Þjóðviljinn - 30.11.1944, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. nóv. 1944-
ÞJÖÐVILJINN
3
Bœndaráðstefna Alþýðusambandsins;
M sanstarl bxida ag nmaiaaaa kA aaiðsn
Rádsfefnan gerðí álykfanír um ýms hagsmunamál sveífafófksíns
Bændaráðstefna sú, er Alþýðusamband íslands boðaði til á
s. I. sumri, var haldin í Reykjavík, dagana 23.—26. nóv. For-
seti Alþýðusambands íslands, Guðgeir Jónsson, setti ráðstefnuna
og bauð fullltrúa velkomna. Ávörp fluttu af hálfu Alþýðusam-
bandsins þeir Jón Rafnsson og Hermann Guðmundsson.
Fundarstjórar ráðstefnunnar voru þeir Ingólfur Þorsteinsson
og Magnús Ingimundarson en ritarar Skúli Guðjónsson og Ját-
varður Jökull. Fimm nefndir voru starfandi á ráðstefnunni.
Þeim Steingrími Steinþórssyni, búnaðarmálastjóra og Pálma
Einarssyni, jarðræktarráðunaut, var boðið á ráðstefnuna þegar
rædd voru skipulagsmál landbúnaðarframleiðslunnar og ný-
byggðamál. Búnaðarmálastjóri gat ekki mætt vegna anna, en
Pálmi Einarsson mætti á ráðstefnunni og flutti mjög ýtarlegt og
fróðlegt erindi.
Ráðstefnan samþykkti eftirtaldar ályktanir, allar í einu hljóði:
1. Um verðlag og afurðasölumál (Frá verðlagsnefnd).
2. Kaupgjalds- og vegavinnumál (Frá kaupgjaldsnefnd).
3. Um skipulagningu framleiðslunnar (Frá skipulagsnefnd).
4. Um samstarf verkamanna og bænda (Frá samstarfsnefnd).
5. Ályktun allsherjamefndar (Frá allsherjarnefnd).
Ráðstefnunni var slitið sunnudaginn 26. nóvember. 30—40
fulltrúar sátu ráðstefnuna.
í framkvæmdarnefnd til und-
irbúnings næstu ráðstefnu voru
kosnir þessir menn:
Guðm. Pétursson, Mel, Mýra-
sýslu, Skúli Guðjónsson, Spjót-
unnarstöðum, Strandasýslu.
Gunnar Benediktsson, Hvera-
gerði, Árnessýslu, Játvarður
Jökull, Miðjanesi, Barðastranda
sýslu og Ásmundur Sigurðsson
Reyðará Austur-Skaf taf ells •
sýslu.
ÁLYKTUN í VERÐLAGS- OG
AFURÐASÖLUMÁLUM
1. Ráðstefnan lítur svo á, að
með samkomulagi sex-manna-
nefndarinnar um hlutfall milli
kaupgjalds og söluverðs land-
búaðarvara hafi verið stigið
þýðingarmikið spor í rétta átt.
Leggur ráðstefnan ríka áherzlu
á, að einnig eftir stríð haldist
sá háttur að búvörur verðlegg-
ist eftir reglum, sem fulltrúar
íramleiðenda og neytenda koma
sér saman um.
Telur ráðstefnan eðlilegast að
verð varanna sé miðað við með-
albú og framleiðsluskilyrði í
betra lagi. Jafnframt verður að
gera sérstakar ráðstafanir á-
kveðnar eftir staðháttum á
hverjum tíma, til að tryggja
lífsafkomu þeirra bænda: sem
búa við svo slæm skilyrði, að
þau veiti þeim ekki viðunandi
lífskjör og lögð áherzla á að
greiða þeim götu til betri lífs-
skilyrða.
2. Ráðstefnan lítur svo á, að
sölu og dreifingarkostnaður
landbúnaðarvara sé í flestum
tilfellum óhæfilega hár og legg'
ur ríka áherzlu á að allt verði
gert sem unnt er til að draga
úr honum.
3. Ráðstefnan telur að leggja
beri megináherzlu á það. að bú-
vöruframleiðslan beinist inn á
þær brautir, sem að þörfum
neytendanna vita og telur það
megin nauðsyn að taka upp
ýmsar nýjar framleiðslugrein-
ir og skipuleggja þær sem fyr-
ir eru betur í samræmi við eft-
irspurn og neyzluþörf. Lítur
ráðstefnan svo á, að með núver
andi afurðasölulöggjöf hafi
ekki verið stefnt að þessu
marki og hún sé þegar orðin
úrelt og þurfi endurskoðunar
við, enda hafi hún að nokkru
valdið því misræmi, sem nú er
milli kjöt- og mjólkurfram-
leiðslu í landinu.
Leggur ráðstefnan til að í
þeim héruðum, þar sem sauð-
fjárrækt hlýtur að verða aðal-
atvinnuvegur enn um sinn, fái
bændur sams konar forréttindi
á innlenda markaðinum með
sína framleiðslu og mjólkur-
framleiðendur hafa þegar feng
ið með sínar framleiðsluvörur.
Ennfremur að þeim héruðum
utan núverandi mjólkursölu-
svæða, sem talizt geta heppi-
leg til nautgriparæktar, verði
sköpuð skilyrði til mjólkurfram
leiðslu t. d. með styrk til þess
að koma upp mjólkurvinnslu-
stöðvum (þurrmjólkurvinnsla).
2. KAUPGJALDS OG VEGA-
VINNUMÁL
(Frá verlcamálanefnd).
1. Ráðstefnan álítur að nauð-
syn sé að samræma kaup vega-
vinnumanna og annarra dag-
iaunamanna í sveitum landsins.
2. Ráðstefna álítur 8 stunda
vinnudag í vegavinnu sjálf-
sagðan og við landbúnaðarstörf
þar sem því verður við komið
og leggur ríka áherzlu á að lög-
gjöf um þessi efni verði hald-
in.
3. Ráðstefnan er mótfallin
kauplækkun og telur að hún
sé ekki fyrst og fremst úr-
lausn hinna aðkallandi vanda-
mála.
4. Ráðstefnan leggur áherzlu
á að verkalýðssamtökin gang-
ist fyrir því að við vinnu í slát-
urhúsum og á öðrum stærri
vinnustöðvum í sveitum, gildi
hið sama um kaup og kjör og
umsamið er á hverjum tíma við
ríkisstjórnina í op.inbérri vinnu
sveitum.
SKIPULAGNING FRAM-
LEIÐSLUNNAR '
Ráðstefnan telur brýna nauð-
syn að beina þróun landbúnað-
arframleiðslunnar í það horf
að sem mest verði framleitt fyr
ir innlendan markað, með því
að dregið sé úr kjötframleiðslu,
en mjólkurframleiðsla aukin í
þeim héruðum, sem næst
liggja helztu markaðsstöðum
landsins, eða teljast vel fallin
til framleiðslu á vinnsluvörum
úr mjólk.
Jafnhliða verður að stefna að
því, að innan fárra ára verði
allur landbúnaður rekinn á
ræktuðu landi, eða öðru landi
þess ígildi.
Heppilegust leið til að ná
þessu marki telur ráðstefnan
vera stofnun byggðahverfa á
ákveðnum stöðum, þar sem
lögð sé áherzla á framleiðslu
þeirra vara, sem helzt er skort-
ur á í landinu, mjólkurvörur
egg, grænmeti o. fl- Telur ráð-
stefnan að ekki verði hjá því
komizt að hið opinbera láti til
sin taka meir en verið hefur,
um að koma framleiðslu land-
búnaðarvara á heilbrigðan
grundvöll með löggjöf og fjár-
iramlögum um stofnun slíkra
nýbyggða á þeim svæðum, þar
sem bezt skilyrði, með tilliti til
landgæða, samgangna við mark
aði, jarðhita, rafvirkjunar o. s.
frv.
Telur ráðstefnan að tillögur
þeirra Steingríms Steinþórsson
an búnaðarmálastjóra og Pálma
Einarssonar jarðræktarráðu-
nauts um stofnun byggða-
hverfa, stefni í rétta átt og legg
ur áherzlu á, að gripið verði til
skjótra og raunhæfra aðgerða
í þessu máli.
Telur ráðstefnan fnimvarp
þeirra Kristins E. Andréssonar
og Brynjólfs Éjarnasonar merki
legt laganýmæli í búnaðarmál-
um og lýsir yfir eindregnu
fylgi sínu við meginatriði þess.
SAMSTARF VERKAMANNA
OG BÆNDA
Ráðstefnan lítur svo á. að í
öllum meginatriðum fari svo
saman bæði menningarlegar og
hagsmunalegar þarfir allra vinn
andi stétta í landinu, bæði til
sveita og við sjó, að sem nán-
ast samstarf þeirra sé þeim öll-
um gagnkvæm nauðsyn til að
tryggja hagsmuni þeirra allra
sem fyllstum mæli.
Fyrir því lýsir ráðstefnan
íylgi sínu við stefnuskrá banda
lags vinnandi stétta og lýsir á-
nægju sinni yfir því hvað á-
unnizt hefur um myndun þess.
Telur ráðstefnan nauðsyn bera
til, að hið bráðasta takist að
sameina allar vinnandi stéttir
landsins í bandalagi vinnandi
stétta og þá fyrst geti verið um
launverulegan einhug að ræða
málum þjóðarinnar og trygg-
ing fyrir því, að stefnt sé að
efnahags- og menningarlegri
hagsæld alþýðunnar í meðferð
þeirra, þegar slíkt bandalag al-
þýðunnar getur einhuga mark-
að stefnu í þjóðarmálum og
staðið að baki forustu þeirra
hverju sinni.
Ráðstefnan heitir því á Al-
þýðusamband íslands og önnur
þau stéttarsamtök, er þegar
hafa tjáð sig fylgjandi stofnun
bandalags vinnandi stétta, að
kosta kapps um að fá félags-
samtök bænda til þátttöku. Þá
heitir ráðstefnan á alla þá
sveitamenn, sem skilja nauð-
syn þess bandalags, að vinna
sem ötullegast að því, hver
sínu héraði, að skipulögð sam-
vinna megi sem fyrst takast
milli alþýðu manna í sveitum
og við sjó.
Fyrir því samþykkir ráðstefn
an að kjósa úr sínum hópi 5
manna nefnd, og sé hlutverk
hennar eftirfarandi:
1. Að vinna að því, að sam-
tök bænda gerist aðilar að
Bandalagi vinnandi stétta og
skipuleggja áhugahópa í sveit-
um, er vinni að því marki.
2. Að hafa samband og sam-
vinnu við Bandalas* vinnandi
stétta um að tryggja sem nán-
ast samstarf við alþýðu sveit-
anna og fá aðstoð þess til að
vinna bandalagshugmyndinni
fylgi með því að komast í blöð
in um málið, gefa út sérstök rit
því skyni, halda uppi erinda-
rekstri o. fl.
3. Að undirbúa og gangast
fyrir nýrri ráðstefnu á grund-
velli þeirra ályktana sem gerð-
ar hafa verið á þessari ráð-
stefnu þar sem saman komi
fulltrúar félaga í sveitum eða
áhugahópa og einstakir áhuga-
menn, og leggur ráðstefnan á-
herzlu á, að ráðstefna sú gæti
orðið þegar á næsta hausti.
FRÁ ALLSHERJARNEFND
Bændaráðstefna Alþýðusam-
bands íslands haldin í Reykja-
vík dagana 23.-26. nóv. 1944
lýsir ánægju sinni yfir nýsköp-
un þeirri, sem ríkisstjórnin
hyggst að koma í framkvæmd,
hvað snertir atvinnuvegi þjóð-
arinnar.
Sérstaklega vill ráðstefnan
benda á eftirfarandi:
Þar sem það er öllum ljóst,
'að landbúnaðurinn er rekinn
neð seinvirkum aðferðum og
hefur þess vegna dregizt aftur
úr öðrum atvinnuvegum, sem
hafa nútímatækni í þjónustu
sína, þá lítur ráðstefnan svo á,
að alger nýsköpun þurfi að
eiga sér stað í landbúnaðinum
á næstunni m. a. með sam-
færslu byggðarinnar á þeim
stöðum, þar sem hentugast er
til byggðahverfa með tilliti til
raforku, ræktunar, markaða
o. s. frv.
Einnig lítur ráðstefnan svo á,
að ýtarleg rannsókn þurfi sem
fyrst að fara fram á því hvem-
ig eigi að haga hinum einstöku
framleiðslugreinum með tilliti
til hinna breytilegu búnaðar-
skilyrða á hverjum stað, svo að
framleiðsluvörur bænda geti
verið sem allra fjölbreyttastar
og um leið vandaðastar og
standi fyllilega jafnfætis við
landbúnaðarvörur annarra
þjóða að gæðum-
Ráðstefnan lítur svo á að hið
sívaxandi jarðabrask sé stór-
hættulegt fyrir landbúnaðinn
og skorar á Alþingi að setja ýt-
arlega löggjöf því til hindrun-
ar, enda verði að því stefnt að
ríki og hreppsfélög eignist þær
jarðir, sem ekki eru í sjálfs-
ábúð.
Það er einróma álit ráðstefn-
unnar að framvegis þurfi að
verða sem bezt samvinna milli
alþýðusamtakanna í bæjum og
borpum og félagssamtaka
sveitaalþýðunnar, svo að hinar
vinnandi stéttir geti sameinazt
eina órjúfandi heild, sem
standi að baki þeim verkefn-
um, sem núverandi ríkisstjóm
hyggst að framkvæma.
Frakkar gera ráðstaf-
anir gegn Gyðinga-
hatri
Andre Tixier, innanríkisráð-
herra Frakhlands, hejur tilkynnt,
að gripið verði til skjótra ráðstaf-
ana gegn samtökum, Gyðingahat-
ara.
Yfirvöldin ætla að láta fram-
kvæma húsrannsóknir á heimilum
og í skrifstofum og handtaka, ef
þörf krefur, forystumenn hins ný-
stofnaða „bandalags til varnar
hagsmunum þeirra, sem keypt
liafa fyrirtæki Gyðinga“.
Þetta bandalag liefur mótmælt
því, að þessum fyrirtækjum sé
skilað aftur til Gyðinga þcirra, sem
áttu þau.
Það hefur sent ráðherranum á-
skoranir, dreift flugritum með
samskonar óhróðri gegn Gyðing-
um og nazistar hafa breitt út.