Þjóðviljinn - 30.04.1944, Page 5
ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 30. apríl 1944
Sunnudagur 30. apríl 1944 — ÞJÓÐVILJINN
þJÓÐWILJINN
Btgefandi: UmrnnimfarfUhhur aIþýtu — iirUiUtaiUhkmrma.
Bitatjórí: Sigurtur Ouðmvudrsm.
StjónunAUriUtjórar: linur Olgárrrtu, Siffit SifurkjarUrreu
Sitstjóruarikrifitofa: Aurturrtrmti lt, tími 8*70.
Afgreiösla o( anglýsingar: SkóUvortuttt/ lt, tími tlH.
PreatamiSja: Yikmfrfrmi k.f., Qmrtuitrwii 1T.
iskriftarrarð: I Keykjarik ag aágraaai: Kr *.M á asáanM.
YSti á laa«: Kr. 6M á a^aaCL
„Lifi eining alþýðunnar — lifi hið ís-
lenzka lýðveldi”
Á morgun fara Reykvíkingar, þeir sein unna frelsi og jafnrétti, út á
göturnar, undir kjörorðunum — „Lifi eining alþýðunnar — Lifi hið ís-
lenzka lýðveldi“.
Saga mannkynsins er saga um baráttu manns gegn manni, stéttar
gegn stétt og þjóðar gegn þjóð. Ófögur saga, saga sem ekki mætti end-
urtaka sig, saga sem ekki endurtekur sig, ef eining alþýðunnar í öllum
löndum verður að veruleika.
Mannkynið fær ekki varanlegan frið fyrr en menn koma sér saman
á grundvelli réttlætisins, og sá grundvöllur verður ekki lagður nema
þurrkaðar séu út allar hagsmunaandstæður milli einstaklinga, stétta
og þjóðar. Hið kaldrifjaða lögmál auðvaldsþjóðfélaganna, að eins dauði
sé annars líf, verður að víkja fyrir bræðralags- og jafnréttishugsjónum
sósíalismans. ; |
•
„Lifi eining alþýðunnar". Ilvað þýðir eining alþýðunnar, um hvað
er sú eining? Þannig spyr hinn raunhæfi maður. Og svarið er raunhæft.
Eining alþýðunnar er eining hins vinnandi fjölda í baráttunni fyrir
betri lífskjörum, hún er eining um bræðralag og jafnréttishugsjónina,
hvort sem við viljum kenna þá hugsjón hugsjónanna við Jesú frá
Nazaret eða sósíalismann. En sá fjöldi, sem fer út á göturnar í Reykja-
vík á morgun, sá fjöldi, sem uin allan heim hyllir hugsjónir verkalýðs-
hreyfingarinnar, hvort sem hann gerir það með hlekk um fót, eða með
vopn í hönd, hugsa ekki lengur á draumórakenndan hátt um jafn-
rétti og bræðralag. Bitur reynsla liðinna alda hefur kennt, að það þarf
raunhæfa stjórn fjármála og atvinnumála þjóðanna til að reisa ríki
jafnréttis og bræðralags; þess vegna er eining alþýðunnar sköpuð um
hinar raunhæfu kenningar sósíalismaijs; þess vegna sameinast alþýðan
um að byggja upp hið stéttlausa þjóðfélag sósíalismans, þar sem sam-
vinna og sameign kemur í stað samkeppni og sérhagsmuna. Örlög ís-
lenzku þjóðarinnar á næstu árum eru undir því komin hversu vel hún
bregzt við kallinu um einingu alþýðunnar, og örlög mannkynsins eru
undir því komin hversu vel hinar fjölmörgu þjóðir heims bregðast við
hinu alþjóðlega kalli um einingu alþýðunnar.
Lifi eining alþýðunnar!
•
Lifi hið íslenzka lýðveldi! Þetta er ósk og baráttumál hvers ein-
asta íslendings sem það nafn verðskuldar. Allir taka undir kröfuna um
stofnun lýðveldisins 17. júní, um það mál er fullkomin þjóðareining.
En alþýðan, sem fylkir sér undir merkið á götunum á morgun, skilur
að stjórnarfarslegt sjálfstæði og stofnun lýðveldis er ekki nóg, þó mikil-
vægt sé. Atvinnulífið verður að vera með þeim hætti að fjárhagslegt
sjálfstæði sé tryggt, og innanlandsmálum verður að vera skipað með
þeim hætti að frelsi og sjálfstæði hvers einstaklings sé tryggt. Aðeins
völd hins vinnandi fjölda geta tryggt þetta, þess vegna samcinast al-
þýðan til þess að gera hið íslenzka lýðveldi að frjálsu samfélagi, jafn
rétthárra manna, þar sem öllum er tryggður rétturinn til hagsældar.
Það voru stríðandi hagsmunir höfðingja, sem sátu yfir hlut alþýðunnar,
sem ollu því að hið forna íslenzka lýðveldi leið undir lok. Það var
barátta nokkurra manna um auð og aðstöðu til að hirða arð af vinnu
alþýðunnar, sem lagði þrældómsfjötrana á íslenzku þjóðina árið 1262,
fjötrana sem voru óslitið í meira en 700 ár. Það er enn barizt um auð
og aðstöðu til að hirða arð af vinnu íslenzkrar alþýðu, hvort það eru
Sturlungar og Haukdælir eða Kveldúlfar og heildsalar, sem berjast,
skiptir engu máli, niðurstaðan getur orðið ein og hin sama, glötun ís-
lenzka lýðveldisins.
Þess vegna fylkir alþýðan sér undir merki liins stéttlausa þjóð-
félags, þar sem hagsmunaandstæðurnar eru ekki til, þar sem allt fjár-
magn og framleiðslukerfi þjóðarinnar er tekið í þjónustu alþjóðar,
einkis eins öðrum fremur, slíkt þjóðfélag á íslandi við hlið slíkra þjóð-
félaga í umheiminum, er eina tryggingin, sem sett verður fyrir lífi og
framtíð hins íslenzka lýðveldis.
Lifi íslenzka lýðveldið! —
Frá 1. maí liðinna ára
;.r-^7T"~
„Frelsun alþýðunnar verður
að vera hennar eigið verk.“ Á
þessum gömlu og nýju sannind-
um er byggð helgun þessa al-
þjóðlega baráttu- og hátíðis-
dags vinnandi stétta.
í meira en 4% ár hefur geis-
að um heiminn mannskæðari
og umfangsmeiri styrjöld en
áður eru dæmi til, og ekki verð
ur enn séð hve miklu verður
fórnað í lifandi og dauðum verð-
mætum, áður en vopnaviðskipt
um lýkur.
En það, sem skipar styrjöld
þessari á séístakan bekk í
sögunni er hið stéttarlega og
og pólitíska eðli hennar,
hin gagnstæðu sjónarmið al-
þýðu og lýðræðissinna annars
vegar, en auðstéttar og fasisma
hinsvegar. — Hér eigast við
með vopn í hönd: kapítalismi
á grimmasta stigi, miskunnar-
laust forréttindavald yfir gögn-
um og gæðum jarðar, tryllt
heimsvaldastefna sundurvirkra
þjóðfélagshátta, sem leiða til
kreppna í heiminum, — hins
vegar sjónarmið alþýðunnar,
Jón Rafnsson.
fólk taka örlög sín í eigin hend-
ur. Verður þá áreiðanlega ekki
spurt um stjórnmálaskoðanir
eftir gömlu mati né annað, sem
áður varð að sundrungarefni,
heldur aðeins þessu: villtu af-
má með oss smánarblett stríðs-
glæpamennskunnar og byggja
upp með oss skynsamlegt og
mannsæmandi þjóðfélagsskipu-
lag? — Og jafnvel hin vegvillta
baráttuorka alþýðunnar í lönd-
1. maí 1944
Alþýða Reykjavíkur fylkir liði út á götur höfuðborgarinnar á morgun, — fylkir ser um kröf-
ur sínar til fullkomins og fagurs lífs, um hugsjónir sínar: frelsi, jafnrétti, brœðralag.
Jén Rafnsson
og andfasista, þ. e. lýðræði
fólksins, sem markast af íhlut-
unarvaldi hins vinnandi fjölda
um stjórn framleiðsluaflanna
þ. e. samvirkir þjóðfélagshætt-
ir, sem fyrirbyggja kreppur og
styrjaldir og tryggja börnum
jarðarinnar varanlegan frið og
farsæld.
Frá því fyrir ári síðan hefur
her lýðræðisins á austurvíg-
stöðvum Evrópu hrakið fénd-
urna að mestu úr hinum víð-
áttumiklu löndum sínum og
gefið þýzku fasistunum það
rækilega ráðningu, að gálga-
frestur þeirra virðist nú ekki
hvíla á öðru en seinlæti banda-
manna, í því að framkvæma
hina hátt umtöluðu innrás sína
úr vestri á Evrópuvirki fasism-
ans. — Fregnir sem berast frá
hinum herteknu löndum þýzku
fasistanna virðast mjög á einn
veg um hina siðferðilegu ein-
angrun nazismans þar, og er
það ekki nema að vonum. Millj-
ónirnar, sem eiga að baki sér
reynslu tveggja styrjalda munu
trauðla gjalda jákvæði, að sag-
an endurtaki sig. Milljónirnar,
sem kynnzt hafa lífinu þar um
slóðir og horft í augu við dauð-
'ann og tortíminguna á vígvöll-
unum eða þurft að búa undir
handarjaðri nazistanna í heima
löndum Evrópu, munu áreiðan-
lega þess ófúsar, að leyfa í lönd
um sínum framar stríðsævintýra
menn við völd. Öll skynsamleg
rök hníga í þá átt, að í krafti
dýrkeyptrar reynslu, muni hið
stríðshrjáða og friðelskandi
um fasismans mun á sínum
tíma, — eins og þegar hefur
örlað fyrir á Ítalíu, kannski í
ríkari mæli en oss grunar nú —
mun renna í sama farveginn,
svo mikið geta mennirnir lært
af tveim heimsstyrjöldum, með
aðeins tuttugu ára millibili.
I dag flykkist íslenzk alþýða
undir merki hagsmuna sinna og
hugsjóna, í ríkari mæli en
nokkru sinni áður. — Aldrei
hafa fleiri íslenzkir hugir
beinzt með lotningu og þakk-
læti til hetjubaráttu Ráðstjórn-
arlýðveldanna, aldrei risið því-
lík alda samúðar með hetju-
skap Norðmanna, Dana, Júgó-
slava, Frakka og annarra þjóða,
sem fórna nú mestu í þágu
allra, sem unna menningu og
lýðfrelsi.
Islenzk alþýða minnist nú í
dag sigra sinna á liðnum tíma
og ber fram kröfur sínar og
kjörorð fyrir komandi tíð. Hún
strengir nú þess heit, að vernda
og efla þá stéttarlegu einingu,
sem ríkt hefur innan hagsmuna
samtaka hennar á síðari árum
og hún á sína stærstu sigra að
þakka. Hún er staðráðin í því
að standa vörð um 8 stunda
vinnudaginn sem eitt þýðingar-
mesta hagsmuna- og menning-
arspor, sem stigið hefur verið
af stéttarsamtökum hennar.
Hún er ákveðin í að halda á-
fram baráttunni gegn dýrtíð-
inni. Minning þeirra afhroða,
er hún hefur goldið af völdum
sjóslysa í seinni tíð lætur hún
Úli í Evrópu fylkir alþýðan liði til orustu, til vopnaðrar úrslitahríðar við fasismann. Dýr-
ustu fómir, sem nokkru sinni hafa verið fœrðar fyrir frelsið á þessari jörð, hafa verið fœrðar und-
anfarin ár af Sovétþjóðunum og bandamönnum þeirra, — og munu verða fœrðar af öllum þessum
frelsisunnandi þjóðum r^ú á nœstunni, unz sigur er unninn á fasismanum.
Það er ekki krafist mikilla fórna af oss íslendingum í þessari frelsisstyrjöld, nema sjómönn-
um vorum. Þeir jœra — eins og þúsundir stéttarbrœðra þeirra af þjóðum alheimsins — hundruð-
um satrian þá dýrustu fórn, sem noklcur einstaklingur getur jœrt,'— lífið.
En þó alþýða íslands megni lítið að gera til þess að sigúr vinnist yfir fasismanum í Evrópu,
— þá er þó eftir hinn hluturinn, eftir að nazisminn er að velli lagður, — og það er að tryggja að
aldrei framar geti harðstjóm aftur náð tölcum á þjóðunum. Og það hlutverk verður alþýða og all-
ir frjálshuga menn hverrar þjóðar sjálfir að inna að liendi.
Alþýða tslands getur tryggt það að eftir þetta stríð þurfi atvinnuleysi, fátœkt og menntun-
arskortur aldrei að hrjá þessa þjóð. Alþýðan getur þurrkað burt smánarblett eymdar og órettlœt-
is af lancli voru um alla eilífð, — ef hún bara vill það, vill það nógu sterkt, vill það öll.
Og þann vilja á alþýðan að sýna á morgun, 1. maí. — Þess vegna á öll alþýða Reykjavíkur
að fylkja sér undir fána verklýðssamtakanna á morgun.
Alþýða íslands býr sig til þess að leggja sittlóð í vogarskálina við þjóðaratkvœðagreiðsluna í
vor. Alþýðan fagnar því eins og öll íslenzlca þjóðin að loks skuli lýðveldi verða slcapað á íslandi
eftir sjö alda erlenda konungsstjórn.
Vor kynslóð hefur lítið þurft á sig að leggja til þess að öðlast það stjómarfarslega frelsi, er
vér nú hljótum til fulls íslendingar. Vér uppskerum 17. júní það, sem kynslóðirnar á undan oss
sáðu, — vér hlutum ávextina af erfiði þeirra, baráttu og fórnum.
En hitt er eftir: að varðveita það þjóðfrelsi, er vér nú idjútuni, og fullkomna það með því að
hindra hverskonar ánauð á þjóð vorri í hvaða formi, sem reynt skyldi verða að klœða hana. Það
reyndist glœsilegri kynslóð Snorra Sturlusonar ofvaxið að varðveita þjóðfrelsi vórt fyrir 700 árum,
og er þó ágangur stórvelda meiri nú. Land vort var fjarri öllum óðrum löndum þá, en nú er það
orðinn einn af miðdeplum heimssamgangna. Það er því engan vcginn lítill sá hlutur, sem kynslóð
vorri er œtlað að vinna. „Eigi er minni vandi að gœta fengins fjár en afla“ — segir spakmœlið.
íslenzku alþýðusamtókin eru sterlcasta stoð íslenzks lýðrœðis. Einliuga, sterk alþýða var það,
sem oss íslendinga skorti á Sturlungaöld, til þess að geta varðveitt frelsi vort. Einhuga, sterlc al-
þýða er í dag fyrsta skilyrðið til þess að takast megi að gera lýðveldið sterlct og þjóðfrelsið raun-
hœft.
Alþýða Reykjavíkur, — verkamenn, menntamenn, millistéttir, — fylkja liði út á götur höf-
uðborgar hins komandi íslenzka lýðveldis, undir fánum fóðurlandsins, bláum, rauðum, hvítum, —
til þess að sýna vilja sinn til að vernda þjóðfrelsið, og mátt sinn til að fullkomna það. — Og það
má enginn sitja heima, þegar þjóðinni ríður á að synir hennar og dœtur sýni vilja sinn til verka.
* \
ALLIR EITT 1. MAÍ! '. '.
ALLIR ÚT Á GÖTUNA 1. MAÍl
eigi þagna kröfur sínar um
aukið öryggi á sjó. — Hún ger-
ir sér þess fulla grein, að enn
eru eigi upp fylltar margar
hennar gömlu kröfur, sem enn
eru í sínu gildi. Þess vegna ber
enn við loft í kröfugöngum
hennar í dag, krafan um sömu
laun fyrir sömu vinnu, krafan
um bættan og aukinn húsa-
kost, fleiri og betri mennta-
stofnanir, aukna barna- og
mæðravernd, nýja og betri
spítala, fullkomnari alþýðu-
tryggingar o. s. frv.
En þau kjörorð sem einkum
setja framar venju svip á há-
tíðahöld hennar í dag, eru
þessi:
Aldrei framar atvinmileysi.
Samvinna verkamanna, fiski-
manna og bænda.
Bandalag alþýðustéttanna er
dagsins mál.
ísland lýðveldi 17. júní.
Reisum lýðveldi alþýðunnar
á íslandi.
íslenzk alþýða hefur ekki
gleymt því hvað hún varð að
þola forðum, á dögum atvinnu-
leysisins, og hún er staðráðin í
því að neyta allrar sinnar orku
til að nindra endurkomu þess.
Hún minnist ekki einvörðungu
skortsins og ömurleikans, sem
voru í fylgd með atyinnuleys-
inu, hún man gjörla hversu
handtamt og beitt vopn at-
vinnuleysið reyndist andstæð-
ingunum, til að auðmýkja hana
og rýra kosti hennar á alla
lund. — í atvinnuleysinu sér
alþýðan 8 stunda vinnudegin-
um stefnt í voða, sömuleiðis
orlofslögunum, öryggismálun-
um á sjó og landi og yfirleitt
flestu því, sem hinn starfandi
fjöldi hefur nú á stríðsárunum
Kröfuganga leggur af stað frá Iðnó
Kröfuganga fer upp ILverfisgötu
•v
unnið á sér til hagsbóta, með
afli samtakanna. — Þetta skilja
andstæðingar alþýðunnar
manna bezt, þess vegna óska
þeir atvinnuleysis eins og
skíðamaður snjóa.
En það eru fleiri en verka-
maðurinn og sjómaðurinn, sem
hafa gildar ástæður til að ugga
um hag sinn ef vágestur at-
vinnuleysisins yrði hér aftur
landfastur. — Það eru m. a.
hinir vinnandi smáframleiðend
ur til sjávar og sveita.
Atvinnuleysi eða ekki at-
vinnuleysi í landi voru eftir
stríðið, er m. a. spurningin um
það, hvort nokkrir fjársterk-
ustu stríðsgróðamennirnir eiga
að fá að drottna yfir stórvirk-
ustu og arðgæfustu framleiðslu
tækjum þjóðarinnar, yfir veltufé
hennar og erlendum gjaldeyri,
hvort nokkrir stórlaxar eiga
sem fyrr að hafa í sínum hönd-
um nær óskorað vald yfir verzl
un þjóðarinnar við aðrar þjóð-
ir í eigin hagsmunaskyni, hvort
þessar auðmannaklíkur, sem
munu innleiða sama búskapar-
lagið og ríkti á kreppuárunum,
eiga enn að fá aðstöðu til að
gerast herrar atvinnu- og við-
skiptalífs þjóðarinnar, leggja
atvinnuveg smáframleiðenda
við sjóinn í rústir og koma þar
með á stofn atvinnuleysi í stór-
um stíl, sem mundi leiða af sér
markaðskreppu í landbúnaðin-
um og hrun fyrir fjölda vinn-
andi bænda — eða hvort sú
stefna verði tekin í þessum mál-
um, að hinir vinnandi framleið
endur verði gerðir að herrum
sinnar eigin framleiðslu í land-
inu, utanríkisviðskipti vor verði
rekin sem-mest eftir samræmdri
áætlun íslands og samstæðra
nágrannalanda vorra,. — Þær
hundruð milljóna króna, sem
íslenzk alþýða hefur á stríðsár-
unum sótt í greipar Ægis, við
mikla áhættu og safnazt hafa í
erlendum gjaldeyri, verði notað
ar til að koma atvinnulífi voru
til lands og sjávar á öruggan
grundvöll og þjóðarbúið yfirleitt
rekið með hag heildarinnar fyr-
ir augum, en ekki gróðafíkn og
vild fárra einstaklinga----------
þetta er spurningin um það,
hvort hér eigi að ríkja eftir
stríð þjóðfélagsvöld fámennrar
auðstéttar, eins og fyrir stríðið,
— eða hvort hér verður komið
á lýðræði, sem markast af yfir-
ráðum hinna vinnandi stétta yf-
ir tækjum, sem framleiða auð-
inn úr skauti náttúrunnar, þ. e.
stjórn alþýðunnar í landinu. Að
Vordagur
Alþýðustéttir, t'imans kr'ófur kalla,
konur og menn, með stritsins ok á baki,
lát strætin glymja af fjölda fóta taki,
fastar, í takt við lúðrana, sem gjalla.
Velkominn, út við sjó og fram til fjalla,
frelsisins dagur. Undir hverju þaki,
þrumar þitt orð, með viljans vopnabraki:
—— Vinnu og brauðs vér krefjumst fyrir alla.
Baráttudagur, f 'ógnuð þinn ég finn
fylla mitt hjarta — hvetja mig til stríðsins,
sem heyjum vér unz verður marki náð.
Þrunginn, af vori, berðu boðska-p þinn,
um borg og sveit, í nafni verkalýðsins,
sem komu þína hefir heitast þráð.
Óskar Þórðarson frá Haga.
þessari lausn stefnir barátta
hinna vinnandi stétta fyrir brýn
ustu hagsmunamálunum, svo
sem eins og baráttan gegn at-
vinnuleysinu.
Á úrslitum þessarar baráttv
milli fámennis og fjölmennis
um yfirráðin í þjóðfélaginu, get-
ur einnig oltið gifta íslands í'
sjálfstæðisbaráttunni: það hvort
hér verður lýðræði formsins,
eins og víða er þekkt í auðvalds
heiminum, eða lýðræði fólks-
ins, — hvort hér situr að völd-
um innlent umboðsvald erlendra
arðræningja, ráðið upp á hlut,
eða hinn vinnandi fjöldi til
anda og handar, sem á alla ham
ingju sína, velferð og heitustu
óskir tengdar við raunverulegt
sjálfstæði íslands, ræður hér
ríkjum.
Það er því ekki að ófyrirsynju
að sterkasta samtakaaflið með
þjóð vorri, Alþýðusamband ís-
lands, hvetur nú allar vinnandi
stéttir Islands til bandalags um
hagsmuni sína og hugsjónir og
leggur áherzlu á sjálfstæðismál-
ið. — Það er ekki heldur að ó-
hugsuðu máli, að þúsundir al-
þýðufólks úr hinum ýmsu starfs
greinum til sjós og lands, starfs
manna, menntamanna og lista-
manna fylkja sér nú undir
merki alþýðunnar, undir kjör-
orðin
Aldrei framar atvinnuleysi!
Lifi samvinna verkamanna,
fiskimanna og bœnda!
Bandalag alþýðustéttanna
er mál dagsins!
ísland lýðveldi 17. júní!
Reisum lýðveldi alþýðunn-
ar á íslandi!
Sömti laun —■
Framhald af 3. síðu.
tegund af vinnuafli. Launin eru og
eftir því. Konur í hœsta flolcki
kvenskrifara fá lœgri laun en karl-
maður í lœgsta launaflokki.
Með bankana hér gegnir sama
máli að því er sagt cr. Þeir telja
sig þó borga sömu laun fyrir sömu
vinnu. Aðferðin til þess að halda
niðri kaupi kvennanna cr aðeins sú
að láta stúlkurnar aldrei fá bezt
launuðu störfin.
Þessi dæmi ættu að nægja til
þess að sýna þann mikla mun,
sem er enn á kjörum kvenna og
karla.
SAMTÖK ERU MÁTTUR.
Það er staðreynd, að hvað launa-
jöfnuð við karlmennina áhrærir
stöndum við í sömu sporum og
við stóðum fyrir 30 árum, það
megum við með kinnroða viður-
kenna. Það er sök okkar kvenn-
anna sjálfra, að minnsta kosti að
einhverju leyti. Við höfum eltki
enn skilið, að við þurfum ekki að
vænta þess að slíkum réttindum
verði troðið upp á okkur án bar-1
áttu okkar sjálfra.
Við munum þurfa að berjast fyr-l
ir hverju fótmáli sem við stígum
fram á við, til jafnréttis, á því er ■
enginn vafi. En nú er hentugri
tími til slíkrar baráttu, en nokkurn
tíma fyrr, þar sem eftirspurn eftir
vinnu kvcnna er jafnmikil.
Það er manndómsleysi og virð-
ingarleysi fyrir okkur sjálfum að
láta alltaf, bæði í félagslífinu og at-
vinnulífinu skipa okkur á annan
og óæðri bekk en karlmönnum.
j Við erum lítilsvirtar og verðum
það svo lengi sem við þannig lítils-
virðum oklcur sjálfar.
A morgun skulum við fylkja okk
'jr undir merkið: „Sömu laiín fyri'
sömu vinnu", og fylgjum því fast, \
hvern dag og hverja stund í fram-
tíðinni. Enn erum við konur sér-
sliik þjóð innan þjóðfélagsins,
lægsta stétt mcðal lágstéttanna.
Við verðum sem slíkar að hafa
okkar cigin samtök. Ilöfum hug-
fast að samtök alþýðunnar al-
mennt hafa gert hana að því valdi
sem bæði atvinnurekendur og
stjórnmálamenn beygja sig fyrir.
Slíku valdi getum við konur náð
í þeim málum sem við eruíu sam-
huga um.
1. mai
Framhald af 1. síðu.
gangan liefur staðnæmzt í Lækj-
argötu. Ræður flytja: Guðgeir
Jónsson, forseti Alþýðusambands
íslands; Eggert Þorbjarnarson,
formaður Fulltrúaráðs verklýðsfé-
laganna; Jóhanna Egilsdóttir, for-
maður Verkakvennafélagsins Fram
sókn; Sigurður Thorlacius, for-
maður Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja; þlannes Stephensen,
varaformaður Dagsbrúnar; Sigur-
jón Á. Ólafsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavikur, og
Stefán Ögmundsson, formaður
Ilins íslenzka prentarafélags.
1. MAÍ-MERKI.
Merki dagsins verður selt á göt-
unum allan daginn. Vinnan, tíma-
rit Alþýðusambands íslands, nýtt,
fjölbreytt og skemmtilegt hefti,
verður einnig selt á götunum.
KVÖLDSKEMMTANIR.
Um kvöldið verða skemmtanir
])rem samkomuhúsum.
Iðnó. Skemmtunin í Iðnó hefst
kl. 9. Þar flytur ræðu Guðjón
Benediktsson, ritari Múrarasveina
fél. Rvíkur; Brynjólfur Jóhannes-
6on les upp, og kór, undir stjórn
Jóns ísleifssonar, syngur.
Alþýðuhúsið við Ilverfisgötu.
Skemmtunin hefst kl. 9. Þar flyt-
* ur ræðu Ágúst Pétursson, kór,
r undir stjórn Jóns ísleifssonar, sýng
ur, Brynjólfur Jóhannesson og
Sigurður Einarsson docent lesa
. upp.
Listamannaskálinn. Skemmtun-
in hefst kl. 9. Mandolínhljómsveit
Reykjavíkur leikur; Þuríður Frið-
riksdóttir, formaður Þvotta-
: kvennafél. Freyja, flytur ræðu;
Soffía Guðlaugsdóttir leikkona les
> upp, og Ólafur Magnússon frá
I Mosfelli syngur einsöng.
I Aðgöngumiðar verða seldir í öll-
. um húsunum kl. 5—6 e. h. 1. maí.
|' Kvölddagskrá lítvarpsins verð-
ur helguð 1. maí.
Treystum samtók okkar til bar-
áttu fyrir sómu. launum fyrir sömu
vinnu og sama rétti til hverskonar
verknáms.
Veruvi samtaka og við munum
sigra.
K. P.
i.i