Þjóðviljinn - 06.08.1943, Blaðsíða 1
8. árgangur.
Föstudagur 6. ágúst 1943
i
172. tölublað.
Bardagarnír um Orel stóðu í alla fyrrínóti og voru
mjög mannskædír. Sókn sovétherjanna heldur áfram
Handel myrtur?
Franski stjórnmálamaðurinn
Georges Mandel, er nazistar
fluttu til Þýzkalands ásamt Leon
Blum og Daladier, dó er hann
hafði neytt fyrstu máltíðarinn-
ar í Königsteinfangelsinu. Er
talið að honum hafi verið byrlað
eitur.
Rauði herinn hefur á einum sólarhring tekið tvö
af sterkustu ígulvirkjum þýzka hersins á miðvígstöðv-
unum, Orel og Bjelgorod.
Eftir harða götubardaga er stóðu í alla fyrrinótt
tókst rauða hernum að ná Orel á vald sitt, og er það
viðurkennt af þýzku herstjórninni. Sovétherir halda
áfram sókn báðu megin Orels og eru Þjóðverjar á hröðu
undanhaldi til nýrra stöðva.
Áður en sólarhringur var liðinn tilkynnti sovét-
herstjórnin annan mikilvægan sigur, töku ígulvirkis-
ins Bjelgorod, norðaustur af Karkoff.
í tilefni af þessum sigrum gaf Stalin hernum dags-
skipun, lofaði hann fyrir unna sigra og hvatti til nýrra.
Fasístahcrárnír á Síbíleyjar~
vígstödvunum á undanhaldi
Hinn frægi áttundi her Breta hefur enn aukið á frægð
sína með nýjum sigri. Catania, eitt sterkasta virki fasistaherj-
anna á Sikiley, féll fyrir árásum hersveita Montgomerys
snemma í gærmorgun.
Fasistaherinn, sem varði borgina, er þegar á liröðu undan-
haldi norður strandveginn, sem er eina undanhaldsleiðin, og er
brezkur her á hælum honum.
Sænsku stjórninni
fer fram!
Hermannaflufníngum
nazísta yfír Svíþjóð
verdur haett
Sœnska stjórnin hefur ákveð-
ið að gefa ekki lengur leyfi til
þýzkra hermannaflutninga yfir
sœnskt land.
I hrezkri útvarpsfregn segir,
að þessi ákvörðun hafi verið
tekin vegna þess hve hermanna-
flutningar Þjóðverja voru orðnir
óvinsœlir í Svíþjóð.
Norska stjórnin hefur látið
í ljós ánægju með þessa ákvörð-
un sænsku stjórnarinnar, og
segir í - yfirlýsingu þar um, að
með þessu sé rutt úr vegi alvar-
legustu hindruninni á samvinnu
Norðmanna og Svía.
Talsmaður brezku stjórnar-
innar lét einnig í ljós ánægju
með ákvörðun Svía. Bretar hafi
alltaf talið þessa hermannaflutn-
inga yfir Svíþjóð ósamrímanlega
hlutleysisafstöðu Svíþjóðar.
HITAVEITAN
Nokkrar umræður urðu um
hitaveituna og hvað liði fram-
kvæmd verksins. Borgarstj. taldi
að verkið gengi ekki svo greitt
sem skyldi, en ekki væri þó úti-
lokað að hitaveitan gæti tekið
til starfa í haust. Hann skýrði
frá að upphaflega hefði verið
gert ráð fyrir að gagngerðar
breytingar þyrfti á innanhúshita
lögnum vegna hitaveitunnar,
verkfræðingar hefðu þó komizt
að þeirri niðurstöðu að hægt sé
að komast hjá þessum breyting-
um að verulégu leyti, en til þess
þyrfti krana í hvert hús, sem
Bjelgorod hefur verið á valdi
Þjóðverja frá því í þýzku sókn-
' inni síðastliðið vor, er þeir náðu
einnig Karkoff.
Með töku Bjelgorod hefur
rauði herinn bætt mjög aðstöðu
sína til árása á norðurarm þýzka
hersins á Karkoffsvæðinu, og
hreinsað Þjóðverja burt af járn-
.brautarlínunni frá Moskva til
Donetshéraðsins, en hún hefur
mikla hernaðarþýðingu fyrir all-
ar suðurvígstöðvarnar.
Úrslitabardagarnir um Orel
voru mjög harðir, og mannfall
mikið. Að sögn þýzkra fanga
ekki hefði upphaflega verið gert
ráð fyrir, og þeir því verið pant-
aðir síðar en annað hitaveitu-
efni. Mikið vantar enn af þess-
um krönum, en von er um að
þeir komi í tæka tíð. Dælur hit^
veitunnar eru enn ókomnar þær
bíða flutnings í Ameríku. Á
fundinum var lagt fram frum-
varp að gjaldskrá fyrir heimæð-
ar hitaveitunnar.
í sambandi við það bar Gunn-
ar Þorsteinsson fram tillögu um
að skora á Alþingi að breyta
húsaleigulögunum þannig, að
leyft yrði að hækka húsaleig-
una vegna heimæðagjaldsins.
Frumvarpinu og tiliögu Gunn
féllu t. d. sjötíu af hverjum
hundi'að í 211. fótgönguliðsher-
fylkinu þýzka, frá Köln, en það
var „í eldinum" síðustu dagana.
Baráttuþrek Þjóðverja
þverrandi.
Þýzkur liðsforingi, sem tekinn
var til fanga á Orelvígstöðvun-
um, segir að jafnt yfirmenn sem
óbreyttir í her Þjóðverja hafi
búizt við mikilli sumarsókn
þýzka hersins, eitthvað í líkingu
við sóknaraðgerðirnar tvö und-
anfarin sumur.
Það hafi orðið öllum þýzka
hernum sár vonbrigði, að í stað
þess voru það Rússar, sem hófu
sumarsókn með miklum árangri,
og Þjóðverjar urðu að láta af
hendi landsvæði, sem nota átti
til sóknarstöðva.
Þessi gangur styrjaldarinnar
hefur mjög dregið úr trú þýzkra
hermanna á sigur.
ars var vísað til annarrar um-
ræðu. Frumvarpið fer hér á eft-
ir.
FRUMVARP AÐ GJALDSKRÁ
FYRIR HEIMÆÐAR HITA-
VEITU REYKJAVÍKUR
1. grein. Heimæðagjald hita-
veitunnar skal vera kr. 25,00 —
tuttugu og fimm krónur — fyrir
hverja 10 rúmmetra af upphit-
uðu rúmmáli húsa samkvæmt
utanmáli, án frádráttar vegna
súðar.
2. grein. Ef fullur fjórðungur
og allt að % hlutum hæðar er
ekki hitaður, skal reikna heim-
æðagjaldið af hálfri hæðinni ef
hún er hituð að minna en Va
hluta. Þó skal hvergi reikna
lægra heimæðagjald fyrir hús,
en sem svarar af hálfri hitaðri
hæð. Framh. á 4. síðu.
Brezk herskip halda uppi skot-
hríð á strandveginn og valda
fasistahernum á undanhaldinu
miklu tjóni.
Norðar og vestar á vígstöðv-
unum sækja fram Kanadamenn
og Bandaríkjamenn. Bandarísk
herskip halda uppi skothríð dag
og nótt á herstöðvar fasista á
norðurströndinni.
Alþýðan krefst friðar.
Pólitísk verkföll halda áfram
í helztu borgum Norður-Ítalíu.
í öllum helztu verksmiðjun-
niður vinnu hálftíma á degi
um i Milano leggja verkamenn
hverjum til að krefjast þess að
friður .verði saminn.
Verkamenn x öðrum borgum
hafa tekið upp sams konar að-
ferðir til að láta í Ijós friðarvilja
sinn.
I Genoa fóru verkamenn
kröfugöngu og kröfðust friðar.
Yfirvöldin sendu vopnaða lög-
reglu á vettvang, og urðu blóð-
ugir árekstrar við verkamenn.
Badogliostjórnin hefur neyðzt
til að láta undan þeirri kröfu
þjóðfylkingarinnar að útrýma
fasistiskum kennslubókum úr
skólum landsins.
Ettart smMai I rflMisi.-
Kilini í Siolaflrli. HiiKrariir hala
ðshipti sanOD iMns har
Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði voru stöðvaðar all-
an daginn í gær og hafði ekkert samkomulag náðst í deilu kynd-
aranna við verksmiðjustjórnina seint í gærkvöld þegar Þjóðvilj-
inn átti tal við Siglufjörð.
Eins og frá var skýrt í blaðinu í gær stendur'deilan um það,
að kyndararnir krefjast sama eftirvinnukaups og i kolavinnu
en verksmiðjustjórnin hefur neitað.
Kyndararnir gáfu í gær út skýrslu um deiluna, þar sem þeir
skýrðu málið frá sínu sjónarmiði.
Verksmiðjustjórnin skrifaði verkamannafélaginu Þrótti
bréf í gær, þar sem hún reyndi að gera íélagið ábyrgt fyrir deil-
unni, en félagið vísaði þeim ásökunum frá sér, þar sem kyndar-
arnir lögðu niður vinnu sem einstaklingar.
Ennfremur ræddi verksmiðjustjórnin í þrjá tíma við trún-
aðarmannaráð Þróttar, en hafði engar tillögur frám að færa í
málinu.
Kyndararnir munu hafa óskipta samúð almennings á Siglu-
firði og sést það bezt á því, að meira að segja blað Sjálfstæðis-
flokksins þorði ekki að taka afstöðu á móti þeim.
Frá fundi bæjarstjórnar
Heimæðagjald hitaveitunnar - sætagjöld
kvikmyndahúsanna - hafnargjöld - o. fl.
Á fundi bæjarstjórnar í gær voru alls 14 mál á dagskrá.
Ræddar voru og afgreiddar tillögur um hafnargjöld, sætagjöld
kvikmyndahúsanna o. fl. Þá var rætt um hitaveituna og gjald-
skrá fyrir heimæðar afgreidd til annarrar umræðu. Tillaga kom
fram um skipun ljósmæðra í Reykjavík, var henni frestað.
Kosningu fræðslufulltrúa var frestað.