Þjóðviljinn - 10.03.1944, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 10.03.1944, Blaðsíða 2
ÞJÓÐVILJINIt * Föstudagur 10. marz 1944 Ríkið hefur borgað 700 þúsund krónur fyrir smjör ið sem við fengum ekki Við Reykvíkingar höfum haft lítið af sm.iöri að segja síðasta árið. Það má heita að |)á vöru höfum .við ekki séð, að minnsta kosti ekki við þessir óbreyttu Reykvíkingar, en hvort ;i,ð hér kann að leynast einhver æðri tegund Reykvíkinga, sem fengið hafa allt smjörið á sitt borð, skal ósagt látið. En hvað sem þessu líður, þá er það staðreynd. að ríkissjóður hef- ur borgað 700 þús. krónur til að lækka verð á smjqrinu,’sem við ekki fengum árið 1943. Stjórnin hugsar víst sem svo, að það sé þó alltaf betra fyrir okkur að borga þessi 700 þús. í sköttum, til að lækka smjörverðið,, heldur en að eiga á hættu að við gleymum að til sé vara, sem heitir smjör. Það er dásamleg stjórn, sem við höfum, en líklega er þó Vilhjálmur Þór dásamlegastur allra ráðherr- anna. Hver skyldi hafa fundið upp- þetta furðuverk með smjörið ef ekki hefði verið Vilhjálmur Þór? Bændur og verkamenn Bændur og verkamenn eiga sam- leið í baráttunni fyrir bættum kjor- urn og betra þjóðfélagi. Þessa stað- reynd. hefur Sósíalistaflokkurinn rcynt að skýra fyrir þjóðinni. og fleiri og fleiri eru þeir, sem verður hún Jjós. En fyrsta sporið, sem stíga þarf til samstarfs, er að koma á, og efla, gagnkvæmri k.ynningu, því grund- völlur skilnings og þekkingar er kynning, en samstarfið verður að byggjast á skilningi og þekkingu hvors aðija um sig á kjörum, þjóð- félagsaðstöðu og hugsunarhætti hins. Sósíalistaflokkurinn gefur út lítið blað, Nýja tímann, sem eink- um fjallar um málefni bænda. Gunnar Benediktsson er ritstjóri þess. Með Gunnari og bændunum hefur tekizt hið bezta samstarf, svo að mjög mikið af því lesmáli sem „Nýi tíminn" flytur, er skrifað af bænflum. Þeir senda blaðinu nú mikinn fjölda greina og bréfa, til ómetanlegs gagns fyrir þáð og flokkinn Nýi tíminn sýnir því hvernig róttækir bændur hugsa og skrifa, einmitt þess vegna ættu verkamenn að kaupa blaðið, það kostar aðeins 10 kr. á ári; afgreiðsl- an er á Skólavörðustíg 19. Lestrarkunnáttan fyrr og nú. Eins og kunnugt er var það al- mennur þjóðarsiður á landi hér, að lesa húslestur. Fyrst og fremst kvöldlestra frá veturnóttum til páska og einnig alla sunnudaga. Allt eldra fólk inan svo vel þessa húslestra, að þeim þarf ekki að lýsa. Þessi siður, að lesa húslestra, er nú með öllu niður lagður, ásamt sögulestri og rímnakveðskap á kvöldvökum. Nýi tíminn hefur út- rýmt öllu slíku, innleitt annað í staðinn svo sem útvarp, og ráp á götum úti og m. fl. sem sjálfsagt gefur lífinu og allri tilveru meira varanlegt gildi en vera hlustandi á húslestur og og sögulestur heima í gömlu baðstofunum. Það er fjarri mér að gjöra lítið úr hinum nýja tíma. Mér er það mjög vel Ijóst^hversu miklu betra það er að vera til nú, en fyrr á ár- um og öldum, hverstt Iífsbaráttan var þá harðari og strangari en nú, slíkt þolir engan samanburð. En gamli tíminn hafði einnig margt gott að bjóða. Sá kostur fylgdi tíl dæmis húslestrum og sögulestri að ;i hverju heimili var lil góður lesari eða lésarar. Þessum lestri f.ylgdi sá métnaður að lesa vel og skörulegá, annao þótti ekki viðhlítandi. Og það var altítt að þeir sem lásu húslestur stældu lestrarlag presta sinna, ef þeir fluttu fallega ræður sínar. Einnig fvlgdi sá kostur sögulestri, að efni sagnanna varð umræðuefni fólks- ins sem á hlustaði og efnið krufið . til mergjar eftir því sem — andleg — efni stóðu til. Það var einnig almennur þjóðar- siður, að þakka fyrir lesturinn að honum loknum. Ef gest bar að garði þegar stóð yfir húslestur, var hann að vísu leiddur til baðstofu og vísað — ef til vildi til óæðri bekkjar — þar til lestri var lokið, þá þakkaði gcst- urinn fvrir lesturinn eins og aðrir áheyrendur, og týk þar næst til að heilsa fólkinu annað hvort með kossi eða handabandi, eftir því hvað gesturinn var nákóminn heimilisfójkinu. Líklega væri það talin hrein og klár fjarstæða ef því væri haldið fram, að fólkinu hefði hrakað í lestrarkunnáttu, eða metnaði þess hefði aftur farið í þeirri íþrótt á þessari öld íþróttanna, líklega yrði því kvæði að venda í kross ef vel ætti að fara. Samt dettur mér oft þessi skratti í hug,.þegar ég heyri ungt fólk lesa. Ileyri það liþkta næstum á hverju orði, Icsa — ef lestur skyldi kallast — ekki eftir neinum lestrarmerkjum, svo að allt efnið verður að cinni óskiljanlegri suðu, h’ósta og feimni, eða augljósri fákunnáttu. Nýlega heyrði ég ungan mann óg efnilegan lesa nokkrar línur úr blaðagrein svo illa í alla staði að ég er óviss um að nokkrir af áheyr- endum hafi skilið það sem hann las. Ég er óviss -um að hann hefði verið skrifaður fulllæs við húsvitj- un í mínu ungdæmi. Lestur íslendingasagna En ég er nú kominn út fyrir efnið. Ég ætlaði með línum þessum að þakka fyrir lesturinn alveg eins og í ganila daga, þakka dr. Einari Öl. Sveinssyni fyrir lestur „íslend- ingasagna“, fyrir upplestur hans úr Njálu, lestur hans er svo dá- samlegur að þar held ég fáir jafn- ist við. Viðburðir þeir, er Njála skýrir frá, gjörðust margir í mínu æsku- og uppvaxtarhéraði og hefúr því Njála verið mér einskonar helgidómur alla ævi, ég hef því ■ ótal sinnum lesið hana og heyrt lesna. Ég hef einn mann heyrt lesa kafla úr henni nierri því eins vel og dr. Einar Ól. Sveinsson. Það var séra Gísli heitinn Skúlason á Stóra-Hrauni. Að ég heyrði upp- lestur hans orsakaðist þannig: Séra Gísli var að jarða mann austur í Gaulverjabæ. Ég var þar einnig og Gísli Pálsson organisti í Ilaftúni á Stokkseyri. En af því að þessi „þrenning“ átti nú samleið heim að kvöldi eftir jarðarförina, þótti sjálfsagt að við yrðum samferða. Þetta var um haust og kvöld kom- ið, og er við vorum komnir nokk- uð á leið komst eitthvert atriði úr Njálu inn í samtalið, og var þá ekki að sökum að spyrja að séra Gísli tók að lesa Njálu (vitanlega utanbókar) orðrétt, og hélt þeim lestri áfram út að Stokkseyri, þar til umferðin í þorpinu truflaði svo lesturinn, að hann varð að hætta. En við Gísli Pálsson vorum j)ög- ulir áheyrendur meðan á lestrin- um stóð. Ég hygg að séra Gísli Skúlason hafi alveg kunnað Njálu spjald- Fpamhald á 8. síðu Har^ídutr Gfiðmnedssois: Á sama tfma og smálestatali þrítagfaldast á Akranesi og sjötag- faldast í Vestmannaeyjum minnkar bén á íssfiröi Fyrir nokkrum dögum birti Þjóðviljinn viðtal við Harald Guðmundsson, bæjarfulltrúa Sósíalistaflokksins á ísafirði. Varðandi frekari upplýsingar um ásigkomulag útgerðarinn- ar á ísafirði, vísaði hann til greinar í Baldri, blaði ísfirzkra sós- íalista, sem kom út 28. jan. s.l. Þjóðviljinn birti nú þessa grein, en hún gefur þær athyglis- J verðu upplýsingar, að árið 1900 hafi tala íbúa á ísafirði, miðað skip sem búið var að selja og flytja burtu, er nemi ca. 210 smál. Allt atvinnulíf bæjarins var með þessum eftirminnilegu að gerðum afturhaldsins lagt að mestu í auðn, einkum fyrin það, að’ beztu skipin fóru, en við smálest verið 2.27 en s.l. ár 4.15. Árið 1900 voru 19 skip á ísafirði, s.l. ár voru þau 20, eða einu fleiri. Smálestatala ísfirzks skipastóls hefur á 43 árum auk- ist um 226 smál., úr 470 í 696. Árið 1925 var smálestatalan komin upp í 1030 og hefur því minnkað síðan um ca. hálft fjórða hundr- ftð smálesta. Á árunum 1915—1943 hefur smálestatalan þrítugfaldast á Akranesi og næstum sjötugfaldast í Vestmannaeyjum, og Kefla- vík, sem átti engan skipastól 1915, er nú hærri að smálestatölu en ísafjörður. Grein Haraldar Guðmundssonar fer hér á eftir: ísafjarðarkapstaður hefur ávallt byggt vöxt sinn og við- gang á sjávarútvegi. Grund- vallaratriðið fyrir samfelidri þróun og styrkleika ísafjarð- ar, eins og allra annara út- vegsbæja á landinu, er því það, að ávallt sé búsettur og starfræktur í bænum, nægur og góður skipastóll, sem jafn- an sé í öruggu stærðarhlut- falli við atvinnuþörf og íbúa- tölu bæjarins. skulum nú í stórum ártaí íbúar . tala 1900 1067 1915 1744 1925 2224 1940 2812 1943 2885 Viö fljóta athugun sést aö bærinn er langtum ver settur með skipastól nú, 1943, en um aldamót, þó er þess aö gæta að mismunurinn er meiri en dráttum athuga, hvernig út- vegsmálum" ísafjaröar hefur verið háttað þau 43 ár sem liö in eru af þessari öld. Aldamótaáriö (1900) var Isafj. 3. stærsti útvegsbær landsins, enda vagga íslenzkr- ar þilskipaútgerðar. Eftirfarandi tafla sýnir hlul falliö. milli íbúatölu bæjarins og brúttó smálestatölu skipa (yfir 10 smál.) árin 1900 — 1915 — 1925 — 1940 — 1043: samtals íbúar mibað skipa smál. við smál 19 . 470 2,27 23 , 810 2,25 24 1030 2,2 25 1017 2,"7 6 20 696 4.15 um land, þar á meðal Akra- nesi, Vestmannaeyjum og Keflavík. 1915 er íbútala þess ara bæja frá 5 til 14 hundruð, og skip sem hér segir: hin urðu eftir. Endirinn varð því sá, að þeir bæjarbúar, sem þess voru umkomnir, uröu að leita sér atvinnu í önnur ner* uð, einkum suður á land. En þaö nægði eigi til þess að bæta áð neinu verulegu gagni úr þeim atvinnuþrengingum^ sem hér ríktu. Bæjarbúum var það því fyllilega ljóst, aö úr þessu ástandi yröi því að- eins bætt, aö skipastóll bæj- arins yrði aukinn áð veruleg- um mun. Samvinnufélag Isfirðinga, varð ávöxtur þessara skoðana bæjar búa. Og var það stofnað fyrir atbeina ýmissa forustumanna AI þýðuflokksins. Fyrstu bátar S. í. komu um áramótin 1928—9. Með komu þeirra var veitt nýju blóði í hið aðþrengda atvinnu- líf bæjarins. Eftir þetta fór svo skipastóllinn smá vaxandi, þar til í árslok 1940, en þá skortí nokkuð á að hann næði þvi stærðarhlutfalli, miðað við tölu bæjarbúa, sem hann hafði áður náð. (Samb. töfluna hér að framan). í árslok 1940 hafði Alþýðu- flokkurinn farið með meiri- hlutavald í bæjarstjórn ísa- fjarðar í nærfelt tvo tugi ára, hann var og méstu ráðandi í útvegsmálum bæjarins. Honum hlaut því að vera sérstak- lega kunnugt, hver nauðsyn var á því að auka skipastól bæjar- ins. taflan sýnir, þar sem aöeins eru talin þiiskipin, sem aðeins voru gerð út vor og sumur, en öllum smærri, t. d. áraskipum, sem notuð voru haust óg vet- ur, sleppt. Þetta atriði gerir skipastóll ársins 1943 ennþá ósambærilegri við skipastól bæjarins um aldamót, einkum þegar þess er gætt, að skipa- stóilinn 1943 er aö mestu starf ræktur allan ársins hring. Á tímabilinu frá 1900 til 1915 uröu víðtækar breytingar og þróun á útvegsmálum lands- manna. Véltæknin var tekin í þarfir útvegsins. Fiskibátarnir stækk aðir, og þar með auknir mögu leikar útvegsins tii þess að nýta betur en áður hin feng- sælu fiskimið við strendur landsins. Á þessu tímabili var því lagður grundvöllur að ýms- um útvegsbæjum víðsvegar Akranesi 2 samt. 33 smál. Vestm.eyjar 2 samt 32 smál. Keflavík ekkert (yfir 10 smál) Árið 1925 var stæröarhlut- fall fiskifiotans hér á ísafirði miðað við íbúatölu aðeins meiri en um aldamót, en sé miðað við 1915 var hann mun minni. En stuttu síðar skeöi þaö einkennilega fyrirbrigöi, aö ýmsir aðsópsmestu forvígis- menn íhaldsfl. hér, fá það á heilann að beita sér fyrir því, aö fiskiskip bæjarins yrðu seld burtu. Þennan fáheyröa óþokkaskap tókst afturhalds- öflum bæjarins aö fram- kvæma á árunum 1926—28 með þeim árangri, að í árs- lok 1927 voru skrásetf skip til heimilis á ísafiröi samt. 896 smál., full ástæða er þó til að ætla, áð talin séu í þessu Að því var og komið, að Al- þýðuflokkurinn varð að fara að sýna, hvers hann var megn- ugur og hvern vilja hann hafði á því að hefja umbætur til auk- ins atvinnulífs i bænum. Meðal annars með því að styðja að aukningiu á íiskiflota bæjar- ins. Þetta var þeim mun nauð- synlegra fyrir það, að fáum duldist að í hönd fór sérlega . hagstætt útgerðartímabil. — Hyernig leysti svo Alþýðuflokk- urinn af hendi þetta mikilvæga hlutverk’ ísafjarðarkaupstaður var á þessum tíma stærsti hluthaf- inn i Ii.F. Valur eiganda bv. Skutuls, sem það gerði út héð- an. Bæjarstjórn var því mestu ráðandi í félaginu. Á útgerð þessari græddist á tiltölulega stuttum tíma mikið fé, -auk þess sem hún veitti’ mikla og góða atvinnu í bæinn. Með tilliti til Framh. á 8 síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.