Þjóðviljinn - 30.04.1944, Qupperneq 1
LESIÐ
Sunnudagur 30. apríl 1944.
greinina á Jf. og 5. síðu: Aldrei
framar atvinnuleysi — Banda-
lag alþýðustéttanna er mál
dagsins — Lýðveldi alþýðunn-
ar á íslandi.
Reykvísk alþýda sýndu máitlþínn og
Á morgun, 1. maí, baráttudegi verkalýðs og alþýðu
— allra starfandi manna anda og handa — í hverju
landi heims, fylkir reykvísk alþýða liði undir merkjum
samtaka sinna.
1. maí hyllir reykvísk alþýða hetjubaráttu þjóð-
anna, sem berjast fyrir frelsi sínu og tilveru, menningu
og réttlæti í heiminum.
Á morgun, 1. maí, hinum alþjóðlega baráttudegi,
treystir íslenzk alþýða einingu sína í baráttunni fyrir
atvinnu, menningu og réttindum fólksins, fyrir stofn-
un hins nýja lýðveldis á íslandi, fylkir liði í baráttunni
fyrir sköpun hins komandi íslands alþýðunnar, þar sem
atvinnuleysi og skorti verði útrýmt og öllum starfandi
mönnum tryggð atvinna, menning, öryggi og fullkom-
ið lýðræði.
Allir eitt undir merkjum samtakanna á morgun, 1.
maí. *
Ahugi reykvískrar alþýðu fyrir
1. maí-hátíðahöldunum hefur
aldrei verið eins mikill og að þessu
sinni. ,
Aðilar að háitiðahöldunum eru
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna,
Bandalag starfsmanna ríkis og
bœja og öll félög innan Alþýðu-
sambandsins. Fullkomin eining al-
þýðunnar ríkir á þessum 1. maí-
degi. — Enginn reykvískur al-
þýðumaður né kona má láta sig
vanta undir merki samtakanna á
morgun. . 4*
Fyrirkomulag hátíðahaldanna
verður sem hér segir:
Safnazt saman við Iðnó kl. 1.30.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
KRÖFUGANGAN.
Kröfugangan hefst kl. 2. Gengið
verður: Vonarstræti, Suðurgata,
Túngata, Ægisgata, Vesturgata,
Hafnarstræti, Hverfisgata, Frakka
stígur, Skólavörðustígur, Banka-
stræti og staðnæmzt í Lækjargötu.
ÚTIFUNDURINN.
Útifundurinn hefst þegar kröfu-
Fr«mkal4 á ». M*.
Loifáyáislr Bandamanna ^ ^
Serlín - Haiorg - Oslð ■ loiln
Stórar sveitir bandarískra sprengjuflugvéla gerðu
í gær harða árás á Berlín. Tóku um 700 sprengjuflug-
vélar og fjöldi orustuflugvéla þátt í árásinni.
Mótspyrna þýzka flughersins var mjög hörð og kom
víða til ákafra loftbardaga yfir Þýzkalandi, á leið flug-
vélanna til Berlín. Voru 88 þýzkar orustuflugvélar
skotnar niður. Bandaríkjamenn misstu 63 sprengjuflug-
vélar og 16 orustuflugvélar.
Sýning á barnafatnaði til Sovét-
ríkjanna.
Söfnunarnefndin, sem tekið hefur
að sér að gangast fyrir söfnun á
barnafatnaði handa nauðstöddum
börnum í Sovétríkjunum, heldur
sýningu á þeim fatnaði sem nefnd
inni hefur borizt, að Skólavörðustíg
19 (uppi) kl. 2—7 í dag.
Öllum ágóða af sýningunni verð-
ur varið til kaupa á fatnaði til
viðbótar.
Vér munum koma aftur, rúss-
neska kvikmyndin, verður sýnd í
Tjarnarbíó mánudag kl. 3 og 5 og
þriðjudag kl. 5 og 7.
Árásin var mjög hörð, og segja
Þjóðverjar að tjón hafi orðið mik-
ið, einkum um miðbik borgarinnar.
í fyrrinótt gerðu flugvélar
Bandamanna árás á flugvélaverk-
smiðju í nánd við Osló.
Þá fóru brezkar flugvélar einnig
til loftárása á Hamborg. Komu
þar upp miklir eldar og sprenging-
ar urðu í höfninni.
Bandamannaflugvélar frá bæki-
.stöðvum í Ítalíu gerðu í gær
árásir á frönsku herskipahöfnina
Toulon, og er það í fimmta skipt-
ið sem Bandamenn gera loftárás
á þá borg.
Norðmaður lýsir hinni
ægilegu sprengingu
í Björgvin
f fregn frá Stokkhólmi til
norska blaðafulltrúans hér hef-
ur borizt fyrsta norska frásögn
in um hina ægilegu sprengingu
í Björgvin, sem hingað til hef-
ur aðeins verið skýrt frá sam-
kvæmt þýzkum fregnum.
Sprengingin varð þannig að
þýzkt tundurduflaskip rakst á
benzíntankskip við Virkisbryggj
una. Kom upp eldur og læsti
hann sig í skip sem hlaðið var
sprengiefnum og urðu tvær stór
kostlegar sprengingar hvor eft
ir aðra.
Sprengiefnaskipið lagðist
saman og mikil flóðbylgja féll
inn fjörðinn, Stórt strandferða-
skip ,,Rogaland“ sökk við
bryggju og mörg smærri skip
og bátar moluðust. Fólk sem
var á gangi við höfnina féll um
koll af vatnsþunganum sem á
því skall og er talið að margir
hafi farizt af því.
En ægilegust urðu áhrif loft-
þrýstingsins. Stórar og traustar
byggingar blátt áfram fuku um
koll. Hlutar úr skipunum sem
sprungu í loft upp slengdust langt
inn yfir bæinn. Fólk í sporvögn-
um hentist út um gluggana og
börn hrukku út úr húsagluggum.
Á svipstundu voru göturnar fullar
af hrundum húsveggjum og braki.
Alstaðar lágu lík og fólk ranglaði
um með alblóðug andlit, margir
blindir. Víða kviknaði í húsunum
út frá eldstæðum.
í húsi Bergenska eimskipafé-
lagsins fórust 22 skrifstofumenn
og verkamenn en 14 særðust al-
varlega.
Tilkynning Þjóðverja, um að
enginn þýzkur maður hafi farizt,
er fjarstæða.
Daeur á vinnustað
Gauti Hannesson fékk
verðlaun vikunnar
Verðfaun vikunnar fyrir grein
um vinnudag hlaut Gauti Ilann-
esson kennari fyrir grein frá
Grímsey.
Af sérstökum ástæðum verður
ekki tilkynnt um breytinguna á
Avarp
frá fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði
Hafnfirzkur verkalýður!
1. maí er dagur verkalýðsins um allan heim.
Við þann dag eru tengdar margar helgustu minn-
ingar úr baráttusögu verkalýðshreyfingarinnar.
Nú, þegar hafnfirzkur verkalýður stendur sameinað-
ur að þessum degi, minnist og fagnar unninna sigra,
dregur lærdóm af reynslu liðinna ára og safnar kröft-
um til nýrra átaka í baráttunni fyrir velferðarmálum
sínum, skorar fulltrúaráðið á verkalýðinn í bænum, að
sýna einingu og mátt sinn með virkri þátttöku í kröfu-
göngunni og öðrum hátíðahöldum dagsins.
Heitum því á þessum degi að gera sigur alþýðusam-
takanna — sigur verkalýðsins — sem mestan.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði
Hermann Guðmundsson, Jóhann Tómasson, Guðrún
Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Sigríður Erlendsdóttir,
Sigurrós Sveinsdóttir, Pálmi Jónsson, Jón Sn. Jónsson,
Magnús Guðjónss., Helgi Sigurðss., Bjarni Erlendsson.
1. maí verður með nýjum hætti í Hafnarfirði. í
fyrsta sinni í sögu Hafnarfjaiðar fylkir hafnfirzk al-
þýða sér út á götuna í kröfugöngu og heldur útifund.
bumarhefir Sovétríkj-
enna albúnir til sóknar
Fréttaritarar í Moskva telja að
sumarherir Sovétrílcjanna bíði nú
albúnir stórkostlegra hemaðarað-
gerða, en miðnœturtilkynning sov-
étherstjómarinnar í nótt var enn
á þá leið, að engar meiriháttar
breytingar hafi orðið á austurvíg-
stöðvunum síðastliðinn sólarhring.
Herskip úr Svartahafsflota Sov-
étríkjanna náðu í gær á vald sitt
tveimur þýzkum skipalestum, sem
reyndu að laumast burt frá Sev-
astopol með þýzkt lierlið og her-
gögn.
222
f gær höfðu 222 kjósendur
greitt atkvæði hér í Reykjavík
um lýðveldismálið.
Af þeim voru 62 innanbæj-
armenn.
samkeppninni sem boðuð var s.l.
sunnudag fyrr en á fimmtudaginn
kemur. En óhætt er að halda á-
fram að senda vinnudagsgreinar.
Fyrirkomulag hátíðahaldanna
verður þannig:
Safnazt verður saman við
Verkamannaskýlið kl. U/2-
Kröfugangan hefst kl. 2. Geng-
ið verður Vesturgata, Vesturbraut,
Hcllisgata, Hverfisgata, Lækjar-
gata og Strandgata og staðnæmzt
við Brydehúsið á Vesturgötu.
Þar flytja ræður: Guðgeir Jóns-
son, forseti Alþýðusambands ís-
lands; Hermann Guðmundsson,
foi'maður Hlífar; Kristján Eyfjörð,
formaður Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar, og Sigurrós Sveinsdóttir,
formaður Verkakvennafél. Fram-
tíðin.
Um kvöldið verða skemmtanir.
Barnaskemmtun verður i Hafn-
arfjarðarbíó kl. 5.
Góðtemplarahúsið. Skemmtun
hefst í Góðtemplarahúsinu kl. 9.
Þar flytja ræður Ólafur Jónsson,
ritari Hlífar, og Sigríður Erlends-
dóttir, ritari V.k.f. Framtíðin.
! Bjöminn. Kvöldskemmtun verð-
. ur einnig i Hótel Birninum. Þar
flytur ræðu Óskar Jónsson.
I. nnaí-merkið verður selt á göt-
unum allan daginn.
Hjálmur, blað Hlífarmanna,
helgaðíir deginum, verður einnig
seldur á götunum.