Þjóðviljinn - 06.01.1944, Síða 7
ÞJÓ5" VILJINN
7
Fimmtudagur, 6. janúar 1944
ÞRETTÁNDAKVÖLD
(fvokkrar setningar úr sögunni eru endurprentaðar vegna prentvillu).
„Segðu mér meira, mamma“, sagði Unnur.
„Já, ég ætla að segja þér meira. Á ég að segja þér,
hvað mamma mín gerði? Hún gerði alltaf jólaskóna
handa börnunum hennar Sigríðar, því að Sigríður var
svo lasin. Þá voru búnir til skór úr sauðskinni og litaðir
grænir. Veiztu það? Amma þín vakti alltaf nóttina fyr-
ir Þorláksdag og gerði jólaskóna fyrir Sigríði. Og hún
fékk ekki neina aura fyrir. En mamma átti bara fjögur
börn, svo hún hafði ekki eins mikið að gera og Sigríður.
Mamma Unnar brosti, kyssti hana á kinnina og setti
hana niður á gólfið. „Nú ferðu fyrir mig í bæinh, bara
af því þér þykir vænt um mömmu, og ég hef mikið að
gera núna“.
Unnur fór.
--------Um kvöldið fékk Unnur að fara í rauða kjól-
inn og fór í heimboðið til Lilju.
Það var svo fínt heima hjá Lilju, að Unnur var al-
veg hissa. Og börnin voru öll fjarskalega vel klædd. En
mamma Unnar hafði sjálf saumað kjólinn hennar, svo
það hlaut að vera góður kjóll, og hún öfundaði ekki
hinar telpurnar.
Þarna voru líka tvær konur, sem hétu frú Arndís og
frú Þórunn, og þær voru að tala við frú Ólöfu.
Unnur staðnæmdist hjá þeim, því að hana langaði til
að heyra um hvað þær væru að tala, þó að mamma
hennar væri oft búin að segja henni, að það væri ókurt-
eisi að vera forvitin.
Frú Ólöf sagði: Mikið var nú öðruvísi í gamla daga.
Þá var alltaf hægt að fá fólk til að vinna. Ég man eftir
því, að kona, sem átti sjö krakka, kom alltaf til að þvo
gólf og þvott fyrir mömmu rétt fyrir jólin“.
„En gerði þá ekki mamma þín jólaskóna handa
krökkunúm hennar í staðinn?“ spurði Unnur strax.
Frú Ólöf varð alveg hissa. „Hvernig dettur þér þetta
í hug, væna mín?“ sagði hún og klappaði Unni á kollinn.
„Hvað átti mamma þín mörg börn?“ spurði Unnur.
„Bara mig eina“,. sagði frú Ólöf. „En farðu nú, væna
jnín, til krakkanna og leiktu þér. Og vertu ekkert feim-
m .
Unnur fór til krakkanna. Hún var ekkert feimin.
Hún var bara forvitin og hana langaði til að heyra full-
orðið fólk tala saman.
Unnur kom á harða spretti inn til mömmu sinnar
og skildi allar hurðir eftir opnar.
„Hvað er þetta? Ertu komin strax aftur, Unnur
mín?“ spurði mamma hennar.
Unnur fór að háskæla á miðju gólfi.
0$ ÞETTA
Það sagði Sören Kirkegaard:
„Einu sinni kom það fyrir í
leikhúsi, að áheyrendunum var
tilkynnt, að eldur væri kominn
upp bak við leiksviðið.
Áheyrendurnir klöppuðu og
héldu að þetta væri fyndni.
Þegar aðvörunin ' var endur-
tekin, hlógu þeir enn meira.
Heimurinn mun farast undir
dynjandi lófaklappi oflátunga,
sem halda að verið sé að segja
þeim fyndni“.
★
„Eg hlusta ekki á nein hind-
urvitni“, sagði nýlega bóndi á
Austurlandi, „það, sem h'játrú-
aðir menn kalla huldufólk, eru
bara blátt áfram vofur“.
' i* (?♦ ♦♦ 0 0 +
rJ Cot SKÁLftSAGA ettir ■JOHAN FALKBERGET í VIÖ j fjoiím
Anna-Iása rétti úr sér. Þá
fyrst tók hún eftir því að að-
eins annar handleggurinn lá
á brjósti líksins.
„Hvar er hinn handleggur-
inn?“
„Hann eyðilagðist“, var
svarað stillilega.
„Slitnaði hann af?“
„Já.“
Hún gekk nokkur skref,
settist á hækjur sínar og
reri fram og aftur. En þegar
ráðsmaðurinn og Marteinn
breiddu lakið yfir líkið, spratt
hún á fætur, fálmaöi með
höndunum og sagði einhver
undarleg orö, sem þeir skildu
ekki.
Marteinn starði á hana með
opinn munninn og hristi höf-
uöið. Hann hlustaöi. Þetta
voru víst einhverjar óbænir,
eitthvaö ókristilegt.
Þegar þau komu út úr
skemmunni, fór ráösmaður-
inn áð tala við gömlu kon-
una. Hann sagöi, að þaö
hefði veriö sárt fyrir hana
aö missa drenginn, en enginn
mannlegur máttur gæti kom-
iö í veg fyrir slysin.
Hún hlustaöi meö áfergju
á hvert orð. Augabrýmar
sigu, en það glytti í sjáöldrin
eins og neista. Það hljóp roöi
í visnar kinnarnar.
„Þetta er ykkur að kenna",
sagði hún hvasst.
„Viö gátum ekkert aö því
gert, góða kona“, sagöi ráðs-
maðurinn. Hann kenndi í
brjósti um hana.
„Þetta er ykkur að kenna“,
endurtók hún í enn hörku-
legxi tón. Marteinn stóð hjá
og var orðinn óþolinmóöur.
Ráösmaöurinn lagöi hend-
ina á öxlina á henni og leit-
aöi aö hluttekningarorðum.
En hún brást við eins og
hrætt dýr.
„Óþokkar!“ hvæsti hún.
Þá vissi ráðsmaðurinn eng-
in ráð. Hann gekk burt og
hraöaði sér til skrifstofu sinn
ar.
Gamla konan horfði illúð-
lega á eftir honum.
„Óþokkar!“ æpti hún aftur.
En hann hélt áfram ferð
sinni.
Marteinn fór með gömlu
konuna inn í eldaskálann.
Þar var fámennt. Hans gamli
sat við ofninn, eins og hann
var vanur og reykti pipu
sína. Hann hélt á logandi eld
spýtu í hendinni og horfði á
þau.
Elín eldabuska vann verk
sín þegjandi.
Anna-Lísa settist á bekk og
þuri-kaði sér um augun með
skorpnum fingrum.
Hans gamli slökkti á eld-
spýtunni, reis á fætur og sótti
kaffiketil. Ketilinn setti hann
á ofninn.
„Þáö má víst bjóða þér
kaffisopa, Anna-Lisa“, sagði
hann og laut að henni til að
heyra svariö. Hann var orð-
inn svo heyrnardaufur.
„Jú, þakka þér fyrir, Hans“.
Hún var oröin rólegri.
Hans saug pípuna og
spýtti á gólfiö. „Veröldin
greiðir mörgum þung högg“,
sagði hann.
Gamla konan horföi á
hann.
„Já, það eru þung högg‘,
endurtók hún.
Marteinn Finni fór aö gá
að hversdagsfötum sínum.
Daginn eftir átti hann að
koma að grjótkvöminni aftur
Elín eldabuska opnáöi kistu
sína, tók upp brauð og smjör
og bar á borð, fyrir Önnu -
Lísu.
„Þú verður að reyna aö
nota þér þetta“, sagði hún.
Gamla konan drógst aö
borðinu. Hún hafði stirðnaö
eftir göngulagiö.
„GuÖ blessi þig“, hvíslaöi
hún kjökrandi og stakk upp
í sig brauöbita. Hún tuggði
og japlaði tannlausum kjálk-
unum. Þáö var eins og munn-
bitinn yxi og yxi, því aö grát-
urinn ætlaöi aö brjótast út.
Hans gamli vék ekki frá
kaffikatlinum. Hann tók af
honum lokiö, lét aftur annaö
augað og gægöist niður 1
hann. Nei, það sauð ekki. Hans
bætti á eldinn. Þá kom suö-
an upp og hann tók lokið af.
Síöan 'greip hann ketilinn og
setti hringana á ofninn aftur
með skörungnum.
Hans náöi í tvo handar-
haldslausa bolla úr skáp á
veggnmn, setti þá á boröið
hjá Önnu-Lísu og renndi því
efsta úr ketiltúöunni. Þá var
kaffið tilbúið og hann hellti
í bolla gömlu konunnar.
„Kaffið hressir", sagöi
Hans. Hann settist sjálfur viö
borðiö, lagði olnbogana á
boröiö og haföi báöar hendur
á pípunni.
Hann sat þarna reykjandi
og fór að tala viö hana hug-
hreystingaroröum. Hann
sagði henni, hvaö pi'estm’inn
hefði sagt, einu sinni, þegar
hann kom. Þaö var 1 smnar
aö kvöldlagi. Hann hafði
guðsþjónustu við námuna.
Presturinn haföi sagt aö
guö felldi mildari dóm yfir
þeim einföldu og frómu, en
yfir þeim vitru, sem ættu nóg
veraldleg hyggindi.
Anna-Lísa trúði guðsoröi
og þetta huggaöi hana. Þau
höfðu alltaf verið einföld og
fróm, Níels og hún.
Hann hélt áfram. Og hann
sagöi í ákveönum tón, að
voldugir menn kæmust ekki
fremm til himnaríkis en úlf-
aldinn gegnum nálaraugaö.
Hans kveikti snöggt á eld-
spýtu.
Anna-Lísa lét um stund
huggast af oröum hans. En
brátt kom efinn aftur. Hún
var alltaf áö hugsa um það,
hvort þáö væri nú víst að Ní-
els væri sáluhólpinn — væri
kominn til guös! Hann dó
svo skyndilega aö hann gat
ekki búiö sig neitt undir dauð
ann. Hún spurði Hans, hvað
hann áliti um þetta.
Hann hugsaöi sig um og
baröi öskuna úr pípunni
sinni. Seinast mundi hann
ritningargrein, sem átti þarna
viö og var þess efnis, aö
dauðlegir menn skildu ekki
slíka hluti.
Ja-há!
Gamla konan sat lengi
hugsandi. Og Hans var viss
í sinni sök, aö orð biblíunnar
mundi hann.
Námumennirnir komu inn.
Þeir stigu þungt til jaröar og
tréskórnir glumdu viö gólfiö.
Þeir gengu fram hjá gömlu
lappakonunni, þar sem hún
sat á bekknum. Sorg hennar
barst til allra, eins og bráö-
næmur sjúkdómur.
Lágt kvein hennar og kjök-
ur smaug inn í hug manna
og þeír urðu allir daprir og
klökkir — stórir, sterklegir
menn.
Þegar þeir höfðu snætt,
settust þeir allir í hóp og töl-
uöu um hana í lágum hljóö-
um. Þeir fundu til með henni.
En gamla konan sat þegj-
andi á bekknum. Hún hugs-
aði ekki um neitt nema þetta
eina: Var Níels sáluhólpinn
eða glataður. Stundum var
hún alveg viss um, aö hann
væri sæll í guðs ríki, en rétt
á eftir greip hana ótti um, áö
hann væri í yztu myrkrum.
þar sem ekkert er nema grát-
ur og gnístran tanna.
Um háttatíma bjó Elín
eldabuöka um hana í auðu
rúrni. Og þegar námumenn-
irnir gengu til hvílu, fór hún
úr úlpunni, tók af sér skóna
og lagöist upp í rúmiö sitt.
En hún gat ekki sofnað.
Þaö var hálfbjart inni og
hún sá hvíta fjallatinda út
um gluggann. Voriö nálgaö-
ist.
Gamla konan fór aö hugsa
um milda, langa vordaga. Þá
komu minningar hennar og