Þjóðviljinn - 03.12.1944, Blaðsíða 1
Sfórsfgur rauða hersíns í Ungvcrralandi
lOeiis eii oinarliu nilll soiltlers
los 10 mstorrihls
Rússar taka Szekpzavd, Kaposovar. Paks og Dombovar
Rauði herinn nálgast nú síðustu varnarlínu Þjóð-
verja fyrir austan landamæri Austurríkis.
Stalín marskálkur gaf út sérstaka dagskipun í gær
um nýjan stórsigur 3. Úkrainuhersins í Suður-Ungverja-
landi. — í tveggja daga sókn hefur hann sótt fram 50
km. á 120 km. langri víglínu og tekið borgimar Szek-
szard, Kaposovar, Paks
um 300 þorp og bæi.
Ósigur Þjóðverja á vestur-
bakka Dónár er svo herfilegur,
;aÖ talið er, að þeim muni veitast
mjög erfitt að veita Rússum öfl-
uga mótspyrnu fyrr en þeir koma
að síðustu varnarlínu þeirra fyr-
ir austan landamæri Austurríkis.
Balatonvatn myndar þá varnar-
línu á kafla.
Rauði herinn er kominn góðan
spöl norður fyrir Paks á vestur-
bakka Dónár, og eru Þjóðverjar
orðnir smeykir um, að Rússar
hafi í hyggju að komast á bak
við Búdapest. — Yfirvöld borg-
arinnar eru farin að gera ýmsar
ráðstafanir fil undirbúnings, ef
til umsátar skyldi koma. Rauði
herinn á þarna um 80 km. ó-
og Dombovar auk þeirra
farna norður til borgarinnar. —
í þessari sókn nýtur hann stuðn-
ings rússneskra skipa á Dóná.
Því lengra sem rauði herinn
sækir vestur á bóginn, því lengri
verður undanhaldsleið þýzka
hersins, sem enn er á Balkan-
skaga. — Er það ekki minnsta á-
hyggjuefni Þjóðverja út af sókn
rauða hersins.
30 KM. FRÁ KOSICE
í Tékkoslóvakíu verður rauða
hernum vel ágengt. — Tók
hann um 25 þorp í Slovakíu í
gær, og eru nú um 30 km. frá
borginni Kosice, sem Ungverjar
hernámu, er þeir réðust á
Tékkoslóvakíu 1938.
Fyrirlitningin skín úr svip þessarar frönsku konu, þar sem hún
ir á þýzkan herfanga.
Ffárlagafrtiftivarpfð
ÚR LÍFI ALÞÝÐUNNAR
Halldór H. Snæhólm
hlaut verölaunin
Verðlaunin í greinasamkeppninni
úr lífi alþýðunnar hlaut að þessu
sinni reykvískur verkamaður, Hall-
dór H. Snæhólm. Er grein hans
hirt á 3. síðu.
Sendið verðlaunagreinar til rit-
stjórnar Þjóðviljans, Austurstræti
12, Rvík. Verðlaunin eru 100 kr„
veitt vikulega.
Bandarfkiamenn
komnir inn í
Saarlautern
3. bandaríski herinn und
ir stjórn Pattons er kom-
inn inn í úthverfi Saarlaut
erns í Saarhéraði.
Miklir eldar loga í borg-
inni eftir loftárásir og stór-
skotahríð Bandamanna.
Saarlautern er fyrsta stóra borg-
in í Saarhéraði, sem Bandamenn
komást inn í. — Hún er mið-
stöð vega og járnbrauta í miklu
kolanámahéraði.
9. HERINN INN í JtÍLICH
9. bandaríski herinn hefur brot-
izt inn í bæinn Júlich við ána Roer
og fcekið nokkurn hluta hans. —
Hann er einnig kominn inn í Linn-
ich.
Bjart veður var í gær, og gerðu
Thunderbolt-flugvé'lar miklar árás
ir á varnarstöðvar Þjóðverja á
eystri' bakka Roers.
1. bandaríski herinn hefur ger-
Framhald á 8. síðu.
#
0
I*
Islenzkir sjðmenn sæmdir brezkri orðu
Ftamlög til skóla, sjúkrahúsa, hafnargerða og vegalagninga stór
hækkuð f,á fromvarpi fyrrverandi ríkisstjórnar
Fjárveitinganefnd hefur skilað nefndaráliti um
fjárlagafrumvarpið 1945. Nefndin gerir mjög víðtækar
breytingatillögur við frumvarpið.
Þessar eru helztar:
í gær afhenti brezki sendiherr-
ann, herra Gerald Shepherd, þrem
íslendingum British Empire orð-
una fyrir björgun brezkra sjó^
manna úr sjávanháska. Orðuna
Heiilaóskir frá frjáls-
um Dönum
Forsætisráðhera hefur borizt
eftirfarandi símskeyti frá for-
ingja frjálsra Dana, Christmas
Möller:
„Á 26. afmæli fullveldis-
dags fslands bið ég yður
að móttaka beztu óskir
mínar um hamingjuríka
framtíð íslandi og íslend-
ingum til handa.“
Forsætisráðhera hefur svarað
rnieð svohljóðandi símskeyti:
„Þegar íslendingar í fyrsta
skipti eftir stofnun lýðveldisins
minnast fullveldisdagsins, færi
ég yður einlægar þakkir fyrir
vinarhug yðar og glöggan skiln-
ing á íslenzkum málstað.
Eg óska af alhug að þér meg-
ið sem fyrst snúa heim í frjálst
i'öðurland.“
hlutu þeir Einar Jónasson hafn-
sögumaður, Björn Guðmundsson
skipstjóri og Jón Axel Pétursson
hafnsögumaður. Afchöfnin fór fram
að heimili brezku sendiherrahjón-
anna, Höfða, að viðstöddum eig-
inkonum orðuþega, skipshöfn
dráttarbátsins „Magna“, hafnar-
stjóra og konu hans og ýmsum yf-
irmönnum brezka flotans hér við
land.
í ræðu, er sendiherra hélt við
þetta tækifæri, skýrði hann frá at-
vikum á þessa leið:
„Nóttina 10. janúar 1944 strand
aði brezkt herskip við Lundey í
myrkri. Stormur var og úfinn sjór.
Brezkur dráttarbátur fór þegar til
aðstoðar, en varð að hverfa aftur
vegna stórhríðar. Klukkustund
síðar var önnur tilraun gerð, en
vegna veðurs lét dráttarbáturinn
! ekki að stjórn, og varð aftur frá
að hverfa. Hálfri klukkustund síð-
ar tilkynnti skipstjórinn á brezka
herskipinu, að hann væri að yfir-
gefa skip sitt, og fór þá brezki
dráttarbáturinn þegar í stað aft-
ur á vettvang ásamt öðrum skip-
um, til þess að skyggnast eftir
Framh. á 5. síðu.
Tekjuhlið frumvarpsins er
hækkuð um rúmar 13 milljónir
krónur.
Gjaldahlið. Þessar eru helztu
hækkanir til menntamála:
1. Til tilrauna- og æfingaskóla
Kennaraskólans 250 þús. kr.
(Var ekkert á frumvarpinu.
2. Til bamaskóla utan kaup-
staða 800 þús. kr. í stað 400 þús.
3- Til byggingar héraðaskóla
800 þús. í stað 500 þús. kr.
4. Stofnkostnaður gagnfræða-
skóla 830 þús. kr. í stað 550 þús.
5. Til íþróttakennaraskóla 150
þús. kr. (Var ekkert í frumv.).
6. Til íþrótasjóðs 600 þús. kr.
(Var 450 þús. kr.).
7. Til iðnskólabyggingar 300
þús. kr. (Var 200 þús. kr.).
Til vegalagninga er gert ráð
fyrir 35 millj. kr. hækkun frá
frumvarpinu.
Fjárveitingu til hafnargerða
legugr nefndin til að hækki um
13 millj. frá frumv.
Lagt er til að til nýrra vita
verði veitt 600 þús. í frumv.
voru 250 þús. kr.
Til byggingar sjúkrahúsa og
læknisbústaða er lagt til að var-
ið verði 13 millj. meir en frumv.
gerði ráð fyrir.
Þá er lagt til að tekið verði
upp í frumv. 1 milljón kr. fjár-
veiting til jóðminjasafns.
Samkvæmt beiðni ríkisstjóm-
arinnar er tekið upp á 22. gr.
heimild handa ríkisstjóminni
til þess að taka allt að 15 millj.
kr. lán til þess að kaupa fiski-
skip frá Svíþjóð.
Fyrir þriðju umr. eru nokkrar
breytingatillögur væntanlegar.
Er þar fyrst að geta hækkun
tekjubálksins, en ríkisstjómin
mun ætla sér að gera tillögur
þar um.
Þá er enn ótekið upp í frumv.
talsverð hækkun útgjalda sezr.
leiða mun af samþykkt launa-
laganna-
Fulltrúr Sósíalistaflokksins í
fjárveitinganefnd geta þess í
nefndarálitinu að þeir hefðu
viljað fella niður einstaka út-
gjaldaliði sem enn eru á frum-
varpinu, en hinsvegar óskað eft-
ir að meira fé hefði verið varið
til ýmsra framkvæmda.
Vegna þess að óvenjulegur á-
hugi mun vera meðal almenn-
ings, fyrir breytingartillögum
veitinganefndar, mun verða
skýrt frá þeim næstu daga.
Vichy-herforingi
dauOúdsmdur
Parísarútvarpið tilkynnir, að
George Lelong, fyrrum herstjóri
Vichy-stjórnarinnar í Haute Sa-
voie, hafi verið dæmdur til
dauða fyrir samvinnu við óvin-
ina.