Þjóðviljinn - 06.01.1944, Qupperneq 1
LJINN
9. árgangur
Fimmtudagur, 6. janúar 1944
Lesið
grein bandaríska blaða-
mannsins Edgar Snow á
4.—5. síðu.
3. tölublað .
Raudí herínn 70 ktn frá járnbraufínní tíl
Odessa. — Hálf mllljón Þjódverja i hættu
Hinningarathöfnin om
íþróttamennina, sem
fórust með v.b. Hilmi
Minningarathöfn uni íþrótta-
mennina Anton B. Björnsson
og Hreiðar Þ. Jónsson fór fram
í Dómkirkjunni í gær og hófst
hún kl. 2 e. h.
Athöfnin fór mjög hátíðlega
fram og var fjöldi manna við-
staddur.
Sr. Bjarni Jónsson vígslubisk-
up flutti minningarræðuna, en
Pétur Jónsson óperusöngvari,
úr K. R., og Ævar Kvaran, úr
Víking, sungu einsöng.
Frjálsíþróttamenn úr K. R.
gáfu bikar til keppni í tug-
þraut til minningar um Anton
B. Björnsson.
EMmglamglai á íslandl 60 Ora
Góðtemplarareglan á islandi er 60 ára á mánudaginn kemur,
10. þ. m.
í tilefni af afmælinu efnir Reglan til mikilla hátíðahalda á
sunnudaginn og mánudaginn.
Stjóm stúkunnar ræddi við blaðamenn í gær og skýrði Krist-
Inn Stefánsson stórtemplar þar allítarlega frá starfssögu Góð-
templarareglunnar.
Fyrsta stúkan var stofnuð á
Akureyri 10. janúar 1884 á Ak-
ureyri. Hvatamaður stofnunar-
innar var Ole Lied, norskur skó
smiður, og var Reglan hér á
landi fyrst undir leiðsögn
norsku Góðtemplarareglunnar.
Aðalforvígismaður bindindis-
mála við Eyjaf jörð var sr. Magn
ús Jónsson í Laufási.
Fyrsta stúkan hét ísafold nr.
1 og er hún starfandi enn í dag.
Stofnendur voru 12, voru 4
þeirra norskir, en 8 íslenzkir.
Af forustumönnum stúkunnar
ber einkum að nefna tvo, þá
Friðbjörn Steinsson bóksala og
Ásgeir Sigurðsson (síðar konsúl)
en hann hafði verið í stúku 1
Edinborg.
Björn Pálsson ljósmyndari
stofnaði fyrstu stúkuna á Suð-
urlandy st. Verðandi nr. 9, hinn
3. júlí 1855.
Á þessum og næstu árum
náði Góðtemplarareglan út-
breiðslu í Hafnarfirði, Vest-
I gærkvöldi var tilkynnt í sérstakri dagskipun frá
Stalin, að rauði herinn hefði tekið Berdiséff. Hersveitir
Vatútins hershöfðingja tóku borgina með áhlaupi eftir
harða bardaga í fimm daga. Borgin er mikilvæg járn-
brautastöð og var miðstöð þýzka hersins á suðurhluta
Kíeffvígstöðvanna. Með töku hennar hafa Þjóðverjar al-
veg misst mikilvæga samgönguleið, því að járnbrautin
um borgina var önnur af tveim síðustu jámbrautunum,
sem Þjóðverjar höfðu not af til flutninga milli mið- og
suðurvígstöðvanna. Hin járnbrautin, sú síðasta, er jám-
brautin til Odessa við Svartahaf, en úr henni liggur
hliðarlína austur í Dnéprbugðuna. Rússar eru nú um
70 km. frá Odessa-jámbrautinni.
í herstjórnartilkynningu frá j Hersveitirnar, sem tóku Berdi-
séff, munu hér eftir bera nafn
hennar. Sigrinum var fagnað í
Moskva rneð 20 skotum úr 224
fallbyssum.
Ástand þýzku herjanna á suð-
urvígstöðvunum er nú hið al-
varlegasta vegna hinnar hröðu
sóknar Rússa til suðurs og suð-
vesturs. Er talið, að um hálf
milljón þýzkra hermanna sé í
Dnéprhugðunni.
Um 70 bæir og þorp voru tekn
ir af Rússum fyrir norðan Nev-
el í gær.
Þrjátíu og sjö skriðdrekar og
þrjátíu flugvélar voru eyðilagð-
ar fyrir Þjóðverium í fyrradag.
Þjóðverjar eru nú sagðir vera
að koma sér upp nýrri varnar-
línu á fyrrverandi austurlanda-
mærum Rúmeníu meðfram fljót
inu Dnéstr, sem rennur til sjáv-
ar um 35 km. fyrir suðvestan
Odessu.
Rúmenska stjórnin hefur sam
kvæmt frétt frá Tyrklandi fyr-
irskipað brottflutning almenn-
ings í Bessarabíu.
Sænskar fréttir herma, að
finnska stjórnin hafi fyrir
skömmu stungið upp á við
Þjóðverja, að Finnar einir tækju
að sér hernaðarreksturinn á
varðvígstöðvunum, en tilboðinu
hefði verið hafnað.
Moskva í gœrkvöld var sagt
að Rússar hefðu tekið hæinn
Tarastsa, sem er 40 km. fyrir
suðaustan Bélaja-Tsérkoff.
Um 60 aðrir bæir og þorp voru
teknir á þeim slóðum. Eru nú
ekki nema 70—80 km. milli her-
sveita Vatútins og rauða hers-
ins á Tsérkassi-vígstöðvunum.
Er því her Þjóðverja þar á milli
í hinni mestu hættu.
mannaeyjum, Eyrarbakka og
við ísafjörð.
Stórstúka íslands var stofnuð
24. júní 1886 í lestrarsal Alþing-
is. Stofnendur voru 17, frá 14
stúkum og var félagatal þá 550.
AÐALTILGANGUR
Aðaltilgangur Reglunnar er,
eins og öllum er kunnugt, að
vinna að útrýmingu áfengra
drykkja og hóf Reglan þegar
starf að því að hafa áhrif á
löggjöfina í þessa átt. Átti Regl-
an þegar frá upphafi ýmsum
mætum áhrifamönnum á að
skipa, þ. á. m. Jóni Ólafssyni
ritstjóra, en hann var annar
stórtemplar — fyrsti stórtempl-
ar hér á landi var Björn Páls-
son.
Fyrsti áfanginn í þessum efn-
um vannst þegar lögin um af-
nám staupasölunnar voru sett
1898. Og hefur Reglan unnið
Framhald á 8. síðu
Skdli Thðroddsen
6. jan. — 1944
/ dag eru 85 ár liðin frá fœðingu
Skúla Thóroddsen, þess manns, er
hœst ber í sjálfstœðisbaráttu ís-
lendinga eftir daga Jóns Sigurðs-
sonar.
Það vantar enn mikið á, að starf
þessa merka stjórnmálamanns hafi
verið rannsakað og metið að verð-
leikum, saga hans, saga Þjóðvilj-
ans, er hann beitti að vopni í bar-
áttu sinni fyrir þjóðfrelsi og aukn-
um mannréttindum alþýðu íslands,
er enn óslcráð.
En íslenzlca þjóðin öll og sér-
staklega islenzk alþýða, á honum
svo mikið að þakka, að ekki má dragast lengur að liafizt sé handa
um ritun ýtarlegrar œvi- og starfssögu hans.
Það mundi vcrða enn Ijósara að lokinni slíkri rannsókn, að œvi-
starf Skúla Thóroddsen er ekki fortíðarmál, heldur á óslitna þrœði
til nútíðar og langt inn í isíenzka framtíð. Nú þegar hvílir yfimafni
hans og 'starfi sú heiðríkja, sem seinni tímar eigna brautryðjandan-
um einum; fullhuganum, sem aldrei brást þjóð sinni og landi.
Dæmalaus frekja undanhaldsliðsins:
Þeir vildii að flestöll erindi í ríkisútvarp-
inu fyrri tiluta janúar yrðu fluit af
þeim og yrði áróður fyrir þeirra máli
\ '
Frekja þesS fasistaliðs, sem | virt útvarpsráð heimili allt að fimm mönn-
stendur að Alþýðublaðinu, fer
alltaf vaxandi. Nú er Alþýðu-
blaðið farið að rífast út af því
að undanhaldsmenn skuli ekki
fá ríkisútvarpið í þjónustu sína
til áróðurs gegn lýðveldisstofn-
un íslendinga.
Lítil klíka manna, sem kosin
var á leynifundi í Kaupþings-
salnum, skrifaði 28. des. útvarps
ráði bréf, sem svar var heimt-
að við fyrir 3. janúar, — næst-
um því eins og úrslitakostir
til útvarpsráðs. Segir svo í þréf-
inu:
„I nmboði nefndar, sem kosin var á
fundi reykvískra og hafnfirzkra borgara í
Kaupþingssalnum 13. |). m., til þess að
„hafa forgöngu um frainkvæmdir til þess
að kynna íslenzku þjóðinni málavöxtu í
skilnaðarmálinu“, leyfum við okkur hér
með virðingarf.vllst að óska þess, að hált-
Kai Mnl 101* al lattn I larradag
Kaj Munk fremsti leikritahöfundur Dana var myrt-
ur af nazistum í fyrradag.
Samkvæmt frétt frá Svíþjóð réðust fjórir óþekktir
menn inn á heimili hans á þriðjudaginn og höfðu hann
burt með sér. Spurðist síðan ekki til hans fyrr en lík
hans fannst í gærmorgun.
Síðasta leikrit Kaj Munks var Kaj
Niels Ebbesön, sem leikið var í út- landi,
varpinu hér í fyrra. Koni það út á
tveggja ára afmæli þýzka hernáms-
ins í Danmörku, og var jafnskjótt
gert upptækt, og Munk hafður í
haldi uin tíma.
Munk var prestur á Jót-
— maður á bezta aldri.
Óhætt mun að fullyrða, að Munk
hefur með lífi sínu, ritstörfum og
dauða aflað sér þess orðstís, sem
aldrei deyr meðal Dana.
um, er nefndin tilnefnir, að flytja erindi
í útvarpið um lýðveldis- og sambandsmál-
ið. Er þess jafnframt óskað, að erindum
þessum yrði œtlað rúm í dagskrá útvarps-
ins á fyrstu tveimur \ ikum janúar nœst-
komandi..
Menn þeir. er nefndin hefur samið við
um flutning erinda þessara, ef útvarpsráð
verþur við tilmælum liennar, eru:
Sigurður Nordal, prófessor
Arni Pálsson, prófessor
Lúðvfg Guðmundsson, skólastjóri.
Jóhann Sæmundsson, læknir
Pálmi Hannesson, rektor.
Samkvæmt þessu þréfi áttu
svo að segja öll erindi, sem flutt
væru fyrri hluta janúar, að vera
flutt af þessum undanhalds-
mönnum sem einhliða áróður
fyrir þeirra málstað-
Útvarpsráð tók þetta bréf fyr-
ir. Auðvitað treystist enginn
til að standa með þessari frek-
legu kröfu og var þessu „til-
boði“ eðlilega hafnað.
Pálmi Hannesson, sem er í
útvarpsráði, reyndi að bæta úr
þessu frumhlaupi undanhalds-
manna með því að leggja til að
Sigurði prófessor Nordal væri
falið að halda tvö erindi um
málið í janúar.
Þessari tillögu var vísað frá
með rökstuddri 'dagskrá, þess
efnis að útvarpsráð vildi að
svo stöddu ekki gangast fyrir
því að hefja umræður um sjálf-
stæðismálið.
Útvarpsráð hefur ekki geng-
ist fyrir neinum umræðum um
Framh. á 5. síðu.