Þjóðviljinn - 24.11.1943, Qupperneq 8
Op feopglnn!
Næturlæknir er í Læknavarðstöð
Reykjavíkur, Austurbæj arskólanum,
síms 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn.
Ljósaíími ökutækja er frá kl. 3,35
að kvöldi til kl. 8.50 að morgni.
Leikfélag Reýkjavíkur sýnir Lén-
harð fógeta kl. 8 í kvöld. Aðgöngu-
miðar seldir frá kl. 2 í dag.
Útvarpið í dag:
18.30 íslenzkukennsla, 1. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur.
20.15 Útvarp frá Alþingi: Almenn-
ar umræður við 3. umr. fjár-
laga fyrir 1944 (Eldtíúsdags-
umræður).
(Dagskrárlok um kl. 23.20.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir leik-
ritið „Eg hef komið hér áður“, ann-
að kvöld. Aðgöngumiðasala hefst
kl. 4 í dag.
Grein ióhannesar úr Kötlum
Framhald af 5. síðu.
liefur kannski í mesta lagi kom-
izt á snoðir um, að hún ætti
ekki sjálf, að fá að kjósa hinn
tilvonandi forseta sinn, — að
öðru leyti er inntak væntanlegr-
ar stjórnarskrár henni hulinn
leyndardómur. Þetta er önnur
móðgunin til við íslenzka al-
þýðu og efni í nýjan reiðilest-
ur.
★
Eg skora á alla þjóðina að
virða eins og einn maður á-
kvörðun Alþingis um stofndag
hins fyrirhugaða lýðveldis.
Jafnframt skora ég á þing og
stjórn að leggja öll spil máls-
ins rækilega á borðið fyrir þjóð
ina, vekja hana til meðvitund-
ar um þau örlagaríku tíma-
mót, sem nú eru að gerast í lífi
hennar, skýra fyrir henni grund
völl þess ríkis, sem hún sjálf
verður að skapa. Því, hvað sem
annars á milli ber: íslendingar
viljum vér allir vera. En sé
svo, þá er ekki hægt að svifta
oss neinni „sögulegri stórhátíð“.
Og þá þurfum vér heldur ekki
að bíða „frelsisvorsins í Ev-
rópu“.
Vikulegsr ferðir til
Vestmsnnaeyja
Ákveðið hefur verið að varð-
skipið Ægir haldi uppi ferðum
í vetur, milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja, einu sinni í
viku.
Skipaútgerð ríkisins, sem sér
um þessar ferðir Ægis, mun
senda önnur skip til Vestmanna
eyja með vörur, þegar nauð-
syn krefur.
Vélbátaferðir frá Stokkseyri
og Eyrarbakka til Vestmanna-
eyja, sem verið hafa í sumar,
halla nú að' sjálfsögðu niður þar
til í vor og gerir það þörfina
fyrir þessar ferðir Ægis enn-
þá meiri.
þlÓÐVILIINN
Skipatjðn Bandamanna
minna en VI s. I. hálft ðr
Myndin er tekin þegar amerískur herbátur hefur varpað djúp-
sprengjum.
Fljöldi slíkra hraðskreiðra bá
kafbátum Möndulveldanna.
Sem kunnugt er gengur
Bandamönnum nú mjög vel í
baráttunni við kafbátana. Er
það einkum að þakka aukinni
a tekur nú þatt í stríðinu gegn
samvinnu flugvéla og herskipa.
Tjón á skipalestum Banda-
manna síðastliðið hálft ár var
minna en Vi %.
AUSTURVÍGSTÖÐV-
KARNAR
Framh. af 1. síðu.
inn stefnir nú að síðustu járn-
brautarlínu Þjóðverja frá Gom-
el úr tveimur áttum. Eru Þjóð-
verjar farnir að tala um, að
Gomel sé búin að gegna sínu
hlutverki og hafi því litla hern-
aðarþýðingu úr þessu.
Rússar segjast hafa bætt
mjög aðstöðu sína fyrir norð-
an Gomel.
Rauði herinn eyðilagði í gær
182 skriðdreka og skaut niður
67 flugvélar fyrir Þjóðverjum
á öllum vígstöðvum.
BREYTT ÖLDULENGD Á
ÚTVARPI Á ÍSLENZKU
FRÁ LONDON
Útvarp á íslenzku frá London
hefur nú breytt um öldulengd
og er framvegis 31 meter í stað
35 metra áður.
Útvarpstíminn er óbreyttur,
kl. 2,15 eftir íslenzkum tíma.
ÁRÁSIN Á BERLÍN
Framh. af 1. síðu.
ir á borgir í Vestur-Þýzkalandi
og tundurduflum lagt á sigl-
ingaleiðir við strendur lands-
ins.
Allar útvarpsstöðvar megin-
landsins voru þögular í marga
klukkutíma.
Bandamenn misstu samtals
26 flugvélar, og er það mjög.lít-
ill hundraðshluti af öllum ár-
ásarflugvélunum.
Þjóðverjar sögðust hafa skot-
ið niður 29 flugvélar.
Gjöf til barnauppeldis-
sjóðs Thorvaldsens- *
félagsins
Á afmælisdegi Thorvaldsens-
félagsins 19. nóv. s. 1. bárust
barnauppeldissjóðnum þessar
gjafir: frá frú Aðaíheiði Ólafs-
son (Guðmundar Ólafssonar
bakaram.) kr. 1.000.00 og frá
frú I. M. er hafði fyrir andlát
sitt ánafnað sjóðnum kr.
1.000.00.
Eru þetta fyrstu gjafirnar
sem sjóðnum berast eftir að fé-
lagið hefur fengið ákveðinn
stað fyrir Barnahælið. Kann fé-
lagið gefendum alúðarþakkir
fyrir þessa rausn..
Brot gegn verðlags-
ákvæðum
Nýlega hafa eftirgreind fyr-
irtæki í Reýkjavík verið sekt-
uð fyrir brot á verðlagsákvæð-
um.
Hótel Borg, Pósthússtræti 11.
Sekt og ólöglegur hagnaður kr.
31.287.68 fyrir of hátt verð á
veitingum.
Matsala Bjarnheiðar Brynj-
ólfsdóttur, Hafnarstræti 18. Sekt
kr. 600.00, fyrir of hátt verð á
fæði. *
Lífstykkjabúðin, Hafnarstræti
11. Sekt og ólöglegur hagnaður
kr. 534.20, fyrir of háa álagn-
ingu á lífstykkjum.
ÁsKriftarsími Þjóðviijans
er 2184
•••••••• NÝJA BÍÓ •••••••••
TORSÓTTAR LEIÐIR.
, (The Hard way).
tórmynd með:
IDA LUPINO,
JOAN LESLIE,
DENNIS MORGAN.
Sýnd kl. 6,30 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
Njósnarar á Bnrmabrau
(Burma Convoy)
CHARLES BICKFORD
• EVELYN ANKERS.
Sýnd kl. 3 og 5.
Böm fá ekki aðgang
Aðgöngumiðasala frá
kl. 11 f. h.
•••••••••••••••••••••••••••••••••
•••••••••••»•••••••••••••••••••••
TJARNAR BÍÓ **'
ÁN DÓMS OG LAGA.
(Juke Girl).
ANN SHERIDAN,
RONALD REAGAN.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára
fá ekki aðgang.
KAUPIÐ
ÞJÖÐVÍLJANN
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••■
LEIKFELAG REYKJAVIKUR
„Ég hef komið hér áður“
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 4 til 7 í dag.
FJALAKÖTTURINN
LEYNIMEL 13
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar, sem seldir vom að mánudagssýningunni,
gilda á þessa sýningu.
Tvö herbergi gefin
nýja stúdentagarðinum
/
*
Enn hafa Nýja Stúdentagarð-
inum borizt veglegar gjafir.
Oddviti Gnúpverjahrepps í
Árnessýslu hefur afhent stjórn
Stúdentagarðanria kr. 10.000.00
frá hreppsbúum sem andvirði
eins herbergis í Nýja Stúdenta-
garðinum. Skal herbergi þetta
heita Stóri-Núpur.
Þá hafa barnabörn Guðrúnar
Sigurðardóttur og Stefáns Ste-
f^nssonar á Heiði í Gönguskörð
um gefið Stúdentagarðinum and
virði eins herbergis — kr.
10.000.00 — til minni.ngar um
þau hjónin. Skal herbergið heita
Heiði.
Ennfremur hefur Garði borizt
kr. 3.500.00 gjöf frá Vestmanna-
eyjum. Skal fjárupphæð þess-
ari varið til þess að kaupa hús-
gögn í gjafaherbergi Vestmanna
eyja.
Breyfíngu á erfða
lögutn fresfað
Frumvarpi ríkisstjórnarinnar
um breytingu á erfðalögunum í
þá átt að minnka rétt arftaka,
var vísað frá með rökstuddri
dagskrá í neðri deild Alþingis
í gær. Jafnframt er óskað eftir
að erfðalögin verði endurskoðuð
í heild, og sérfræðingum falið
að annast þá endurskoðun.
Ógætni með
benzín orsakar
eldsvoða,
Þann 6. þ. m. kviknaði í raf-
stöðvarhúsi alþýðuskólans á
Reykjanesi við ísafjarðardjúp,
og urðu þar talsverðar skemmd-
ir.
Orsök eldsvoðans var sú, að
leki kom að benzínleiðslu frá
benzíngeymi að ljósavél skól-
ans, og er vélgæzlumaðurinn
ætlaði að skipta um leiðslu,
kveikti hann á olíulampa, sem
hann setti rétt við leiðsluna.
Uppgufunin frá benzíninu, sem
lekið hafði á gólfið, komst
brátt að ljósi lampans og varð
stöðvarhúsið alelda. Maðurinn
komst þó út og gerði aðvart um
eldinn. Tókst furðu fljótt að
slökkva í vélahúsinu, en slökkvi
starfið var talið all áhættusamt
þar sem vitað var að benzín
var geymt þar á brúsa og
tunnu.
Atburður þessi sýnir að enn
eru til menn, sem umgangast
benzín, en vita þó ekki að
benzín gufar upp og breytist í
eldfimt loft sem logar upp ef
það nær að komast í ljós á
lampa, eldstó, glóð eða slíkt.
Er þetta seinasta dæmi hlið-
stætt við það, sem komið hefur
fyrir að menn lýsi með eld-
spítu eða kertaljósi, ofan í benz-
íngeyma á bílum til þess að
vita hve mikið benzín ‘sé eftir
á geyminum.