Þjóðviljinn - 07.01.1943, Qupperneq 1
VIUINN
8, árgangur.
Fimmtudagur 7. janúar 1943.
4. tölublað.
Þrengír að þýzka hernum í Sfalíngrad
Rauði herinn hélt áfram í gær sókn í Kákasus og á vígstöðv-
unum við Neðri- og Mið-Don.
Sovéthersveitir frá Naltsík fylgja fast eftir þýzka hernum,
sem heldur undan til norðurs eftir þröngum dal. Frá Prokladnaja
sækir rússneskur her hratt til vesturs, að því er virðist til að
loka undanhaldsleiðum þýzka hersins á Naltsiksvæðinu. Beita
Rússar þar kósakkariddaraliði og skriðdrekum.
Rauði herinn sem tók borgina Tsimijanskaja hefur náð á
vald sitt allstóru landsvæði umhverfis borgina. Á Mið-Donvíg-
stöðvunum hafa Rússar tekið 4 bæi og mörg þorp.
Vörn þýzka hersins við járnbrautarlínumar til Rostoff frá
Millerovo og Stalíngrad er harðnandi.
Síðan sókn sovéthersins á
Donvígstöðvunum og Kákasus
hófst, hai'a Þjóðverjar misst
313 þúsund hermanna, um
1700 flugvélar, 3200 skrið-
dreka og 6000 fallbyssur.
ÞJARMAÐ AÐ FASISTA-
HERNUM í STALÍNGRAD.
„Þýzki herinn í Stalíngrad
grefur sig dýpra og dýpra í jörð
með degi hverjum“, símar
Moskvafréttaritari Daily Tele-
graphs.
„Þjóðverjar hafa ekki einung-
is búið um sig í kjöllurum og
steinhvelfingum, heldur einnig
í steyptum vatnsgeymum, sorp-
Danska þingið sam-
þykkir lög um lög-
regluverði í verk-
smiðjum
Dönsku názistablöðin hvetja
ákaft Scavenius að . beifca
þeim valdaheimildum, sem
hann hefur látið veita sér.
Þessi blöð eru einnig farin
að heimta á ný að sett verði
Gyöingalöggjöf í Danmörku,
eftir þýzkum fyrirmyndum.
Scavenius hefur látið þing-
ið samþykkja lög um að settir
verði lögregluverðir í allar
verksmiðjur og verkstæðt
Lögreglustjórnin skipar þessa
verði, en þeir eru ekki vopn-
aðir öðru en bareflum.
Ráöstöfun þessi ér talin
bera vott um ótta nazista viö
sívaxandi skemmdarverk 1
dönskum verksmiöjum.
Fregnir hafa borizt um að
Þjóöverjar hafi krafizt þess aö
Danir afhendi öll hergögn sin.
Reynist þaö rétt, viröast naz-
istar ekki treysta danska her-
num, eöa þá aö þeir eru orðnir
aöþren.gdir af hergagnaskorti.
ræsakerfi borgarinnar og neð-
anjarðargöngum.
Dagsskammtur hvers þýzks
hermanns í Stalíngrad er 25 pat-
rónur, 100 gr. af hveiti og lítið
eitt af hrossakjöti.
Stöðvar óvinanna í Stalíngrad
eru svo nærri stöðvum okkar,
að það þarf að miða mjög ná-
kvæmlega til þess að fallbyssu-
skothríð rauða hersins komi að
tilætluðum notum. Síberíuher-
sveitir eru smátt og smátt að
hrekja Þjóðverja út úr borginni,
út á slétturnar, þar sem tuttugu
og tvö þýzk herfylki eru að tor-
tímast.
Þjóðverjar eru ófúsir að hreyfa
sig úr hinum köldu neðanjarð-
arbyrgjum í Stalíngrad, meira
að segja að nóttu til. Rússar
ganga nú um götur borgarinnar
um hádag, og eru óhræddir að„
nálgast víglínur Þjóðverja, Fyr-
ir skömmu síðan mátti engin
hreyfing sjást Rússa megin svo
að ekki dyndi yfir skothríð úr
virkjum Þjóðverja“.
ÞJÓÐVERJAR EINNIG
Á UNDANHALDI
f VESTUR-KÁKASUS.
í bardögunum í Vestur-Kákas-
us, norðvestur af Svartahafs-
höfninni Túapse, hafa Þjóðverj-
ar beðið'mikið tjón, og þeir hafa
misst talsvert landsvæði, þar á
meðal hernaðarlega þýðingar-
miklar hæðir. Herskip Svarta-
hafsflotans halda stöðugt uppi
skothríð á stöðvar Þjóðverja á
ströndinni. Flugvélar flotans
hafa framkvæmt mjög djarfleg-
ar næturárásir á þýzka flugvelli
meðal annars með fallhlífasveit-
um.
Rússneskar sprengjuflugvélar
gerðu harða árás á stóran þýzk-
an flugvöll á Kákasusströnd.
Rétt á eftir steyptu rússneskar
stormsveitarsteypiflugvélar sér
yfir flugvöllinn og réðust á loft-
varnarvirki vallarins. Þar eftir
Framh. é 4. síBu.
Frystihtseigendur fara
• fram á kauplækkun við
stjórn Alþíðusambands-
ins
Hraðfrystihúsaeigendur fóru
í gær á fund Alþýðusambands-
stjórnarinnar og munu hafa
rætt við hana um kauplækk-
unarkröfur sínar.
Var niöurstaöa þessarar
málaleitunar sú, aö hraö-
frystihúsaeigenöur munu
senda stjórn Alþýðusambands-
ins kröfur sínar í bréfi og
Alþýöusambandsstjórnin þá
einnig svara þeim skriflega.
Eins og fram hefur komið
áöur telja þeir sig tapa kr.
490 á hvei'ju tonni fisks.
H'nsvegar mun tapiö minnka
mega nota pappaumbúöir í
staö trékassa og láta þunn-
ildiö fylgja fiskinum.
Veröur hér í blaöinu síðar
skýrt nánar frá kauplækkun-
artilraun þessari.
Valtin er átrúnaðargoð Göbbels, Stefáns Péturssonar, Bjarna
borgarstjóra og Páls frá Þverá í barátuu þeirra gegn
kommúnismanum!
lan llalliD tehinn fastnr
Bandarfska leynilBgreglan telur Ifkindi til að hann
sé útsendari þýzkra nazista
Richards Krebs, sem nefnir sig Jan Valtin, hefur verið fang-
elsaður að tilhlutun bandarísku leynilögreglunnar sem „hættu-
legur útlendingur“ og talið að hann hafi verið „agent fyrir hið
nazistiska Þýzkaland“.
Þessi maður hefur verið átrúnaðargoð afturhaldsins á íslandi,
einkum þó Alþýðublaðsklíkunnar og Bjarna borgarstjóra, en
sorprit Valtins, „Úr álögum“, var gefið út af „Menningar- og
fræðslusambandi alþýðu“(!) með styrk frá íslenzka ríkinu, og
hampað af öllum aftxu'haldsblöðmn landsins sem áreiðanlegu
heimildarriti!
Eftirfarandi grein er tekin úr
ameríska tímaritinu „Time“ frá
Alþíngí rœðir um breytíngu
á menntamálaráðí
Jónas frá Hriflu flyfur sinn alkunna óhróður um
lisfamennina
Frv. Kristins Andréssonar,
um breytingu á lögum um
menntamálaraö Islands, var
tdl 1. umræöu i efri deild
Alþingis í gær.
Þegar Kristinn hafði, i
framsögu sinni, lýst nokkuö
viðskiftum íslénzkra lista-
manna vió menntamálaráöiö,
og áliti þeirra á því, eins og
komið hefði fram í opinberum
yfirlýsingum þeirra, og siöar
í . samþyktum listamanna-
þ.'ngsins nú í vetui* — reis
formaöur menntamálaráös úr
sæti sínu og flutti eina • af
sínum alkunnu ræöum um
„daginn og veginn“, • Taldi
hann, aö með frumvarpi þessu
væri í fyrsta sinn lagt til á
Alþingi að skip.a nxáium sa,m-
kvæmt ; ,ráðstj ðrnarskipulagi' ‘
— en það heföi reyndair ekki
reynst betur en svo í Rúss-
landi, áö nú væri búiö áð af-
nema það þar!!! Er þá senni-
legt, að eitthvaö fari að lina
hinum móöursjúka áróöri
hans gegn Sovétríkjunum.
Þá varð honum tíðrætt run,
hversu listamenn landsins
væru miklir vesalingar á því
sviöi, og þó alveg sérstáklega
rithöfundarnir, sem leyfðu sér
t. d. aö bera á borö fyrir
þjóöina aöra eins persónu og
Pétur þríhross! — Skemmtu
menn sér hið bezta við aö
heyra Jónas Jónsson minnast
Péturs þríhross þannig í bæn-
um sínum. •
Þá kallaöi hann hstamenn-
ina „styrkþega landsms“ —
cg lýsir þaö prýðilega, hversu
fær hann er, sem formaöur
menntamálaráös, til aö meta
gildi þe;rra verka, sem lista-
mennirnir framleiða, umbxma
þeim samkvæmt því.
Margt flciva sagói hann í
sv'puðvun dih', þó ekki veröi
rakiö hér nánar.
Umræðunni var ekki lokið, og
verður henni fram haldið í dag.
7. desember 1942, og nefnist hún
,JInto the night“.
Richard Julius Herman Krebs,
öðru nafni Richard Anderson,
öðru nafni Richard Peterson,
öðru nafni Richard Williams,
öðru nafni Rudolf Hell, öðru
nafni Otto Melchior, öðru nafni
Jan Valtin, fæddist í Þýzkalandi
fyrir 37 árum. — Síðastliðna
viku gaf dómsmálaráðuneytið út
fyrirskipun um að hann yrði
sendur heim eftir stríð.
Höfundur metsölubókarinnar
„Úr álögum“ (Out of the night)
— sem rituð er undir nafninu
Jan Valtin — hinn klunnalegi
og illa tennti Richard Krebs
hafði gengið fram af lesendum
Bandarjkjanna með hinni blygð-
unarlausu og fáráníegu frásögn
af sjálfum sér sem útsendara
bæði O. G. P. U. og Gestapo lög-
reglunnar. Seinna játaði hann
að hann hefði notað sér reynslu
annarra manna til uppfyllingar;
„til þess að gera bókina eins á-
hrifaríka og auðið væri“. Komm
únistar afneituðu honum og
lýstu yfir að hann væri svindl-
ari. En frægð hans varð hans
ógæfa: Hann játaði að hann
hefði einu sinni áður verið send-
ur úr landi frá Bandaríkjunum
og að hann hefði borið Ijúgvitni
(committed perjury) — sem er
Framh- á 4. siðu