Þjóðviljinn - 12.11.1943, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.11.1943, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN Opbopgtnn! Næturlæknir er í læknavarðstöð Reykjavíkur í Austurbæjarskólan- um, sími 5030. Ljósatími bifreiða og bifhjóla er frá kl. 4.20 síðdegis til kl. 8,05 að morgni. Útvarpið í dag: 20.30 Útvarpssagan (Ragnar Jó- hannesson). 21.00 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 20 í Es-dúr eftir Mozart. 21.15 Útvarpsþáttur (Helgi Hjörv- ar). 21.35 Spurningar og svör um ís- lenzkt mál (Björn Sigfússon magister). 22.00 Symfóníutónleikar (plötur): a) Fiðlukonsert nr. 7 í D-dúr eftir Mozart. b) Symfónía nr. 1 eftir Beet- hoven. Rannsóknarnefnd í kjötmálinu Framhald af 1. síðu. <og þóttust sannprófa, að það væri hæft til manneldis. Það hlýtur að’ vekja óþægilegar grunsemdir í þessu sambandi, að menn þeir, sem stóðu fyrir dysjun kjötsins og sjóburði, hafa tilkvatt dýralækni að gefa vottorð um óneyzluhæfi vörunn ar í stað þess að kveðja til mat- væl'aeftirlit ríkisins, sem hér er réttur aðili, og krefjast það- an skyldugs úrskurðar. Skatt- greiðendur í landinu hljóta að krefjast rannsóknar á því, hvort greiddar hafi verið verðbætur á kjötbirgðir þær, sem kastað hefur verið í sjó og dysjaðar á víðavangi. Sömuleiðis er skylt að láta fara fram rannsókn á því, að gefnu tilefni, hvort öðr- um tegundum af afurðum bænda hafi verið kastað í sjó eða dysjaðar á víðavangi, svo sem t. d. smjör og ostar. Svör við þessum knýjandi spurning- um, byggð á grandgæfilegri rannsókn, hljóta síðan að skera úr um það, hvort menn þeir, sem nú hafa forustu í dreif- ingu landbúnaðarafurða. fyrir bændur, eru hæfir til þess starfs eða ekki. Eyðilegging ís- lenzkra matvæla í svo stórum stíl sem hér hefur verið fram- in er þeim mun alvarlegra mál sem heimurinn umhverfis okk- ur er nú á barmi hungursneyð- ar, en kjötskortur ríkjandi í öllum nálægum löndum, svo að skammtur fólks af þessari fæðutegund hefur hvarvetna utan íslands verið knepraður til hins ýtrasta. Eyðilegging kjöts er á þessum tímum hneyksli í augum alls heimsins, og mun útlendum mönnum ekki síður en innlendum þykja það undur, ef aðilar, sem uppvísir verða af slíkum óhæfuverkum á neyðartímum, verða ekki látn ir hljóta makleg málagjöld fyrir eða a. m. k. skipaður annar sess, NÝJA Bfð Úsýnilegi njósnannn (Invisible Agent). ILONA MASSEY, JON HALL, PETER LORRE, Sir CEDRIC HARDWIKE Böm fá ekki aðgang. Sýnd kl. 7 og 9. Sýning kl. 5: TÝNDA STÚLKAN (The MysteryofMarieRoget) Eftir sögu Edgar Allan Poe’s MARIA MONTEUS PATRIC KNUULES Bönnuð börnum yngri en 12 ára. TJAKNAIiN TIMBERLAKE- FJÖLSKYLDAN (In This Our Life). Spennandi sjónleikur eftir skáldsögu Ellen Glasgows. BETTE DAVIS OLIVIA de HAVILLAND GEORGE BRENT DENNIS MORGAN Sýning kl. 5, 7 og 9. MUNIÐ Hafnarstræti 16 Kaffisöluna LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR „Ég hef komið hér áður“ sjónleikur í 3 þáttum eftir J. B. Priestley. Frumsýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 2 í dag. Jarðarför mannsins míns Þorgríms Jónssonar fer fram laugardaginn 13. þ. m. frá Dómkirkjunni og hefst kl. 1 e. h. með húskveðju að heimili okkar, Laugarnesi. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna Ingibjörg Kristjánsdóttir. Tvær stúlkur geta fengið atvinnu í Víkingsprenti. Upplýsingar 1 prentsmiðjunni Garðastræti 17 sími 2864. er henti þeim betur en forusta | í dreifingu matvæla. Að endingu er rétt að benda á, að sú rannsókn, sem stjórn Sambands íslenzkra samvinnu- félaga hefur óskað eftir við dómsmálaráðuneytið, að fram skuli fara í þessu máli, er í senn skopleg og ófyrirleitin, þar sem hún virðist nær ein- göngu eiga að beinast gegn þeim, sem komið hafa upp um þann ósóma, að matvælum hef- ur verið fleygt“. • i voooooooooooooooc RYKFRAKKAR á unglinga frá 6 til 14 ára komnir aftur. Verzlun H. Toft Skólavörðustíg 5 Sími 1025 <XX>00«00000000900 Sjómannaráðstefnan Framh. af 3. alðu. ar fyrir Alþýðusambandsstjórn að því er snertir störf og stefnu Alþýðusambandsins í þessu máli í náinni framtíð. — Hvernig verður þátttaka sjómanna í ráðstefnunni? — Ráðstefnuna munu sækja fulltrúar félagsbundinna sjó- manna úr öllum landsfjórðung- um og flestum eða öllum helztu verstöðvum landsins og má því vænta góðs árangurs af störfum hennar. Hún hefst á morgun kl. 2 e. h. í fundarsal Alþýðusambands- ins í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. ollsx. 22 mm ROLL ELÍ OG ROAR umst í brauðbúð, frú Liegaard“. Henni vöknaði um augu. ,,Við erum stór fjölskylda. Þér megið ekki vísa mér burt, frú Liegaard“. Hún huldi andlitið í höndum sér. „Eg held bara-------“ Elí tók báðum höndum um stólbríkina og reyndi að hafa vald yfir rödd sinni. „Einkalíf okkar kemur engum við, frú Tiller“. „Eg á ekkert einkalíf framar. í þessum bæ á enginn nein einkamál. Allir vita að við Lars — Lars Bensen og ég elskum hvort annað. Hefur ekki Liegaard sagt yður það? Þetta hefur verið svona í fjögur ár“. Elí starði þegjandi á gólfábreiðuna. „Það skiptir minnstu um mig. En Lars er alveg eyði- lagður maður. Hann hefur megrast um þrjú kíló síðustu vikurnar og hann hefur hvorki húsfrið né matfrið. Æ, frú Liegaard, þér ættuð að sjá okkur Lars saman .Við er- um sköpuð hvort handa öðru. Eg hef lært tvöfalda bók- færslu 1 vetur, til þess að geta hjálpað honum á skrifstof- unni“. Elí stökk upp af stólnum og staðnæmdist á miðju góólfi. Hún náði varla andanum og varir hennar skulfu. Aðkomu- konan stóð líka á fætur. „Já, ég veit, að ég bið um mikið, óendanlega mikið. En gætuð þér ekki farið til frú Bensen og talað um fyrir henni, sagt henni, að það sé skylda hennar, að skilja við Lars? Þér eða Liegaard ættuð að gera þetta — þið, sem vitið, hvað þetta er“. Elí fannst gólfið allt í einu fara á hreyfingu. Það lækk- aði ofurhægt. Og andlit konunnar í legubekknum var orð- ið bara hálft andlit. „Mér er illt. Þér verðið að fara-----“ Hún heyrði rödd sína eins og í f jarlægð. Þá var rétt eins og steypt væri yfir hana köldu vatni og henni sortnaði fyrir augum. Það hafði liðið yfir hana í fyrsta sinn á æv- inni. Þegar hún raknaði við lá hún á legubekknum'og Bern- hardina stóð hjá henni með vatnsglas í hendi. Hún heyrði að hurð var skellt. „Er hún farin?“ hvíslaði hún. „Hún var að fara“, svaraði þjónustustúlkan . „Þér megið líka fara. En látið þér þessa konu aldrei koma hingað inn fyrir dyr. Aldrei framar“. Elí lá alein í stofunni. Það var sólskin. Sagði ekki Róar í gær, að allar manneskjur væru í raun- inni hver annari líkar? Hún andvarpaði lágt. Það var maímorgunn, þegar Liegaard læknir fór með gufuskipinu til Osló. Hann varð að fara vegna rannsókna sem hann vann að. Og svo langaði hann til að sjá yngri dóttur sína og ganga úr skugga um, að henni hefði batn- að í fætinum. Elí hafði lengi verið á báðum áttum. Átti hún að fara með honum? Þá gæti hún fundið Nils og Tore og aðra vini sína í fylgd með Róari. Það var freisting. En hún mátti ekki sleppa því tækifæri að vera ein með börnunum heila viku. Ingrid var ekki auðunnin. Það hafði hún fundið. Og Sverre þurfti að fá hjálp við námið. Þegar hún orðaði það við mann sinn, að hún væri að hugsa um að vera heima, sá hún, að gleðileiftri brá fyrir í augum hans. Þá var það afráðið. Þær stóðu á bryggbunni, Ingrid og hún, þegar skipið lagði frá landi. Það var úðaregn, en Elí dró saman regn- hlífina — svo að hann gæti séð hana eins lengi og unnt væri. Síðan gengu þær báðar heimleiðis yfir torgið. Elí smeygði hendinni undir handlegg stúlkunnar. „Eg ætla að hlaupa snöggvast til frú Sturland. Sæl á meðan“, sagði Ingrid. Ingrid var hjá Betu vinkonu sinni það sem eftir var dagsins. Elí borðaði miðdegismatinn ein með drengnum. Seinni hluta dagsins var Sverre úti. Síðan las hún með ho.num. Um kvöldið sagði hún honum frá Nansen og Jó- hansen, þegar þeir voru á heimskautinu. Það var hálfrökkur Þau höfðu kveikt upp í ofninum og þau sátu 1 bjarmanum frá eldinum. Drengurinn horfði stöðugt á Elí, meðan hún talaði. Þegar hún þagnaði dró hann djúpt andann og geispaði. Hann lagðist á grúfu á koddann á gólfinu, þar sem hann hafði setið. „Þú ert orðinn sifjaður. Nú er bezt að þú háttir, sagði Elí. „Sástu þá sjálf?“ spurði drengurinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.