Þjóðviljinn - 07.09.1944, Page 1

Þjóðviljinn - 07.09.1944, Page 1
Æ. F. R. 9. árgangur. Fimmtudagur 7. september 1944 199 tölublað. Unnið verður við Rauðhóla- skálann í kvöld og næstu kvöld. Mætið á Skólavörðu- stíg 19, kl. 6.30 stundvíslega. FRAMKVÆMDARÁÐIÐ M! Hi tlð I Hafa fefeíð bæínn Tnrnu-Severín, skamtnf frá lárnhlídínuí Rauði herinn er kominn að landamærum Rúmeníu og Júgoslavíu og hefur tekið bæinn Turnu-Severin, skammt frá hamragiljum þeim, sem Dóná rennur þarna um, og nefnast Járnhliðið. í Póllandi hafa Rússar tekið Ostroleka og Lomza fyr- ir norðaustan Varsjá. Er rauði herinn kom að landa- mærum Jugoslavíu í gær, hafði hann sótt fram 100 km. á ein- um sólarhring. Er hann nú 170 km. frá Belgrad, höfuðborg Jugóslavíu, og hálfnaður frá Svartahafi til Adríahafs. Búast má við, að rauði herinn nái brátt sambandi við her- sveitir Títós marskálks, en þeg- ar svo er komið, verður erfitt fyrir Þjóðverja að koma liði sínu frá Grikklandi eða senda birgðir til þess. — Hersveitir Titos eru nýbúnar að spilla mikið sam- gönguleiðum Þjóðverja frá Grikklandi um Albaníu. — Og bandarískar sprengjuflugvélar frá Ítalíu réðust á þessar sömu samgönguleiðir í gær. Skæruhersveitirnar í Slovak- íu hafa sprengt upp brýr á ’vegum sem Þjóðverjar verja til undanhalds frá Rúmeníu. Jan Masaryk, utanríkisráð- herra Tékkóslovakíu hefur til- kynnt, að Bandamenn hafi sent þessum skæruhersveitum vopn. BÚLGARÍ A. Aðrar hersveitir úr rauða hernum hafa tekið borgina Caraniova, sem er mikilvæg samgöngumiðstöð og síðan sótt til landamæra Búlgaríu. Sovétstjórnin hejur ekki svar- að ennþá beiðni búlgörsku stjórn- arinnar um vopnahlé, en liún sendi þá beiðni sama dag og stríðsyjir- lýsing Rússa kom. Paul Winterton fréttaritari News Chronicle í Moskvu segir, að þessi stríðsyfirlýsing sé aðvör- un til allra hlutlausra þjóða, — ekki sízt til Tyrklands, sem hafi haldið áfram að koma vingjarn- lega fram við Þjóðverja, þrátt fyr- ir stjórnmálasambandsslitin. — Muni sovétstjórnin veita fram- komu Tyrkja mikla athygli á næst unni, þegar búast má við, að Þjóð- verjar taki að flýja inn fyrir tyrk- nesku lándamærin. PÓLLAND Stalin marskálkur tilkynnti í sérstakri dagskipun töku borgar- innar Ostroleka 95 km fyrir norð- austan Varsjá og 40 kpi frá suður- landamærum Austur-Prússlands. Stalín nefndi Ostroleka varnar- miðstöð Þjóðverja hjá ánni Narew. — Rauði herinn hefur einn ig tekið bæinn Lomza, sem er merk járnbrautarmiðstöð. Nálægt Praga, útborg Varsjár, hafa Rússar unnið á. 1 miðri Varsjá hrundu Pólverj- ar hörðu áhlaupi Þjóðverja í gær, og biðu þeir síðar nefndu afar mik- ið tjón. FINNLAND Finnsk samninganefnd er farin ] til Moskvu. — Formaður hennar er talinn vera Hacksell forsætis- ráðherra. {UVVUVVUWIAnMVUVVVWVVVWWVVAAnVUVVUVVWVVUVVVWVUVU Verkamenn og atvinnurekendur á Akranesi söid'i í gær Grunnkaup verkamanna kskkar uni 35 aura á klst. Samningar voru undirritaðir í gær milli verkamanna og atvinnurekenda á Akranesi. Samkvæmt samningum þessum hækkar grunnkaup karl- manna úr kr. 2.10 á klst. í kr. 2.45, og grunnkaup kvenna úr kr. 1.50 í kr. 1.75 á klst. Auk þess var samið um ýmsar kjarabætur aðrar. Þessir samningar sýna, að ýmsir atvinnurekendur ætla sér að hafa að engu vilja afturhaldssömustu stóratvinnu- rekendanna hér um að semja alls ekki við verkamenn, og stöðva atvinnutæki í þeirri von, að takast megi að koma á kauplækkun. VVWtfWV^Wtf^^fVW^WVWWtfVW^VWWWWWWWVWWVIVVV! - -vw Skriðdrekár rauða liersins sœkja jram í Pöllandi. — Fótgöngu- liðsmenn sitja á þeim. Digsbrún boðar samúðarverkfall m Nafta Dagsbrún hejur tilkynnt Najta h. j. að Dagsbrúnar menn muni hejja samúðar- vinnustöðvun hjá jyrirtœkinu þar til samningar haja tekizt um kaup og kjör verkamanna hjá öðrum olíujélögum Reykjavík. Nýtt met í 400 m. Iilaupi Milli hálfleikja í gær fór fram 400 m hlaup og hlupu þar 6 úrvals hlauparar. Setti Ivjartan Jóhannesson ÍR þar nýtt met í 400 m hlaupi og bætti þar fyrra met sitt, sem var 52,3, en nýja metið var 51,2. Brynjólfur Ingvarsson K. R. var einnig undir gamla metinu á 52,0. Tveir drengir hlupu, þeir Ósk- ar Jónsson ÍR á 55,1 og Páll Halldórsson KR á 55,2. Bandaríkjamenn eru 6 km, frá Metz KönnunarsveitÍrpáru^^ýzkaland á sunnudaginn Bandaríkjamenn hafa komlð miklu liði yfir Moselle og eru 6 km frá borginni Mefz. Bandamenn eru komnir að þýzku landamærunum eða sækja til þeirrá alla leið frá Hollandi til Svisslands. Yfirherstjórnin upplýsir, að framvarðasveitir hafi farið nokkra kílómetra inn fyrir þýzku landamærin í könnunarskyni s. 1. sunnudág. Sumar sveitir Bandaríkja- manna, sem komnar eru yfir Moselle, stefna til Saarbruck- en. Bandaríkjamenn eru komnir yfir ána Maas í Belgíu. Brezk- ar og bandarískar hersveitir stefna til Liege og Aachen. Mið-Frakkland. Minna en 100 km eru nú á milli hersveitanna, sem sækja frá Suður-Frakklandi og þeirra sem sækja fram í Norður- Frakklandi. Bandaríkjamenn sækja hraít norður Saone-dalinn og fransk- ar hersveitir hafa tek'.ð Chal- on sur Saone. Bandamenn hafa gert miklar loftárásir á víggirðingar Þjóð- verja við vesturlandamæri Þýzkalands. Réðust þeir einnig á flugvelli í Þýzkalandi og eyðilögðu margar flugvélar á jörðu niðri. Talið er, að Þjóðverjar hafi nú alltof fáa flugvelli. Calais umltriiigd. Bandamenn hafa komizt til sjávar báðum megin við Calais, hafnarborg þá, sem styzt er frá til Englands. Barizt er í úthverfum Boul- ognes. Setuliðið í Le Havre hefur aftur hafnað úrslitakostum Bandamanna. Vörpuðu flugvél- ar þeirra 1500 tonnum á borg- ina í gær. — Auk þess vörpuðu Bandamenn niður 3 milljónum flugmiða niður yfir Le Havre, Boulogne og Ostende. Voru á þeim áskþranir til Þjóðverja um að gefast upp. Brezkar hersveitir hafa tekið borgina Gent í Belgíu og halda áfram til Ostende. Er Gent fræg borg í sögu Belgíu og hef- ur 220000 íbúa. Flugvélar Bandamanna gerðu árásir í gær á þýzku hafnarborgina Emden, sem er næst af borgum þeim, sem Þjóðverjar geta vonazt til að koma skipum sínum í Ermar- sundshöfnunum til. Lið Þjóðverja á Ermarsunds- strönd gerði enga tilraun til að brjótast út úr herkví Banda- manna í gær. Bandamenn hafa tekið um 25000 fanga að baki víglínunn- ar á milli Parísar og Belgíu. Breylt ásfand í Breflandí Sökum hins breytta hernað- arástands hafa ýmsar breyting- ar verið\ fyrirskipaðar í Bret- landi. Heimavamaliðið, sem stofn- að var 1940, þegar innrás Þjóð- verja vofði yfir, verður hér eft- ir aðeins skipað sjálfboðaliðum. Eftir 5 ára myrkvun fær brezka þjóðin að njóta meiri birtu á kvöldin. Myrkvun er þó ekki ennþá létt af að fullu, — sérstaklega verða litlar breytingar fyrst um sinn í strandhéruðum Suð- ur-Englands og í London.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.