Þjóðviljinn - 04.04.1944, Blaðsíða 2
z
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. apríl 1944.
Greinargerð Þórarins Kr. Eldjárn í „Degi“ 9 marz
Ár 1941, þriðjudaginn 22. febrú-
ar kl. 10 árdegis barst hrepps-
nefnd Ólafsfjarðarhrepps símleiðis
vitneskja um það að sýslunefnd
Eyjafjarðarsýslu, sem þá háði
sýslufund á Akureyri, hyggðist að
synja Ólafsfjarðarhreppi um á-
byrgð á fjögur hundruð þúsund
króna láni til hafnarmannvirkja í
Ólafsfjarðarkauptúni. Hrepps-
nefnd sendi þá i snatri svohljóð-
andi símskeyti:
„Oddviti sýslunefndar Akureyri.
Hreppsnefnd Ólafsfjarðarhrepps
skorar alvarlega á sýslunefnd
Eyjafjarðarsýslu að samþykkja á-
byrgðar og lántökuheimild til
handa Ólafsfjarðarhreppi til hafn-
armannvirkja,' þar eð afkomu-
möguleikar íbúa hreppsins velta
algjörlega á því atriði. Til vara
skorar hreppsnefndin á sýslunefnd
að fresta afgreiðslu málsins til
næstkomandi föstudags“.
(Undirritað af öllum hrepps-
nefndarmönnum).
Sýslunefnd hafði áskoranir
hreppsnefndar að engu og af-
greiddi málið samdægurs með
langri ályktun, og neitaði um á-
byrgðina.
Hreppsnefnd Ólafsfjarðarhrepps
boðaði þá til almenns hreppsfund-
ar. Var hann mjög vel sóttur og
þar var samþykkt m. a. svofelld
tillaga frá hreppsnefnd:
„Þar sem sýslunefnd Eyjafjarð-
arsýslu virðist ætla að gera hafn-
arbætur og fleiri framfaramál hér
í Ólafsfirði óframkvæmanleg með
neitun sinni á ábyrgð fyrir lán-
tökum, skorar almennur borgara-
fundur, haldinn í Ólafsfirði 26.
febrúar 1944, á hreppsnefnd Ólafs-
fjarðarhrepps að vinna kappsam-
lega að því, að Ólafsfjörður fái
bæjarréttindi sem allra fyrst“.
Samtímis þessu var svo flutt á
Alþingi þingsályktun um að heim-
ila ríkisstjórn að verja allt að 200
þúsund krónum úr ríkissjóði til
kaupa á efni til hafnargerðar í
Ólafsfirði á komanda sumri. Á-
lyktunin hlaut samþykki þingsins.
Margir munu hafa undrazt
nokkuð framkomu sýslunefndar í
máli þessu og alveg sérstaklega
það, að hún skyldi ekki sjá sér
fært að draga loka-afgreiðslu þess
um 2 daga. Það bendir til þess
að málstaðurinn sé ekki góður. En
Ólafsfirðingar fylltust réttlátri
gremju, því þeim var að sjálfsögðu
Ijósara en nokkrum öðrum, að með
stöðvun framkvæmda í hafnar-
málum Ólafsfjarðar var verið að
skera framtíð þess stakkinn.
Það var deilt um hvort sjávarút-
vegskauptúnið Ólafsfjörður átti
að vera eða vera ekki, í framtíð-
inni.
Þá berst okkur í hendur „Dag-
ur“ fra 9. marz með greininni
„Hafnarmál ÓIafsfjarðar“ eftir
sýslunefndarmann Svarfdæla, Þór-
arinn Kr. Eldjárn. Þessi greinar-
gerð hans og túlkun öll á hafnar-
málum Ólafsfjarðar er samboðin
afgreiðslu sýslunefndarinnar, sem
hann starfar í.
Eftir að hann hefur farið nokkr-
um orðum um synjun sýslunefnd-
arinnar og viðbrögð Ólafsfirðinga
segir hann:
„Þar sem óvíst er, að öllum
þorra landsmanna sé ljóst, hvað
hér er um að ræða og yfirlýsing-
ar Ólafsfirðinga virðast gefa í
skyn, að synjun sýslunefndarinn-
ar sé óvænt og óeðlileg, virðist
ekki fjarri að reifa málið lítils-
háttar á opnum vettvangi, svo að
mönnum gefist kostur á, einkum
Eyfirðingum, að skapa sér skoðun
á málinu á hreinum grunni“.
Þetta er skynsamlega mælt.
Það er hverju máli bezt, að sem
flestir viti hið sanna um það. Svo
kemur þá hinn „hreini grunnur“
sýslunefndarmannsins, svohljóð-
andi:
„Samkvæmt þeim skjölum, sem
fyrir sýslunefndinni lágu viðvíkj-
andi hafnargerðinni, er áætlað, að
höfnin í Ólafsfirði muni kosta 5(4
milljón kr. (lokuð höfn sennilega
örugg). Af þessari upphæð, ef rétt
reynist — en áætlanir hafa oft
haft tilhneigingu til að standast
ekki, hvernig sem fer um þessa —
ber ríkissjóði að greiða % hluta
allt að 1 milljón kr. Ætti þá hafn-
arsjóður að bera l(/> millj., samkv.
hafnarlögunum“.
Einhverjir lesenda kynnu að
halda að tölurnar í þessari grein
væru prentvillur. En svo er ekki.
Þetta eru einmitt ein aðalrök
sýslunefndarinnar fyrir hinni um-
ræddu synjun ábyrgðarinnar.
Dæmið er svona: Tveir fimmtu af
5(4 eru 1 °g ef hann er svo dreg-
inn frá 5(4 — kemur út 4(4 —
fjórir og hálfur.
Þórarinn Kr. Eldjárn ætlar
„einkum Eyfirðingum“ að mynda
sér skoðanir á þessum „hreina
grunni“ og þeim er sannarlega
ekki fisjað saman ef þeir komast
með prýði í gegn um þá raun.
Enda verður varla sagt „að sam-
kvæmt þeim skjölum sem fyrir
sýslunefnd lágu“, sé af ráðvendni
með heimildir farið. Og skulu hér
nefndar nokkrar tölur úr þessum
skjölum, málinu til skýringar.
Áætlun Hafnargerðar Ólafs-
fjarðar miðað við fyrirstríðsverð
er 1.215 millj. f hafnarlögum Ólafs-
fjarðar er þessi upphæð rúmlega
tvöfölduð og er hún þar 2.5 millj.
Af þessari upphæð greiðir rikis-
sjóður % — eða 1 milljón, en
veitir ábyrgð fyrir % hlutum, eða
1.5 milljónum.
Verði hafnarmannvirkin dýrari
en þetta, kemur auðvitað ekki til
mála að hreppurinn einn standi
straum af því, heldur munu verða
gerðar breytingar á hafnarlögum
Ólafsfjarðar í svipað horf og hafn-
arlögum Dalvíkur var breytt, er
þau voru hækkuð um meir en
200% á síðasta ári, og mætti Þór-
arni Kr. Eldjárn vera kunnur sá
möguleiki. En óvíst er hvort til
þess mundi koma, að hækkunar
þyrfti, því enginn annar aðili en
sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu virð-
ist gera ráð fyrir að hafizt verði
handa með framkvæmd fyrirhug-
aðrar hafnar í heild, meðan nú-
verandi stríðsástand helzt.
Um þetta segir vitamálastjóri í
álitsskjali frá 7. des. (og lá það
fyrir sýslunefnd, ásamt hafnarlög-
um Ólafsfjarðar, sem vitnað er í
hér að framan):
„Kostnaður við framkvæmd
þeirrar hafnarvirkjunar, sem vita-
málaskrifstofan gerði tillögur um,
var áætlaður ca. 5(4 milljón krón-
ur, með núgildandi verðlagi. Eins
og nú lítur út með gang styrjald-
arinnar virðist ákaflega vafasamt
að ráðast í svo dýrar framkvæmd-
ir, jafnvel þó takast mætti að afla
til þeirra fjár og nauðsynlegs efnis
og tækja, en möguleikarnir til
þess eru áreiðanlega hæpnir. Það
er því ekki hægt að ráða til að
velja þessa leið“.
Nei. Það sem um er að vera, er
að hefja framkvæmdir sem bjarg-
að geta bátaútveg Ólafsfjarðar frá
algjöru hafnleysi, þangað til allar
aðstæður batna svo, að tiltæki-
legt þyki að hefja framkvæmdir
hafnarmannvirkjanna .í heild og
tillag vitamálastjóra er að byggja
garð sem hér segir:
„Tvö þil með 6.0 m. millibili
úr reknum staurum 0 8”, bilið
milli stauranna í þiljunum sé ca.
20 cm. Þiljunum sé haldið saman
með járn-„akkerum“. Á milli
stauraveggjanna komi grjótfylling,
en meðfram. stauraveggjunum sé
lagt grjót ca.: 1.5 m3 pr. hl. m.
meðfram hvorum vegg til þess að
hindra fráskolun meðan garðurinn
er í smíðum, en nokkru meira
grjót lagt við hausinn. Áætlaður
kostnaður við 150 m. Iangan garð
af þessari gerð er kr. ca. 320.000.00.
Þessi garður liggur á svæði hins
fyrirhugaða suðurgarðs. Þegar sá
garður yrði gerður, mætti taka úr
þessum garði akkeri og bolta, tré-
verk og jafnvel eitthvað af staur-
um. Annars myndi hann að nokkru
leyti koma í stað nauðsynlegra
verkpalla og auðvitað verða upp-
fylling í suðurgarð“.
Til samanburðar er rétt að geta
þess, að sýslunefnd segir í neitun-
arályktun sinni að þessi garður sé
„... . í raun og veru ekki byrjun
á hafnarbyggingu. Þrátt fyrir það
er andvirði hans áætlað um 400
þús. kr. eins og hreppsnefnd hugs-
ar sér hann“.
t þessari setningu úr ályktun
sýslunefndarinnar eru tvær mis-
sagnir: 400 þúsund í stað 320 þús-
unda króna áætlunar, og svo er
þetta tillaga vitamálastjóra frem-
ur en hreppsnefndar, en hrepps-
nefnd og hafnarnefnd hafa að
sjálfsögðu fallizt á hana.
Þá vil ég enn vitna í sýslunefnd-
armanninn. Nú er það „siðferðis“-
áhugi hans fyrir velferð Ólafsfjarð-
ar, sem knýr hann til að nefna
tölur. Orðrétt segir hann eftir að
hann hefur lýst því hve greiðslu-
Barizt til varnarsigra
Borgarablöðin hamast gegn
kommúnistum þessa dagana. Mjög
er þetta að vonum. Þau hugsa sem
svo, að alltaf geti þau unnið „varn-
ar-sigra“ eins og Hitler, og rétt sé
að flækjast fyrir á undanhaldinu og
tefja framsókn sósíalismans, —
menningarinnar, lýðræðisins og
framfaranna — eftir föngurn.
Þekking- er vopn góðs mál-
staðar
Hver eru nú vopin, sem beitt er
í varnarorustunni. í sem fæstum
orðum mætti segja, að þau væru
hugtakarugl. Hugtökin, sem þessir
herrar auðvaldsins einkum rugla,
eru lýðræði, einræði, bylting o. s.
frv. Gegn þessum vopnum beita
hinir sigrandi herir sósíalista hlut-
lægum skýringum, á þessum hug-
tökum, þeim er fyrir öllu að fólkið
viti rétt skil á þeim, góður mál-
staður krefst þekkingar og skiln-
ings, þess vegna byggist sigur sósí-
alismans bókstaflega á því, að all-
ur almenningur sé vel upplýstur og
skilji, meðal annars, til hlýtar hvað
felst í hugtökum eins og lýðræði,
einræði, bylting, og geri sér þess
fulla grein, að lýðræði er hyrning-
arsteinn framfara og menningar, en
einræði myllusteinn um háls allra
framfara.
Lýðræði
Lýðræði er í því fólgið, að hver
einstaklingur, sem kominn er til
vits og ára, hafi tillögu- og atkvæð-
isrétt um hvernig þeim málum er
stjórnað, sem snerta hann beint eða
óbeint. Á síðustu og næst síðustu
öld var háð mjög hörð og fórnfrek
barátta fyrir þessum rétti. Þúsund-
ir létu lífið í þeirri baráttu, allt
íhald þess tíma hervæddist gegn
lýðræðissinnunum, þeir voru taldir
vargar í véum, þeir voru settir ut-
an garðs, það var sagt að þeir væru
að rífa þjóðfélagið niður o. s. frv.
Allt voru þetta varnarorustur deyj-
andi menningar og úrelts skipulags,
og margur „varnarsigurinn" var
unninn, en þrátt fyrir allt sigruðu
lýðræðisöflin, stundum kostaði sig-
urinn blóðuga uppreisn, eins og í
geta sýslnanna sé takmörkuð:
„Það er með þá staðreynd fyrir
augum, að sýslurnar hafa lítil fjár-
ráð, og sýslunefndirnar eiga að líta
eftir að hreppsfélögin fari hyggi-
lega með fjármál sín og ani ekki
út í stórvafasöm fyrirtæki, sem
kynnu að ofþjaka greiðslugetu
hreppsbúa, að sýslunefnd Eyja-
fjarðarsýslu hefur talið sig af sið-
ferðilegum ástæðum — þótt öðru
væri sleppt — skylda til að ganga
á móti málaleitun Ólafsfirðinga
um nýja ábyrgð ofan á hundruð
þúsunda sem fyrir eru og sýslunni
munu reynast nægilega þungar ef
á reynir .... “
Þetta er klassiskt dæmi um
hina föðurlegu umhyggju drottin-
valdsins, sem gerir það sér til ynd-
is að láta undirsátann kenna á
valdi sínu, og þegar önnur rök
bregðast er þó alltaf hægt að nota
„siðferðið“ sem skálkaskjól, og
ekki sakar að ýkja ofurlítið til
þess að styrkja hinn „hreina
grunn“ siðferðisins.
Samkvæmt heimildum frá odd-
vita Ólafsfjarðarhrepps er Eyja-
fjarðarsýsla í ábyrgð fyrir 150 j
Framhald á 5. síðu. I
frönsku byltingunni 1789, stundunr
varð byltingin án uppreisnar eins
og í Danmörku og á íslandi, en
byltingin var hin sama í öllum til-
fellum, stéttir sem áður voru valda
lausar hófust til valda, nýtt þjóð-
félagsform var sett á laggirnar.
Það sem vannst
Auðvitað vann lýðræðið ekki
fullnaðarsigur í þessum átökum,
ekkert nýtt skipulag vinnur fulln-
aðarsigur í einu vetfangi, áratug-
um, jafnvel öldum saman er það að
þróast. Það lýðræði, sem barizt var
fyrir á síðustu og næst síðustu öld,
var hið borgaralega lýðræði, eins
og það hefur verið nefnt, og er í
því fólgið, að menn, sem hafa náð
vissum aldri (hér 21 árs) og upp-
fylla viss skilyrði, geti með atkvæði
sínu haft áhrif á hverjir stjórna
málefnum sveitarfélaganna og rík-
isins. Sá hópur, sem í fyrstu fékk
þennan rétt, var mjög takmarkað-
ur, enginn kvenmaður fékk kosn-
ingarétt, og aðeins þeir karlmenn,
sem áttu talsverðar eignir. Þannig
voru verkamenn án kosningarétt-
ar. Þróunin hefur siðan gengið í þá
átt að gera kosningaréttinn jafnan
og almennan, og þar sem öfl ein-
ræðisins hafa ekki þurrkað hið
borgaralega lýðræði út, er nú svo-
komið að kosningarétturinn er orð-
inn býsna jafn og almennur.
Hömlur á framkvæmd
í framkvæmdinni eru hinsvegar
ýmsar hömlur á kosningaréttinum..
Til þess að geta komið skoðunum
sínum á framfæri þarf að jafnaði
fjármagn. Af þessum sökum er það,
að hagsmunahópar innan auðvalds-
þjóðfélgsins bindast samtökum um
að gefa út blöð, og reka flokka.
Þeir sem vilja koma skoðunum sín-
um á framfæri, en eiga ekki sam-
leið me,ð einhverjum þeim hóp sem
hefur komið sér saman um að gefa
út blöð til að túlka skoðanir sínar,
eiga þess að jafnaði lítinn eða eng-
an kost að koma skoðunum sínum
á framfæri. Þannig verða flokkarn-
ir að vissu leyti hemill á lýðræð-
inu, og verður vissulega ekki hjá
því komizt undir núverandi skipu-
lagi.
Fullkomnara lýðræði
Sósíalistar berjast fyrir að full-
komna lýðræðið, bæði með því að*
gera öllum kleift að neyta þess og
með því að færa það inn á ný svið.
Stjórn sveitamála og ríkisins
varðar hvem einstakling vissulega
mikils, en stjórn atvinnumálanna
og hinna einstöku atvinnufyrir-
tækja varðar hann vissulega eins
miklu — og þó meira. Sósíalistar
berjast fyrir lýðræði í atvinnumál-
um, þeir vilja tryggjahverjumvinn
andi manni rétt til að hafa áhrif á
rekstur þeirra framleiðslufyrir-
tækja, sem hann vinnur við. Þessí
barátta er beint framh. baráttunn-
ar fyrir hinu borgaralega lýðræði,
og stefnir á engan hátt að afnámi
þess. Þvert á móti vilja sósíalist-
ar tryggja, eftir því sem auðið er,
að allir geti notið hins borgara-
lega lýðræðis; þetta verður tryggt
meðal annars með því, að gefa
öllum verkalýðsfélögum og hvers-
konar menningarfélögum aðgang
að prentsmiðjum og öðrum áróð-
urstækjum og með því að gefa
þessum sömu stofnunum réttinn
til að hafa menn í kjöri til sveitar-
stjórnar og þings. Hér er stuttlega
gerð grein fyrir lýðræðisbaráttu
sósíalista, og þess vænzt, að góð-
fúsir menn kjósi heldur að hafa
það sem satt er í þessu máli og.
öðrum, heldur en fleipur og rang-
færslur borgarablaðanna.