Þjóðviljinn - 01.04.1944, Side 2
ÞJÓÐVILJINN
2
Laugardagur 1. apríl 1944.
J uettanii! steíii m ekli bdsí‘
Viðtðl við Guðmund Einarsson frá Miðdal
í dag opnar Guðmundur Einarsson frá Miðdal sýningu í
Listamannaskálanum. Sýnir hann þar 56 olíumálverk, 70 rader-
ingar, 15 teikningar og 15 höggmyndir. Flest eru málverkin frá
sf.ðustu þrem árum, en þó nokkur frá fyrstu sýningum hans.
Raderingarnar eru safn slíkra mynda er hann hefur gert í 25
ár, en nú eru liðin 25 ár frá því hann hóf að leggja stund á
myndlist. í tilefni af því spurði Þjóðviljinn Guðmund hvað hann
vildi segja af starfsferli sínum síðustu 25 árin.
— Árið 1919 lágði ég af stað |
til Danmerkur, sagði Guðmund
ur,- en áður hafði ég starfað 3 j
ár að gerð myndanna sem eru !
í Reykjavxkurapóteki og vann
auk þess ýmsa gibsvinnu við
nokkrar stórbyggingar.
Ég var tæpt ár í Danmörku og
komst inn í Listaháskólann þar.
Þaðan fór ég til Þýzkalands og
scttist að í Miinchen og nam þar
myndhöggvaralist og leirbrennslu
í einkaskóla. Málaralist og líkams-
fræðif nam ég við Listaháskólann
í Miinchen og lagði þá aðallega
stund á kalkmálverk (fresco).
FERÐ UM SUÐUR-EVRÓPU.
Árið 1925 hafði ég lokið námi
og férðaðist þá úm Suður-Evrópu:
Balkanlöndin og Miðjarðarhafs-
svæðið.
Ferðaðist ég þá um Eyjahafið
og skoðaði hinar fögru grisku eyj-
ar. Fór ég mcð litlu skipi, þar sem
allt var í einni bendu: geitur,
menn og svín. Sökum þess að ég j
var stærri vexti en flestir Grikkj-
anna setti skipstjórinn mig lög-
gæzlumann á skipinu og varð ég
oft að stilla til friðar, því karl-
arnir drukku óspart heimabrugg-
að vín er þeir höfðu meðferðis og
voru þá helzt til gjarnir á að
berja konurnar sínar. Rúmstæði
mitt var á háum timburhlaða á
þilfarinu svo ég gat vel séð y.fir
hópinn.
Á ferðalagi þessu eignaðist ég
maj-ga góða kunningja, þótt oft
gengi báglega að gcra sig skiljan-
legan.
Hinar fornu rústir Grikklands
og list 14. aldarinnar á Ítalíu
höfðu mikil áhrif á mig, enda þótt
ég hafi eigi notfært mér það í
verkum mínum.
Síðan ferðaðist ég til Frakk-
lands og dvaldi í París og síðar í
London.
ÖRLAGARÍICAR FERÐIR.
Mjög minnisstæð er mér ferð
um hálendi Skotlands, en það
ferðalag ásamt kynnum þeim, sem
ég hafði af Ölpunum, hefur orðið
nokkuð örlagaríkt fyrir mig, því
að þar hafði ég eignazt þriðja á-
hugamálið: fjallaíþróttirnar og um
15'ára skeið málaði ég nær ein-
göngu fjallamyndir og jökla dþ
ferðaðist mikið á þeim slóðum
bæði hér heima og erlendis'.
„HEIMA VIL ÉG VERA —“
Hér heima settist ég að 1926 og
þá kom það skjótt í Ijós, að það
er erfitt að lifa á íslandi fyrir
myndhöggvara — þá tók ég að.
brenna leirinn árið 1927, en List-
vinahúsið var þó ekki komið al-
mennilega af stað fyrr en 1930.
Ég álít að starf mitt í þágu list-
arinnar fyrstu árin hafi ekki feng-
ið hljómgrunn hér heima. Því
veldur kannski þau verkefni sem
ég valdi mér. Þá tók ég það ráð
að sýna erlendis, aðallega á Norð-
urlöndum og í Þýzkalandi. Þar
var mér tekið einstaklega vel, eins
og sjá má af því, að í ríkissafni
Svía er 1 mynd, í safni Finna 2,
í Noregi 4 og í Statshallen í Kaup-
mannahöfn 1 og 5 í opinberum
söfnum í Þýzkalandi. Auk þess
seldi ég geisimikið til einstaklinga
og dvaldi langdvölum erlendis, en
aldrei hvarflaði að mér að setjast
að erlendis og var mér þó eitt
sinn boðin prófessorsstaða við
Listaháskólann í Múnchen.
Ég festi hvergi yndi nema hér
heima, — og svo er frelsið ætíð
mikils virði, en ég álít okkar land
frjálsasta land veraldarinnar.
LISTAMENN EIGA
STUNDUM FLEIRI
ÁHUGAMÁL EN LISTINA.
— Þú sagðir áðan að fjallaferð-
irnar hefðu verið þitt þriðja á-
hugamál. Listin vitanlcga það
íyrsta, hvert er eitt?
— Eitt áhugamál allt mitt líf
hefur verið skógrækt. — í æsku
var ég á garðyrkjunámskeiðum og
vann að gróðursetningu á vegum
ungmennafélaganna, og starfaði
ég hjá Óskari Halldórssyni með-
an hann hafði garðyrkjustöð á
Reykjum, J)á ræktuðum við fyrstu
tómatana hér o. fl. garðjurtir, og
strax og ég hafði ástæður til fékk
ég mér landspildu í Mosfellssveit
heima í átthögum mínum og byrj-
aði að ])lanta skógi þar. Sá skógur
er ærið lágvaxinn samanborið við
hríslur þær, sem ég gróðursetti í
skrúðgarða hér fyrir 35 árum, en
ég álít ekkert aukastarf veita
meiri gleði en skógrækt, og fátt
mun þroska börnin meir en láta
þau gróðursetja tré og hirða um
þau.
LTSTIN ÓAÐSKILJAN-
LEG LÍFINU.
— En hvað viltu segja frekar
um listina?
— Ég hef aídrei getað skilið
lífið og listina að og þess vegna
ekki komizt hjá því að taka af-
leiðingunum, en þar með meina ég
að þar sem fjöllin áttu svo mikinn
j)átt í mínu lífi, j)á vildi ég að Is-
lendingar gætu kynnzt þeim mikla
mætti og tign sem býr í fjöllum
okkar. Ég hef starfað í stjórn
Æerðafélagsins frá upphafi og
stofnað félagsdeild Fjalla«nanna,
og ég álít að hvað sem listinni líð-
ur, jrá liafi þetta málefni mikla
þýðingu fyrir framtíðina, álít að
landsmenn skilji yfirleitt alls ekki
þá þýðingu sem fjöllin geta haft
fyrir okkur. Þangað mun jjjóðin
sækja þrótt og dug á komandi
öldum. Eins og ég hef sagt áður:
Vatnajökull verður leikvangur al-
þjóðaæsku.
Gamla Klapparvörin í Reylcjavík.
Fjörutíu þúsund króna
veizla
Það er boð hjá einum heldri
manni þessa bæjar, einum af mátt-
arstólpum þjóðfélagsins, — einum
af þessum mönnum. sem segjast
vera fyrirmynd í iðni, sparsemi og
framtakssemi, og átelja unga verka
menn fyrir að fara ekki vel með
kaupið sitt. Þessi heldri maður tel-
ur sig auðvitað ímynd þjóðlegra
dyggða og. fjandmann allra er-
lendra spillingaráhrifa.
Og það er auðvitað óhugsandi
fyrir slíkan heldri mann að hafa
bara blátt áfram kaffiboð, til þess
að geta' spjallað við kunningja
sína. Nei, nú skal sýna „pakkinu"
hvernig „fínt fólk“ heldur veizlu.
Nú skal skara fram úr öllu því,
sem hinir heldri mennirnir geta
gert. Samkeppnin lifi!
Kjallarinn í skrauthýsi hins
heldri manns er umskapaður í við-
bótarveizlusal með sérstökum hætti.
Hann er útbúinn sem væri þetta
neðansjávar. Æfður leiktjaldameist-
ari er látinn vinna heila viku að
því að útbúa þetta leiksvið, til
þess að veita veizluþreyttu heldra
fólki tilbreytingu. Dögum saman er
safnað þangi, skeljum og öðrum
nauðsynlegum hlutum til þess að
leiksviðið verði sem bezt.
. Nærri má geta hvort veizlan hef-
ur ekki verið í samræmi við hið
vota umhverfi, þó veizlugestirnir
hafi að vísu ekki verið klæddir
í fiska- eða hafmeyjabúninga. —
Ekki er vitað hvort hófi þessu var
nafn gefið, — t. d. „Allt í grænum
sjó“, eða eitthvað þessháttar. En
kunnugir segja að kostað hafi veizl
an um 40,000 krónur.
Hinn fíni heldri maður, er veizl-
una hélt, gengur síðan í bænum
undir nafninu „Þangbrandur" og
sumir bæta við í „Fiskhöllinni“, án
þess að meina samt Jón og Steirí-
EKKI LISTRÆN
TRÚARJÁTNING.
— Hvað viltu segja um íslenzka
list og samtök listamannanna?
— Ég álít að íslenzk list eigi
góða framtíð fyrir höndum.
Ég sá það strax og ég kom heim,
að listamenn þurftu að vera sam-
taka í málum sínum og var ég
einn af hvatamönnum þess að
Bandalag íslenzkra listamanna
var stofnað. Fýrstu 7 árin var ég
gjaldkeri Bandalagsins. Nú starf-
ar Bandalagið í þrennu lagi við
mjög góð skilyrði og við verðum
að gera okkur Ijóst hvaða erfið-
leika brautryðjendurnir áttu við
að etja, í þá daga var engin vinnu-
stofa fyrir listamenn til í bænum,
en nú hafa margir listamenn á-
gætar vinnustofur og prýðilegt
sýningarhús og ég gleðst yfir því
hve listin er fjölþætt. En að mínu
áliti er það eitt, sem gefur lista-
manni rétt til að vinna: að hann
finni sitt eigið form fyrir hugsan-
ir sínar.
Öll múgstefna í list er mér fjar-
stæð.
grím! — Hið rétta ríafij „Þang-
brandar" er Þjóðviljanum kunnugt.
*
Hvað segja menn nú um þetta
óhóf stríðsgróðalýðsins? Er það
til þess að auðmenn geti farið
svona að ráði sínu að sjómenn
vorir hætta lífi sínu í millilanda-
siglingum og vinnandi stéttir lands-
ins þræla. baki brotnu og bera sjálf
ar úr býtum rétt það nauðsynleg-
asta til að draga fram lífið.
Það eru þessir menn, sem kvarta
hæst undan skattbyrðunum, — en
er ekki von að sumum detti í hug
að það sé skömm að því að skilja
nokkuð eftir handa þeim.
Menn eins og þessi auðugi „Þang
brandur" eru þjóðarskömm. Þeir
setja smánarblett á íslendinga ■ í
augum annarra þjóða, sem nú berj-
ast upp á líf og dauða fyrir frelsi
og rétti manna til að lifa sómasam-
legu lífi. Blöðin þurfa að sameinast
um að fordæma svona atferli. Ann-
ars er ekki gott að segja hvaða af-
leiðingar svona gengdarlaust óhóf
getur haft.
Þrjár fyrirsagnir
„Trúin á róginn og óttinn við
dómstólana". „Hvílíkur Sósíalista-
flokkur!“ „Lygafréttin í Pravda
12. janúar". Þetta voru aðalfyrir-
sagnir Alþýðublaðsins í gær.
Fyrsta greinin er eftir Guðmund
í Guðmundsson, þann sem ekki
þekkti föður sinn, þegar hann
hélt íbúðum auðum til að geta
braskað með hús. Guðmundur harm
ar að fulltrúaráð verklýðsfélaganna
skyldi ekki samþykkja tillögu Jóns
Axels um að allt hafi verið löglegt
í meðferð Alþýðuflokksbroddanna
á eignum verklýðsfélaganna. Það
er von að Guðmundur harmi þetta.
Þar næst eru í greininni hreysti-
yrði um að Alþýðuflokkurinn fagni
málshöfðun. „Það er þó alltaf bún-
ingsbót að bera sig karlmannlega.“
Að öðru leyti er greinin staðlaust
bull. — Það er eins og við var að
búast.
Önnur greinin er eftir Stefán Pét-
ursson. Það er leiðari blaðsins.
Greinin hefst með þessum orðum:
„Langt inn í raðir Sósíalistaflokks-
ins hefur menn sett hljóða yfir fram
komu Þjóðviljans um öryggismál
sjómanna."
Síðan streymir dellan, eins og
stórfljót niður fjallshlíð, þessi sama.
della og streymt hefur úr penna
vesalings Stefáns síðustu dagana^
um að „kommúnistar" séu andvíg-
ir öllum umbótum hvað öryggið á
sjónum snertir, og allt stafi þetta
af hlífð við dómsmálaráðherrann,
sem Alþýðublaðið heimtaði að
víkja úr embætti, eftir að hann
fyrirskipaði sakamálsrannsókn út.
af gerðabókum Fulltrúaráðs verk-
lýðsfélaganna. Stefán skinnið get-
ur víst ekki betur.
Þriðja greinin mun vera birt til
þes’s að sýna að fleiri séu það en
Alþýðublaðið, sem hafa vonað að
Hitler gæti lokið sínu „menningar-
sögulega hlutverki" að leggja Sov-
étríkin í rústir. Greinin er sem sé
eftir amerískan Stefán Pétursson.
4 þús. króna minningar-
gjöf um frú Kristínu Vída-
lín Jacobsen
Og við getum ekki gengið fram
lijá því, að brautryðjendur ís-
lenzkra myndlistamanna hafa sótt
styrk sinn til íslenzkrar náttúru.
Þetta á ekki að vera nein list-
ræn trúarjátning, segir Guðmund-
ur að síðustu, því ég hef lifað eftir
öðru Jögmáli, serti rúmast í einum
málshaatti: „Á veltandi steini vex
. ekki mosi“. J. fí.
Til minningar um frú Krist- -
ínu Vídalín Jacobson hefur
Barnaspítalasjóð Hringsins bor-
ist tvær stórgjafir: Frá Banda-
lagi kvenna í Reykjavík 3000
kr. og frá Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur 1000 kr.
Færir stjórn Kvenfélagsins
„Hringurinn“ gefendunum kær
ar þakkir.