Þjóðviljinn - 17.11.1944, Síða 8
þJÓÐVILHN
Burðarþol Olfusátbrúar
sýnir gamanleikinn
„H ANN,"
eftir Alfred Savoir
í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir
kl: 2.
Aðgangur bannaður fyrir
börn.
> •
BAZAR
Kvenfélags Nessóknar
opnar í dag kl. 2 í Góð-
templarahúsinu. Ágætir
munir: Fatnaður, ísaum-
ur, vefnaður, prjónles og
önnur handavinna auk
margs annars.
Þegar éi talaði við
StaSín...
Framhald af 5. síðu.
in, þetta er erfitt verk og tíminn,
sem því er veittur, er alltof stutt-
ur!“
Stalin svarar: „Hér fáumst við
eingöngu við erfið verk. X’að er
einmitt af þvi að verkið er erfitt,
að við fórum fram á hjálp yðar.
— Segið bara, hverrar aðstoðar
þér þarfnizt og sjáið um, að allt sé
gert vel og nógu fljótt“.
fþróttanðmskelðin...
Framhald af 2. síðu.
líka orðið sammála um það, að
ekki beri að nota þessi nám-
skeið sem sérstakt auglýsinga-
númer fyrir félögin. Læt ég svo
útrætt um þetta að sinni.
Ritstj.
Framhald af 5. síðu.
VII. ATIIUGANIR Á BRÚ,
EFTIR AÐ HENNI VAR LYFT
Eftir að aðgerðir fóru fram á
brúnni, voru gerðar athuganir og
maelingar á formbreytingum brú-
arinnar, og keniur þá í Ijós, að hún
svignar 8—10 cm á miðju, þegar
ö tonna bíll ekur hægt yfir hana.
Þegar 7)4 tonns- bíll ekur hægt
yfir brúna, svignár hún um 12
cm á miðju.
Það má fullyrða, að slíkar form-
(breytingar, sem hér um ræðir,
erú mun meiri en traust megi telja,
þegar einnig er tekið tiflit til þess,
að flestir hlutar brúarinnar eru
orðnir 53 ára gamlir, svo sem stöpl
ar, burðarstrengir og þverbitar.
Langbitar voru endurnýjaðir
fyrir ca. 15 árum, og sömuleiðis
mun brúargólfið vera yngra.
VIII. BURÐARÞOL BRÚAR
Samkvæmt fyrrgreindum athug
unum á ástandi brúarinnar, telj-
um vér ekki rétt, að leyft verði
þyngfi ökutækum en 6 tonna að
fara yfir brúna og að fól'k í hinum
stóru áætlunarbílum sé látið ganga
yfir brúna. Vegna aldurs brúar-
innar og hinnar miklu svignun-
ar langbitanna, leggjum við til, að
úr því verði bætt með því að setja
nýja þverbita með tilheyrandi tog-
böndum í bilin á milli núverandi
þverbita. Mundi það dreifa vagn-
þunganum betur á strengi og lang-
bita og á þann hátt auka örygg-
ið.
IX. AUKIÐ BURÐARÞOL
Eins og áður hefur verið tekið
fram, er viðgerð sú, sem fram fóf
á brúnni, eftir að hún féll niður,
Öll miðuð við það, að brúin sé til
bráðabirgða eða til ca. eins árs
notkunar. Fari aftur á móti svo,
að útlit verði fyrir, að nota þurii
brúna um lengri tíma, verður að
sjálfsögðu að gera frekari ráðstaf-
anir í tæka tið, áður en 12 mánuð-
ir eru liðnir, og munduin vér
| leggja til, að bætt verði einum
2V2” burðarstreng í hyora brúar-
hlið og þeim fest í steypta stöpla,
svo að öruggt verði til lengri notk-
unar, þannig að hinn nýi strengur
létti áreynslu af þeim bráðabirgða-
festingum, sem eru nú á gömlu
Strengjunum.
Einnig hafa verið atluigaðir
möguleikar á því að setja mun gild
ari langbita í stað þeirra, sem nú
eru, en þá kemur í Ijó$, að þyngd-
araukning, sem þá er orðin, er það
mikil (ca. 65 kg. pr. hl.m. livor-
um megin), að hætta er á, að öðr-
um eldri hlutum brúarinnar, ]i. é.
stöplum og turnum, verði ofboðið.
Verði áður nefndar styrkingar
framkvæmdar á brúnni, yrði aft-
ur athuguð svignun brúarinnar og
ástand, og teljum vér þá líklegt,
að óhætt verði að leyfa um hana
umferð 8 tonna bíla.
Reykjavík, 10. nóvember 1944.
Árni Pálsson. Benedikt Gröndal.
Árni Snævarr“.
Að fengnu áliti verkfræðing-
anna hefur vegamálastjóri ritað
allsherjarnefnd eftirfarandi:
VEGAMÁLASTJÓRINN
Reykjavík, 13. nóvemebr 1944.
„Hér með sendist afrit af áliti
þeirra verkfræðinganna Árna Páls-
sonar, Árna Snævarrs og Ben.
Gröndals um burðarþol Ölfusár-
brúar.
Komast þeir að þeirri niður-
stöðu, „að ekki verði leyft þyngri
ökutækjum en 6 tonna að fara yfir
brúna, og að fólk í hinum stóru á-
ætlunarbílum sé látið ganga yfir
brúna“. Leggja þeir jafnframt til,
að til frekara öryggis verði fest
nýjum þverbitum undir brúna og
þeir festir í strengina með nýjum
togböndum.
Jafnframt telja þeir, að ef horf-
ur verði á því, að nota þurfi brúna
um lengri tíma, þ. e. fram yfir
1 ár, þá verði að gera frekari ör-
yggisráðstafanir, og leggjá til, að
þá verði bætt einum burðarstreng
2% þuml. að þvermáli í hvora brú-
arhlið til þess að létta áreynslu-af
þeim bráðabirgðafestingum, sem
nú eru á gömlu strengjunum.
Teilja þeir líklegt, að þá yrði ó-
hætt að leyfa umferð 8 tonna bif-
reiða um brúna.
Með tilvísun til þessa, tel ég og
sjálfsagt að hcfjast sem fyrst
handa um að koma fyrir nýjum
S þverbitum undir brúna. Það mun
Ikosta, mjög lauslega áætlað, ekki
minna en 40 þúsund krónur.
Kemur þá til álita, hvort ekki
ætti þegar í stað að reyna að
útvega 2 nýja burðarstrengi.
Strengirnir, svo og að koma þeim
ij fyrir, kostar sennilega ekki minna
•| en 75 þús. kr.
Enn hefur ckki verið unnt að
jj! byrja á nýrri brú, sérstakl. vegna
|I þess, að nægilegt efni er hér ekki
fáanlegt og brezk yfirvöld liafa
neitað um útflutningsleyfi á steypu
styrktarjárni, og hafði þó utanrík-
isráðuneytið mjög eindregið far-
ið fram á sérstaka undanþágu,
enda var talin ærin ástæða til að
vænta þess, að Bretar féllust á, að
hér væru alveg óvenjulegar ástæð-
ur fyrir hendi. Vcrður nú að lcita
Sex ára afmælis
Æskulýðsfylkingarinnar
verður minnzt með kaffikvöldi í Alþýðuhúsinu, föstudag-
inn 17- þ. m. kl. Sl/2.
DAGSKRÁ:
1. Skeœmtunin sett.
2. Ræði: Haraldur Steinþórsson.
3. Ræða: Bóas Emilsson.
4. Upplestur: Hjálmar Ólafsson.
5. Ræðz: Áki Jakobsson.
6. Dans.
Fjöldasöngur á milli atriða.
Félagar fjölmennið og hafið með ykkur gesti- Félagar Sós-j
íalistafélagsins og gestir þeirra eru velkomnir.
Aðgöngumiðar seldir á Skólavörðustíg 19 frá kl. 4—7
og í Alþýðuhúsinu eftir kl. 8.
STJÓRNIN.
NÝJA BÍG
Ævintýri íieikhúsinu
(„Lady of Burlesque“)
Sérkennileg og spennandi
mynd- Aðalhlutverk:
BARBARA STANWYCK og
MICHAEL O’SHEA.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
TJARNAEBfÓ
Sjóhetjur
(Heros of the Sea).
Rússneskur sjónleikur um
Svartahafsflotann í orustu.
S. D. STOLYAROV,
A. M. MAKSIMOVA,
A. A. ARKADEV.
Sýnd kl. 5, 7 og 9-
Ný bófes
lslenzk samvinnufélög
- hundrað ára
Rochdaleíélagið á aldarafmæli á þessu hausti og verð- [
ur þess afmælis minnst víða um heim.
En á þessu hausti á samvinnuhreyfingin íslenzka einn-
ig aldarafmæli. Haustið 1844 voru fyrstu verzlunarsamtök I
bænda, sem kunnugt er að stofnað hafi verið til með
formlegum hætti, mynduð norður í Þingeyjarsýslu.
Arnór Sigurjónsson hefur kannað þær heimildir, sem
handbærar eru, um þessi fyrstu verzlunarfélög, aðdrag- ]
anda og áhrif þeirra. Bókin „íslenzk samvinnufélög hundr-
að ára“, er niðurstaða þeirra rannsókna. Jafnframt því, £
sem Arnór segir hér hina merkilegu sögu fyrstu verzlun-
arfélaganna þingeyzku, rekur hann og aðdraganda og sögu
Gránufélagsins, Félagsverzlunarinnar við Húnaflóa, Verzl-
unarfélagsins í Reykjavík og upphaf Kaupfélags Þingeyinga. ]
Bókin er því stórmerk og sérlega glögg heimild um jj
þýðingarmikinn þátt (í íslenzkri menningar- og f ramfara-
baráttu. En hún er jafnframt mjög læsilegt rit. Ritleikni
Arnórs Sigurjónssonar er alkunn og frásagnarháttur rnjög]
skemmtilegur. Verður ekki á betri skemmtilestur kosið
en suma kafla þessarar bókar.
Um bókina í heild er það að se^ja, að hún bregður
ljósi yfir líf og baráttu kynslóðar, sem er orðin okkur, er
nú lifum, furðulega fjarlæg, þótt ekki séu liðin nema
60—100 ár síðan hún var uppi.
Enginn samvinnumaður getur látið hjá líða að lesa
þessa fróðlegu og skemmtilegu bók.
Snaefandsúfgáfan
DANSSKÓLI
minn tekur til starfa næstu daga.
Kennt verður:
Nýtízku samkvæmisdansar og Ballet.
Upplýsingar í síma 2016 daglega til næstkomandi mið-
vikudags frá kl. 2.
SIF ÞÓRZ danzkennari.
til Ameríku, en þaðan hefur sótzt
mjög seint að ná í járn. Er því
hæpið, að byrjað verði á nýju
brúnni að nokkru ráði fyrr en
síðla vetrar eða í vor snemma,
mcð því lika, að timbur í steypu-
mót kemur ekki fyrr en undir
áramót. Eg tel þó, að þess megi
vænta, að nýja brúin geti verið
' fullgerð undir árslok 1945, ef ekki
stendur á brúarefni. Þrátt fyrir
það tel ég öruggara og eftir atvik-
um réttara að reyna að útvega
sem fyrst tvo nýja strengi frá
Bretlandi, þó að það ■ taki 2—3
mánuði minnst. Má þá sjá tfl, er
þcir koma, livort hcnta þætti að
kosta þvi til að bæta þeim við á
gömlu brúna eða geyma, þar til
! hún yrði ef til vill sett upp annar
staðar, styrkt og endurbætt, og þá
meðal annars á nýjum strengjum,
því að ekki mundi þykja öruggt
að nota lengur gömlu strengina“.
Leggur vegamálastjóri til að
lokum að „ríkisstjórninni verði
falið að styjrkja brújna á þann
hátt, sem lagt er til í áliti verk-
fræðinganna“.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Ljósatími ökutækja er frá kl. 3.55
e h. til kl. 8.25 f. h.
Næt’.irakstur: Hreyfill, sími 1633.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólaanum, sími
5030.
Bygginsamálasýningln verður op-
in daglega kl. 1—10 fram á n.k.
sunnudagskvöld. Hátt á 4. þúsund
manns hafa séð sýninguna.