Þjóðviljinn - 28.04.1943, Side 1
8. árgangur.
Miðvikudagur 28. apríl .1943
93. tölublað
Tvö ár
í gær voru liðin 2 ár frá því
ritstjórar Þjóðviljans voru tekn
ir fastir og fluttir sem herfang-
ar til Bretlands.
Adalásfasdan afsfada pólsku sfjórnarínnar ffl árðóurs
Göbbels gegn Sovéfríkjunum
Sovétstjórnin hefur slitið stjórnmálasambandi við pólsku
stjómina í London, að því er tilkynnt var í fregn frá Moskva
í fyrradag.
Aðalástæðan er afstaða pólsku stjórnarinnar til máls, sem
undanfarnar vikur liefur verið aðalatriðið í áróðri Göbbels gegn
Sovétríkjunum, þar sem Rússaí eru bornir þeim sökum að hafa
myrt 12000 pólska liðsforingja, er nazistar þykjast hafa fundið
á stað einum í Smolenskhéraði.
Þegar er þýzka útvarpið flutti þessa áróðurssögu, lýsti sov-
étstjórnin hana tilhæfulausa og uppspuna frá rótum.
Pólska stjórnin í London fór
þess hins vegar á leit við Rauða
krossinn að rannsaka málið. í
hinni opinberu yfirlýsingu sov-
étstjórnarinnar segir að pólska
stjórnin hafi gert þessa ráðstöf-
un án þess að ræða málið við
sovétstjórnarvöld og haft að
engu yfirlýsingar þeirra. Rann-
sókn sé óframkvæmanleg með-
an héraðið er á valdi nazista, og
sé pólska stjórnin með þessu að
ganga erinda Göbbels.
Undanfarnar vikúr hafa hátt-
settir menn pólsku stjórnarinn-
Nyrzt sæka fram bandarísk-
ar hersveitir og 1. brezki herinn.
Eru hersveitir Bandamanna að-
eins 20 km. fá Mateur og 15 km.
frá Tebourba. Franskar hersveit
Bretar og Rússar
gera harðar loftárás-
ir á Þýzkaland
Bretar gerðu eina mestu loft-
árás styrjaldarinnar á þýzku
iðnaðarborgina Duisburg í fyrri
nótt. Var 1350 tonnum sprengna
varpað á borgina í þriggja stund
arf jórðunga árás. Er talið að gíf-
urlegt tjón hafi orðið í árás þess
ari.
ar hvað eftir annað látið hafa
eftir sér ummæli, er borið hafa
vott um fjandskap í garð Sov-
étríkjanna, og í pólskum blöð-
um í Bretlandi hefur verið hald
ið uppi áróðri gegn þessu banda-
lagsríki Pólverja.
Pólska stjórnin sat á löngum
fundum í gær og ræddi forsætis-
ráðherrann, Sikorski herhöfð-
ingi við Churchill og Eden. Eng-
in opinber yflrlýsing hefur ver-
ið gefin um afstöðu brezku
eða bandarísku stjórnarinnar til
málsins.
ir hafa sótt fram til úthverfa
bæjarins Pont du Fahs.
Norður af Enfidaville sækjr
8. brezki herinn fram, þrátt fyr-
ir harðvítuga vörn fasistaherj-
anna.
Sprengjuflugvélar Banda-
manna í Norður-Afríku halda
uppi stöðugum árásum á flug-
stöðvar fasista í Túnis og á ítal-
íu.
Seytján brezku flugvélanna
fórust í árásinni.
Rússneskar sprengjuflugvéiar
gerðu um helgina mikla árás á
járnbrautarbæinn Insterburg 1
Austur-Prússlandi. Tvö hundr-
uð sprengjuflugvélar vörpuðu
þungum sprengjum og eld-
sprengjum yfir bæinn í tvo
klukkutíma. Bærinn var mjög
mikilvæg samgöngumiðstöð.
Óli smaladrengur og Lítill
og' Trítill.
Öli smaladrengur verður
sýndur í Iðnó kl. 5 í dag.
Þýzk flugvél skotin
niður yfir Reykjanes-
skaga
Síðastliðinn laugardag
skutu amerískar orustuflug-
vélar niður þýzka flugvél yfir
Reykjanesskaga.
Rétt fyrir kl. 2 e. h. á laug-
ardaginn voru gefin loftvarna
merki en kl. tæplega 2Vz
voru gefin merki um að hætt-
an væri liðin hjá.
Eigi er vitað hve margar
þýzkar flugvélar vóru þar á
ferð, en þess hefur áður ver-
ið getið af hálfu herstjórnar-
innar að hættumerki yröu
eigi gefin ef árásarflugvélarn-
ar væru færri en þrjár.
Harðír bardagar
í Kákasus
Engar mikilvægar breytingar
hafa orðið á austurvígstöðvun-
um síðustu sólarhrmgana, en
bardagar halda áfram á Kúban-
vígstöðvunum í Kákasus.
Stórskotalið rauða hersins er
mjög athafnasamt og heldur
uppi látlausri fallbyssuskothríð
á helztu stöðvarnar í varnarbelti
því er Þjóðverjar hafa komið
sér upp í Vestur-Kákasus.
¥örn fasísfaherjanna mjög hörð
Á Túnisvígstöðvunum hefur hernaðarafstaðan ekki breytzt
mikið undanfarna sólarhringa, og segir í brezkum fregnum að
vöm fasistaherjanna hafi aldrei verið öflugri.
Sókn bandamannaherjanna heldur óslitið áfram, þó hægt
fari.
Norskir sjómenn, sem hér eru staddir, hafa farið fram á
það að vera þátttakendur í 1. maí-hátíðahöldum fulltrúaráðs-
ins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Hefur verið orðið við þeirri sjálfsögðu ósk þeirra og munu
þeir ganga fylktu liði með Sjómannafélagi Reykjavíkur, undir
norskum fána og norsku kröfuspjaldi.
Á morgun verða blöðin beðin fyrir ávarp frá öllum félög-
unum, sem að 1. maíhátíðahöldunum standa.
Nýí brezkí sendíherrann tal»
ar víð blaðamenn
E. H. G. Stepherd sendiherra.
Hr E. H. G. Shepherd, hinn
nýi sendiherna Breta á ís-
landi, átti í gær tal við full-
trúa útvarps og blaða.
Bauð hann þá velkomna til
samstarfs með stuttri’ yfirlýs-
ingu, þar sem hann lýsti því
hve vel samstarf sitt hefði
gengið við blaðamenn annars-
staðar og lét jafnframt í ljósi
ánægju sína yfir viðtökunum
hér frá hálfu ríkisstjóra og
utanríkismálaráðherra og
kvaö sér segja vel um aö
vinna að því aö halda vinsam
legu starfi milli íslands og
brezka heimsveldisins í þágu
gagnkvæmra hagsmuna
beggja. i
Shepherd sendiherra var
útnefndur sendiherra á ís-
landi 28. nóv. s. 1. og útnefn-
ing hans tilkynnt ríkisstjóra
21. jan. Hingað til lands kom
sendiherrann 17. apríl og
hafði oröið þessi dráttur á
hingaökomunni' sökum hinna
erfiðu samgangna.
Sendiherrann sagði blaða-
mönnum nokkuð frá dvöl
sinni í Danzig og Amsterdam
á vegum brezku utanríkis-
þjónustunnar. Slapp fjöl-
skylda hans út úr Danzig
nóttina áður en Þjóðverjar
réðust inn í Pólland og sjálf-
ur var hann í Amsterdam 12.
okt. 1939 til 14. maí 1940, og
upplifði fall Hollands, flótta-
mannastrauminn og allt það.
sem þá gerðist.
Áður en sendiherrann kom
Framh. á 4. síðu.
Maður blður
bana I bílslysí
Rétt fyrir kl. 3 í fyrradag
varð Halldór Ketill Sigurðs-
son, til heimilis á Reynimel
59, fyrir herbifreið á Hverfis-
götunni, með þeim afleiðing-
um að hann lézt í Landsspít-
alanum rúmri klukkustund
síðar.
Atvikaðist þetta þannig að
Halldór fór með vörubifi'eið
Framh. á 4. síöu.