Þjóðviljinn - 07.12.1944, Page 2
>
ÞJÓÐVTLJINN
Finmitudagur 7. desember 1944..
Deilan nm Dyrhólafélagið rakin
flralöngu misrétti og ðgreiningsmálum lokið
Viðtal við Gunnar Stefánsson fulltrúa Verkalýðsfélags
Dyihólahrepps á AIÞýðusamhandshinginu
Hannibal, Sæmundur & Co. héldu á Alþýðusambandsþinginu
nppi mikliun áróðri gegn fulltrúa Dyrhólahreppsfélagsins
á þinginu og blésu sig út, ásamt Alþýðublaðinu, yfir þeirri
„lögleysu kommúnista“ að fulltrúa þessa félags skyldi vera veitt
þingseta með fullum réttindum.
Fréttamaður Þjóðviijans hafði tal af Gunnari Stefánssyni
fulltrúa Dyrhólafélagsins á Alþýðusambandsþinginu og ynnti
hann um deilumál Dyrhólafélagsins og Víkurfélagsins og fer frá-
sögn hans af þeim málum hér á eftir.
— Hvað viltu segja mér um
félag ykkar Dyrhólahrepps-
manna og deilu þá sem hafin
var út af þér sem fulltrúa á Al-
þýðusambandsþinginu ?
— Eg vil gjama taka fram
nokkur atriði vegna misskiln-
ings er gætti gagnvart upptöku-
beiðni Verklýðsfélags Dyrhóla-
hrepps og mér sem fulltrúa
þess, og einnig vegna rang-
færslna Alþýðublaðsins í þessu
máli.
VERKLVDSFÉLAG DYR-
HÓLAHREPPS STOFNAÐ
FYRIR 9 ÁRUM. — VAR
HINDRAÐ í ÞVÍ AÐ GANGA
í ALÞÝÐUSAMBANDIÐ
— Það er þá í fyrsta lagi, seg
ir Gunnar, að þeir, sem fjand-
sköpuðust gegn félaginu og mér
sem fulltrúa þess, gátu aldrei
annars en að félagið hafi ver-
ið stofnað 15. október s.l., en
sannleikurinn er að félagið var
stofnað um áramótin 1935—
1936.
—'Hvers vegna var félagið þá
ekki í Alþýðusambandinu?
— Félagið sendi inntöku-
beiðni til Alþýðusambandsins
og ítrekaði þá beiðni oftar en
einu sinni og fékk vilyrði fyr-
ir upptöku.
Þáverandi framkvæmdastjóri,
sem ég ætla að hafi verið Jón
Axel, tók vel í þá málaleitan
okkar en kvaðst fyrst þurfa að
tala við formann verkamanna-
félagsins Víkings í Vík, sem þá
var Óskar Sæmundsson. Maður-
inn sem fór með inntökubeiðni
félags okkar til Alþýðusam-
bandsins var Guðmundur
Bjömsson, Hryggjum.
— Hvemig fór svo?
— Eftir að framkvæmdastjóri
Alþýðusambandsins hafði talað
við Óskar Sæmundsson taldi
hann ómögulegt að taka félag
okkar í sambandið á þeirri for-
sendu að Víkurbúar hefðu sett
starfssvæði Víkings í báða
hreppana, Hvammshrepp, sem
Vík er í, og Dyrhólahrepp.
FÉLAGSSVÆÐIÐ SETT ÁN
SAMÞYKKIS DYRHÓLA-
HREPPSMANNA OG ÞEIM
SÍÐAN BOLAÐ FRÁ VINNU
— Þessa ákvörðun, að láta
starfssvæði Víkurfélagsins ná
einnig yfir Dyrhólahrepp, tóku
| Víkurbúar án þess að leita þar
álits eða samþykkis Dyrhóla-
hreppsbúa-
— Vilduð þið ekki vera í Vík-
urfélaginu?
— Við sáum það frá upphafi,
að það var stefna þeirra Víkur-
búa að láta okkur ekki hafa
neina vinnu fyrr en þeir gátu
ekki torgað henni sjálfir. Auk
þess er erfitt fyrir okkur að
sækja fundi í Vík, þar sem um
langar vegalengdir er að ræða,
eða um 20 km. vestast úr
hreppnum.
VINNUSKIPTASAMNINGUR
SEM ALDREI VAR HALDINN
— Svo gekk í þessu þófi hjá
okkur allt til ársins 1939 að
fyrir atbeina Alþýðusambands-
stjómarinar var gerður samn-
ingur um vinnuskipti milli
hreppnanna og var hann í aðal-
atriðum þannig, að vinnuskipt-
ing skyldi grundvallast á deilda
skiptingu, skyldu félagsdeild-
imar vera tvær, hvor í sínum
hreppi, og væri aðalstjóm fé
lagsins skipuð mönnum úr hvor
um hreppi sem næst að jöfnu.
Það var aldrei haldinn sam-
eiginlegur fundur til þess að
•ganga frá þessum samstarfs-
grundvelli, en hann var undir-
skrifaður af báðum aðilum. Var
þetta gert fyrir milligöngu Ósk-
ars Sæmundssonar.
En strax og samningur þessi
átti að koma til framkvæmda
var hann þverbrotinn.
Það var margviðurkennt af
Alþýðusambandsstjórninni að
Víkurbúar brutu þennan samn-
ing, og síðan héldu þeir upp-
teknum hætti að bola okkur frá
vinnu, jafnt í okkar hreppi sem
þeirra og boðuðu þeir okkur
ekki á fundi — hafi þeir ein-
hverjir verið haldnir.
ÞETTA VARÐ TIL ÞESS AÐ
DYRHÓLAHREPPSMENN
GENGU ÚR FÉLAGINU
— Þetta varð til þess að flest-
ir félagsmenn úr Dyrhóla-
hreppi, sem þá voru í Víking,
gengu úr félaginu, því þeir sáu
sér ekki til neins að vera í fé-
iaginu, og var enn á ný leitað
til Alþýðusambandsins til þess
að fá þetta leiðrétt — eftir ár-
angurslausar tilraunir að ná
samkomulagi beint við Víkara.
Gunnar Stefánsson.
Alþýðusambandið fékk engu
áorkað, þrátt fyrir yfirlýstan
vilja sambandsstjómar að fá
þetta leiðrétt.
VÍKURMENN HAFA SAM-
KOMULAGSVILJA SAM-
BANDSSTJÓRNAR AÐ ENGU
— Svo var það veturinn 1943
að ég átti tal um þetta við
sambandsstjóm og lofaði hún
að leysa þetta mál, og sagði að
við skyldum ganga í Víkurfé-
lagið aftur. Þetta gerðum við
smámsaman og munu allmargir
hafa gengið í Víkurfélagið aft-
ur-
Síðastliðinn vetur, í marz,
sendi sambandsstjórn báðum
aðilum bréf, þar sem hún skor
ar á báða aðila að semja sam-
eiginlega um vinnuskiptinguna
og höfðum við Dyrhólahrepps-
menn ekkert við það að athuga,
ef hægt væri að fá trygga samn
inga.
Stjórn Víkings — en bréfið
var sem fyrr segir sent til
beggja, Dyrhólahreppsmanna og
Víkurbúa — lét ekkert frá sér
heyra, og var ekkert samið.
BRÉF SAMBANDSSTJÓRNAR
FÉKKST EKKI RÆTT í
VÍKING
— í haust, 17. sept s.l. héldu
Víkingar fund til þess að kjósa
fulltrúa á Alþýðusambandsþing.
Þessi fundur var ekki boðaður
Dyrhólahreppsmönnum fyrr en
kvöldið áður og margir fengu
ekkert um hann að vita.
Eg komst þó á þennan fund
og eitthvað 5 aðrir úr Dyrhóla-
hreppi. Eg spurði þá Víkings-
menn að því hvort þeir hefðu
fengið fyrrnefnt bréf sambands-
stjórnar, viðurkenqdu þeir það.
Var mér leyft að lesa bréfið
fyrir fundinum og bar ég fram
tillögu um að skipa nefnd í mál
ið, en formaður neitaði að bera
hana undir atkvæði, neitaði að
láta ræða þetta mál og sleit
fundi í hasti.
Fulltrúakosning var um garð
gengin þegar við komum á fund
inn. Þetta hvorttveggja kærðum
við til sambandsstjórnar.
Heita vatnið
íbúar á Skólavörðuholti
bölva sáran þessa dagana. Heita
vatnið hverfur kl. 3—5 á hverj-
um degi, eftir það verða þeir
að sitja í kuldanum. Hugsið
ykkur bamaf jölskyldur, sem
verða að búa við þetta ástand.
Flestir vilja komast hjá því að
fara að kynda með kolum aft-
ur, þar sem þeir hafa borgað
offjár fyrir hitaveitulögn, sem
síðan er þeim sama og ónýt.
Eg hitti maim í gær, sem vildi
fara í mál við hitaveituna vegna
þessara svika. Ekki veit ég
hvemig sá málarekstur gengur,
en eitt er víst að hér er um
mistök að ræða, sem geta orðið
bæjarbúum dýr.
Á 1. hæð og 3. hæð
Annan mann hitti ég nýlega
AÐ TILHLUTUN SAMBANDS-
STJÓRNAR VAR HALDINN
ANNAR FUNDUR TIL AÐ
RÆÐA MÁLIÐ, EN VÍKARAR
SAMÞYKKTU AÐ VÍSA
ÞVÍ FRÁ
— Kæra okkar varð til þess
að þeir urðu að halda annan
fund, bæði til þess að afgreiða
þetta mál og einnig til þess að
kjósa fulltrúa. Sá fundur var
haldinn 8. okt- og sendi sam-
bandsstjóm mann á þann fund.
Við fórum fram á það að
deilumálin yrðu rædd fyrst, því
ef horfið yrði að því ráði að
skipta féiagssvæðinu í tvö sjálf-
stæð félagssvæði leiddi það af
sjálfu sér að við tækjum ekki
þátt í fulltrúakosningu í Vík-
urfélaginu.
Stjórn Víkurfélagsins fékkst [
ekki til að ræða deilumálin á
undan og vorum við því neydd-
ir til að taka þátt í fulltrúa-
kosningu í Víkurfélaginu.
Að kosningu lokinni vom
deilumálin tekm fyrir. Fulltrúi
sambandsstjómar, Jón Rafns-
son, lagði þar fram ákveðnar
tillögur til grundvallar vinnu-
skiptingunni, sem átti að gmnd-
vallast á lengdum veganna í
hvorum hreppi um sig. En þó
að þetta mál væri tekið til um-
ræðu vildu Víkurbúar ekki
ræða það og samþykktu þeir
að vísa þvi frá.
VIÐ HÖFÐUM ÁKVEÐIÐ AÐ
ENDURSTOFNA FÉLAG
OKKAR EF EKKI NÆÐIST
SAMKOMULAG
— Við, Dyrhólahreppsmenn,
höfðum haldið fund 1. okt. og
samþykktum við þar að endur-
stofna okkar eigið félag, ef svo
skyldi fara að viðunandi samn-
ingar.næðust ekki við Víkara
um vinnuskiptingu milli hrepp-
anna.
Að loknum Víkurfundinum,
sem fyrr getur, sendum við
Alþýðusambandsstjórn umsókn
um upptöku í sambandið, en
vildum. ekki kjósa fulltrúa á
sambandsþing fyrr en við hefð-
um fengið svar sambandsstjórn-
sem á heima neðarlega í Skóla-
vörðuholti. Hann býr á 3. hæð.
Vatnið hverfur hjá honum kl.
3—4 daglega. Fólkið á 1- hæð
hefur aftur á móti nóg vatn
fram til kl. 7—8. Þessar tvær
fjölskyldur hafa nákvæmlega
jafn stórar íbúðir og jafn stóra
ofna, og þær borga jafn mikið
fyrir hitann, þótt önnur hafi
hann að jafnaði 4—5 klukku-
stundum skemur, þar sem einn
mælir er fyrir allt húsið, en
hitanum jafnað niður eftir ele-
mentafjölda. Svona misrétti er
ekki hægt að lagfæra nema
nægilegt vatn fáist, eða aðrar
ráðstafanir gerðar, sem duga.
Kalda vatnið
Ekki bætir það skap íbúanna
á Skólavörðuholti, að þeir fá
Framh. á 5. síðu.
ar við upptökubeiðni okkar..
Svar sambandsstjórnar fengum
við 20. okt. og var þar sagt að'
upptökubeiðni okkar hefði ver-
ið samþykkt 15. okt-, og boðuð-
um við þá strax fund til þess
að kjósa fulltrúa á sambands-
þing og var sá fundur haldinn
tveim dögum síðar, eða 22. okt.
Það var því fjarri allri sann-
gimi að ásaka félag okkar fyr-
ir það, að hafa ekki kosið full-
trúa sinn á sambandsþing fyrir
15. okt., þar eð félagið fékk eigi
upptöku í sambandið fyrr en a&
kvöldi þess dags- Með sama
rétti hefði mátt útiloka t. d.
fulltrúann frá Verklýðsfélagi
Hofsóss, sem samþykkti ekki að>
sækja um upptöku í sambandið
né kaus fulltrúa sinn fyrr en
undir þingbyrjun.
VONAST EFTIR AÐ FÉLÖGIN
EIGI EFTIR AÐ VINNA SAM-
AN SEM JAFNRÉTTHÁIR
AÐILAR
— Þá hef ég sagt þér frá
gangi deilumálanna, segir Gunn
ar. Það er von mín, að erfiðasti
hnúturinn sé leystur með þess-
ari niðurstöðu og að þessi tvö
félög eigi eftir að vinna sam-
an í bróðerni að málum sveit-
arinnar og alþýðunnar sem
heildar, sem tveir jafnréttháir
aðilar innan Alþýðusambands
íslands.
SMÁBÆNDUR, SEM VERÐA
AÐ VINNA UTAN HEIM-
ILIS SÍNS
— Hvað eru margir í hinu
endurstofnaða félgi ykkar?
— í Víkurfélaginu voru aldrei
fleiri úr Dyrhólahreppi þegar
bezt lét, en 30 manns og allt
niður í 10, en nú eru í félagí
okkar 54.
í félaginu eru mest smábænd-
ur, sem verða að vinna utan
heimilis, verða margir þeirra
að sækja vinnu langt út fyrir
hreppinn, bæði á vertíð og síld.
Ennfremur eru í félaginu marg-
ir ungir menn, sem ekkert hafa
nema sína eigin vinnu.
J. B.