Þjóðviljinn - 18.07.1943, Blaðsíða 4
Helgidagslæknir er í dag dr.
Snorri Hallgrímsson, Vesturgötu 27,
sími 5849. \
Næturvakt ér í Laugavegsapóteki.
Útvarpið í dag:
Sunnudagur 18. júlí
11,00 Morguntónleikar (plötur)
a) Kvintett fyrir blásturshlóð-
færi og píanó, eftir Mozart.
b) Serenade fyrir blásturs-
hljóðfæri eftir Mozart.
e) Kvintett fyrir blásturshljóð-
færi og píanó, eftir Beethoven.
15,30—16,30 Miðdegistónleikar (plöt-
ur): Ballettar.
a) Þyrnirósa eftir Tschaikow-
sky.
b) Petrouskha eftir Stravin-
sky.
19,25 Hljómplötur: Sjöslæðudansinn
og Till Eulenspiegel eftir Ric-
hard Strauss.
20,20Hljómplötur: Barnasvltan eftir
Debussy.
20.35 Erindi: íslenzk nöfn og dönsk
(Björn Sigfússon mag. art.).
21,00 Hljómplötur.
21,10 Upplestur: Sögukafli (Guðm.
Daníelsson rithöfundur).
21.35 Danslög. /
21.50 Fréttir. — 22.00 Danslög
23,00 Dagskrárlok. 0
Mánudagur 19. júlí.
19,25 Hljómplötur: Lög leikin á
bíó-orgel.
20,30 Þýtt og endursagt (Ragnar
Jóhannesson).
20.50 Hljómplötur: Lög leikin á gítar.
21,00 Um daginn og veginn (Gylfi
Þ. Gíslason).
21.20 Hljómplötur: Hugleiðing um
þjóðsöng Brasilíu.
Sundhöll Reykjavíkur verður nú
lokuð til 6. ágúst n.k vegna máln-
ingar. Er margur Sundhallargestur-
inn óánægður með þessa ráðstöfun.
því gott er þangað að koma og njóta
sólarinnar eftir nokkur röskleg sund
tök.,
Stúdentagarðurinn er nú næstum
fullgerðúr og getur veitt 61 stúdent
gott húsnæði í haust. Af þeim 61
íbúðarherbergjum sem verða í Stúd-
entagarðinum bafa nú 40 herbergi
verið gefin með 10 þús. kr. frarhlagi
fyrir hvert herbergi.
Það er gert ráð fyrir því að Stúd-
entagarðurinn muni kosta uppkom-
inn rúma IV2 milljón króna.
Sigurjón Jónsson, fyrrverandi skip
stjóri á „Arctic“, lézt í sjúkrahúsi í
London fyrir skömmu. Dó hann af
krabbameini.
Hagkvæm lán
Framh. af 2. síðu.
um löng lán og lágar rentur,
Bankarnir hafa nægilegt fé og
græða vel.
En auðvitað þarf hið opinbera
að gera ráðstafanir í þessu sam-
bandi eins og áður hefur verið
gert, þegar svipað var ástatt, —
t. d. fyrir bændunum, þó alls
ekki yrði farið fram á það nú að
neinar skuldir væru eftir gefnar.
DAGLEGA
NÝ EGG, soðin og Krá
Kaf f isalan
Hafnarstræti 16.
<xxxxx><sx>ooooooooo
NÝJA Bié
Æfintýrí í
Mcxíco
(Down Mexiko Way)
Gene Autry, Smiley Burnette
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala aðgöngumiða hefst
kl 11
Börn yngri en 12 ára fá ekki
aðgang.
AUGLYSIÐ
í ÞJÖÐVILJANUM
♦♦♦♦♦♦♦»4»»4»>****»******,í
Omsfan nm
Stalíngrad
(The Story of Stalingrad)
Rússnesk mynd.
Aukamynd:
Aðgerðir á andlitslýtum
Litmynd.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð fyrir börn innan 16
ára
Handan við hafið blátt
(Beyond the Blue Horizon)
Dorothy Lamour
Sýnd kl. 3 laugard. og sunnud
Verkamannafélagið
Dagsbrú
ÉÉP
Vesturheimsagentar
Framh. af 3. síðu.
i’.'kjahnf. og lúti raunvcrulega
boði þess og banni.
Vér íslendingar metum og
virðum anda Washingtons,
Jeffersons, þtincolns og Roose-
velts og vildum að stefna eins
og sú, sem Henry Wallace
varaforseti Bandaríkjanna
beitir sér fyrir mætti sigra,
og til þess vildum vér leggja
fram vorn litla skerf,
En viö fyrirverðum okkur
fyrir það að þegar það erki-
afturhald, sem Morgan, Rocke
feller, du Pont og Ford tákna,
leggur upp í herferð til þess
aö kæfa þennan frelsisanda,
sem Ameríka héfur réttilega
verið stolt af, — þá skuli vera
til svo lítiMgldir menn hér
á íslandi aö þeir gerist skó-
sveinar slíks valds og bjóði
því fósturjörö vora sem fót-
stall til aö lyíta sér á til
drottnunar yfir öörum þjóð-
um!
Eiturörvarnar sem Hriflu-
menn, Ísleiízku l'asistarnir,
skjóta nú af bogum sínum,
Degi og Visi, a'ð frændum vor-
um á Noröurlöndum, eru fyr-
irrennarar aö’ eldsprengjum
þeim, sem fluglloti Morgans
mun varpa á frjálsa Osló í
næsta stríöi, ef stefna þess-
ara manna og herra þeirra,
fasisminn á íslandi og í Ame-
ríku, sigrar.
heldur fund í Listamannaskálanum annað kvöld 19.
júlí kl. 8,30 e. h.
FUND AREFNI:
Uppsögn samninga-
Vísitalan
Félagar, mætið vel!
STJÓRNIN. I
Brot gegn verðlags-
ákvæðum
Nýlega hafa eftirtaldar verzl-
anir og veitingahús verið sekt-
aðar fyrir brot á verðlagsákvæð
um:
1. Hafliði Baldvinsson fisksali
sektaður um kr. 300,00 fyrir of
hátt verð á laxi.
2. Hótel ísland sektað um kr.
500,00 fyrir of hátt verð á veit-
ingum.
3. Hattabúð Ingu Ásgeirs sekt-
uð um kr. 1000,00 fyrir of hátt
verð á kvenhöttum.
4. Heildverzlun Ágústs Ár-
manns sektuð um kr. 1000,00
fyrir of háa álagningu á hnífa.
Bardagarnir
um Sikiley
Framh. af 1. síðu.
ingin gegn íasisma myndað bar-
áttunefndir, og eiga sæti í þeim
fulltrúar kaþólskra og kommún
ista, borgaraflokka og sósíalista,
að því er brezka útvarpið skýrir
frá.
Hefur þjóðfylkingin dreift út
ávarpi til þjóðarinnar, þar sem
skorað er á hana að vinna að
friði.
Lofther Bandamanna heldur.
:uppi látlausum árásum á1 her-
stöðvar Þjóðverja og ítala á Sik
iley og syðsta hluta Ítalíu.
&
r
1
&
5Ö5
DREKAKYN
Eftir Pearl Buck
hana. Af tilviljun hafði hann komið gildru sinni fyrir á
nýrri leið, sem hann hafði ekki lagt gildru áður, og hann
hafði grafið djúpt niður og lagt borð yfir, sem voru nógu
sterk til þess að halda steinum, en þó hafði hann komið því
svo fyrir, að borðin sköruðu hvert annað og þannig að við
minnstu snertingu mundu þau öll falla niður. Hann hafði
gert þetta vegna þess, að hann hafði frétt að óvinirnir ætl-
uðu að senda skattheimtumenn í það hérað innan fárra
daga. Þegar hann hafði lokið við að leggja gildru sína fór
hann eins og venjulega og aðvaraði fólkið, sem bjó nálægt
veginum að fara ekki eftir veginum þangað til óvinirnir
væru farnir fram hjá, og það hafði þakkað honum.
Þegar hann svo opnaði gildruna daginn eftir til þess að
sjá hvað í henni væri, fann hann þar snöktandi konu, Hún
hafði verið þar alla nóttina, og þar sem enginn hafði átt þar
leið fram hjá þá hafði enginn heyrt hróp hennar um hjálp.
Hann gægðist niður í gryfjuna í morgunskímunni og sá
að hún var enginn óvinur.
Eg skal hjálpa þér upp, sagði hann. og stökk niður í gryf j-
una til þess að hjálpa henni upp. Þá sá hann, að þótt hún
væri orðin roskin, var hún fremur snotur, og augu hennar
voru rauð af gráti.
Eg er svo hrædd, að ég næ varla andanum, kjökraði
hún.
Þú varst óheppin að eiga hér leið um, sagði hann. Hvern-
ig gat ég vitað það?
Um leið og hann mælti þetta hjálpaði hann henni upp,
og með erfiðismunum tókst honum að koma henni upp úr
gryfjunni og reisa hana á fætur og hún þakkaði honum
fyrir og lagfærði föt sín. Síðan sagði hún um leið og hún
þurrkaði sér á kápulafinu:
Geturðu sagt mér, hvar ég er? Eg er ókunnug hér, og
maðurinn minn var drepinn af óvinunum, og hann sagði
mér, að ef hann félli frá, þá ætti ég að finna þorp hans
og föður og móður, og vita um hvort þau vildu ekki hjálpa
mér.
Hún nefndi þorp, sem hann hafði aldrei heyrt getið um.
Eg held að þú sért á rangri leið. Eg hef aldrei heyrt get-
ið um þetta þorp.
Þá byrjaði hún að gráta aftur og sagði:
Hvernig get ég þá haldið áfram. Eg er búin að eyða öll-
um peningum mínum, og hvað get ég nú gert. Eg hef heyrt
að óvinirnir fari mjög illa með konur, og ef ég kæmist í
hendur þeirra? Hún leit aumkunarlega á hann og sagði: Þú
ert heiðvirður góður maður, ég sé það á svip þínum.
Hann hugsaði með sjálfum sér: Eru ekki allar konur
eins? Þessi kona virðist vissulega mild og góð. Hún er
ekkja, en er það hennar sök?
Og við hana sagði hann: Hefurðu nokkuð borðað? Þegar
hún svaraði honum neitandi fór hann með hana í næstu
veitingakrá, staldraði einungis við til þess að leggja gildr-
una að nýju, og þar keypti hann mat handa henni og
meðan hún borðaði sat hann hugsi. Hann sat ekki við
sama borð og hún, því að það hefði verið honum til minnk-
unnar og ókurteisi gagnvart henni, en hann gaut augun-
um út undan sér og virti hana fyrir sér, og settist niður
við annað borð og hann hugsaði:
Hafa guðirnir ekki sent mér hana? Hún féll í gildru
mína.
Hann sagði henni því að koma með sér. þegar hún hafði
lokið við að borða. Síðan sagði hann með því að taka á
öllu því hugrekki sem hann átti til, og hann hefði ekki
getað það ef hún hefði ekki verið svo aumkunarverð ög
fús til þess að láta að vilja hans fyrir góðmennsku hans:
Við erum ekki langt ffá húsi föður míns, og það er dag-
leið þangað og móðir mín ér góð kona, komdu með mér
þangað.
Þetta sagði hann við hana til þess að komast að raun
um það hvort hún myndi vera fús að fara með honum.
Og hvers vegna ætti hún ekki að vera það. sem hvergi
átti sér húsaskjól né matarbjörg. Iiún var honum þakklát
og sagði:
Hvernig get ég neitað þeim um nokkuð sem guðirnir
hafa falið mig á hendur?
Og hann gekk á undan henni án þess að eyða f(eiri orð-
um í áttina til húss föður háns og hún fylgdi í humátt á
eftir. og bar farángur sinn 1 grófu bláu klæði.
&
SS"
£
&