín gullnu hlið. Þessir áhugamenn hefðu, ef þeir vildu, nóg tækifæri til þess að gera sér það ljóst, að tímar skrautlegra kirkjubygginga eru löngu liðnir, og því lítil líkindi til að snillngar vorra tíma skapi listaverk á því sviði. Kirkjan veitir ekki lengur þá for- ustu, sem við þráum og þörfnumst. Hun hefur ekki einu sinni fylgst með okkur, heldur orðið að saltstólpa á veginum. Hún hefur þegar fengið sinn dóm, þessi stofnun sem gengið hefur lengst í því að útskúfa. Ekki einungis sínum dyrum hefur hún lokað fyrir þeim, sem ekki voru henni þóknanlegir, heldur tók hún sér einnig það vald, að loka fyrir þeim um aliar aldir þeim einu dyr- um, sem vesalt og hrjáð mannkynið gat leitað til í raunum sínum. Og að okkur forspurðum, hefur hún troðið upp á okkur mörgum hneykslanleg- um og úrsérvöxnum arfteknum venjum, sem við alls ekki kærum okkur um lengur. Tökum t. d, jarð- arfararsiðina. Væri ekki þörf á að endurskoða þá. Eg fyrir mitt leyti vona, að ég eigi eftir að lifa þá tíma, eða að minnsta kosti að deyja á þeim timum, þegar allir dauðir menn verða brenndir í kyrrþe.v, á ríkisins kostnað, undir opinberu heilbrigðiseftirliti og án þess að þeirra nánustu sé gert að skyldu að halda skrautsýningu á sorg sinni. Nei, við þörfnumst allt annarra hluta, en kirkjubygginga, sem eng- inn óvolaður æskumaður eða kona kærir sig um lengur. Okkur vantar sjúkrahús, skóla, uppeldisstofnanir, fullgert þjóðleikhús, listasöfn, bóka- söfn, lestrarsali, vísindastofnanir og mörg fleiri menningartæki. Við þrá- um að sjá bjarta, fagra og stóra æskulýðshöll rísa hér af grunni, þar sem æskunnar bíða betri tækifæri til andlegs og félagslegs þroska, en hún hefur átt kost á hingað til. Stofn un, sem gæti boðið börnum' vorum fleiri skilyrði til að njóta menning- arlífs og frelsis, en við áttum kost á. Það eiga að vera öllum opnir hljóm- listarsalir, kvikmyndasalir, sam- komusalir og leStrarsalir. Þar á æsk- unni að veitast aðgangur að öllu því bezta, sem menningin hefur að bjóða. Þar eigá skáld og listamenn að vera æðstu prestar. Umfram allt: Þröngvið okkur ekki til þess að byggja i'leiri kirkjur, sem æskan og lífið hefur snúið baki við; minnisvarða steinrunnins afturhalds yfir kölkuðum gröfum. Gefið okkur heldur svigrúm til þess að reisa vold ugt tákn þeirrar óslökkvandi frels- is og menningarþrár, sem þjóðin sameiginlega ber i brjósti, Það þarf að vinda bráðan bug að því að fyrirbyggja það hneyksli, að reist verði himingnæfandi kirkja á Skóiavörðuhæðinni, það þarf meðan tími er til, að koma i veg fyrir að slíkt bákn, slíkir steingcrvingar úi- cltrar stofnunar, kasti um ófyrirsjá- aniega i'ramtíð skugga á vora óreistu æskulýðshöll. H. B. OOOOO OO-CK^O^^O-OOOOO Munið Kaffísöldvtð Hafnarstrastí 16 ooooooooooooooooo

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.