Þjóðviljinn - 16.08.1944, Síða 1
9. árgangur.
Miðvikudagur 16. ágúst 1944.
180. tölublað.
Furðanfega fifíl mófspyrna — 50000 snanna 8ið Þjóðverja
í Normandí hefur 15 hm. Míð fíl undankomu
Bandamenn lengja og breikka landgöngustöðvar
sínar á strönd Suður-Frakklands og mæta furðanlega
lítilli mótspyrnu. — Flugmenn segjast ekki hafa séð
neina mótspyrnu af hálfu Þjóðverja á allt að 30 km.
breiðu svæði frá ströndinni. — Innrásin virðist hafa
komið Þjóðverjum alveg á óvart. — íbúar Suður-Frakk-
lands segja, að Þjóðverjar hafi fyrir mörgum dögum
byrjað að flytja lið burt þaðan til Norður-Frakklands.
9
Yfirmaður innrásarhersiné er sagðúr vera Jacob L.
Devers, bandarískur hershöfðingi.
Fréttaritarar telja, að Þjóðverjar hafi um 50 000
manns ennþá í „vasanum“ fyrir vestan Falaise.
Undanhaldshliðið milli Falaise og Argentan er nú
aðeins 15 km. breitt.
Landgönguliðið hcfur þegar náð
ii sitt vald hæðum á bak við ýmsa
landgöngustaði sína.
Hcrgögn og herlið streymir á
land. — Innrásarskipin eru þegar
farin að sigla burt aftur, en nýjar
.skipalestir eru að koma í staðinn.
Framundan Toulon hafa Banda-
menn tekið tvær eyjar eftir snarpa
viðureign.
Innrásin hófst rétt fyrir dögun
í gærmorgun með því að fallhlífa-
Jiðið var látið síga niður um 3 km.
inni í landi. t dögun kom svifflug-
vélalið á vettvang. — Voru þetta
samtals 14000 hermenn, og hefur
jafn mikið lið aldrei verið flutt
loftleiðis. — Lið þetta varð ekki
vart við teljandi mótspymu og
hafði náð fyrirhuguðum stöðvum
eftir einn klukkutíma.
Bandamenn hófu nú ákafa árás
á strandvirki Þjóðverja á mörgum
ÚR LÍFI ALÞÝÐUNNAR
Halldór H. Soætiólm
hlaut verðlauniu
Verðlaun vikunnar í greinasam-
keppninni ÚR LÍFI ALÞÝÐUNNAR
hlaut að þessu sinni Halldór H.
Snæhólm fyrir greinina DAGUR Á
VINNUSTAÐ EINYRKJANS FYRIR
RÚMUM 20 ÁRUM og birtist hún
á 2. síðu Þjóðviljans í dag.
Halldór H. Snæhólm er fæddur á
Auðkúlu í Svínadal í Húnvatns-
sýslu 23. sept. 188G. Móðurætt hans
er húnvetnsk og skagfirzk, en föð-
nrætt eyfirzk.
Hann stundaði nám við búnaðar-
skólann á Hólum veturna 1905—6
og 1906—7 og lauk prófi þaðan.
Keisti bú að Sneis i Laxárdal í
Húnavatnssýslu þegar hann var 27
ára gamall og bjó þar í 11 ár unz
hann varð að bregða búi vegna
heilsubrests. Fluttist þá til Blöndu-
óss og síðar tii Akureyrar og dvaldi
þar í 11 Yi ár. Síðustu 6 árin hefur.
hann búið hér i bænum og unnið í
Pípugerðinni. Halldór Snæhólm á 5
börn á lífi. — Annar sonur hans,
INjörður, er í norska flughernum.
stöðum milli Nice (Nizza) og Mar-
seilles, bæði með flugvélum og her-
skipum. — Flugu stórar sprengju-
flugvélar til árása á strandvirkin
án þess að vera verndaðar af or-
ustuflugvélum, því að þess gerðist
ekki þörf, þar sern ekki varð vart
við þýzkar flugvélar. En herskip
skutu á virkin og var linlega skot-
ið á móti.
Innrásarflotinn, 800 skip, komst
að ströndinni hindrunarlaust. Varð
hann ekki var við þýzkar flugvél-
ar eða kafbáta.
Flugmenn Bandamanna sáu
loksins seint í gærdag þýzkar flug-
vélar á lofti. Voru það 18 Messer-
schmidtvélar og skutu þeir 3 þeirra
niður.
ÞJÓÐVERJAR ÁTTU EKKI
VON Á NÝRRI INNRÁS.
Seinast í fyrrakvöld símaði
fréttaritari Aftontidningens í
Stokkhólhii frá Berlín, að þar væri
meðal háttsettra herforingja talið
ólíklegt, að Bandámenn revndu að
gera innrás á fleiri stöðum.
UPPREISN FRAKKA.
Verkföll voru háð og skemmda-
verk framin um allt Frakldand í
gær eftir að de Gaulle hafði ávarp-
að Frakka og skorað á þá að rísa
upp sem einn maður.
Víða hefur franski heimaherinn
eytt setuliðum Þjóðverja og frels-
að fjölda bæja og þorpa.
NORMADÍVÍG-
STÖÐVARNAR.
Hið 15 km. langa bil Þjóðv.erja
milli Falaise og Argentan liggur
nú þegar undir stórskotahríð
Bandamanna úr norðri og suðri.
Kanadamenn eru nú um l1/? km.
fyrir norðan Falaise. Eru þeir
staddir þar á hæðum og sjá húsa-
þökin í Falaise, og stjóma þaðan
fallbyssuskothríð á aðalundan-
haldsleiðir Þjóðverja.
Bretar, sem sækja frá Thury-
Yfirmaður Bandamanna við Miðjarðarhaf Sir Henry
Maitland Wilson (til vinstri) og yfirforingi nýju inn-
rásarinnar J. L. Devers (til hægri), sjást hér á myndinni
á tali við M. W. Clark yfirforingja Bandamanna á
Ítalíu (í miðju).
Rauðl Eterlfin kom-
inn yflr Slebrza
Vinnur á I Eistlendi
Rauði herinn hefur brotizt yf-
ir ána Biebrza skammt frá bæn
um Osowiec, um 25 km. frá
suðurlandamærum Austur-Prúss
lands. — Sótti hann áfram í gær
meðfram jámbrautinni til
Luck.
Á Eistlandsvígstöðvunum
tóku Rússar um 80 þorp og bæi
fyrir norðan og vestan Petsjori,
og halda áfram að færast nær
jámbrautinni milli Tallims og
Riga.
Gagnáhlaupum Þjóðverja var
hrundið við norðaustur landa-
mæri Austur—Prússlands, við
Praga, útborg Varsjár og hjá
Sansk, suður við Karpatafjöll.
Rússneskt skriðdreka og ridd-
aralið streymir yfir Vislu yfir
á „brúna inn í Vestur-Evrópu“,
eins og blað rauða hersins nefn
in vígstöðvarnar fyrir vestan
Vislu. i
Á öllum vígstöðvum eyði-
lögðu eða skemmdu Rússar 114
skriðdreka fyrir Þjóðverjum.
Rússar segja 1. úkrainska her-
inn undir stjórn Konieff mar-
skálks hafa frá 13. júlí til 13.
ágúst fellt 140 000 Þjóðverja,
tekið 32 000 höndum, eyðilagt
um 1000 flugvélar" um 2000
skriðdreka og 3000 fallbyssur.
Pólski herinn í Varsjá hefur
fengið liðsaúka og vopn og
Framh. á 8. síðu.
Harcourt, eru nú 1-2 km. fyrir vest-
an Falaise. — Fyrir norðan Falaise
vinna pólskar hersveitir að því að
uppræta smáhópa Þjóðverja.
Bandaríkjamenn eiga i hörðuih
götubardögum í Argentan og sækja
einnig norður frá bænum gegn
harðri mótspyrnu.
Fleygur Þjóðverja er einnig stöð-
ugt minnkaður. — Bretar tóku
einn bæ og tvö þórp fyrir austan
Vire í gær.
Flugvélar Bandamanna eyði-
lögðu um 1000 skriðdreka og önn-
ur farartæki Þjóðverja i fleygnum
á s.l. sólarhring.
Þjóðverjar byrjuðu fyrst á því
að reyna að koma skriðdrekum
sínum burt úr fleygnum, en marg-
ir þeirra eru nú strandaðir fyrir
vestan ána Orne, því að Banda-
menn hafa evðilagt brýrnar með
loftárásum.
Fréttaritarar á’íta, að Þjóðverj-
ar hafi enn um 50000 menn í
fleygnum, en séu búnir að koma
öðru eins burt. — í eggja þeir eink
um áherzlu á að bjarga beztu her-
sveitum sínum, en skilja lélegra
lið eftir.
Bandamenn hafa tekið þarna um
3400 fanga. — Þar af hafa Banda-
ríkjamenn tekið um 2000.
Þjóðverjar sáust safna saman
skriðdrekum á einnm stað í gœr,
auðsjáanlega í hvi skyni að hefja
gagnáhlaup. — Flugvélar Banda-
manna, vojnuiðar flugeldabyssum,
voru sendar á vettvang og eyði-
lögðu þœr marga skriðdrekannu,
en tvistruðu hinum.
Svíþjóðarbátarnir ekki væntanlegir
hingað á næstunni
Smíðl þelrra íekur 19 mánuði fra untíirritun samninga
Ríkisstjómin hefur nú loks rofið þögnina rnn hvað gengi með
„Svíþjóðarbátana“ svo nefndu.
Frá því að þessu máli var fyrst hreyft hafa menn beðið með
mikilli óþreyju eftir frekari aðgerðum í málinu og um þessa 45
báta hafa sótt margfalt fleiri en til greina geta komið.
í gær skýrði ríkisstjómin loks frá því hvað þessum málum
liði og samkvæmt því em hagkvæmustu tilboðin 213 þús. sænsk-
ar krónur 5% í aukakostnað í 50 tonna bátana, en 266 þús. í 80
tonna báta og verði þeir tilbúnir 19 mánuðum frá undirskrift
smiðissamninga og mun því mörgum finnast biðin ærið löng frá
upphafi þessa máls og þar tU bátamir era komnir hingað til lands.
Tilkynuing atvinnumálaráðu-
neytins fer hér á eftir:
í framhaldi af tilkynningu ráðu-
neytisins frá 11. maí s.l., um smíði
fiskiskipa í Svíþjóð. vill ráðuneytið
gefa almennmgi eftirfarandi upp-
lýsingar um þetta mál.
Sendiráð ísland í Stokkhólmi
hefur undanfarna mánuði starfað
að öflun fjölda tilboða frá sænsk-
um skipasmíðastöðvum í smíði
téðra fiskiskipa svo og tilboða í að-
alvélar og hjálparvélar. Fyrir
nokkmm dögum hafa tilboð borizt
í þá 45 báta, sem nú er leyfi fyrir
að byggðir verði. Fiskifélag íslands
hefur haft tilboð þessi til athug-
unar og er það álit þess að tilboð
Föreningen Sveriges mindre Varv
í Gautaborg sé lang hagkvæmast
! í smíði bátanna, og hagkvæmasta
j vélatilboðið sé frá A/B. Atlas
' Diesel í Stokkhólmi.
Verð skipa og véla verður ca. í
sænskuin kr. sem hér segir:
60 TÚrrd. bátar:
Skipsskrokkar með tilheyrandi
kr. 145.000.00. Aðalvél og hjálpar-
vélar kr. 67.000.00.
80 rúml. bátar:
Skipsskrokkar með tilheyrandi
kr. 193.000.00. Aðalvél og hjálpar-
vél kr. 73.000.00.
i Við þessa kostnaðarliði bætast
ca. 5% til þess að standa straum
af eftirliti með smíði og aiwnir ó-
hjákvæmilegur kostnaður.
Framangreint skipasmíðasam-
band hefur skuldbundið sig til að
afhenda alla bátana 45 að tölu inn-
an 12 mánaða frá undirskrift samn-
ings, en afgreiðslutími véla verður
allt að 19 mánuðir.
í þessu sambandi vill ráðuneytið
láta þess getið, að gerðar hafa ver-
Framh á 8. síðu.