Þjóðviljinn - 27.07.1943, Qupperneq 1
Ný stjórn undir forssti Badoglio marskálks lýsir alla Italíu í hernaðarástand.
Úeirðir brjótast út I mörgum ítölskum borgum
Bandamcnn leggja áherzlu á ad nýja stjórnín sé fasisfa-
sfjórn cg krafan verðí eftír sem ádur: Skílyrðíslaus uppgjof
Bandamenn hafa
tekið 70 bús. fanga
á Sikiley
Á Sikiley halda áfram harðir
bardagar við Catania, en annars-
staðar virðist fasistaherinn á
hröðu undanhaldi fyrir hersveit-
um Bandaríkja- og Kanada-
manna.
Bandaríkjaherinn sem sækir
austur ströndina frá Pálermo er
sagður kominn um 60 km. aust-
ur fyrir borgina.
Bandamenn hafa nú alls tek-
ið um 70 þúsund fanga, þar á
meðal 10 ítalska hershöfðingja
og tvo flotaforingja.
Talið er að Þjóðverjar hafi
3 V2 herfylki á norðausturhluta
Sikileyjar, og Italar 3 herfylki.
Sagt er í brezkum fregnum, að
meginhluti baráttunnar hvíli á
Þjóðverjum. því ítalir virðist yf-
irleitt lítt fúsir til að berjast og
gefist upp í stórhópum.
Síðustu fréttir
Á Ítalíu logar allt í kröfu
göngum og óeirðum og hef-
ur víða komið til blóðugra
bardaga milli verkamanna
og lögreglunnar og milli
þýzkra og ítalskra her-
manna.
Fregnir um mjög öfluga
og vel skipulagða starfsemi
gegn fasismanum berast
stöðugt frá Sviss.
Víða í ítölskum borgum
hefur verið dreift út leyni-
biöðum, þar sem þjóðin er
hvött til að varpa af sér oki
fasismans, og láta engan af
hjálparmönnum hans,
hvorki konunginn né aðra,
sleppa við réttláta refsingu
fyrir drýgðá glæpi.
Um ki. 9 á sunnudagskvöld var útvarpað frá Róm
þeirri tilkynningu til ítölsku þjóðarinnar og sérstak-
lega til hermannanna á Sikiley að Benito Mussolini
hafi beðizt lausnar og Vittorio Emanuel Ítalíukonung-
ur samþykkt lausnarbeiðnina.
Jafnframt var tilkynnt að Badoglio marskálkur
hafi verið skipaður eftirmaður Mussolini sein forsæt-
isráðherra ítölsku stjórnarinnar.
Ávörp frá Ítalíukonungi og Badoglio voru lesin,
og segir Badoglio að stríðið muni halda áfram og
hvetur ítölsku þjóðina til að verja Ítalíu fyrir árás-
um Bandamanna.
Konungurinn lýsti yfir því að hann hefði tekið í
sínar hendur yfirstjórn ítalska hersins, flotans og
flughersins.
Gayda, málpípa Musso-
iinis, hefur verið rekinn frá
ritstjóm stórblaðsins „Gi-
ornale d’Italia“.
Frá Bern í Sviss hafa borizt
fregnir um að óeirðir hafi brot-
izt út í borgum víðsvegar um
Italíu.
Snpmma í gærmorgun til-
Mússi: Vertu sæll, Hitler ntiitn! — Hitler: Auf Wiederseheu.
kynnti Badoglio marskálkur
margar neyðarráðstafanir, er í
rauninni jafngilda því að her-
lög séu sett um allt landið. Hef-
ur verið hótað dauðarefsingu
við því að hópast saman á göt-
um, og mega ekki fleiri en þrír
menn sjást saman. Bannað er að
vera úti frá því að skyggja tek-
ur, bannað að selja og bera vopn
og dreifa ávörpum og ílugmið-
um.
Stjórnin hefur komið á svo
strangri fréttaskoðun, að frá því
í gærmorgun er varla hægt að
segja að neinar fréttir hafi bor-
izt frá Ítalíu nema hinar opin-
beru fregnir stjórnarinnar. Róm
útvarpið hefur hætt flestum
hinum erlendu fréttasendingum
sínum.
Addragandínn
I svissneskri fregn segir, að á
fundi þeirra Mússolíni og Hitl-
ers í Verona fyrir viku hafi Hitl-
er borið fram eftirtaldar kröfur:
1. ítalskt varalið sé sent til
Sikileyjar til þess að hægt sé að
flytja þaðan.burt þýzka herinn
sem þar berst nú.
2. Flytja skal allan her ítala
og Þjóðverja burt úr Suður-ítal-
íu, gefa upp Napoli og Róm og
verjast við varnarlínu á Norður-
Ítalíu..
Mússolíni bar þessar kröfur
Hitlers fram á ráðuneytisfundi.
1___
Þeir eru allir samsekir um glæpi fasismans. — Í'talíukongur,
Mussolini og Badoglio á hersýningunni.
Sohn mU terslis í Oreluía
Einnígbamf víð Bfclgorod og Donefs
Rauði herinn vinnur á við Orel, segir í miðnæturtilkynn-
ingum frá Moskva. Sóttu Rássar fram í gær 5—8 km. og tóku
70 bæi og þorp, þar á meðal tvo járnbrautarbæi á línunni Kúrsk-
Orel.
Á norðurhluta Orelvígstöðvanna tók rauði herinn nokkur
þorp á vesturbakka Okáfljótsins.
en ráðherrarnir vísuðu til kon-
ungs, en hann neitaði að sam-
þykkja þær, segir í fregn þess-
ari.
Brezka stjórnin sat á íundum
mestallan daginn í gær og hafði
stöðugt samband við Banda-
ríkjastjórn, segir í brezkri út-
varpsfregn.
Var tilkynnt í gærkvöld að
Churchill muni flytja ræðu um
horfurnar á Ítalíu, næst þegar
þingið kemur saman.
Eina ópinbera yfirlýsingin frá
áhrifamönnum Bandamanna
Framh. á 2. síðu
Rússar hafa bætt aðstöðu sína
á Bjelgorodsvæðinu í hörðum
bardögum, en á Donetsvígstöðv-
unum hefur aðeins verið um við
ureignir könnunarflokka að
ræða.
I bardögunum í fyrradag á
austurvígstöðvunum voru 52
þýzkir skriðdrekar eyðilagðir
og 57 fasistaflugvélar skotnar
niður.
Þjóðverjar skýra enn frá hörð
um varnarbardögum þýzka hers
ins á vígstöðvum suður af Len-
ingrad, á Orelsvæðinu og í Don-
etshéraðinu.