Þjóðviljinn - 22.06.1943, Síða 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 22. júní 1943.
í dag — 22. juní
eru liðin tvö ár frá því að nazistarnir réðust á
Sovétríkin.
Forstöðunefnd verklýðssamtakanna sem staðið hefur
fyrir fjársöfnuninni handa Rauða krossi Sovétríkj-
anna, hefur ákveðið að ljúka söfnuninni í dag með
fjölbreyttri
KVÖLÐSKEMMTUN
í sýningarskála listamanna.
Dagskrá:
Sverrir Kristjánsson: Ræða.
Guðmundur Jónsson: Einsöngur.
S. A. Friid: Ræða.
Tómas Guðmundsson: Upplestur.
Ólafur Magnússon: Einsöngur.
Lárus Pálsson: Upplestur.
DANS.
Skemmtunin hefst í kvöld kl. 8.30. — Aðgöngumiðar
seldir í skrifstofu DAGSBRÚNAR eftir kl. 10 f. h. og
við innganginn. Verð kr. 12.00.
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL
SOVÉTSÖFNUNARINNAR.
Hvanneyrarmótið
UNGMENNAFÉLAG REYKJAVÍKUR fer hóp-
ferð ásamt gestum sínum til Hvanneyrar, föstudaginn
og laugardaginn 25. og 26. júní n.k.
Áskriffarlistar ásamt nánari upplýsingum eru í
verzluninni Brynja og rakarastofunni Barónsstíg 27.
Þátttaka tilkynnist fyrir hádegi á fimmtudag.
FORSTÖÐUNEFNDIN.
Framtiðarstarf
Karl.eða kona, sem hefur lokið verzlunarskóla-
prófi eða hlotið aðra menntun, sem metin verður jafn-
gild, og auk þess hlotið æfingu í vélritun, getur fengið
framtíðarstarf á skrifstofu.
Þeir, sem óska að kynna sér nánar um stöðu þessa,
eru vinsamlega beðnir að senda tilboð sín, ásamt upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf, merkt: „Fram-
tíðarstarf“, í pósthólf 1026, Reykjavík, fyrir lok þessa
mánaðar.
TILKYNNING
um lækkun álagningar í heildsölu og smásölu
á ýmsum vörutegundum
í Lögbirtingablaðinu, dags. 19. júní, er birt auglýs-
ing um lækkun hámarksálagningar í heildsölu og smá-
sölu á eftirtöldum vörutegundum:
Vefnaðarvöru
Búsáhöldum
Nýjum og þurrkuðum ávöxtum
Saumavélum
Rafmagnsvörum
Bifreiðavarahlutum
By gging ar vörum
Timbri
Umbúðapappír.'
Lækkunin kemur til framkvæmda að því er snert-
ir vörur, sem verðlagðar verða frá og með 21. þ. m.
Reykjavík, 18. júní 1943.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
Tilkynning til útgerðarmanna
Ákveðið hefur verið að byrjað verði að taka á móti síld þann
8. júlí næstkomandi. Fyrir þá síld, sem lögð er inn til vinnslu,
greiðast kr. 15.30, eða 85% af kr. 18.00 per mál við afhendingu.
Af þeim sem þess óska, kaupa verksmiðjurnar síldina fyrir
fast verð og verði heildar-bræðslusíldarmagn sem síldarvérk-
smiðjur ríkisins taka á móti 700 þúsund mál eða meira, greiðist
fast verð kr. 18.00 fyrir málið. En verði heildarbræðslusildar-
magnið ekki 700 þúsund mál, en nái 500 þúsund málum, greið-
ist fast verð 17.50 fyrir málið. En nái heildar-bræðslusíldar-
magnið ekki 500 þúsund málum, greiðist fast verð kr. 17.00
fyrir málið.
Efnægileg þátttaka fæst í síldveiðunum, er ráðgert að starf-
rækja allar verksmiðjur á eftirtöldum stöðum: Siglufirði, Kauf-
arhöfn. Krossanesi, Húsavík og Sólbakka.
Tilkynning um nöfn þeirra skipa, sem ætla að Ieggja upp
síld hjá oss, þarf að berast oss eigi síðar en 26. júní 1943.
Síldarverksmiðjur ríkisins.
ooooooooooooooooo
DAGLEGA
nýsoðin svið. Ný egg,
soðin og hrá.
Kaf f isalan
Hafnarstræti 16.
ooooooooooooooo o o
I. S. I.
K. R. R.
ISLANDSMOTIÐ
Tveir kappleikir annað kvöld.
Klukkan 7:
AKUREYRINGAR — VALUR.
Klukkan 8.45:
VESTMANNAEYINGAR — FRAM.
Þetta verður síðasti leikur Vestmannaeyinga og næst
síðasti leikur Akureyringa.
Allir út á völl!
MÓTANEFNDIN.
I.O.G.T.
St. í'þaka nr. 194.
Fundur í kvöld kl. 8V2 uppi í
Góðtemplarahúsinu.
1. Fréttir.
2. Hagnefndaratriði.
Félagar sérstaklega beðnir um
að mæta. Æ.T.
Síldarverksmíðj"
ur rikísíns
Framh. af 1. síðu.
skemmdarverk V. Þór eru ekki
hindruð.
Rök fyrir því að lækka síld-
arverðið frá í fyrra eru ekki til.
Viðskiptanefnd er búin að selja
síldarafurðirnar, lýsið og mjölið
fyrir verð, sem leyfir 18 króna
verð á mál, en þar ofan á bætist,
að síldarverksmiðjur ríkisins á
Siglufirði koma til með að mæla
síldina af skipunum á þessari
vertíð, í stað þess að hún hefur
verið vegin, en það munar 10%
til hagnaðar fyrir síldarkaupand
ann. Það hefði verið óhætt að
hafa síldarverðið af þessum á-
stæðum um 10% hærra en það
var í fyrra. Aldrei hefur Fram-
sóknarflokkurinn sýnt jafnber-
lega fjandskap sinn til sjó-
manna, verkamanna og smáút-
vegsmanna, aldrei hafur hann á
jafn ófyrirleitinn hátt ráðist á
íslenzka sjávarútveginn.
Sennilega telur Framsókn
geta frekar vegið sig upp í völd
ef tekst að eyðileggja atvinnulíf
bæjanna. Eitt er víst og það er,
að Framsóknarflokkurinn mun
einskis svífast til þess að geta
skaðað atvinnulíf í bæjunum og
lækkað þar kaupið.
Mönnum verður á að spyrja:
Hverskonar menn skipa þá rík-
isstjórn, sem beitir sér fyrir
svona skemmdarstarfi. Eru ráð-
herrarnir allir gengnir í þjón-
ustu hinna pólitísku braskara
Framsóknarflokksins til þess að
reka skemmdarverk í atvinnu-
lífi- sjómanna og verkamanna og
bæjarfólksins yfirleitt. Eða eru
þetta orðnir forkalkaðir vesa-
lingar, sem ekkert vita hvert er
verið að leiða þá. Þetta eru
spurningar, sem þjóðin veltir
fyrir sér núna, þegar hún fréttir
um framkomu V. Þór í síldar-
verksmiðjumálinu.
Nú gildir að hindra skemmd-
arverk Framsóknarflokksins,
sem fengið hefur ríkisstjórnina
í lið með sér.
Ríkisverksmiðjustjórnin á að
virða gjörsamlega að vettugi fyr
irmæli Vilhjálms Þór og kaupa
síldina föstu verði fyrir 18 krón-
ur. Til þess hefur ríkisverk-
smiðjustjórnin fylgi mikils
meirihluta þings. Þaðdugarekki
að láta ráðherra, sem hefur ekki
á bak við sig aðra af þingmönn-
unuin en þá sem vilja sjávarút-
veginn feigan, koma fram
skemmdarverkum eins og þessu.
Öll aiþýða manna við sjávar-
síðuna og raunar öll þjóðin á
mikið undir því að þetta tiltæki
Vilhj. Þór verði hindrað.
Aðaisafnaðarfundur
Hallgrímssóknar verður haldinn fimmtudaginn 24.
júní kl. 8% síðdegis í húsi K.F.U.M. við Amtmannsstíg.
DAGSKRÁ:
1. Tillaga sóknarnefndar um að kirkjugjaldið
verði 15 krónur.
2. Tillaga kirkjugarðsstjórnar um, að reist
verði kepella í Fossvogskirkjugarði.
3. Kirkjubyggingarmálið.
4. Happdrættið.
5. Önnur mál.
Sóknamefndin.