Þjóðviljinn - 08.01.1944, Síða 4

Þjóðviljinn - 08.01.1944, Síða 4
Laugardagur, '8. janúar 1944. — RJÓÐVILJINN I>JÓÐVILJINN. — Laugardagur, 8. janúar 1944. t—-------------------------------------------------------------- þJÓÐVILJINN Utgefandi: Samáningarjlokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjóri: Sigurðuf Guðmundsson. Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 13, sími 3370. Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 9, sími 318ý. Prentsmiðja: Víkingsjrrent h.f., Garðastrœti 17. Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6,00 á mánuði. Úti á landi: Kr. 5,00 á mánuði. _______________________________________________________________J Á það að vera undir Hitler komið hvort ísland verður lýðveldi og hvenær? Það er almennt viðurkennt nú, að það sé vilji svo að segja allrar íslenzku þjóðarinnar, að ísland verði lýðveldi. — Það er einnig viður- kennt nú, að hefði allt verið með felldu 1941, þá hefði sambandi íslands og Danmerkur verið slitið í ársbyrjun 1944 og lýðveldi.þá sett á stofn. Nú gerast þeir atburðir, að múgmorði.ngjarnir þýzku, undir forystu Hitlers, hertaka Danmörku 1940, hindra eðlilegt samband landanna, eðli- lega uppsögn sambandsins og eðlilega samninga um að þcir falli úr gildi í ársbyrjun 1944. Og nú eru til íslendingar, sem segja: Af því Hitler tók Danmörku, þá eigum við íslendingar ekki að stofna lýðveldi og slíta sambandinu formlega í ársbyrjun 1944 eins og vér hefðum annars gert? — Af því Danir eru kúgaðir og kvaldir, af því Danir eru sviptir þjóðfrelsi sínu, — þá eigum við íslendingar ekki að nota vorn ótvíræða rétt til þjóð- frelsis. Með öðrum orðum: Af því Hitler misbýður frelsi Dana, þá skulum vér ekki nota vort! — Og ef Ilitler héldi Danmörku í 10 ár, þá ættum við og að bíða í 10 ár með að koma hér á lýðveldi! Mennirnir, sem halda þessu fram, Alþýðublaðsklíkan, Jón Blöndal & Co., eru þeir sömu og óskuðu þess að Hitler sigraði Rússa, m. ö. o. legði undir sig Evrópu og Asíu. Ilefðu óskir þeirra mátt sín meir en styrkur sósíalismans í Sovétríkjunum, þá myndu Danir verða að biða lengi frclsisins og Islendingar lengur lýðveldisins, ef þeir réðu hér. Ef Alþýðublaðsklíkan fengi að ráða, þá væri það sem sé undir Hitler komið, hvort vér fengjum hér nokkurn tíma lýðveldi eða hvenær. Það er vitað, að Berlín vill ekki, að stofnað sé lýðveldi á íslandi nú, þegar íslendingar hafa rétt til þess. — Alþýðublaðsklíkan vill það held- ur ekki. Það er vitað, að Berlín vill að lslendingar biði með allar ákvarð- anir um lýðveldi þar til eftir stríð. — Alþýðublaðsklíkan vill það líka. Það er vitað, að Berlín óskar þess að sigra Sovétríkin fyrst og snúa. sér síðan til vesturs og gera upp sakirnar þar, m. a. um ísland. — Al- þýðublaðsklíkan hefur og óskað þess sama. En íslendingar óska þess ekki, að það sé undir Hitler komið, livort og hvenær íslendingar stofna lýðveldi sitt. Þeir hefðu stofnað það 1944, ef Hitler hefði ekki ráðist á Dani, kúg- að þá og kvalið. ♦ Og þeir stofna það 17. júní 1944, þrátt fyrir andmæli Hitlers og Alþýðublaðsklíkunnar. Það er réttur vor íslendinga, sem enginn getur af oss tekið. , Smáþjóðir Evrópu og fasisminn Rauði herinn ryðst áfram gegn um víggirðingar fasistanna og frelsar sífellt fleiri og fleiri úr helgreipum Hitlers. I Júgóslavíu vex frelsisher- Titos ásmegin, ef til vill er innrás Engilsaxa þar þegar hafin. í hinum kúguðu löndum herða skæruhóparnir baráttu sína. Þýzku fasistunum og þjónum þeirra lízt ekki á blikuna. Serbneska fasistaklíkan í Kairo, bandamenn svikarans Mihailovitsj, mótmæla því, að þjóðfrelsisstjórn Júgóslava undir forystu Titos sé viðurkennd. • Pólska fasistaklíkan í London ætlar að ærast, og gömlu fasistaklík- urnar, sem alþýðan í Eistlandi, Lettlandi og Litháen rak burt, er hún tók völdin sjálf, emja nú í Washington. Og hér úti á íslandi er eitt blað, sem tekur undir með þeim, blaðið, sem tignar Mihailovitsj sem frelsishetju, og njósnara Hitlers sem föður- landsvini, — Alþýðublaðið. Það blað óskaði Hitler sigurs yfir rauða hernum, svo hann gæti svínbeygt smáþjóðir Suður- og Austur-Evrópu undir sitt Irlóðuga ok. Nú sér það þá von sína vera að fara út um þúfur. Nú heimtar blaðið það „næst bezta“ frá sínu sjónarmiði: að gömlu fasistarnir, sem höfðu kúgað þcssar þjóðir í 10—20 ár, fái að setjast á herðar þeirra einu sinni enn. Þeim vcrður ekki að von sinni, þessum hcrrum. Þeir hafa ekki áttað sig á því enn, að þetta stríð er stórkostlegasta frelsisstríð, sem alþýða hcimsins hefur háð. Skúli Thoroddsen .■AVWW.VWAV.VWiV-W-W>WwBAVWW-V-V-V-V.%\V-V.VA Á morgun, hinn 6. janúar, eru 85 ár liðin frá fæðingu Skúla Thoroddsens alþingismanns éldra. Hefur útvarpið farið þess á leit við mig fyrir skemmstu, að ég flytti nokkurt erindi um þenna merka og mikilhæfa stjórnmálamann hér í kveld. Hef ég ekki viljað skorazt und- an þessu, þótt ég væri ekki svo vel við því búinn sem skyldi. Mun ég nú rifja nokkuð upp um ævi hans og starfsferil, þótt mjög lauslega verði, enda er skammur tími markaður miklu efni. Skúli Jónsson Thoroddsen var fæddur 1 Haga á Barðaströnd 6. ag janúarmánaðar 1859. Bjuggu þar þá foreldrar hans: Jón sýslu maður Þórðarson Thoroddsen skáld, og kona hans frú Kristín Ólína Þorvaldsdóttir, umboðs- manns í Hrappsey Sívertsens. — Þeir voru fjórir bræður. Urðu allir þjóðkunnir menn. Þorvaldur, dr. phil. prófessor var elztur, þá Þórður, fyrrum læknir og alþm. Skúli var inn þriðji, en yngstur þeirra var Sigurður, fyrrum landsverkfræð ingur, síðar kennari við lærða skólann. Er hann einn á lífi þeirra bræðra. Jón Thoroddsen lézt að Leirá 1868. Fluttist ekkja hans þá með sonu sína til Reykjavíkur. Skúli var bráðger í æsku. Hann gekk í lærða skólann 1873 og tók stúdentspróf 1879. Var hann mikill námsmaður og stundaði námið kappsamlega. Var próf- ið eftir því. Samsumars sigldi hann til Khafnar-háskóla og tók að lesa þar lög. Lauk hann lagaþrófi í janúar 1884 með háum vitnis- burði. Hafði enginn íslendingur lokið lagaprófi á skemmri tíma, eftir því fyrirkomulagi, er þá gilti. Jafnframt því sem Skúli stund aði laganámið af kappi, gerð- ist hann mjög kunnugur stjórn- máladeilum þeim, er þá vóru uppi í Danmörku. Sat þá ein- ræðisstjórn Estrúps að völdum. Var það hvorttveggja, að stjórn- in var ekki þokkasæl meðal ís- lendinga vegna afskipta sinna af íslandsmálum, — og í annan stað vóru þeir flestallir að eðlis- fari þjóðstjórnarmenn. Skúli var mjög eindreginn andstæð- ingur einræðisstjórnarinnar. Dönsku stúdentunum þótti hann „ómannblendinn“, „bæði vegna sinna róttæku skoðana og íslenzka lundarfars“, — að því er segir í „árbókum“ þeim, er geyma ummæli um stúdenta, er vist höfðu á „Garði“ (Reg- ensen) á þeim árum. Deilur vóru þá stundum innbyrðis með íslenzkum stúdentum, sem oft hefur við brunnið Tók Skúli mikinn þátt í þeim; var hann ávallt • kappsmaður hinn mesti og lítt um allan „bræð- ing“ og „afslátt“ gefið. Skúli fór að prófi loknu heim til íslands og var hann um tíma settur málaflutnings- maður við Landsyfirdóminn. Það starf varaði þó skamma hríð, því að hann var settur bæjarfógeti í ísafjarðarkaupstað 25. ágúst samsumars, er Fens- mark sýslumanni var vikið frá embætti vegna fjárvanskila við landsjóð og annarra missmíða. Skúli rak embættið með þeim ágætum og dugnaði, þótt um- fangsmikið væri, að honum tókst að koma því í gott lag á skömm- um tíma. Þá var settur amt- maður í Suður- og Vesturamti Magnús Stephensen. Tók hann fram, í bréfi til Skúla sumarið eftir, að hann telji hann hafa rekið embadttið svo vel, að honum þætti rétt og sanngjarnt, að hann fengi veiting þess, þótt einhver nokkuð eldri sýslumað- ur sækti um það móti hon- um, og hefði sér virzt landshöfð- ingi (BergurThorberg), er hann hefði átt tal við um þetta, vera sömu skoðunar. Skúla var veitt embættið 6. des. 1885. Skúli var afburðamaður við skrifstofustörf, enda rak hann embætti sitt þar vestra aðstoð- arlaust að mestu allan þann tíma, sem hann fór með það. Var það þó ærið umsvifamikið, sem alkunnugt er. Þó lét hann jafnframt mikið til sín taka bæði um héraðsmál og þjóðmál á embættisárum sínum. Var og margt, er kippa þurfti í lag í héraði og stórmál mörg á dagskrá þings og þjóðar. Efst á baugi allra þjóðmála var stj órnskipunarmálið — end- urskoðun stjórnarskrárinnar. Þótt skáldin hefði talað um „frelsisskrá í föðurhendi“ á þjóðhátíðinni 1874, varð. þjóð- inni brátt ljóst, að stjórnarskrá- in var meingölluð og varð það æ ljósara sem lengur leið. Þegar á Alþingi 1875 spurðist Benedikt sýslumaður Sveinsson fyrir um það, hversu það mætti samrým- ast ákvæðum stjórnarskrárinn- ar um „sérstakan ráðgjafa“ fyr- ir sérmál íslands, að embættinu gegndi dómsmálaráðgjafi Dana í hjáverkum, sem sæti í ríkis- ráði Dana. — Var málsvara „stjórnarinnar“ (landshöfð- ingja) stirt um svörin sem von var. — Sami maður (B. Sv.) hafði og flutt frumv. úm breyt- ingar á stj.skr. á þingunum 1881 og 1883, en þau náðu þá ekki fram að ganga. En þetta sama sumar, er Skúli hafði ár- langt gegnt embætti sínu vestra, 1885, náði „hin endurskoðaöa stjórnarskrá“ samþykki beggja deilda Alþingis. Þetta mál var bæði þá og síðar hið mesta áhugamál Skúla og hnigu að því hugir margra góðra manna 'í ísafjarðarsýslu —- sem víðar. Þótti þeim brýn nauðsyn á að glæða hug al- mennings á málinu og töldu til þess hentast ráð að koma blaði á fót í héraðinu. En sá var hængur á, að engin var prent- smiðjan vestur þar. T&ku þeir sig þá til „beztu menn“ um hér- aðið að stofna félag til þess að eignast prentsmiðju. Þeir* Skúli og séra Sigurður Stefánsson í Vigur höfðu mesta forgöngu þess máls. Var félaginu komið á fót 1885, en til prentsmiðju- rekstrar þurfti konunglegt leyf- isbréf. Ætlaði ekki að ganga þrautalaust að fá leyfið. Fyrst sótti Skúli sjálfur um prent- smiðjuleyfi, en var synjað þess, vegna þess, að slíkur atvinnu- rekstur væri „ósamrýmanlegur starfi hans sem lögreglustjóra“. Síðar sótti einn hluthafa um leyfið, en þá þótti vanta ýmis skilríki. Dróst málið svo á lang- inn, að leyfið fekkst ekki fyrr en haustið 1886, og hafði áður komið fram fyrirspurn á auka- þinginu þá um sumarið, er hratt málinu áleiðis. Félagið hét „Prentfélag ís- firðinga“. Tók það nú þegar, er leyfi var fengið að gefa út blað, er nefnt var „Þjóðviljinn“. Kom fyrsta blaðið út 30. október 1886. Skúli skrifaði mikið í blaðið frá upphafi. Ræddi það bæði landsmál og héraðsmál. Eink- annlega var stjórnarskrármálið rökrætt þar vendilega. Hin endurskoðaða stjórnar- skrá frá 1885 var samþykkt ó- eigi fram á næsta þingi, 1889. Þjóðviljinn tók skelegglega í þann streng. Var málið mjög rætt í blöðun> og á mannfund- um. Upp úr því kom, að forvíg- ismenn sjálfstjórnarmanna boð- uðu til Þingvallafundar er halda skyldi 20. ágúst 1888. Til fund- arins vóru fulltrúar kjörnir tvö- földum kosningum. Skyldu þeir vera jafnmargir þjóðkjörnum Alþingismönnum. Fulltrúar sóttu fundinn úr öllum kjördæmum landsins nema tveimur. Sýnir það hug og dug landsmanna á þeim örð- ugu tímum, er þá vóru. Skúli var kjörinn annar full- trúi ísfirðinga, og síðan vara- forseti fundarins með þorra at- kvæða. Ber það vitni um traust hans og fylgi þá þegar meðal sjálfstjórnarmanna um land allt Var hann í stjórnarskrárnefnd og framsögumaður hennar. Tvær tillögur vóru samþykkt- ar með öllum atkvæðum gegn einu: Önnur, um að halda stjórnarskrármálinu fram í ÚTVARPSERINDI FLUTT AF Benedíkt Sveínssyní 5. jan. 1944 breytt á aukaþinginu 1886, eftir þingrof og nýjar kosningar. Stjórnin hafði þegar haustið áður sent þjóðinni boðskap um að fara ekki að hefja „árangurs- lausa stjórnarbaráttu“, en engu að síður féllu kosningar svo ár- ið eftir, að frv. var samþykkt óbreytt, sem nú var sagt. ,,Þjóðviljinn“ var frumvarp- inu eindregjð fylgjandi. Dró hann þó eigi dul á, að honum þætti það í sumum atriðum fara ofskammt, og vildi búa bet- ur um hnútana að ýmsu leyti, en taldi þó, að vægja mætti eitthvað til, ef hægt sé að fá aðal-atriðið fram, alinnlenda stjórn, því að oss sé fyrir flestu að losast við hið danska ráð- gjafavald sem fyrst. En einsætt sé að fylgja fram fullum kröf- um meðan ekkert lát sé á dönsku stjórninni. Margt þeirra skoðana kom þegar í ljós á fyrstu árum Þjóð- viljans, er Skúli hélt fram ávallt síðar. Má nefna nokkur atriði á nafn: Algert þingræði, þótt það geti lent á glapstigum um sinn, sé þó ekki aðrir vegir fær- ari. — Honum var annt um ein- staklings-frelsi, bæði skoðana- frelsi og athafnafrelsi. Honum finnst óskiljanlegt, að amazt sé við, að lögreglustjóri reki prentiðn eða einhverja aðra at- vinnu, ef hann rækir embættis- störf sín sómasamlega. Hann var og andvígur því, að heft væri stjórnmálastarfsemi em- bættismanna og taldi slíkt svift- ing helgusta mannréttinda. Á Alþingi 1887 dagaði stjórn- arskrármálið uppi í efri deild. Mæltist það mjög illa fyrir með- al þorra kjósanda; þótti brýn nauðsyn, að slík ómennska kæmi frumvarpsformi, hin var áskor- un til þeirra alþingismanna er skorizt höfðu úr leik 1887, um að gefa kjósöndum sínum lof- orð um að fylgja málinu fram- vegis eða leggja niður þing- mennsku að öðrum kosti. Á fundi þessum bar Skúli fram tvö mál, sem hann barð- ist mikið fyrir síðar, búsetu fastakaupmanna og kvenfrelsis- málið. Var báðum þessum málum vel tekið og samþykktir gerð- ar um þau. Ennfremur fékk hann samþykkta áskorun til Al- þingis um að stofna sjómanna- skóla hér á landi (gamalt hugð- armál Vestfirðinga) og enn var að.hans undirlagi samþykkt til- laga um að leggja ekkert fé til Sameinaða gufuskipafélagsins danska. Vonir fundarmanna brugðust um góðan framgang stjórnar- málsins á þinginu 1889. Þá kom fram hin svonefnda „miðl- un“, er sníða vildi stjórnar- skrána eftir nýlendustjórnar- fyrirkomulagi Breta. Hitt gleymdist flutningsmönnum, hversu takast mundi að sníða stjórnmála-hugmyndir Dana eft- ir stjórnmálaþroska Breta. Est- rup gamli hafði þá lengi stjórn- að Danmörku sjálfri með ein- ræði og hélt sömu stjórnarhátt- um meir en áratug eftir þetta. „Miðlunina" " dagaði uppi á þingi. Eftir þing hófust miklar og harðar umræður um hana. Skúli lagðist eindregið á móti henni. Tel eg það hárrétt, sem segir um þetta í Andvara-grein Sigurðar Lýðssonar um Skúla Thoroddsen 1920: Kveður hann svo að orði: ,>Hygg eg, að segja megi, að á þessum árum hafi „Þjóðvilj- inn“ verið öruggasta sjálfstjórn- ar- og framsóknarblaðið á þessu landi. Hann var líka skrifaður af miklu meira fjöri og minni undirgefni, en þá var títt í ís- lenzkri blaðamennsku, enda mun hann þá hafa náð mikilli útbreiðslu meðal sjálfstjórnar- manna, ekki aðeins vestanlands, heldur og í öðrum landsfjórð- ungum og þó einkum norðan- lands, þar sem mest gætti á- hrifa sjálfstjórnarforkólfanna Jóns á Gautlöndum og Bene- dikts sýslumanns Sveinssonar“. Jón á Gautlöndum hafði ver- ið þingmaður Eyfirðinga síðan 1886, en lézt af slysi á leið til Alþingis vorið 1889. Stóð sæti hans autt á því þingi, en næsta ár, 1890, átti fram að fara auka- kosning í héraðinu um mann í stað hans. Þá var héraðshátíð haldin á Oddeyri til minningar um 1000 ára byggð héraðsins og mikið um dýrðir. i Þá bauð Skúli sig fram í l Eyjafirði móti Einari Ásmunds- syni í Nesi, gömlum þingmanni, fróðum og f jölvitrum. Hafði hann fylgt stjórnarskrár-breyt- ingunni 1885 en dró sig í hlé við kosningar til aukaþingsins 1886 sakir vanheilsu. Skúli hlaut kosningu með stórmikl- um atkvæðamun. Átti hann síð- an sæti á Alþingi til dauðadags. Lengst af var hann þm. ísf. og N.-ísfirðinga. Vorið eftir fékk Skúli ekki við komið að eiga fundi með kjósöndum sínum áður hann færi til þings. Sendi hann þeim því ávarp, lýsti þar skoðunum sínum um nokkur hin helztu þingmál. Var þetta nokkurs konar stefnuskrá hans, er hann fylgdi að mestu íjafnan síðan. Stjórnarskrármálið telur hann veigamest allra mála, unz við- unanlegur sigur sé fenginn, og þjóðin ráði sjálf málum sín- um. „Miðlunin“ nær alls ekki því marki. Samgöngur éru höf- uðskilyrði til framfara og þarf einkanlega fyrst að efla og bæta samgöngur á sjó. Talsíma þarf að leggja milli helztu staða inn- anlands. Til eflingar atvinnu landsmanna þarf að koma upp innlendum þilskipaútvegi og innlendu vátryggingarfélagi. Hert verði á ákvæðum um fisk- veiðar útlendinga við landið og veiðar landsmanna sjálfra bet- ur tryggðar. Selstöðuverzlun Dana þarf að afnema með lög- um um búsetu fastakaupmanna. Lögleiða þarf sérstaka stutta firning verzlunarskulda til að koma á heilbrigðari viðskiftum. Taka þarf í lög, að þeir sé lausir við gjaldskyldu til prests og kirkju, sem segja sig úr þjóð- kirkjunni, enda verði ríki og kirkja aðskilin sem fyrst. — Af- nám vistarskyldu. — Breyting á húsmanna- og þurrabúðar- manna löggjöf. Umbætur á úr- eltri fátækralöggjöf, meðal ann- ars með stækkun fátækrahér- aða til þess að draga úr sveitar- flutningum. Skúli vakti hér og máls á ein- hverju sjálfsagðasta réttinda- Skúli Thoroddsen máli, að lögtekið sé, að dæmi Breta, að verkamenn við verzl- anir skuli fá kaup sitt greitt 1 peningum og samningar um greiðslu þess 1 vörum skuli vera ógildir. Áður hafði við gengizt að vinnulaun daglaunamanna væri greidd í vörum, því verði, sem verzlanirnar settu sjálfar. Vóru þessir verkamenn því lengstum blásnauðir og klafa- bundnir við verzlanirnar. Þó þurfti Skúli 11 ár til þess að koma réttarbót þessari fram á Alþingi. Skúli sat fyrst á Alþingi 1891. Kvað þá þegar mikið að honum. „Miðlunarflokkurinn“ hafði gengið saman við aukakosning- ar milli þinga, enda hafði hann ekkert fylgi meðal þjóðarinnar. Var nú „Miðlunin“ alveg kveð- in niður og kom aldrei upp síðan, þó hafði fylgismönnum hennar tekizt að fá efri-deild svo skipaða, þar sem lítils þurfti við með tilstyrk konungkjörna liðsins, að „endurskoðaða stjórn- arskráin" náði ekki heldur fram að ganga í það sinn. Með sama hætti tókst E. d. að hnekkja frumvörpum þéim, er Skúli bar fram í N. d. til aukinna mann- réttinda, svo sem afnámi vist- arbandsins, lækkun lögaldurs, frelsi kvenna o. fl. þessháttar mál, er síðar náðu fram að ganga. Fyrstu fjögur árin, sem Skúli gegndi embætti sínu vestra hafði allt farið „hrukkulaust“ milli hans og yfirboðara hans og hann haft traust þeirra. En er hann sótti Þingvallafundinn 1888 hafði hann ekki átt kost á því vegna samgönguleysis að æskja leyfis stjórnarinnar til suðurfarar. Fyrir það var hann sektaður um 50 krónur. Svo kom til hið svonefnda „Skurðs- mál“ um áramótin eftir fyrstu þingsetu hans. í sambandi við það var hafin rannsókn að til- stuðlan stjórnarinnar gegn Skúla út af framkomu hans í rannsókn málsins og síðar í allri embættisfærslu hans. Var hon- um vikið frá embætti um stund- arsakir 15. ágúst 1892. Nú hófst hinn mesti málarekstur, sem var mjög óþokkasæll af almenningi vestur þar. Mátti heita, að full- komin óöld ríkti þar í héraði meðan á honum stóð. Var svo virt af almenningi vestra og víðast um land, að málarekstur- inn væri af pólitískum rótum runninn. Málið var dæmt í héraði 10. júlí 1893 á þann veg, að Skúli skyldi hafa fyrirgert embætti sínu og greiða allan málskostn- að. Landsyfirdómur dæmdi 600 Theodóra Thoroddsen Ikr. sekt á hendur Skúla og lét þar við sitja. Loks féll hœsta- réttardómur 15. febr. 1895 þann- ig, að Skúli var sýknaður, en skyldi greiða Vs hluta máls- kostnaðar. Stjórnin vildi þó ekki hlíta því, að Skúli tæki aftur við sýslu sinni, en gaf honum kost á Rangárvallasýslu, er þá var laus. Skúli svaraði: „Eg læt ekki setja mig niður eins og hreppsómaga“. — Leysti stjórn- in hann þá frá embætti að fullu, með eftirlaunum, 31. maí 1895. Almenningur kunni illa þess- um málalokum. Alþingi tók og þunglega á málinu, er það var rannsakað þar í nefnd. Veitti það Skúla 5000 kr. skaðabætur fyrir — eða upp 1 — tjón hans af málarekstrinum. Skúli tók við ritstjórn Þ^jóð- viljans haustið 1892 og gaf hann út til ársloka 1915. Hann veitti og forstöðu Kaupfélagi ísfirð- inga um hríð. Rak hann síðar allmikla verzlun í ísafjarðar- kaupstað um langt skeið, eins eftir burtför sína að vestan til Bessastaða (1901) og þaðan til Reykjavíkur (1908). Hélt hann vinsældum sínum, trausti og þingfylgi vestra til dauðadags. Hér verður að hlaupa yfir stjórnmálasöguna með öllu, allt þar til, er Landvarnarflokkur- inn hafði náð festu og fylgi í landinu á árunum 1904—1906. Hafði hann vakið hreyfing um upptöku fánamálsins og hafið af nýju fornar réttarkröfum ís- dendinga. Skúli var einna fyrst- ur til þingmanna að meta kröf- ur flokksins. Fylgdi blað hans eindregið fánamálinu frá upp- hafi. Skúli hafði verið einn þeirra stjórnmálamanna og blaða- manna, er stóðu að ávarpinu til íslehdinga, er birt var haust- ið 1906 til þess að reyna að sameina þjóðina um kröfur þær, er halda skyldi fram í milli- þinganefnd þeirri, er kjósa átti til þess að fjalla um breytingar og rétting á sambandi landanna. Hann var og einn þeirra, er kvaddi til hins nafnkunna Þing- vallafundar vorið 1907. Vóru þar gerðar merkilegar álykt- anir, sem síðan vóru hafðar að stefnuskrá sjálfstæðisflokksins, er hann var stofnaður. Afskipti Skúla 1 millilanda- nefndinni veturinn 1908 eru al- kunnar og næsta merkilegar og örlagaríkar, þar sem hann stóð einn uppi gegn öllum samlönd- um sínum, sex saman og öllum fulltrúum Dana, 12 að tölu. Tillögur hans vóru í samræmi við Þingvallafundinn. Vóru þær allar felldar einu hljóði og hætti hann þá samstarfi við nefndina, enda var þá komið að starfslokum hennar. — Lauk hún störfum 14. maí Þegar fregnirnar bárust fyrst til íslands vóru stórgallar upp- kastsins taldir þessir: „Island danner sammen med Danmark, en Statsforbindelse, det samlede danske Rige“. — íslendingar innlimaðir óuppsegj- anlega dönsku valdi í utanríkis- málum og hermálum. Dönum á íslandi heimilt jafnrétti við ís- lendinga óuppsegjanlega og öll- um þegnum danska ríkisins heimilaður fiskveiðaréttur í landhelgi um 30—40 ár. Danne- brog jafnlengi lögfest verzlun- arflagg út á við. Dómstjóri hæstaréttar oddamaður ef á- greiningur rís milli Alþingis og Ríkisþings. Sambandið ríkisrétt- arlegt en ekki þjóðréttarlegt. Þýðingin röng víða í mikilvæg- um atriðum til þess að „upp- kastið“ gangi betur í augu ís- lendinga. Síðar var bent á fleiri agnúa. Skúli hafði notið sín illa við nefndarstörfin sakir lasleika og dvaldist nokkuð ytra á eftir sér til lækninga. En er heim kom. höfðu margir þegar áttað sig vel á málavöxtum. Var honum því tekið hið bezta af fylgjöndum hins frjálsa mál- staðar. Þorsteinn Erlingsson flutti honum þakkarkvæði við heim- komuna. Landvarnarmenn vóru nær allir þegar eindregnir með hans málstað gegn meira hluta nefndarinnar. — Blaðið ísafold fór hægt af stað fyrst, sem von var, þar sem tveir flokksmenn þess höfðu verið í nefndinni. En þegar málið greiddist betur, gekk enginn fastara fram gegn ,,uppkastinu“ en Björn Jónsson ritstjóri. Hafði blað hans rótgró- ið fylgi víðast um land. Oldruðum mönnum er enn, í minni sá hinn mikli áhugi og hiti og fjör, sem þá var í land- inu um sumarið allt til kosn- inga og óx dagvöxtum. Þótti þó ekki árennilegt í fyrstu að reisa rönd við hinum mikla meiri hluta nefndarinnar með ráðherrann sjálfan í broddi fylk ingar. En þorri þjóðarinnar kenndi sín þegar kom að hjart- anu. Það vóru eigi heldur einung- is íslendingar heima í landinu, sem létu málið einlæglega til sín taka, heldur snart það djúp- an, þjóðlegan streng í brjósti landa vorra erlendis, einkann- lega í Vesturheimi, þar sem þeir vóru flestir saman. Blöðin „Lög- berg“ og „Heimskringla11 skildu skjótt hversu málin horfðu við, og Vestur-íslendingar réttu hlýja bróðurhönd yfir heimshaf- ið. Allir Vestur-íslendingar stóðu gegn „frumvarpi nefndar- innar“. Skáldin vestra ortu hvatning- arljóð til heimalandsins. Er þar fremstan að telja skáldjöfur- inn og mannhafnarmanninn Stephan G. Stephansson. Er ekki ófróðlegt að rifja upp, hverja hann telur líklegasta til þess að fylgja „danska mál- staðnum“. Hann segir: Þú hefir, ísland, farið flatt, flón við samningana. Það er bezt að segja satt: Sigurinn er Dana. Endirinn fyrir augun ber, ‘ engum sigri hrósa — sé eg þá þó sitji hér, sem samningana kjósa. Meðfœtt eðli í átt þá snýr öllum spenavönum, i þessum, sem í búi býr bitavon hjá Dönum. Mannleysið, sem íslenzkt er, eins mun þangað feta: Þeir, sem fyrir sjálfum sér, sér ei trúað geta. Margt fleira var þá kveðið í lika átt. Úrslitin urðu þau við kosning- arnar 10. sept. um haustið, að 25 sjálfstæðismenn hlutu kosn- ing og 9 frumvarpsmenn. Skúli Thoroddsen var einn sjálfkjörinn. Þrír aðrir nefndar- menn náðu kosning. Tveir féllu. íslenzkur þjóðarandi hafði borið sigur úr býtum og hefur notið hans síðan. Eftir þetta kom Skúli mjög við stjórnmál landsins allt til æviloka, þótt hér sé ekki tími til að rekja það nánara. Hann var forseti sameinaðs Alþingis 1909 og 1911 og það ár valt það á einu atkvæði á Alþingi, að hann varð ekki ráðherra ís- lands. Skúli var mikill mælskumað- ur, rökfastur og fylginn sér. Hann mun hafa komið meira til vegar í stjórnmálum og mannréttindamálum landsins, en e. t. v. nokkur samtíðar- manna hans. Vegna stefnu sinnar og stjórn- mála-afskifta sætti hann megn- um andróðri og ofsóknum á bezta- skeiði aldurs síns, en tókst að halda velli og sjá margar hugsjónir sínar rætast. Stoð hans og stytta í blíðu °g stríðu var hin ágæta og mikilhæfa kona hans, frú Theo- dóra Guðmundsdóttir prófasts á Breiðabólstað á Skógaströnd Einarssonar. Þessi þjóðkunna merkiskona er enn á lífi. Þau hjónin eignuðust 12 mannvænleg börn, er upp kom- ust. Látnir eru tveir þjóðkunnir synir þeirra: Skúli alþingismað- ur og Jón, báðir lögfræðingar. Skúli lézt í Reykjavík 21. maí 1916 57 ára að aldri. Er bjart yfir minning þessa merkis- manns. Frétfabréf frá Fáskrúðsfírðí Frh . af 2. síðu. anleg eins og sakir standa, verð ur því að nota kaffi eða te þar sem áður var notuð mjólk og eru það síður en svo holl skipti. Kaffiskammturinn hefur alltaf enzt flestum hér vel og jafnvel margir haft afgang, enda hægt að nota líka te og' kakó. En öðru máli er að gegna með syk- urinn, hann heíur enzt illa hjá flestum og ég held helzt með verzta móti nú, sem mun vera að kenna mjólkurleysinu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.