Þjóðviljinn - 30.12.1943, Qupperneq 1
MÍMMialMll
Hlirni Mm-
suni
8. árgangur.
Fimmtudagur 30. des. 1943.
293. tölublað.
Áramótskveuia ríkis-
stjóra og forsætis-
ráðtierra
Kíkisstjóri mun flytja ávarp
til þjóðarinnar í útvarpið á ný-
ársdag, en forsætisráðherrann
mun tala í útvarpið á gamlárs-
kvöld..
Forsætisráðherra
verður til
staðar
embættisskrifstofu I
Ný sóbn sovétherjanna vestur af Saporossí
sinni í stjórnarráðinu á nýárs-
dag kl. 2.30—4.30, fyrir það
fólk, sem kynni að vilja bera
fram nýársóskir við hann.
Bretar sökkva þrem-
ur þýzkum tundur-
spillum á Bicayaflóa
Brezk herskip haja sökkt
þremur þýzkum tundurspillum
í Biscayaflóa og stórskemmt
nokkra aðra, segir í tilkynn-
ingu frá hrezku flotastjórninni.
Samtímis réðust brezkar
sprengjuflugvélar á þýzkt flutn
ingaskip, sem var að reyna að
rjúfa hafnbannið með dýrmæt-
an fram á leið frá Japan eða
Suður-Ameríku.
Þjóðverjar sendu öfluga deild
tundurspilla frá Bordeaux eða
annarri Atlanzhafshöfn til móts
við flutningaskipið.
Það voru tvö brezk beitiskip
og flugvélasveit úr strandvarna
liðinu brezka, sem börðust við
þýzku tundurspillana.
Sovétherstjórnin skýrði frá mikilvægum sigrum í
miðnæturtilkynningu sinni.
Á Kieffvígstöðvunum tók rauði herinn jámbrautar-
bæinn Korosten og 200 bæi aðra. Sovétherinn tók Koro-
sten 18. nóv. s.l, en yfirgaf bæinn 30. nóv., er Þjóð-
verjar höfðu hafið geysiöfluga gagnsókn á þessum slóð-
um. Nú hafa Rússar náð aftur öllu i>ví landsvæði er
þeir tóku í nóvember og sumir þeirra 50 bæja, sem nafn-
greindir eru af þeim 200 er teknir voru, eru vestar en
það sem sovétherinn komst þá lengst.
Norðar sækir 1. Eystrasaltsherinn fram til Vítebsk
og var í gær aðeins 10 km. frá borginni.
Rauði herinn hóf í gær sókn og ná fótfestu á vestri bakkan
á austasta hluta vígstöðvanna
í Dnépr-bugðunni, gegn Sapo-
rossi.
Saporossi er á eystri bakka
fljótsins, og tókst rauða hern-
um að hreinsa langa og mjóa
eyju í fljótinu gegnt borginni
Til tiamingiu, Churchill!
Roosevelt og Stalín hafa
sent Churchill heillaóskaskeyti
í tilefni af sigrinum er þýzka
orustuskipinu Schamhorst var
sökkt við Noregsströnd.
Siarfínu mídar allvel áfram
Þjóðviljinn hafði í gær tal af Helga Sigurðssyni hitaveitu-
stjóra og skýrði hann blaðinu frá því, að hátt á 13. hundrað
húsa væru búin að fá heita vatnið frá Reykjum og myndi hita-
veitan vera komin í 1300—1400 hús um áramótin.
Hitaveitan er nú komin í öll
hús á svæðinu austan Frakka-
stígs og Njarðargötu. Ennfrem-
ur við Hverfisgötuna að Frakka
stíg, Laugaveginn langt til að
Klapparstíg, Grettisgötuna á-
líka langt og Njálsgötuna að
Klapparstíg.
Þá er hitaveitan komin í hús
in við Lokastíg að Baldursgötu,
húsin við Haðarstíg og Urðar-
stíg og Laufásveg að Skálholts-
stíg.
í miðbæinn er hitaveitan
komin í húsin við Bankastræti,
Ingólfsstræti milli Iiverfisg. og
Bankastrætis, Hafnarstræti og
Thorvaldsensstræti.
f Vesturbænum er hitaveitan
komin í allt hverfið milli Garða
strætis og Bræðraborgarstígs,
nema Mýrargötuna, Melagöt-
urnar tvær og verkamannabú-
staðina.
Þá er hitaveitan komin í
Suðurgötuna að Kirkjugarðin-
um og Túngötuna frá Suður-
götu að Bræðraborgarstíg.
Verkinu er stöðugt haldið á-
fram og þótt nokkrar tafir hafi
um. Hafa Rússar tekið þar á
einum sólarhring 30 bæi og þorp
þar á meðal vesturúthverfi borg
arinnar Saporossi, sem eru á
vestri bakka Dnépr.
RÚSSAR NÁLGAST SÍTOMÍR
OG BERDISÉFF
Þó athyglin beinist aðallega
að hinum mikla sigri, sem rauði
herinn hefur unnið með töku
Korosten, 140 km. norðvestur
af Kieff, er engu síður mikil-
væg sókn sovétherjanna til
tveggja sterkra virkja þýzka
hersins, Sítomír og Berdiséff,
suðvestur af Kíeff.
í Moskvafregnum segir að
framsMieitir rauða hersins hafi
í gær verið aðeins 8 km. frá
Sitomír og 15 km. frá Berdiséff.
Suðvestur af Fastoff hafa
Rússar rekið fleyg inn í varn-
arsvæði Þjóðverja milli Berdi-
séff og Tserkoff. Á þessum slóð
um er sovétherinn kominn vest
ur fyrir þá herlínu er Þjóðverj
ar hófu gagnsókn sína frá.
Á Kírofograd-svæðinu halda
Þjóðverjar uppi áköfum gagn-
árásum, en þeim hefur öllum
verið hrundið, þrátt fyrir það,
að þýzka herstjórnin teflir
þarna fram öflugum sveitum
skriðdreka og fótgönguliðs.
orðið má segja að því miði all-
vel áfram.
LEIÐBEININGAR FYRIR
NOTENDUR
HITAVEITUNNAR.
Eins og áður hefur verið frá
skýrt, þá hefur hitaveitan látið
gera smábækling sem í eru
margskonar leiðbeiningar fyrir
notendur hitaveitunnar. Leið-
arvísir þessi er nú tilbúinn og
munu notendur hitaveitunnar
fá hanp á næstunni.
Bretar réðust á Berlín
síðdegis í gær
Síðdegis í gœr réðust brezk-
ar sprengjuflugvéar á Berlín, að
því er segir í þýzkri fregn, en
á miðnætti í gær hafði efcki
verið gefin opinber tilkynning
um árásina.
Sænskur fréttaritari í Berlín
símaði blaði sínu, að árásin
hafi verið gerð kl. 7—9 í gær-
kvöld, en hann hafði ekki leyfi
til að senda nánari fregnir.
Símasamband miili Berlínar
og Stokkhólms var rofið 1 gær-
kvöld.
Málssókn hefur nú verið haf-
in gegn séra Sveinbirni Högna-
syni, prófasti að Breiðabólsstað,
alþingismanni, formanni mjólk-
ursölunefndar og endurskoð-
anda Búnaðarbankans.
Séra Sveinbjörn er ákœrður
4yrir brot á áfengis- og bifreiða-
lögunum.
Réttvísin hefur nýlega sýnt
af sér mikla röggsemi gagnvart
bruggurunum þrem frá Flóka-
stöðum, sóknarbörnum hins á-
kærða, en þeir voru teknir rétt
fyrir jólin og dæmdir í gær fyr-
ir brot á áfengislöggjöfinni.
Atvik það, er séra Sveinbjörn
er kærður fyrir mun hafa gerzt
nokkru fyrr en bruggararnir
Framhald á 8. síðu.
itSHll
H ir um land alll
Samræming þessi er gerð samkvæmt ákvörðun sjð-
mannaráðstefnu Alþýðusambandsins
Á sjómannaráðstefnu Alþýðusambandsins, sem haldin var
fyrir nokkru, var ákveðið að sjómannasamtökin samræmdu kaup
og kjör stéttarinnar á hinum ýmsu stöðum.
Sjómannafélögin í Reykjavik og Hafnarfirði hafa undan-
farið reynt að semja við atvinnurekendur, en samningar hafa
ekki náðst.
Samkvæmt ákvörðun sjómannaráðstefnunnar birta því sjó-
mannasamtökin sameiginlegan taxta um kaup og ltjör og eru
þeir birtir á öðrum stað hér í blaðinu.
Sjómannaráðstefna Alþýðu-
sambandsins samþykkti, „að á
næsta ári verði ráðningakjör
sjómanna á vélbátum, sem
stunda botnvörpu- og dragnóta
veiðar, samræmd þannig, að
þau verði hvergi lakari, en þar
sem þau eru nú bezt eða jafnvel
betri.
Sambandsstjórnin beiti sér
fyrir því, að sjómannasamtökin
innan Alþýðusambandsins geri
samþykktir um útgáfu sam-
eiginlegs taxta, ef ekki nást
samningar á þeim grundvelli
sem taxtinn er byggður á“.
Helztu breytingar samkvæmt
þessum taxta eru þær, að á
dragnóta- og botnvörpubátum
hafi skipshöfn 37% af brúttó-
Framh. á 5. síðu.
Síðasti úthlutunardag-
ur skðmmtunarseðl-
anna er f dag
Síðasti úthlutunardagur mat-
vælaseðla fyrir nœsta skömmt-
unartímabil er í dag.
Skömmtunarseðlarnir eru af-
greiddir í Hótel Heklu (geng-
ið inn um suðurdyr) frá kl.
10—12 f. h. og 1—6 e. h. Menn
eru áminntir um að skila stofn
um sínum árituðum.
Þeir sem hafa enn ekki sótt
skömmtunarseðla sína ættu
ekki að gleyma því í dag.