Þjóðviljinn - 23.06.1944, Síða 7
Föstudagur 23. júní 1944.
KÖRALEYJAN,
rak á Iand. Þar rotnaði hann. Nokkur grasfræ höfðu
leynst’ í djúpri rifu. — Og það leið ekki á löngu, áður
en eyjan var orðin algræn.
Loksins kom kókoshnetan aftur.
„Berðu mig á land,“ sagði hún við eina ölduna.
Kókoshnetan skaut rótum og varð undurfagurt tré.
Það„ bar margar hnetur, sem féllu til jarðar og urðu
líka tré. Smám' saman óx upp pálmalundur. Fuglar
komu og gerðu sér hreiður í greinunum. Fiðrildi, býflug-
ur og blóm komu fyrr en varði.
Og seinast kom maður — einn á báti.
Hann hafði orðið skiptapa og bátinn hans hafði rek-
ið um hafið í marga daga. Hann var orðinn svangur og
þyrs'fur. Þegar hann kom að eynni, varð hann glaður,
steig á land og borðaði kókoshnetur og ostrur. Hann
byggði sér skýli. Loksins kom skip og hann komst heim
fil sín.
Kórallarnir héldu áfram að stækka eyna niðri í vatn-
inu. Enn var hún ekki nógu stór.
„Hvað ætli langa — langa — langa------langafi
segði, ef hann gæti séð, hvað eyjan er ~falleg?“ sögðu
þeir hver við annan.
Elsa Beskov:
UPPELDISVÉLIN.
Hafið þið heyrt getið um Kringluríki? Það er ekki
sagt frá því í landafræðinni. Og það er ekki von, því að
Kringluríki er svo langt í burfu, að ef þið ætlið þangað,
verðið þið að fara sjö sinnum kringum jörðina.
Fólkið þar stendur okkur framar í öllu. Það eru mörg
hundruð ár síðan farið var að nota síma og flugvélar
í Kringluríki og menn þurfa ekki að drepa hendi sinni í
kalt vatn. Allt er unnið með vélum.
Meðan gufuskipin voru ný
uppfinning og sigldu eingöngu
á fljótum og vötnum í Ame-
ríku og Englandi, var eigend-
um skipanna svo áfram um að
fá farþega, að kvenfólki var
boðið ókeypis far með þeini
vissa daga.
★
Franski náttúrufræðingur-
inn Buffon, var mjög morgun-
svæfur, þegar hann var ungl-
ingur, og segir hann sögu af
því: „Eg komst aldrei á fætur
fyrr en kl. tíu og vinnumaður
föður míns gat ekki vakið mig.
Seinast tók ég það ráð, að lofa
að greiða honum tíu aura,
á dag, ef hann gæti kom-
ið mér á fætur klukkan sjö
á hverjum morgni. Morguninn
eftir kom hann og vakti mig,
en ég skammaði hann í svefn-
rofunum, svo að hann fór
gramur út en ég sofnaði aftur.
Þegar ég kom á fætur, sagði
ég við hann: „Þú hefur tapað
ygrðlaununum og ég hef tap-
að þremur klukkutímum. Þú
átt ekki að skipta þér af því,
þó að ég verði vondur.“ Næsta
morgun kom hann og hellti yh
ir mig fullri vatnsfötu. Eftir
það þrjózkaðist ég ekki við að
fara á fætur, þegar hann vakti
mig á morgnana. Eg á honum
að þakka margar þær bækur,
sem ég hef skrifað.“
★
Sálmaskáldið Svedberg, bisk
up í Svíþjóð, sem uppi var á
17. öld, bað seinni konu sinnar
skriflega, án þess að hafa séð
hana, segir sagan, og fékk já-
yrði hennar, án þess að hún
krefðist að sjá hann. En
skömmu fyrir brúðkaupið hitt-
ust þau af hendingu í veizlu
og talaði hann lengi við kon-
una, án þess að vita hver hún
var, þar til hún sagði honum
nafn sitt að fyrrabragði. „Nú,
eruð það þér — —?“ sagði
biskupinn. Og bæði urðu öld-
ungis forviða.
til Annotsfield og ná kröfu-
göngunni áður en hún legði af
stað. Og það tókst. Þegar Jóna-
than horfði á fylkinguna
streyma út úr bænum undir
blaktandi fánum varð hann
gagntekinn af gleði í fyrsta sinn
á ævi sinni. Hvert andlit ljóm-
aði af hugrekki og von. Hljóm-
sveit gekk á undan og allir
sungu. Það var „Söngur barn-
anna“.
Margir veittu eftirtekt ung-
um manni, sem gekk berhöfðað-
ur og hafði dökkt, liðað hár.
Andlit hans var crítt og gáfu-
legt og ljómaði af hriíningu,
þegar hann söng. Hann vakti
enn meiri arhygii vegna þess,
að hann var haltur.
Jónathan hafði týnt hattinum
í þrengslunum. Margir ávörp-
uðu hann, sögðu að hann væri
röskur piltur og hefði fallega
rödd. Og þeir sourðu hann að
heiti.
Jónathan sagði aðeins skírnar
nafn sitt en gat um, að hann
hefði unnið í verksmiðju, þegar
hann var barn. Hann skamm-
aðist sín fyrir að nefna föður
sinn.
Þegar hann hafði gengið
nokkra kílómetra fór hann að
dragast aftur úr. Og því lengra
sem hann gekk varð honum
gangan erfiðari, sérsjfeklega,
þegar hungrið fór að gera vart
við sig. Loftið hafði verið þung
búið allan morguninn og allt
í einu kom steypiregn. Jóna-
than mundi ekki eftir annarri
eins rigningu, ekki einu sinni
uppi á Marthwait-heiði. Hann
brauzt áfram móti storminum
í rennblautum fötunum,
klukkutíma eftir klukkutíma.
Hann skalf af kulda og hafði
kvalir í fætinum. Stígvélin
láku og annað þeirra særði
hann á hælnum. En áfram
varð hann að komast, og að
lokum sá hann hæstu revkháf-
ana í Leeds.
Þeir náðu þangað í myrkri
um kvöldið. Göturnar voru
troðfullar af kröfugöngumönn-
um. Hér og þar var letrað á
spjöld, hvar menn gætu leitað
náttstaðar. Jónathan fann eitt
af þessum skýlum og lagðist
feginn niður á hálmflet, bjór-
votur frá hvirfli til ilja. Ein-
hverjir félaga hans gáfu honum
brauðsneiðar og hann borðaði
þær. En ekki gat hann sofnað.
Hvíldin var heldur ekki löng.
Um miðnætti var lagt af stað
aftur.
Þetta var löng nótt. Jóna-
than virtist hún aldrei ætla
að taka enda. Rigningin og
stormurinn lamdi hann í and-
litið. Þjóðvegurinn frá Leeds
til York var þéttskipaður
kröfugöngumönnum. Helstu
vinir Oaslers gengu á undan.
Þeir báru blys, en það gekk
illa að láta þau loga í rigning-
unni. Menn sungu sálma og
kvæði og ráku upp fagnaðaróp
við hvern mílustaur á leiðinni.
Jónathan var hættur að
finna til líkamlegrar þreytu.
Hann hríðskalf og það blæddi
úr sári á hægra fæti hans.
Vinstri fóturinn var líka orð-
inn logsár.
Sálarástand hans líktist
hitaveiki. Hann hélt sér við
með áköfum samræðum.
Loks birti af degi. Storminn
hafði lægt, en rigningin var
engu minni.
Hrifning og baráttugleði
göngumannanna var slokknuð.
Engir söngvar heyrðust meir.
Þeir töluðu fátt. En allir héldu
áfram, örmagna af þreytu og
kulda. Jónathan þokaðist
lengra og lengra aftur í fylk-
ingunni.
Allt í einu heyrðust hróp,
sem gengu mann frá manni.
Allir hertu gönguna, lyftu
höfði og styrktust af nýrri von.
„Hvað segja þeir? Hvað
segja þeir?“ spurði Jónathan.
„Þeir segjast sjá dómkirkju-
turninni í York,“ svaraði mað-
ur framar í fylkingunni..
„Félagar! Þeir sjá dómkirkj-
una,“ kallaði Jónathan aftur
fyrir sig og fylltist nýjum
kjarkj.
Nú hófst á ný fögnuður og
glaðleg samtöl. Jónathan varð
að viðurkenna fyrir sjálfum
sér, að oft hefði hann efast um
það þessa nótt að hann kæm-
ist til York. En innan stundar
yrði hann kominn þangað og
gæti hlýtt á allt, sem fram
færi á þessu langþráða * móti.
Það átti að fara fram í kast-
alagarðinum, þar sem móður-
bróðir hans lét lífið fyrir rétt
hinna kúguðu.
Því hafði verið lofað, að nóg
brauð og öl yrði að fá, þegar
gðngumennirnir kæmu til
York. En þegar til borgarinn-
| ar kom, fréttist að brauðið
hefði verið sent öfuga leið.
„Þá vona ég að ölið hafi
farið sömu leið,“ sagði Jóna-
than.
„Ekki er ég þér sammála um
það,“ svaraði piltur, sem gekk
við hlið hans. Gamall maður
tók í sama streng og Jónathan
og sagði, að menn hefðu illt af
að drekka öl, svona hungraðir.
eins og þeir voru. Hann herti
gönguna af öllum mætti. Það
gat komið til mála, að foringj-
arnir kæmust í vanda, ef ein-
hverjir færu að drekka til
muna.
Þegar Jónathan náði fund-
arstaðnum var þar múgur
manns og mikil ókyrrð. Menn
höfðu verið að streyma til
mótsins frá því um dagrenn-
ingu og beðið síðan í von um
að fá eithvað að borða. Að síð-
ustu þóttust þeir vissir um, að
brauðið kæmi ekki. Þeir höfðu
drukkið og óánægjan var orðin
ískyggileg.
„Hafa Oasler ekki verið gerð
boð?“ spurði Jónathan mann.
sem gekk um og veitti öl.
„Hann verður ekki hér fvrr
en eftir hálftíma," svaraði mað
urinn. Jónathan stundi við og
bjóst við öllu því versta.
Nú fóru að heyrast hróp og
hótanir. Menn þóttust sviknir
og höfðu ekki lengur stjórn á
skapi sínu. Einhver hóf sig
upp yfir fjöldann og fór að
tala með miklum handaburði.
Allir hlustuðu með athygli, en
Jónathan stóð svo langt frá,
að hann heyrði ekki hvað mað
urinn sagði.
Litlu seinna skildi hann þó,
hvað um var að vera. Menn
ætluðu að flykkjast að brauð-
búðunum. Sumir áttu fáeina
skildinga í vösunum. Mann-
fjöldinn komst á hreyfingu.
„Þeir mega ekki gera aðsúg
að brauðbúðunum — þeir
mega ekki taka sér neitt fyr-
ir hendur, fyrr en Oasler kem-
ur og getur sefað þá. Komi til
Litla krossgátan
Lárétt:
Lárétt:
1. óhagur — 7. sein — 8. gróður-
setja — 10. spænskur leikur —
11. skógardýr — 12. guð — 14.
hleypur — 16. vélamenning — 18.
vinj — 19. fkasta upp — 20. sæki
sjó — 22. knattspyrnufélag — 23.
á lofti — 25. bolta.
Lóðrétt:
2. kemur með þófi — 3. forföður
— 4. plantan — 5. hljóta — 6.
heimsk — 8. eyðsla — 9. örbirgð
— 11. til hafs — .13. unaður —
15. flokkur — 17. knattspyrnufélag
— 21. hrópað — 23. lát þér lynda
— 24. forn greinir.
RÁÐNING KROSSGÁTUNNAR
1 SÍÐASTA BLAÐI
Lárétt:
1. mældur — 7. sóru — 8. ól —
10. mý — 11. úði — 12. ól — 14.
forna — 16. lamar — 18. ið — 19.
mun — 20. ká — 22. at — 23. varð
— 25. páraði.
j þóðrétt:
2. æs — 3. lóm — 4. drífa — 5.
UU — 6. kll(gj)aði — 8. óðni —9.
hólmar — 11. úr — 13. laut — 15.
orkar — 17. mn — 21. ára — 23.
I vá — 24. ÐÐ.