Þjóðviljinn - 23.10.1943, Page 1
8. árgangur.
Laugardagur 23. október 1943.
237. tölublað.
Nokkrir Alþýðoftokks- og Framsóknarmenn slást f för með þeim
Þingsályktunartillögu um rannsókn á olíufélögin vísað til nefnd-
ar með þrettán atkvæðum gegn tólf
Theódór Friðriksson
dæmdur í tugthús fyrir
sjáifsæfisögu sína
Theódór Friðriksson rithöf-
undur hefur nýlega verið dœmd
ur í 100 kr. sekt, eða 5 daga
dvöl í tugthúsi, fyrir ummæli
í sjálfœvisögu sinni.
Mörgum, sem lesið hafa
sjálfsævisögu hans, mun verða
á að spyrja: Hvað er það í sögu
hans, sem hann er dæmdur
fyrir?
Honum varð það á í frásögn
af manni einum norðanlands,
að segja frá uppnefni manns
þessa norður þar. Afkomendur
mannsins hugðu á hefndir og
þykjast nú sjálfsagt hafa feng-
ið þær: 100'kr. sekt eða 5 daga
í steininum! — Það fer að ger-
ast vandlifað fyrir ævisagna-
ritara á landi hér!
Theódór býst frekar við því
að hann muni áfrýja dómnum.
Þingsályktunartillagan um rannsókn á olíufélögin var til
umræðu í neðri deild í gær. Framsögumaður, Finnur Jónsson
lagði til að tillagan væri samþykkt án þess að henni væri vísað
til nefndar, þar sem áður væri búið að ræða málið í sjávarút-
vegsnefnd og þingflokkum. Risu nú upp þeir íhaldsmennirnir
Gunnar Thoroddsen og Garðar Þorsteinsson og vildu endilega
fá málið til allsherjamefndar, en þeir eru báðir í henni og
Garðar formaður. Þótti þeim það vænlegast til þess að tefja
málið. Ólafur Thórs tók eins og vænta mátti í sama strenginn.
Hinsvegar töluðu þeir Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartar-
son, Þóroddur Guðmundsson og Finnur mjög eindregið á móti
því að tefja málið. Urðu umræður allheitar.
Fór svo fram atkvæðagreiðsla
um hvort málið skyldi fara til
•*
allsherjarnefndar og var það
samþykkt með 13:12.
Þessir greiddu atkvæði með
því að tefja málið og senda það
til allsherjarnefndar: Ásg. Ás-
geirsson, Emil Jónsson, Garðar
Þorsteinsson, Gísli Sveinsson,
Gunnar Thor., Ing. Jóns., Jóh.
Jós., Jón Pálma., Jón Sig., Ól.
Hjónaband. í dag verða gefin sam
an í hjónaband í Hveragerði ung-
frú Svanhildur Steinþórsdóttir
(Guðmundssonar, kennara) og
Kristmann Guðmundsson, rithöf-
undur.
HneyksSanlegt framferði Fram-
sðknarþingmanna
Þetr svikjast um aO gegna skyMam sinum ð Al-
þingi sg einbeita valdi sfnn til að tefja framgang mála
Fyrstu umræðu um mjólkur
frumvarp sósíalista var lokið
í fyrrakvöld, svo sem fyrr var
frá sagt. Eftir öllum þingvenj
um hefði svo atkvæðagreiðsla
um frumvarpið átt að fara fram
í gær. — En þá bregður svo
við, að forseti neðri d.eildar,
Framsóknarmaðurinn Jörundur
Brynjólfsson setur málið alls
ekki á dagskrá, heldur stingur
af úr bænum ásamt nokkrum
helztu mjólkurpostulunum,
Bjarna Ásgeirssyni, Eysteini
Jónssyni og Sveinbirni Högna-
syni! Vanrækja þessir þing-
menn skyldur sínar við þingið
til þess að stunda allskonar
æsingastarfsemi út um sveitii.
Sigfús Sigurhjartarson fór
fram á það við 1. varaforseta,
Emil Jónsson, sem stjórnaði
fundi neðri deildar, að nýr
fundur yrði settur til þess að
taka þetta mál á dagskrá. Hafði
forseti vinsamleg orð um það,
en þó varð eigi úr, m. a. sökum
harðvítugra átaka, er síðar urðu
á fundinum í olíumálinu.
Tókst Framsóknarþingmönn ■
um því með þessu framferði
sínum að tefja það enn í 4 daga
að mjólkurmálið kæmist til
nefndar, eftir að hafa áður tafið
það svo með málþófi að 1. um-
ræða hefur staðið í heilan mán
uð (kom fyrst á dagskrá 22.
sept!)
Thors, Páll Þorst., Sig Bj. og
Sig. Hlíðar.
En á móti voru: Áki Jak,. Ein
ar Olg., Finnur Jóns., Björn F.
Bj., Lúðvík Jós., Páll Zóph.,
Pétur Ott., Sigf. Sigurhj., Sig.
Guðna., Sig. Thor., Sigurj. Á.
Ól., Þóroddur Guðm.
En eftirtaldir þingmenn voru
fjarverandi: Barði G., Bj. Ásg.,
Eyst. J., Jak. Möll., Sig Krist.,
Sig. Þórð., Skúli Guðm., Svb.
Högna. (og svo Gísli Guðm, sem
er veikur og getur ekki setið
þing).
Olíu-íhaldinu tókst sem sé
að draga með sér tvo Alþýðu-
flokksmenn og reið það bagga-
muninn, auk þess sem Páll þing
maður Vestur-Skaftfellinga,
trítlaði til þeirra.
Alþýðu manna mun ekki
blandast hugur um hvað fyrir
þessum olíu-mönnum vakir.
Þeir ætla sér að svæfa málið
í nefnd.
Þeim skal hinsvegar ekki
verða kápan úr því klæðinu.
Sósíalistaflokkurinn, sem auð-
sjáanlega stendur einn allra
flokkanna heill og óskiptur að
málinu mun sjá til þess, að
þeim verði ekki undanbragða
auðið.
Káskðlinn seflur I dag
Háskólinn verður settur í
dag kl. 2 í hátíðasal Háskólans.
Prófessor Jón Hjaltalín Sig-
urðsson flytur setningarræðuna,
en því næst flytur prófessor
Magnús Jónsson erindi um
Hallgrím Pétursson. Þá verða
nýjum stúdentum afhent há-
skólaborgarabréf sín. Að lokum
syngur söngflokkur undir stjórn
Hallgríms Helgasonar.
vegna sóknar Rússa í Dnéprbugðunni
Sókn rauða hersins í Dnjeprbugðunni heldur á-
fram með vaxandi þunga, segir í fregnum frá Moskva
í gærkvöd.
Eússar tóku í gær bæinn Versnetsníkoff og rauf
járnbrautina frá Dnjepropetrovsk til Krivoj Rog, mik-
ilvægustu undanhaldsleiðina, er Þjóðverjar höfðu frá
Dnjeprbugðunni.
Norður af Krivoj Rog tók rauði herinn í gær bæ-
inn Anovka, um 30 km. frá borginni.
Suður og suðvestur af Krem-
entsúk sóttu Rússar fram 6—10
km . og tóku 50 bæi og þorp.
Framsveitir rauða hersins eru
nú 50 km. norðvestur af Dné-
propetrovsk og sækja hratt
fram í átt til borgarinnar.
í Hvíta-Rússlandi og við
Kieff vinnur rauði herinn á,
þrátt fyrir geysiharða mót-
spyrnu.
í Melitopol féllu á annað
þúsund Þjóðverjar í bardögun-
um síðastliðinn sólarhring. Hef
ur þýzki herinn nú aðeins
nokkrar götur í norðurhluta
borgarinnar á valdi sínu.
Rússnesk blöð rita mikið um
orusturnar í Melitopol. Pravda
segir í gær, að þær gefi ekki
eftir Stalingradbardögunum í
fyrra, og afleiðing Melitopol-
orustunnar geti orðið jafnaf-
drifarík.
Finnska útvarpið sagði í gær,
að sókn Rússa í Dnéprbugð-
unni ógnaði öllum vígstöðvum
Þjóðverja syðst í Úkraínu og
á Krím. Ef ekki takist að
stöðva sóknina, og rauði herinn
sæki fram allt að ósum Dnépr,
eigi þýzki herinn nýjan Stalin-
gradsigur í vændum.
IIM f bí DslaFhdsli læst
IIMHI - bægst 2986500
Fyrir fundi bæjarráðs í gær lágu tilboð frá 6 byggingar-
meisturum í byggingu tveggja sambygginga á Melunum ásaint
geymslu fyrir reiðhjól og barnavagna. Byggingarnar eiga að
verða í sama stíl eins og hin nýbyggðu bæjarhús og jafnstór
eða alls 48 íbúðir.
Þríveldaráðstefnan
í Moskva
Á þríveldaráðstefnunni í
Moskva eru haldnir fundir dag-
lega, en enn hefur ekkert ver-
ið látið uppi um viðræðumar.
Tilkynnt var í gær hverjir
sætu ráðstefnuna af hálfu Rússa
og eru meðal þeirra, auk Molo-
toffs, Vorosiloff, Visinskí og
Litvinoff.
Loftárásir á stöðvar
Þjóðverja í Júgóslavíu
Flugvélar Bandamanna gerðu
í gær harða loftárás á Skoplje
í Júgóslavíu, frá bækistöðvum
í ItalíiL
Er lýst yfir að loftárásirnar
á Júgóslavíu séu gerðar í sam
ráði við þjóðfrelsisherinn, en
barátta hans gegn þýzka setu-
liðinu fer síharðnandi.
Tilboðin eru þessi:
Einar B. Kristjánsson kr.
2 986 500,00.
Ingólfur B. Guðmundsson kr.
3 224 900,00.
Byggingarfélagið h. f. kr.
3 380 000,00.
Tómas Vigfússson og Anton
Sigurðsson kr. 3 392 000,00.
Haraldur Bjarnason kr.
3 872 500,00.
Magn. Jónsson kr. 4 014 440,00.
Undanskilið er í tilboðum
þessum lagnir, málning o. fl.
Tilboðin eru miðuð við núver-
andi verðlag og kaupgjald og
breytast, ef þessir liðir breyt-
ast svo hér er fremur um á-
ætlun en tilboð að ræða.
Engin ákvörðun var tekin um
tilboðin og virðist jafnvel eitt-
hvert hik á borgarstjóra um
framkvæmdir, þó að bæjarráð
væri áður búið að samþykkja
að hefjast handa um þessar
byggingarframkvæmdir.