Þjóðviljinn - 04.04.1944, Blaðsíða 8
ft S 9 c e IS.B.W EÆll.fLttí»JUWaEB3EaSCI
Ljósatími ökutækja frá kl. 7.30
að kvöldi til kl. 5,35 að morgni.
Bifreiðastjóri varðlæknis er Gunn
ar Ólafsson, Frakkastíg 6 B. Sími
3391.
Næturvörður er í Reykjavík-
urapóteki.
Næturakstur: Hreyfill, sími
1633.
Næturlæknir í læknastöð
Reykjavíkur: Bergsveinn Ólafs
son, Ránargötu 20.
IJtvarpið í dag:
19.25 Hljómplötur: Arthur
Schweitzer leikur á orgel.
20.20 Tónleikar Tónlistarskól-
ans: Lög úr Pétri Gaut
eftir Grieg. (Hljómsveit
leikur, dr. Urbantschitsch
stjórnar).
21.00 Erindi: Um leiklist (Æv-
ar R. Kvaran lögfræðing-
ur).
21.25 Hljómplötur: Gömul
kirkjutónlist.
5/fíða/é/ag Reykjavíkur ráðger-
ir að fara skíÖaför upp á Hellis-
heiði á skírdag. Lagt á stað frá
Austurvelli að morgni kl. 9. Far-
miðar seldir hjá L. H. Muller
á miðvikudaginn til félagsmanna
til kl. 4, en kl. 4 til 6 til utanfé-
lagsmanna ef afgangs er.
Á laugardaginn fyrir páska, á
páskadag og annan páskadag er
ráðgert að fara skíÖaferÖir og
lagt á stað kl. 9 á morgnana.
Farmiðar seldir við bílana til fé-
lagsmanna, eftir því sem farkost-
ur leyfir.
Sigríður Jónsdóttir frá Fá-
skruðsbrekk.u, til heimilis að
Framnesveg 22B hér í bænum
andaðist þ. 1. þ. m.
Samtfðin
Samtíðin 3. hefti 1944 er ný-
komin út. Benedikt S. Gröndal
skrifar viðliorf dagsins: Frá sjónar
miði nýja stúdentsins. Ritstjórinn,
Sigurður Skúlason birtir þar grein
er hann nefnir: Arið 1944 kallar á
menningarverðmæti. Björn Sigfús-
son skrifar áttundu greinina um
íslenzka tungu: „Að fornu skal
hyggja, ef ...“
Þá er í heftinu kvæði eftir Nor-
dahl Grieg, í þýðingu Bjartmars
Steins. Ennfremur eru þar tvær sög
ur: Karl og kona eftir Sandor
Hunyady og úr dagbók Högna
Jónmundar eftir Hans klaufa. Auk
þess merkir samtíðarmenn, bóka-
fregnir o. fl.
87 þús bafa safnast
handa börnum í
ófriðarlöndunum
Fyrir nokkru var hafin söfnun
til styrktar nauðstöddum börnum
í ófriðarlöndunum. Hafði Sam-
band íslenzkra barnakennara
forgöngu um söfnunina. Hafa nú
safnast kr. 87 þúsund, þar af
82 þús. í Reykjavík.
Söfnunin er í fullum gangi,
Miðstöð söfnunarinar er í skrif-
stofu fræðslumála.
Frásögn Ole Kfílerichs
Framnald af 1. síðu
og annað þeirra í 50 þúsund. Blöð
þessi eru mikilvæg skipulagnings-
tæki og boðberar leynihreyfingar-
innar, og hefur nazistum ekki tek-
izt að hindra útgáfu þeirra, hvaða
ráðum sem beitt hefur verið. En
erfið er ritstjórn og útgáfa slíkra
blaða. Sex prentarar, sem prent-
uðu „Frit Danmark“ voru hand-
teknir og fangelsaðir þann tíma
sem Ole Kiilerich var ritstjóri þess.
SKEMMDARVERK
Árið 1943 blossuðu upp skemmd
arverk víðsvegar um Danmörku,
og var þar um víðtækar skipu-
lagðar aðgerðir að ræða af hálfu
neðanjarðarhreyfingarinnar.
Skemmdarverkunum var beint að
verksmiðjum sem unnu fyrir Þjóð
verja, samgöngulínum þýzka hers-
ins og rafstöðvum, er einkum var
beit't til mikilvægrar hernaðar-
framleiðslu.
•Að hér var ekki alltaf um þýð-
ingarlitlar aðgerðir að ræða má
marka t. d. af þeirri staðreynd,
að verksmiðjur firmans „Dansk
Riffelsyndikat“ framleiddu smá-
vopn fyrir þýzka herinn, að verð-
mæti þrjár milljónir króna á dag.
Aðalverksmiðjur Dansk Riffel-
syndikat í Kaupmannahöfn urðu
hvað eftir annað fyrir sprengju-
tilræðum skemmdarverkamanna,
og tókst loks að eyðileggja þær.
Skemmdarverkin fóru sífellt
vaxandi, svo að loks heimtuðu
Þjóðverjar að sett yrði dauðarefs-
ing við skemmdarverkum. Því
neitaði ríkisstjórnin ' með alla
dönsku þjóðina á bak við sig 28.
ágúst 1943. Ög daginn eftir sauð
uþp úr. Stjórnin fór frá og Þjóð-
verjar tóku öll völd í sínar hend-
ur, enda þótt danskir embættis-
menn sitji yfirleitt áfram í stöð-
um sínum til framkvæmdarstarfa.
Dönsku nazistarnir hafa frá upp
hafi verið í nánustu samvinnu við
innrásarherinn og framkvæmt
njósnir um landa sína. Úr þeirra
hópi hafa verið settir vopnaðir
varðmenn í helztu verksmiðjurn-
ar til að hindra skemmdarverk.
Engir eru meir hataðir af al-
menningi, og leggja menn neðan-
jarðarhreyfingarinnar kapp á að
vopna sig á þann hátt að ná af
þessum nazistaþjónum vopnum
þeirra.
NEÐANJARÐARHREYFING-
IN DANSKA, ÞJÓÐFYLKING
GEGN NAZISMANUM
Ole Kiilerich leggur áherzlu á
að neðanjarðarhreyfingin danska
sé þjóðfylking, hafin yfir alla
pólitíska flokka. Þar eru menn
af öllum stéttum og stigum, í-
haldsmenn og kommúnistar, og
hafa þeir eins og aðrir látið alla
misklíð falla til að sameinast í
baráttunni gegn nazismanum.
En nazistar telja, með réttu
eða röngu, að íhaldsflokkurinn
sé miðstöð (centrum) mótspyrnu
hreyfingarinnar, segir hr. Kiile-
rich, og í ágúst voru 29 þing-
menn íhaldsflokksins handteknir,
en enginn þingmaður annarra
flokka.
Eftir að styrjöldin hófst milli
Þýzkalands og Sovétríkjanna, og
Kommúnistaflokkurinn var bann
aður, varð hann mjög mikilvæg-
ur þáttur neðanjarðarhreyfingar-
innar, að því er hr. Kiilerich skýr
ir frá. Kommúnistaflokkar eru
þannig skipulagðir að þeir eru
undirbúnir leynistarf, og reynd-
ust dönsku kommúnistarnir vel
við útgáfu leyniblaða og skipu-
lagningu skemmdarverkanna.
Hófu þeir skipulagt samstarf við
menn af öðrum flokkum og lögðu
áherzlu á að hin sameiginlega
barátta yrði að sitja í fyrrúmi
öllum stefnumun að öðru leyti.
Hvað eftir annað hafa verka-
menn gert víðtæk verkföll, þeg-
ar hinum óbreyttu meðlimum
verklýðsfélaganna hefur þótt yf-
irgangur nazistanna keyra úr
hófi. Víða hefur þá orðið nær
allsherjarverkfall, búðum verið
lokað og almenningur sýnt á
margan hátt samúð sína. Verk-
fallsmönnum hefur verið séð fyr-
ir matvælum með skipulögðum
leynimarkaði og allt gert til að
hjálpa þeim.
FANGELSIN FULL, FLÓTTA-
MANNASTRAUMUR TIL
SVÍÞJÓÐAR
Fangelsi öll eru yfirfull af
pólitískum föngum. Til Þýzka-
lands hafa verið fluttir um 1000
Gyðingar og 300 Danir, þar af
um 100 kommúnistar, er verið
höfðu í haldi í Danmörku frá
22. júní 1941, og því óhugsandi
að þeir hafi getað tekið þátt í
skemmdarverkunum, er þeim
var gefið að sök.
Fimmtán Dani hafa nazistar
tekið af lífi samkvæmt herrétt-
ardómi og 20—30 manns hafa
látið lífið fyrir kúlum nazista í
götuóeirðum.
Stöðugur flóttamannastraumur
liggur frá Danmörku til Svíþjóð-
ar, og hefur verið tekið á móti
flóttamönnunum með dæmafárri
gestrisni. Venjulega fóru fáir í
einu, en dagana eftir 29. ágúst
1943, er danska stjórnin lagði
niður völd, hætti danska lögregl-
an strandgæzlunni, og komust
menn þá úr landi þúsundum sam
an, áður en Þjóðverjum vannst
tími til að skipuleggja strand-
gæzluna á ný.
Austurvígstöövarnar
Framhald af 1. síðu.
tekið um 200 000 Þjóðverja og
Lvistrað 44 herfylkjum.
1. úkrainski herinn nálgast
Lvoff , hliðarsókn. Yfir 20 bæir
og þorp hafa verið tekin í við-
bót þarna.
Rauði herinn sækir hratt til
Odessa úr austri og norðri. Tók
hann yfir 100 bæi og þorp á
þeirri leið í gær.
MOSKVA OG TEHERAN
Cordell Hull utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna lét mikla
ánægju í Ijós í gær í tilefni af
yfirlýsingu Molotoffs Sagði
hann, ,að Rúmenum ætti nú að
skiljast að ósigur Þjóðverja
væri þeim í hag.
(The Old Maid)
Hrífandi mynd eftir frægri
skáldsögu.
BETTE DAVIS,
MIRIAM HOPKINS,
GEORG BRENT.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NYJA BIÖ
„GÖG & GOKKE“ og
GALDRAKARLINN
(„A Hunting we will Go“)
Fjörug mynd og spennandi.
STAN LAUREL.
OLIVER HARDY.
og töframaðurinn DANTE,
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Lcikvöld Mennfaskólans
Kviklynda ekkjan
eftir L. Holberg verður sýnd í kvöld kl. 8.
UPPSELT.
Næsta sýning verður annan páskadag.
VWWWVWi
Hjartans þakklæti til allra sem sýndu mér
vinsemd með gjöfum, skeytum og heimsóknum 1 ■
, á fimmtíu ára afmælisdegi mínum, föstudaginn
31. marz.
Jónas Fr. Guðmundsson.
Hús brennur á
Akureyri
íbúarnir björguðust
Aðfaranótt sunnudags kom
upp eldur í húsinu Túngata 1 á
Akureyri. SlökkviUð bæjarins
gerði tilraunir til að slökktía eM*
inn, en án árangurs. Brann hús-
ið til kaIdra k°Ia• íbúar hússins
björguðust úr eldinum.
Hús þetta Var eign dánarbús
Sigurðar Bjarnasonar /jaup-
manns.
Kl. 1,30 varð vart við eldinn
og var slökkviliðið þegar kallað
til hjálpar, var þá miðhæð húss-
ins orðin svo að segja alelda og
breiddist eldurinn um allt húsið
litlu síðar.
Fólk það sem bjó á tveim
neðstu hæðunum bjargaðist með
naumindum út um dyr, en það
sem bjó á rishæðinni komst út
á svalir og þaðan niður stiga.
í húsinu bjuggu þrjár fjöl-
skyldur og allmargt skólapilta.
Misstu fjölskyldurnar næstum
allar sínar búslóðir og skólapilt-
arnir sína muni og nokkuð af
peningum.
Húsið brann til ösku á tæpri
klukkustund.
Utanríkisritarar heimsblaðanna
telja yfirlýsinguna stórmerkilega.
Sýni hún, að Rússar standi fast
við ákvarðanir ráðstefnanna í
Moskva og Teheran.
FINNLAND
Paasikivi er nú kominn til
Helsinki úr Rússlandsför sinni.
Finnska þingið hefur nú skýrslu
hans til athugunar. Sum blöð í
Svíþjóð telja, að Rússar muni til-
leiðanlegir til að slaka til á skil-
málum sínum, en önnur álíta að
það geti ekki komið til mála.
10 bús. kr. giöf til
Vinnuheimilis berkla-
sjúklinga
Sambandi ísl. berklasjúklinga
hefur nú borizt ein stórgjöfin
enn í vinnuheimilissjóðinn.
Haraldur Böðvarsson kaupmað
ur á Akranesi hefur gefið 10 þús-
und krónur til vinnuheimilissjóðs -
ins.
Norðmaður styrkir
íslendinga í Noregi
Samkvæmt tilkynningu frá ut-
anríkisráðuneytinu hefur Gunnar
Frederiksen, Melbu, Noregi, eig-
andi Krossanesverksmiðjunnar,
gefið kr. (norskar) 2000.00 til
styrktar íslendingum í Noregi.
Þetta er þriðja árið, sem Gunnar
Frederiksen gefur peninga ' til
styrktar íslendingum í Noregi,
sönui upphæð í hvert skipti, alls
kr. 6000.00, sem verið hefur mikil
hjálp mörgum íslendingunl, sem
í Noregi dveljast.
Vilh. Finsen, sendifulltrúi ís-
lands í Stokkhólmi, sér um út-
hlutun fjárins í samráði við Guðna
Benediktsson, formann íslend-
ingafélagsins í Oslo.
(Upplýsingaskrifstofa stúdenta).
ÁKI JAKOBSSON
héraðsdómslögmaður
og
JAKOB J. JAKOSSSON
Skrifstofa Lækjargötu 10 B.
Sími 2572.
Málfærsla — InrJieima
Reikningshald — Endurskoðun