Þjóðviljinn - 21.11.1943, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 21.11.1943, Blaðsíða 5
‘S'JC-E-VILJINN. Soiiouda?-jr 21. nóv. .líJ4á. iKsðmfi&j Útgef<ndi: Sameiningarjlolfzar alþv*u — Sósialis*zjloiiliurinn. RitstjG/i: Sigurður Guðmundsivn. Stjórnn. álaritstjórar: Eir.ur Olgeirsson, Sigjús Sigurhjartaraon. Ritstjórnarskrifs*cíur: Ausiurstrœti 12, sími 2270. Afgr-iíaia og auglýsingar: Skóbioörðustíg 19, sími 2184. Prentsmiðja: Víkingsprent h. j., Garðastrœti 17. Askriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6,00 á mánuði. landi: Kr. 5,00 á aiánuði. Ulí á Þekkir þú bæirnt? Ert þú kunnugur í borginni okkar, heiðraði samborgari? Þú segir víst já. Eg dreg í efa að þú getir sagt það með sanni. Hefurðu komið inn á heimili þeirra, sem við verstu hús- næðisskilyrðin búa? Sennilega ekki. Hefur þú gert þér í hugarlund að til væri ástand eins og það sem lýst var í grein Jóns Bjarnasonar í Þjóðviljanum í gær nm aðbúrað þeirra sem í bráðabirgðaíbúðum búa hér í bæ? Eg býst við að þú verðir að segja nei, ef þú ert ekki einn þeirra, sem húsnæðisraunirnar hafa ratað í, eða kunningi ein- hvers þeirra. Sjö manna fjölskylda í einu herbergi, fjögurra manna fjöl- skylda í öðru, og það er svo lítið, að breidd þess nægir aðeins fyrir dívan. Níu húsmæður í einu eldhúsi. Þetta eru augnabliks- myndir, teknar úr allmiklu safni. En það er vissa fyrir því að á fleiri sviðum en þessu eru til svo ljótar myndir úr lífi Reykvíkinga, að meginþorra hinna á- gætu borgara órar ekki fyrir að slíkt sé til. Hvað eru þeir t. d. margir, sem þekkja heimili ofdrykkju- manna hér í bænum? Sennilega tiltölulega mjög fáir af öllum fjöldanum. Eða hvað eru þeir margir, sem þekkja knæpulífið? Sjálfsagt margir, en hinir þó miklu fleiri sem ekki þekkja það. Það er ekki verið að bregða upp þessum myndum til að fá menn til að æpa og skrækja um spillingu og manpvonzku o. s. frv. Nei, síður en svo. Til hins er ætlazt að þær verði okkur hvöt til að ganga um bæinn með opnum augum, svo við fáum full skil á hinu ríkjandi ástandi, með kostum þess og göllum. Það er verið að reyna að fá Reykvíkinga til að þekkja Reykjavík. Þekking er byrjunin, en mikið veltur á framhaldinu. Fram- haldið af þeirri athugun, sem færir okkur heim sanninn um að í Reykjavík lifir fjöldi manns við alls óbærileg kjör, á að vera þrotlaus barátta fyrir því, að allir, undantekningarlaust, geti búið við þær ytri aðstæður, sem henta siðmenntuðum manni. Þú ert þessu auðvitað sammála, samborgari góður, en hvaða leiðir sér þú að markinu? Heldur þú að húsnæðisvandamálið verði leyst með því að láta það vera undir gróðahvöt einstaklinganna komið hvort hús eru byggð í Reykjavík eða ekki? Heldur þú að ofdrykkjan verði gerð ræk úr bænum, með- an ríkið hefur vænan hluta tekna sinna af áfengissölu? Heldur þú að skemmtana- og knæpulífið batni meðan skemmtistaðir eru reknir í þeim tilgangi einum að græða fé? Eg held þú hljótir að segja nei. Það á að byggja hús, því að það er öllum lífsnauðsyn að búa í góðum húsum. Það á ekki að selja áfengi, af því það er engum til góðs, en mjög mörgum til ills. Það á að hafa vistlega . já, mjög vistlega —, samkomustaði þar sem fram fara sið- fágaðar skemmtanir, — svo víða, að fullnægt sé skemmtana- þörf bæjarbúa. En ekkert af þessu verður gert nema með því að útiloka gróðasjónarmiðin, og hafa þeirra í stað almennings- heiR að leiðarljósi. Hver er það svo, sem á að stýra eftir þessu leiðarljósi? Auðvitað félag okkar allra, bæjarfélagið. Bæjarfélagið á að sjá um að hús séu byggð í samræmi við húsnæðisþörfina. Bæj- arfélagið á að sjá um að skemmtistaðir séu reistir og reknir, svo fullnægt sé skemmtanaþörf manna á heilbrigðan hátt. Bæj- arfélagið á að sjá um, eftir því sem í þess valdi stendur, að hvorki ríkið né einstaklingar geri sér bresti manna að féþúfu, og geri þá þar með að aumingjum. Allt þetta er hægt að gera og allt þetta ber að gera, því munt þú sammála, samborgari góður. En heldur þú, að þetta verði gert, ef sjónarmið Sjálfstæðis- ■aanna um einkagróða og einkafjársöfnun ráða hvA r.-.Lbg hus «ru byggð, og hve marmr rg kverrng iaæmmtanastaðir eru rekn- l»r t ',r. • > • -r; :> * Kr * - v* ■- - - > framleitt af 5000 sjómönnum: það er sjávarútvegur íslands Vér ílslendingar erum að byrja að liefja skipulagt samstarf le§a með slíku framlagi til af við aðrar þjóðir um matvælaframleiðslu. Þess er krafizt af oss komu alÞjóða krafizt endur að vér leggjum fram krafta vora til þess að framleiða sem mest af mat. Oss er Ijúft að verða við þeim kröfum, bæði sjálfra vor vegna og annarra, — ljúft að geta hjálpað til að seðja þá, sem hungrið hefur þjáð, Ijúft að geta fengið að sýna heiminum hve mikið vér getum framleitt ef vér leggjumst allir á eitt íslendingar um að einbeita kröftiun vorum að því, sem mest- an ávöxt gefur, og njótum tii þess nauðsynlegrar aðstoðar þeirra þjóða, er oss geta hjálpað. „Látið oss tækin í té, vér skulum svo vinna verkið“, — sögðu Bretar við Bandaríkjamenn í þessu stríði — og meintu hergögnin. „Látið oss tækin í té, vér skulum svo vinna verkið“, ___ eigum vér íslendingar nú að segja við Bandaríkjamenn og meina tækin til að framleiða mat. • En oss íslendingum er nauðsynlegt að vita, við Iivaða fram- leiðslu vinnuafl vort nýtist bezt — og hvaða tækja oss því er mest þörf. Vér skulum athuga matvælaframleiðslu vora stuttlega hvað magn hennar snertir. 1942 voru framleidd á íslandi 6100 tonn af kjöti, en lík- lega um 20 þús. tonn af mjólk. — Við þessa landbúnaðarfram- leiðslu, sem auk þess gefur af sér ull, gærur o. s. frv.,,vinna um 6400 bændur í Iandinu baki brotnu, myrkranna milli og hefur þorri þeirra einkum í þeim sveitum, er fjar eru mörk- uðum bæjanna, léleg laun fyrir þrældóm sinn. Landbúnaður íslendinga er því eigi aflögufær til útlanda um mikið magn af fæðu, 3-^ þúsund tonn dilkakjöt, dálítið hrossakjöt, — það er megnið, sem hann getur lagt fram. En hvað er um sjávarútveginn. 1942 voru framleidd á fslandi rúm 190 þusund tonn fiskjar (auk síldar). Unnu að þehn veiðum að meðatali um 4000 sjó- menn. — Hæglega getur veiðin orðið meiri, ef meiri kraftur er settur á framleiðsluna. Engin ofætlim að framleiða 250 þús- und tonna fiskjar hér. Og þá er eftir síldveiðin. í góðu síldarári eins og 1940 voru framleiddir 2.476.738 hektolítrar af síld, eða um 250 þús- und tonn síldar. — Þá unnu á síldarskipunum 2925 sjómenn, að miklu leyti sömu sjómennimir og framleiða fiskinn. 5—6000 sjómgpn á íslandi geta veitt á einu ári 500 þúsund tonn af fiski og síld, meðan rúmir 6000 bændur og búalið þeirra þræla við að framleiða 7000 tonn af kjöti. Þetta er mun- urinn á fullkomnum aðferðum véltækninnar og gamaldags bú- skap sveitanna, munurinn á auðgi íslenzks sjávar og erfiðleik- um þeim, sem íslenzka moldin og náttúran býr þeim, er jörð- ina erjar. EINBEITINGIN Á SJÁVARÚTVEGINN Það getur engum, sem íhug- ar þessi hlutföll, blandazt hug- ur um hvaða vara það er, sem sjálfsagt er fyrir íslendinga að einbeita vinnuafli sínu að. Það verður heldur ekki um það efazt á alþjóðlegum vett- vangi, hvað notadrýgst er fyrir aðrar þjóðir að íslendingar framleiði. 500 þús. tonn af fiski og síld — það er ekkert smáræði, sem 100 þúsund manna þjóð leggur samskiptum þjóðanna. Það er hvað fiskframleiðslu snertir Vér Islendingar getum sannar- gjalds, sem geri oss kleift að lifa hér fullkomnu menningar- lífi. En oss verður þá sjálfum að vera það nægilega vel ljóst á hverju nútímalíf vort byggist, á hverju vér reisum bæi vora, malbikaðar götur, raforkuver, handiðnað, verzlun og að vissu leyti landbúnaðinn líka: að vér reisum allt þetta á sjávarútveg inum, því á honum byggist vöxt ur bæjanna og vegna þess vaxt- ar dafnar hvort heldur er mjólk urframleiðsla sveitanna — eða húsgagna- eða smjörlíkisfram- leiðsla bæjanna, svo einhver dæmi séu tekin. Vissulega þurfa að verða ýms ar breytingar á framleiðslu vorri til sjávar, ef hún ætti að meirihlutá að nýtast nú á næst unni fyrir þjóðir Evrópu. Það er næstum því jafn blóðugt að verða að íleygja síldinni 1 bræðslu í staðinn fyrir að búa ★ a v-'t' ■; W’ leiðslumagnið sýnir. Þeir sjá þau ein úrræði við atvinnuleysi því, sem auðvaldsskipulagið leiðir yfir þjóðina, að unga fólk ið flytji úr bæjunum í sveit og gerist þar vinnuhjú. Og þessir menn stíla nú upp á það að láta atvinnuleysi og hrun fleyta sér til valda, — og skapa hér Hriflungaóöld nýrrar harð- stjórnar gegn verkalýð og sér- staklega sjómönnum, en Hriflu mennskunni er sérstaklega í nöp við þá, sbr. hræðslupeninga nafnið. Þessir fjandmenn sjávarút- vegsins, alþýðunnar og fram- faranna á íslandi, stefna svo markvíst að eyðileggingu sjávar útvegsins, að m. a. í utanríkis- pólitík sinni er yfirlýst stefna þeirra: fjandskapur við megin- land Evrópu eftir stríð, einmitt þau lönd, þar sem framleiðslu- markaður íslands hlýtur að vera. Jónas frá Hriflu hefur þegar byrjað áróður fyrir því að gera ísland að herstöð engil- Vtv--^rr- - o- • «■<. n Kifí V - ” T •' ■' •«, V' •>. L. ‘........... 1/ -'i,*'*'‘r \ ■: "■■'$ ‘ ,í . V •■'.;> ■ ■ • i , . i ',y' • * • • J;S ■'" ’ , . '■ 11 » [ jftú il&aSm -ý 8 Véltœk.nin — islenzkur togari. til úr henni mat — eins og að vita kjötinu fleygt í hraunið, þegar marga svanga munna munar í það. En þaö er eins og sósíalistar hafa margbent á — fyrst og fremst á valdi hinnar alþjóð- legu hjálparstofnunar að gera oss íslendingum mögulegt að vinna mat úr sem mestu af fisk meti voru og síld. Vér þurfum til þess tœki: vélar, járn, timbur og byggingarefni. Og vér verð- um að vinna að því öllum ár- um að fá þetta. FJANDMENN SJÁVARÚTVEGSINS En vér megum ekki gleyma saxnesku veldanna gegn þjóð- unum á meginlandi Evrópu. íslenzka alþýðan, og allir, sem framförum unna, þurfa sem allra fyrst að gera sér ljósa hættuna, sem stafar af þessum afturhaldsseggjum, þess um hatrömu andstæðingum al- þýðunnar, sem hata svo fólkið, að þeir óttast tækniframfarir nútímans, af því þær verða 6- hjákvæmilega til að gera að- Ekki er heiglum hent að þreyta fangbrögð við Ægi í vetrarham stöðu vinnandi stéttanna steik- ari og möguleika þeirra til bættrar afkomu margfalt loeti i en áður. HLUTVERK ALÞÝÐUNNAR Sú alþýða, sem nú ætlar sér að koma í veg fyrir að böl at- vinnuleysisins þjái þessa þ.ióð framar, verður að einbeita sér að eflingu sjávarútvegsins sem eðlilegustu aðferðinni til að tryggja öllum næga vinnu. Sam fara stórauknum skipastól og nýtízku fiskiðnaði vex svo grundvöllurinn undir allri ann- arri framleiðslu í landinu, stór- felldari rafvirkjun o. s. frv. 1 Fyrir íslenzku bændastéttina er blómlegt atvinnulíf bæjanna lífsskilyrði. Með vaxandi sjáv- arútvegi og iðnaði vex bezti markaðurinn, sem fáanlegur er fyrir íslenzkar lándbúnaðarvör- ur. Bæjarbúar hafa þegar sýnt vilja sinn til þess að vinna að því, að bændur geti lifað jafn- góðu lífi og aðrar vinnandi stétt ir — samkomulagið um vísitölu landbúnaðarins er órækasta sönnunm. En til þess að vel fari þarf samtímis því sem þjóðin tryggir bóndanum fast afurða- verð að láta honum í té full- komnari tæki og skapa honum miklu betri vinnuskilyrði, svo hver vinnustund hans verði dýrmætari, afkasti meiru fyrir þjóðfélagið. Sjávarútvegurinn er. eðlileg lyftistöng íslenzks landbúnaðar, — en ekki fyrst og fremst keppi nautur hans eins og Framsókn- arafturhaldið vill telja bænd- um trú um. Það er framtíðarhagur ís- lenzkra bænda að hjálpa til þess að efla nú sjávarútveginn og koma undir hann föstum fót- um. Tillögur þær, sem Sósíalista- flokkurinn hefur flutt samtím- is á Alþingi í sambandi við fjárlögin, um 10 milljónir kr. til að kaupa fyrir fiskiskip og 4 milljónir króna til að koma upp byggðahverfum 1 landbún- aðinum, benda í rétta átt, — bæði fyrir fiskimenn og bænd- ur. Það er hlutverk verkamanna- stéttarinnar (launþeganna á sjónum þar með) að sameina ;il fylgis við sig fiskimanna- Mcrb úfgáfa Framh. af 2. síðu. Það er starfsþroski og mann- dómur hverrar kynslóðar, sem er frumskilyrði þess, að hún finni þörf sína og getu til þrótt ugrar íslenzku. Reykvíkingar ættu hvergi að þurfa að dragast aftur úr. Mikill styrkur er okkur að rífum gjaldeyri, milljónum punda og dollara eða hundiuð- um milljóna í okkar mynt. Þó hefur auðvald heimsins ráð undir rifi hverju að svipta okk- ur öllum fjármunum, ef því þætti sér henta það betur. En Snorra tekur það ekki af okkur, bókmenntir liðins tíma rýrna ekki við kreppur, verðsveiflur né erlendan yfirgang, og tung- an er það, sem örðugast mun að taka. Meðan við eigum hana er von til, að við verðum hlut- gengir í hópi þjóðanna á ein- hverja lund, en lengur ekki. Þó að hún sé hvorki seljanleg með einnar milljónar né tíu dollara markaðsverði, er ekkert, sem nálgast hana að verðmæti, nema vera skyldi landið sjálft með öllu föstu og lausu. Þess skal einnig minnzt, að tungan er allra arfur jafnR auð ugra, snauðra, hraustra, sjúkra, hrelldra og glaðra manna. Þo að yfirstétt hafi víða einokað ritleikni og orðvald bókmals síns, mun það seint verða um tungu Snorra og Bólu-Hjálm- ars“. Auk útgáfu á erindum, sem flútt hafa verið í útvarpið hafa útgefendur í hyggju að gefa ut ýmislegt annað t. d. útvarps- leikrit, sögur og ljóð o. fl. En stærsta útgáfufyrirætlun þeirra er þó Saga styrjaldarinn ar og hernáms íslands, en hana skrifa þeir Sverrir Kristjánsson sagnfr., Gunnar M. Magnúss, Axel Thorsteinsson og e. t. v. einhverjir fleiri og er undirbún ingur hennar þegar hafinn. og bændastéttina 'til þess að þjóð vor sameiginlega gen það mikla átak, sem nú bíður vor, til að hagnýta auðæfi lands vors og sjávar með meiri stór- hug og réttlœtiskennd í senn en nokkru sinni fyrr var gert. a borð með ser i samfelagi og þyí að hér innanlands eru menn, sem hata og óttast þær mcun, öciií naia ug uuaai pccx skerfur sem slagar npp . skerf fram(ariri sem orðið gætu f ís_ milljonaþjoða. jafnvel storþjóða 1(.nz|;um sjávarutvegl j viðbót Glæsilegt fiskiskip — nýtízku Bandarikjatoga* við þær stórstígu framfarir, er orðið hafa á síðustu hálfri öld. Það eru ekki liðin nema fimm ár, síðan fulltrúar eins stærsta stjórnmálaflokksins í landinu neituðu um innflutn- ing á fiskiskipum og kröfðust þess af þjóðbankanum að hann beitti fjármálalegum þvingunar ráðstöfunum til að hindra bygg ingu fleiri húsa í Reykjavík og I stöðva þannig þróun Reykjavík i ur. Þessir sömu menn líta á það sem böl að fólk ílytji úr sveitum að sj?.\arsíðunni, þótt vlr.nuaíl' þeirra nýtist þar svo o t-rr4-. '•( 1 " o • ^ Simnudagur 21. nóv. 1943. — ÞJOÐVELJLNN , Elsku vinir og nugðjúfu iijörtu “ Um ævi BatóÆMónskáldsins Stepens Fosters Einhver snjallasti ritgerðahöfundur Bandaríkjanna á seiniii árum ritar hér um vinsælasta tónskáld landsins, Stephen C. Foster, sem margir munu kannast við hér á landi, þvl að Iög hans eru mjög oft leikin og sungin í útvarpinu. Woolcott dé fyrir nokkrum mánuðum. En uppi vih fjöllin berst iinyr\inn víÖa hetjubaráttu fyrir tilveru sinni með frumstœðum tœkjum — á 'tn "i )•....• Þetta er saga af bréfsnepli, sem fimm orð höfðu verið krot uð á. Það fannst á meðal muna úð á. Hann fannst meðal muna sem dag nokkurn í janúarmán- uði undir lok borgarastyrjald- arinnar (Þrælastríðið ameríska) dó í fátækradeild Bellevúe- spítala í New York-borg. Þrem dögum áður hafði lögreglan fundið hann liggjandi nakinn í anddyri leiguíbúðahúss í Bow- ery-hverfinu. Hann var nakinn og úr sári á höfði hans rann blóð. Ennþá er ókunnugt um hvað olli því sári. Hann var ekki enn fertugur að aldri, en um nokkurra ára skeið hafði hann verið á flækingi fjarri sínu fólki, og hann var þegar bugaður af drykkjuskap, ein- manaleik og örvæntingu. Samt hafði hann lifað nógu lengi til að úthella úr hjarta sínu hugg- un handa ókomnum kynslóðum landa sinna. í vasa á fötunum, sem lög- reglan hafði hirt 1 herbergi hans og komið fyrir til geymslu á spítalanum um leið og hún flutti hann þangað, fannst buddugarmur. í henni voru 25 centa peningur, 10 centa seðill af þeirri tegund, sem oft er gefin út á stríðstímum, — og 3 koparsent. Þessi upphæða, — samtals 38 cent (ca. kr. 2,30 nú) var aleiga hans. Samt sem áð- ur arfleiddi hann okkur að auð æfum, sem nú eru jafn aug- ljós hluti af þjóðarauðnum eins og Yellowstone-þjóðgarðurinn. Við erfðum eftir hann Old Black Joe og My Old Kentucky Home og Old Folks at Home. Nafn hans var Stephen Collins Foster. Dauði Fosters vakti svo litla athygli, að hans var ekki getið í blöðunum í New York, fyrr en meir en 2 vikum seinna og þá aðeins í tveim línum. Nú starir hann hugsandi á meðal myndanna í Frægðarhöll New York-háskóla, þessum einkenni- lega og fámenna bronsmynda- félagsskap, sem hann er yngsti meðlimur í. I háskólanum í Pittsburgh, þar sem Foster fædd ist 4. júlí (þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna), hefur verið reist leghöll til minmngar um hann. í Bordstown í Kentucky er yndislegt gamalt hús, sem hefur verið breytt í safn. Safn- vörðurinn fullyrðir án minnstu sannana, að það hafi komið Fost er til að semja My Old Ken- tucky Home. Háværar deilur eru um það, hvort litla húsið, sem Henry Ford keypti og flutti frá Pittsburgh til Dearborn sé það hús, sem Foster íæddist í. Það er a’veg «sama. En það, sem skiptir máli. <-v ! að alvcg cins og söngvar Steph- i ens Fosters heýrðust við alla I varðelda báðum megin við víg- línua í Borgarastyrjöldinni — eins munu piltarnir okkar í þessu stríði syngja þá og blístra á ströndum Afríku, á Suður- hafseyjum og í Japan. Maður getur ekki annað en óskað þess að maður gæti horfið aftur í tímann og heimsótt fátækra- deildina í Bellevue-spítala og hvíslað að hinum deyjandi manni, að svona mundi það fara. Þó að mörg af hinum frægu verkum Fosters séu látin vera sörgmædd svertingjaljóð, er það ekki af því, að hann ætti rætur sínar í Suðurríkjunum. Hann sigldi aldrei „á Suwannee fljóti“. Og það sem meira er, er það, að sjálft orðið Suwannee var leiðrétting í frumhandrit- inu, — orð, sem hann bætti inn í eftir landafræðibók, sem hann fletti upp í bankanum í Pittsburgh, þar sem bróðir hans vann. Nei, það var vegna þess, að hann fékkst við skáld- skap, sem erfitt var að hafa nokkuð upp úr á þeim dögum nema í sambandi við negra- leiksýningar. Hin ljóðræna þrá Fosters eftir Suðurríkjunum var í rauninni ekkert annað en peningaatriði. Þess vegna er það, að „Gamli svarti Jói“ var svartur. En Foster samdi líka söngva, sem ekki fylgdu þessari reglu. Hann samdi bæði lag og texta við Massa’s in de Cold, Cold Ground og ■ Nelly Was a Lady og De Camp Town Races og Uncle Ned og Oh! Susanna og Hard Times, Come Again No More. Hann samdi líka Beauti- ful Dreamer og Old Dog Tray og Gentle Annie og Come Where My Love Lies Dreaming og Jeannie with the Light Brown Hair. Ef einhver nútíma Ameríkumaður hefur ekki heyrt síðastnefnt lag, er óhætt að full yrða, að annaðhvort er ekkert útvarpstæki í húsinu. sem hann býr í eða hann er alveg heyrn arlaus. Frjósemi er eitt af einkennum snillinganna. Og þessi gæflyndi og ólánsami farandsöngvari samdi ekki færri en 200 lög. Af þeim mun a. m. k. hálf tylft vera sungin ok elskuð í Amer- íku svo lengi sem Ameríka er til. x Meirihluti þeirra og þ. á m. öll hin beztu —, var saminn áð- ur en hann var þrítugur. Hann var 38 ára gamall þegar hann dó. Ekki er gott um það að segja af hverju hann samdi ekkert síðustu árin. En annaðhvort hefur har.rx misst gáxuna, af pvi aó Iianix fcr að drekka. eða hann hefur íarío að drekka af þv: ab hann Iiaíöi misst galuna. Hið síðara er sennilegra. Svo mikið er víst, að hann \r,r að Framhald á 8. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.