Þjóðviljinn - 05.08.1944, Page 7

Þjóðviljinn - 05.08.1944, Page 7
Laugardagur 5. ágúst 1944. Þ JÓÐ VILJINN 7 tÆ li PHYLLIS BENTLEY: ÍACK LONDON: Skipsdrengurinn á Blossa Hvað er að þér, Jói minn, spurði Bronson að lokum. Þau voru í þann veginn að standa upp frá borðum. Eg veit ekki. Ekkert', sagði Jói kæruleysislega, svo bætti hann við: Prófið er á morgun, þá fæ ég að vita það. Hvert ætlar þú? spurði móðir hans, þegar hann gekk til dyra. Hún var lagleg kona og smáleit, og vingjarnlegt viðmót hennar minnti hann á Bessí. t: Upp á herbergi mitt. Eg ætla að fara að lesa. Hún strauk hár hans blíðlega, laut yfir hann og kyssti hann. Bronson brosti til hans með hluttekningu um leið og hann fór út. Drengurinn flýtti sér upp á herbergi sitt, ákveðinn í að taka námsgreinunum dug- legt tak og standas't' prófið daginn eftir. Þegar hann var kominn inn í herbergi sitt, tvílæsti hann dyrunum og settist við skrifborð, einkar haglega útbúið handa drengjum við nám. Hann leit yfir skóla- bækur sínar. Prófið átti að byrja á veraldarsögu um morguninn. Hann ætlaði því að byrja að lesa hana. Hann opnaði bókina þar, sem brotið var blað í henni og fór að lesa: Sk'ömmu eftir stjórnarbót Drakons hófst stríð milli Aþenu og Megara út af eynni Salamis, sem bæði ríkin vildu ná yfirráðum yfir. Þetta var auðvelt. En hvað var stjórnarbót Drakons? Hann varð að gá að því. Hann fann til ánægju yfir iðni sinni, meðan hann var að blaða í bókinni. En svo varð honum litið upp og rak augun í andlitsskýlu og hanzka, sem notuð eru í knattslætti, og lá þar á stól. Bara að þeir hefðu ekki beðið ósigur í knattleiknum á laugar- daginn var, hugsaði hann. En það hafði allt verið Frissa að kenna. — Hann vildi óska, að Frissa fataðist ekki svona. Hann var viss með hundrað knetti, hvern á fæt- ur öðrum, hversu erfið sem aðstaðan var, en lægi eitt- hvað sérlega mikið við, var hann vís til að láta jafnvel máttlausan regndropa renna um greipar sér, án þess ÞETTA Péturskirkjan í Rómaborg er stærsta kirkja í heimi, rúmar 54000 jnanns í einu. Hún var 120 ár í smíðum og kóstaði um 200 millj- ónir króna. Það er sagt, að háalt- arið, sem er í miðri kirkjunni sé yfir leiði Péturs postula.^ Konstantín mikli lét fyrst reisa kirkju á þessum stað, en liorn- steinn kirkju þeirrar, er nú stendur þar var lagður á dögum Júlíusar II. 18. apríl 1506 og var þá byrj- að á byggingunni eftir uppdrátt- um Bramantes byggingarmeistara. Eftir dauða hans 1514 sáu þeir Raffael, Sangallo og Peruzzi um smíðið, en því miðaði lítið áfram. Arin 1546—’64 var Michelangelo yfirsmiðurinn, og turnhvelfingin mikla var gerð eftir hans upp- drætti og smíði henn,ar lokið 1590. Páll IV. páfi breytti nokkuð uppdráttum Bramantes og 18. nóv. 1626 var kirkjusmíðinni lokið og rígðli bá Uniði» 11. páíi hana: Kirkjati var í fyrstu byggo eins oj grískur kross í lögun, jafnarmaður, en seinna var einn armurinn lengd ur, svo að nú lítur hún út eins og rómverskur kross, og þykir mörgum það óprýða hana. Kirkjan er að innanmáli 187 rnetrar að lengd, en 137 á breidd. Hæðin á sjálfri kirkjunni er 46 metr ar, en 127 metrar efst upp í turn- hvelfinguna. Hvelfingin hvílir á fjórum afarmiklum súlum, fimm- strendum. í kirkjunni er mesti fjöldi fagurra minnismerkja, dýrð- lingastandmynda og málverka. Þar á meðal er marmaralíkneskja af Píusi VII eftir Albert Thor- valdsen. Fyrir framan Péturskirkjuna er Piassa di San Pietro. A miðju torg inu eJ broddsúla (obeliski) 25% metri á hæð, ein af hinum nafn- kunnu steinsúlum frá fornöld Egypla. Ái’óst við kirkjtwa «r .PáfahöII- ARFUR ? . m. „Brigg“, kallaði faðir hans, sem nú var búinn að ná sér, „skárri eru það lætin í þér, við erum ekk- ert verr staddir nú, en þegar þú sendir þetta bréf“. „Ekki það?“ hrópaði Brigg æfur. En vegna þess, að hann vildi ekki láta föður sinn vita um það, í hvaða sambandi þetta stóð við Jane, þá stillti hann sig og bætti við með skjálfandi röddu: „Við höfum lítillækkað okkur með því að bjóða þessum svínum góða skil mála — og svo hrækja þeir þessu framan í okkur. Það er ægileg ó- svífni“. „Nú, jæja“, sagði faðir hans, „við höfum gert þeim tilboð og þeir hafa hafnað því, en það verð- ur okkur til góðs í áliti almenn- ings“. „Þarf þá að birta þetta?“ spurði Brigg og dæsti. „Butterworth var að tala um það í gærkvöld, að hann langaði til að birta eitthvað um þetta mál í „The Recorder“, sagði faðir hans. „Og vegna þess, að hann er borgar- stjóri og verður að láta það líta svo út sem hann sé hlutlaus, þá mundi það ekki undra mig, þótt hann sendi fréttirnar líka til blaðs- ins „Pioner“, athugaðu það, meðan ég les hitt blaðið". „Jú, hér er álnarlöng klessa“, sagði Brigg, þegar hann var búinn að fletta í sundur blaði frænda síns og sjá grein Henrys um að: „Verkamennirnir mundu ekki eign ast samúð nokkurs manns, ef þeir sviku málstað sinn á þennan hátt“ o. s. frv. „Mér finnst við verða að láta birta við þetta skýringar frá okkar hálfu. Ilann ásakar okkur beinlínis fyrir að reyna að kljúfa verkfallssamtökin með óheiðarleg- um aðferðum". „Já, andsk........“ bölvaði fað- ir hans. „Lof mér að sjá blaðið, annars er hér laglegur greinarstúf- ur, sem nefnir þig með nafni“. Þeir höfðu blaðaskipti, og Brigg hughreystist ofurlítið við hina lof- samlegu grein í „Annotsfield Re- corder“. „Það er sama“, sagði hann „við verðum samt að senda skýr- ingu?. „Já, ég held það sé góð hug- mynd“, sagði faðir hans. „Eg ætla að fara með bréfið og sýna Armi- tage og borgarstjóranum það, bezt er, að þú komir með, svo að við getum rætt málið í félagi“. „Eg skal vera tilbúinn eftir tíu mínútur“, sagði Brigg og hljóp upp stigann. „En ætlar þú eklci að borða morg unverð?“ spurði faðirinn. „Þú lít- ur ekki of vel út samt“. Ekki skánaði skap Briggs, þeg- ar faðir hans sagði þetta, því hann slcildi, að hann var að sneiða að honum út af ástarsorgum hans. Þegar þeir voru kómnir til Victo'ria Mill ,s, v^iksmiðju Armitages, sagði hann urgff": „Við höfum gert svo lítið úr okkur að bjóða þeim samn- inga, og þá fleygja þeir þessum ó- þverra franian í okkur“. „Eg er líka þeirrar skoðunar, að ■ það sé bezt að við látum birta skýringar okkar“, sagði hinn grá- hærði Armitage hugsandi. „Eigum við að gera uppkast að þeim í fé- lagi og leggja það fyrir stjórnina? Eg get kallað saman fund á mánú- daginn“. Þrátt fyrir allt, sem á undan var gengið, varð Brigg hreykinn og glaður þegar faðir hans sagði: „Jæja þá — en sonur minn er hæf- ari í þennan starfa en ég“. Síðan fór hann aftur til Svke Mill og lét þá um að semja skýringarnar, sem birta átti. Þær voru samþykktar af stjórn- inni og daginn eftir var þeim dreift út um bæinn, sérprentuðum, og eintök send til blaðanna, þar á meðal til „Pioner“. Jonathan var af tilviljun stadd- ur á skrifstofunni og opnaði bréf- ið með upplýsingunum. Henry las þær yfir öxl föður síns. \ „Þvílíka lýgi og ritvillur hef ég aldrei séð áður“, sagði hann með sinni hljómlausu röddu. „Nei, drengur minn, ekki lýgi“, sagði Jonathan. „Ekki lýgi, held- ur þekkingarleysi. Þetta er þeirra hjartans sannfæring. Þú þekkir ekki milljónamæringa eins vel og ég“. „Já, en líttu bara á“, sagði Henry og benti á setningar Briggs um að þeir hefðu „lítillækkað sig og boðið verkamönnum samn- inga. Lítillækka sig! Hvað ætli þeir haldi, að þeir séu?“ Jonathan dæsti. „Við verðum víst að prenta þetta“, sagði hann. „Með athugasemdum“, sagði Henry. Hann settist aftur í sæti sitt og greip pennann. Næsta laugardagskvöld, þegar Brigg, sem allan daginn hafði ver- ið á veiðum á Marthwaite-heiðinni kom heim, hitti hann föður sinn í úfnu skapi með „Pioner“ í hend- inni. „Lestu þetta, Brigg, sagði þann og rétti honum blaðið. „Þeir eru æfir yfir því í klúbbnum“. Brigg fór að lesa ritstjórnar- grein Henrys um upplýsingáskjal verksmiðjueigendanna. „Hverslags bjánaleg röksemdafærsla er þetta", varð honum að orði. „Ef maður ætti aldrei að koma með neinar nýjungar, fyrr en maður væri sannfærður um, að þær yrou eng- um til tjóns, þá mundu menn enn.. þann dag í dag verða að vefa með höndunum". „Lestu niðurlagið“, sagði faðir hans óþolinmóður. „Allra neðst í dálkinum“. Brigg las: Festið ykkur það vel í minni, jclagar, að ef einhvem- j tíma í jramtíðinni slcyldi verða j deila milli ylckar og atvinnurek- ; cnda, þd er það „liúílœkícun' jrá þcirra Jiálju, cj þeir sem ja við ylcJc- ur. „Hvað er þetta“, sagði Brigg öskuvondur. Við vissum það fyrirfram, hélt hann áfram að lesa, að verksmiðju- eigendumir voru einrœðissinnaðir, en að þeir vœru lilca gikkir, sem haja misst vitið, vegna þess að þeir haja grœtt peninga, það vissum við ekki jyrr. Hugsið þið yJckur, jé- lagar. að menn, sem margir hverjir haja unnið við vejinn og synir manna, sem ekki skömmuðust sín jyrir bláu vinnufötin, að þessir menn skuli tála um það, að þeir „lítillœkki" sig með því að semja við verícamenn, sem margir hverj- ir cru nánir œttingjar þeirra. „Osvífið!" hrópaði Brigg og titr- aði af reiði. Honum fannst orðin um ætt- ingja verkamanna sérstaklega slíl- uð til Oldroyds-fjölskyldunnar, sem var tengd Thorpe-ættinni, og það sárnaði honum mest og fannst auðmýking í. „Hvernig lízt þér á þetta?“ spurði faðir hans, sem sjálfur eitt. sinn hafði borið hinn bláa verka- mannabúning og hafði þess vegna ástæðu til að \ erða enn gramari yfir þessum svipuhöggum en son- ur hans. „Hvernig mér lízt á það? Mig langar mest til að góma þennan náunga, sem liefur skfifað þetta“, hrópaði Brigg. „Og ég þori að veðja, að það er Henry------ „Já, það er almenn skoðun, að Henry Singelton Bamforth hafi' með þessari grein brotið allar brýr' að baki sér. Það er sóma fjölskylda, sem þú ætlar að tengjast". „Eg þoli það ekki. að Jane hafi nokkur afskipti af þeim, þegar við erum gift“, sagði Brigg fastmælt- ur. Það var mesta uppistand í Ann- otsfield út af þessari ritstjórnar- grein í „Pioner“. Hún var rædd alls staðar, meira að segja Frank Stan- cliff. sem engan áhuga hafði á vefnaðariðnaðinum, hafði lesið hana og spurði Brigg, hvað þetta ætti að þýða. Brigg bar sig karlmannlega og hló að öllu saman, þegar aðrir voru viðstaddir, en auðmýkingin, sém hann hafði orðið fyrir, særði hann svo mjög, að honum fannst hann aldrei framar geta tekið í höndina á Henry. IV. KAFLI ÓSIGHiR Brigg var í allt annað en gó skapi, þegar hann át.ti að sæl svar sitt til Jane. En þegar ha gekk um göturnar í blíðviðrinu hugsaði um fegúrð Jane, og bj< við að mega Jbráðum kyssa hai þá létti honum fyrir brjósti, Uann het því með sjálíúin, sér I iiariii skyldi vera nærgælii , við iiana. og ckks hein: af henni svario, ' svo

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.