Þjóðviljinn - 10.10.1943, Qupperneq 1
8. árgangxir.
Sunnudagur 9. október 1943.
227. tölublað.
Þjóðviljinn 8 síðiir!
Herðið fjársöfnunina fyrir
stækkun Þjóðviljans.
Framlögum í blaðsjóð Þjóð-
viljans er veitt móttaka á skrif-
stofu Sósíalistaflokksins, Skóla-
vörðustíg 19.
ÞjóðViljinn 8 síður!
PijsUl hriiiii Mi ir Kákasiis
Sádusíu leífar pýzha og rútnenska hersfns á Tamanskaga gersigraðar
Tuffugu þúsund þjódverjar féllu í lokabardögunum
Síðustu leifar þýzka og rúmenska hersins hafa
verið hraktar burt úr Kákasus. í dagskipun er Stalin
birti í gær, segir að fasistaherirnir á Tamanskaga hafi
verið gersigraðir, eftir langa og harða bardaga, þar sem
sótt var að hersveitum fasista bæði af landi og sjó.
Sjóliðar Svartahafsflotans tóku mikinn þátt í bardög-
unum.
í lokabardögunum um Tamanskaga féllu 20 þús-
und fasistahermenn, en 3000 voru teknir til fanga.
í dagskipuninni leggur
Stalin áherzlu á aö sigurinn
á Tamanskaga sé mjög mik-
ilvægur, þvi aö Þjóðverjar
hafi getaö varið öfluglega
stöðvar sínar á Krím meðan
þeir höfðu fótfestu í Kúban-
héraðinu í Vestur-Kákasus,
og þaðan hafi einnig veriö
hætta á að fasistar notuöu
stöðvar sínar í Vestur-Káka-
sus til nýrrar sóknar inn í
landið.
Rússar tóku mjög mikið
herfang á Tamanskaga, þar
á meöal mikið af skriðdrek-
um og fallbyssum.
Rauði herinn heldur áfram
sókn fyrir vestan Dnépr,
þrátt fyrir geysiharða vörn
Þjóðverja. Suðaustur af Krem
entsúk hafa Rússar komið
þungum skriðdrekiun yfir
Dnépr á flotbrúm.
í sókninni í Hvíta-Rúss-
landi nálgast rauði herinn
Vítebsk og tók í gær járn-
brautarbæ, 40 km. frá Vítebsk
á brautinni frá Smolensk.
Norðar, á Nevelsvæðinu,
sækja Rússar einnig fram,
og tóku í gær marga bæi og
þorp.
imihhéhMb i niiihur-
siMri oir kniafl afl slrafla Mr
saiasilunnar
Jðn Brynjálfsson staðfestir f viðtali við Alþýðublaðið
frásðgn Sigfúsar Sigurhjartarsonar um þetta mál
Forstjóri samsölunnar, herra Halldór Eiríksson hefur sent
Þjóðviljanum bréf, sem hér fer á eftir. Þjóðviljinn birtir þetta
bréf með mikilli ánægju, því það sýnir eins ljóslega og frekast
verður kosið, hvérs konar menn það eru, sem séra Sveinbjörn
Högnason hefur í samstarfi til að viðhalda hinu „óþolandi“ á-
standi í mjólkursölumálunum. Bréfið er fleipur eitt og útúrsnún-
ingur, og hefði jafnvel sjálfur séra Sveinbjörn naumast komizt
lengra í auðvirðilegum málflutningi en forstjórinn kemst í bréfi
þessu. Fleipur sitt byggir forstjórinn á því, að í fyrirsögn blaðs-
ins af frásögninni af upplýsingum Sigfúsar, hafði misprentazt
„mjólkursamsölustjóm“ fyrir mjólkursölunefnd, en í frásögn-
inni sjálfri var skýrt fram tekið, að Jón Brynjólfsson væri full-
trúi Alþýðusambandsins í mjólkursölunefnd, og sem slíkiun
hefði forstjórinn neitað honum um að skoða bækur samsölunn-
ar. Þessa frásögn hefur Jón nú staðfest, og er forstjórinn því
uppvís að því athæfi, að dylja bækur þessarar stofnunar fyrir
manni, sem á skýlausan rétt á að kynna sér þær.
Bréf forstjórans er svohljóðandi:
„Eg leyfi mér hérmeð að fara þess
á leit, að þér þirtið eftirfarandi lín-
ur í Þ.ióðviljanum:
í Þjóðviljanum, 8. þ. m., er frá því
skýrt, að Sigfús Sigurhjartarson al-
þingismaður, hafi upplýst á Alþingi,
daginn áður, að ég,, sem fram-
kvæmdasljóri Mjólkursamsölunnar.
banni „meðlimum mjólkursamsölu-
Framh. á 2. síðu.
Bandaríski herinn
bjóst til árása norð-
ur yfir Volturno
Brezki áttundi herinn hrindir
gagnárásum þjððverja
Fimmti bandaríski herinn
býr sig til árása á stöðvar
Þjóðverja á norðurbakka Vol-
tumoárinnar, norður af Na-
poli, segir í fregnum Banda-
manna í gær.
Stórskotaalið beggja hern-
aðaraðila heldur uppi skot-
hríð yfir fljótið, og draga báð
ir saman lið og hergögn.
Fréttaritarar segja að ó-
veður hamli hernaöaraðgerð-
um á Ítalíuvígstöðvunum.
Einn brezkur fréttaritari á
vígstöðvunum norður af Na-
poli tekur sérstaklega til þess
að dögum saman hafi engar
þýzkar flugvélar sézt, og virð-
ist Bandamenn hafa alger yf-
irváð í lofti.
Áttundi brezki herinn hef-
ur hrundið árásum Þjóðverja
á vígstöðvunum noröur af
Termoli.
Mánínn lidur
Kvikmynd eftir sögu Stein
becks sýnd í Nýja bíó.
Nýja bíó byrjar í dag að
•sýnja kvikmyndina Máninn
líður, sem gerð er eftir sam-
nefndri sögu ameríska rit-
höfundarins John Steinbeck.
Sagan lýsir lífinu í litlu
þorpi, sem Þjóöverjarnir hafa
hemumið og þögulli baráttu
fólksins, sem ekki vill láta
hugast.
Leningradsimfonía
Sostakovitsj leikin i
útvarpið i dag
í miðdegistónleikimum í
dag, kl. 3, verður flutt af
hljómplötum Leningrad-
simfónían eftir rússneska
tónskáldið Dimitri Sosta-
kovitsj. Það er simfóníu-
hljómsveit National Broad
casting og Company sem
leikm- undir stjóm ítalska
snillingsins Toscanini.
Sostakovitsj er eitt fræg-
asta núliíandi tónskáld
Rússa. Þessi hljómkviöa
sem er hin sjöunda frá
hans hendi, er samin í
Leningrad meöan þýzkí
herinn sat um borgina.
i
isuar spreign
ast í biriir l Dusliir-PðsliaH
Síðastliðinn sólarhring hafa sprengjuflugvélar Breta og
Bandaríkjamanna gert harðar árásir á fjölda þýzkra borga.
Einna mesta athygli vekur að bandarískar sprengjuflugvél-
ar hafa gert árásir á borgir í Austur-Prússlandi, Pommern og
Pól'landi.
Brezkar Mosquitoflugvélar
vörpuöu sprengjum á Berlín,
og' árásir voru einnig geröar
í fyninótt á Hannover, Brem
en og hollenzkar borgir.
Undanfarna tíu daga hafa
Bandamenn gert fjórar loft-
árásir á Emden, þrjár á Hann
over og tvær á Frankfurt,
auk níu annarra mikilvægra
borga.
Af sprengjuflugvélunum
sem árásirnar geröu 1 fyrri-
nótt, fórust þrjátíu og ein.
Þorsteinn H. Hannesson
Hljómleikar Þorsteins
H. Hannessonar
Þorsteinn H. Hannesson, sem
er á förum til Englands til fram
haldsnáms í sönglist, efndi til
kveðjuhljómleika í Gamla Bíó
Framh. á 2. síðu
llerkjasala Blindra-
félagsins er í dag
Merkjasala Bhndrafélagsins
er í dag Félagið er félag
blindra manna og starfar að
hagsmunamálum þeirra.
Hefur félagið starfrækt
vínnustofu þar sem 7 blindir
menn hafa unnið. Er þetta
húsnæði í kjallara, og er einn
ig orðið alltof lítið, er því
brýn þörf fyrir betra og
stærra húsnæöi.
Þá á félagið safn bóka meö
blindraletri, en til þess að
auka það skortir félagið fé
og verður ágóðanum af
merkjasölunni í dag m. a. var
iö til þess að stækka bóka-
safnið.
Sovétsendiherrann
Bogomoloff kominn
til Alsír
Hacmillan og André
Philippe i London
Bogomoloff, sendiherra
Sovétríkjanna hjá frönsku
þjóðfrelsisnefndinni kom til
Alsír í gær, og afhenti skil-
ríki sín.
brezkri fregn að
sovétsendisveit sé
til Alsír innan
Segir
fjölmenn
væntanleg
skamms.
Harold Macmillan brezki
ráöherrann i Norður-Afríku,
kom til London í gær, og mun
gefa brezku stjórninni skýrslu
um samningana viö Badoglio.
André Philippe, innanríkis-
ráðherra frönsku þjóðfrelsis-
nefndarinnar, er einnig kom-
inn til London.
Reykvíkingar hafa hvað
eftir annað sýnt aö þeir eru
reiðubúnir til þess að styrkja
nauðsynjamál, sem þetta
þegar til þeirra er leitáð.
Minnist þess í dag
Framh. á 4. síðu.