Þjóðviljinn - 09.12.1944, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 0. desember 1944.
þJÓÐVlLJIKN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíaltsiuflokkurinn.
Bitstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmunthson.
Stjómmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 18, simi 8870.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, simi 818Jf.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrœti 17.
Eiga brezkir byssustingir að vernda
fasistana í Evrópu?
I’að hnykkti mörgum við, þegar Churchill, forsætisráðherra Breta,
lýsti yfir stuðningi sínum við Franco-stjórnina á Spáni í brezka þinginu.
Það veit þó hver maður, að sú stjórn er bandamaður Hitlers, — að
morðingjastjórnin í Madrid er engu betri en stjórn brennuvarganna í
Berlín, — að fasismanum er síður en svo útrýmt í Evrópu, meðan
Franco situr í Madrid.
Lýðveldissinnar Evrópu muna það að árásarstyrjöld Hitlers á lýð-
veldi Evrópu hófst með árásinni á lýðveldisríkið Spán — og að fyrstu
quislingarnir í Evrópu voru eiðrofarnir og landráðamennirnir Franco
og kumpánar hans.
Það er ‘von allra lýðræðissinna að þess verði ekki langt að bíða
að sigursæl uppreisn hefjist á Spáni, að þær 500 þúsundir manna og
kvenna, sem nú eru í fangelsum Francos, verði frelsaðar, og hin hrausta
spanska þjóð fái frelsi sitt á ný.
Það var kjaftshögg á lýðræðissinna heims, að Churchill skyldi lýsa
yfir stuðningi sínum við þann vopnaða bandittaflokk, sem með aðstoð
Hitlers og Mussolinis brauzt til valda á Spáni.
En Churchill verður ekki spurður, þegar Franco verður steypt.
Það hefur líka haft óþægileg áhrif á þá, sem berjast á vígvöllunum
gegn fasistum, að fasistum þeim, sem fangelsaðir hafa verið í Bretlandi
frá stríðsbyrjun, skuli nú hafa verið sleppt. Nú eru haldnir fasistafundir
í Hyde Park í London og brezk lögregla verður að vernda fasistana
gegn brezkum borgurum, sem finnst að þeir hafi ekki þolað þjáningar
aíðustu fimm ára, til þess að láta fasismann vaxa upp aftur.
En út yfir tekur þó, þegar brezkum her er beitt með skotvopnum,
-kriðdrekum og flugvélum gegn frelsisher þeim, sem í þrjú ár hefur
barizt í Grikklandi og frelsað landið undan oki fasismans að mestu áður
i-a brezki herinn kom.
Það er hart að sjá brezkum her blandað inn í innanríkismál Grikkja
iil þess að halda hlífiskildi yfir quislingunum, sem með Þjóðverjum
iinnu, og þeim afturhaldssömu ráðherrum, sem þeim vilja hlífa.
Brezka stjórnin virðist eiga bágt með að þola það að þjóðimar
} angi milli bols og höfuðs á samverkamönnum fasista, ef þeir eru vinir
' oldugra manna í City. En Grikkir, Spánverjar, Belgir munu ekki
-oyrja að því, þegar tekið verður að hegna quislingunum — og það
r kilja allir lýðræðissinnar. Og ef megnið af auðmönnum eins lands hefur
r-vikið landið, þá verður líka að refsa þorra auðmannanna í landi því,
jíka þó Englandsbanki eigi erindreka í þeirra hóp.
Öll frjálslynd öfl Evrópu fordæma atferli brezku stjórnarinnar.
Verkamannaflokkur Bretlands mun að líkindum krefjast þess að
j ynduð sé stjórn í Grikklandi af fulltrúum allra flokka, sem gegn Þjóð-
a rjum börðust, en sú stjórn Papandreous, sem nú hefur flekkað hendur
.-; uar i blóði grískra frelsisvina, fari frá.
„Times“, áhrifamesta blað Breta, gagnrýnir stjórnina harðlega fyr-
i; framkomu hennar.
Engum lýðveldissinna blandast hugur um að hér er af hálfu brezka
b.Tsins um stuðning við einræði og fjandskap við lýðræðisöflin að ræða.
Alþýðublaðið hefur tekið ákveðna afstöðu í þessari baráttu — með
f aræði og hervaldi Breta í Grikklandi gegn lýðræðisöflunum. Það
tj ,drar engan, sem þekkir j>að blað. — Alþýðublaðið stóð með quislingn-
s i Michailovitsj gegn frelsisherjum Titos, — með svikaranum .Darlan
g gn de Gaulle, — óskaði Hitler sigurs yfir Sovétríkjunum og hatast
j, í eðlilega við lýðræðisöfl Grikkja. — En það eru fá önnur fasistablöð
að Francos undanteknum nú upp á síðkastið(!!) — svo brjóstheil,
uö kenna sig samt við lýðræðið!
Stutt saga um viðureiga við nátttröll á 20. öld
UerzlBBsrsiBBiaíÉIai Uesfmannaeiiia mon fieriasf fii sísurs
prðtt furir brottrebstra oo blofnfnosstarfssenii kaio-
í
'SF.MI'W'
Viðtðl við Ingiberg Jónsson, tormann féiagdns
Lesendur Þjóðviljans munu minnast þess að snemma á s. 1.
sumri gerðust þau tíðindi í Vestmannaeyjum að verzlunarmenn
stofnuðu sitt eigið stéttarfélag. Þetta var mjög eðlileg og sjálf-
sögð ákvörðun og flestum starfandi mönnum fundizt þetta góð
tíðindi, þótt gjama hefðu verzlunarmenn í jafn fjölmennxun bæ
og Vestmannaeyjar em mátt taka þessa ákvörðun fyrr.
Sem áframhald af þessum tíðindum gerðust önnur: Einn
mektarkaupmaður 1 Vestmannaeyjum sagði starfsfólki sínu upp
vegna þátttöku í félagsskap verzlunarmanna, og nokkm síðar
stofnuðu kaupmenn í Vestmannaeyjum klofningsfélag, í þeirri
von að takast mætti að drepa samtök verzlunarmannanna.
Þessir atburðir leiddu tvennt í ljós: f fyrsta lagi að verzl-
unarmenn í Vestmannaeyjum gerðu sér ljóst hlutverk sitt við
hlið stéttarsamtaka annarra vinnandi stétta.
í öðru lagi höfðu kaupmenn í Vestmannaeyjum auglýst sig
öllum landslýð sem nátttröll, er halda að þeir lifi enn á þeim
tímum þegar hinn vinnandi maður var réttlaus vera.
Fréttamaður Þjóðviljans hitti Ingiberg Jónsson, formann
Verzjunarmannafélags Vestmannaeyja og spurði hann um at-
burði þessa.
— Hvenær stofnuðuð þið
verzlunarmannafélag ykkar í
Eyjum?
— Við stofnuðum það í júní
s. 1.
— Hvað voru stofnendur
margir?
— Stofnendur voru 53, eða
flestir verzlunarmenn í Vest-
mannaeyjum, og síðan hafa
10—20 gengið í það.
FYRSTA STÉTTARFÉLAG
VERZLUNARMANNA í VEST-
MANNAEYJUM
— Hafði aldrei verið stofnað
verzlunarmannafélag í Vest-
mannaeyjum áður?
— Jú, fyrir nokkrum árum
var félag undir handarjaðri at-
vinnurekenda. Það var aldrei
stéttarfélag, heldur blandað
bæði atvinnurekendum og laun
þegum, þ. e. kaupmönnum og
verzlunarfólki, og varð félag
þetta aldrei langlíft.
Þetta var því fyrsta tilraun
til þess að stofna stéttarfélag
verzlunarmanna í Vestmanna-
eyjum.
KAUPMENN REYNA AÐ
STOFNA KLOFNINGSFÉLAG.
— Gerðuð þið svo samninga við
kaupmenn?
— Eftir stofnun félagsins buð-
um við kaupmönnum viðræður um
samninga, en í stað þess að virða
okkur svars, og án þess að vita
hvað við færum fram á, stofnuðu
atvinnurekendur klofningsfélag.
— Var það fjölmennt?
— Á stofnfundinum gengu í það
41.
— Þú sagðir áðan að flest verzl-
unarfólk hefði gengið í ykkar fé-
lag. Hvers konar fólk var það þá
sem gekk í atvinnurekendafélagið?
— Af þessum 41 voru 17 kaup-
menn eða flestallir kaupmenn bæj-
arins. Milli 10 og 20 forstjórar,
nokkrir bakarameistarar, bæjar-
gjaldkerinn í Vestmannaeyjum,
skrifstofustjóri sjúkrasamlags
Vestmannaeyja, — og var því fátt
um beina launþega í þessum fé-
lagsskap.
BROTTREKSTRAR OG HÓT-
ANIR UM BROTTREKSTRA.
— A hvaða grundvelli starfaði
þetta kaupmannafélag?
— Þeir töldu sig vinna á svip-
uðum grundvelli og Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur.
Engum duldist þó í hvaða til-
gangi félagið var stofnað.
— Fenguð þið samninga um
kaup og kjör?
— Nei, samninga hefur félagið
enn enga fengið. Móttökur at-
vinnrekenda voru brottrekstrar og
hótanir um brottrekstra.
HÓTAÐI MÁLSÓKN
EN HÆTTI SVO VIÐ.
— Báru hótanir þeirra mikinn
árangur?
— Nei, hótanir þeirra munu
engan teljandi árangur hafa borið,
og er félag okkar ákveðið í því að
berjast til sigurs fyrir verzlunar-
fólkið.
Við gengum strax í Alþýðusam-
bandið. Skeyti, sem við fengum frá
Alþýðusambandinu var birt í
glugga Kaupfélags Verkamanna í
Vestmannaeyjum. Helgi Bene-
diktsson stefndi Kaupfélagi verka-
manna fyrir að birta skeyti þetta
í glugganum, en seinna tók hann
kæru þá til baka.
ætti að stofna félag, og var beðið
um atkvæðagreiðslu um félags-
stofnunina.
Ég spurði hvort ekki mætti ræða
þetta mál. Því var svarað neit-
andi! Fór því næst fram atkvæða-
greiðsla um félagsstofnunina.
Að því loknu sagði fundarstjóri
að næst væri að samþykkja lögin.
Ég spurði hvort fundarmenn
mættu ekki heyra þau fyrst. Því
var svarað neitandi! Var síðan
skjal látið ganga milli manna þar
sem undirritaðir skuldbundu sig
til þess að halda lög félagsins(!)
Þegar undirskriftum var lokið var
farið að lesa upp lagagreinarnar,
eina og eina, og samþykkja þær.
Síðar á fundinum spurði ég
'hvort ekki mætti gera fyrirspurn.
Því var harðlega neitað(!)
— Mætti ég vita hver var fund-
arstjóri á þessum merkilega fundi?
— Já, hann heitir Guðlaugur
Gíslason og er forstjóri Snæfells.
— Ilvað er nú að frétta af ykk-
ar félagi?
— Þrátt fyrir hinar kaldrana-
legu móttökur kaupmanna við fé-
lagi okkar er félagið eins ákveðið
nú og í upphafi að berjast til sig-
urs fyrir hagsmunamálum verzl-
unarfólksins i Eyjum, enda hefur
Alþýðusambandið heitið okkur
fullum stuðningi sínum. J. B.
‘
>
EIN FURÐULEGASTA
FÉLAGSSTOFNUN
Á LANDI HÉR.
— Þessar aðfarir kaupmanna í
Vestmannaeyjum liafa vakið furðu
um allt land; lætur þetta félag
mikið til sín taka?
— Já, þessi félagsstofnun var
öll dálítið furðuleg.
Þeir boðuðu til fundarins með
því að skrifa öllum verzlunar-
mönnum í Vestmannaeyjum og
bjóða þeim þátttöku. Ég mætti á
þessum fundi, en enginn annar úr
félagi okkar kom þar.
Á þessum fundi var því fvrst
lýst yfir, að eins og menn vissu,
Tvær ríkisstjómir
Framhald af 3. síðu.
unar skipaflotans, aukningar og
endumýjunar síldarverksmiðja
og hraðfrystihúsa og loks til
kaupa á nýtízku jarðvinnsluvél-
um ásamt byggingu áburðar-
verksmiðju og raflýsingu sveit-
anna, hefur fyrst og fremst orð
ið til þess að samtök alþýðunn-
ar, svo sem Farmanna- og fiski-
mannasambandið, Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja og
Alþýðusambandið hafa lýst yfir
stuðningi sínum við hana.
Þessi ríkisstjóm hefur aðeins
setið við völd örskamma hríð
en samt eru þegar farin að
sjást þess merki að hún vill
standa við það sem hún lofar
verkalýðnum, og þar með þjóð-
inni allri, í stefnuskrá sinni.
Fyrsti sigur þessarar ríkisstjórn
ar var sá að með stofnun henn-
ar varð þingræðið aftur í fullu
gildi á íslandi. Strax á fyrstu
dögum sínum leysti stjómin 8
verkföll sem stóðu yfir er hún
tók við völdum, og höfðu sum
staðið lengi. Nú hefur stjómin
lagt frumvörp fyrir Alþingi sem
öll miða í rétta átt. Þó enn séu
stærstu verkefnin eftir, þá sér
íslenzk alþýða að hún má nokk
urs vænta af þessari stjórn, og
með það fyrir augum mun hún
styðja hana, og meðan þessi rík
isstjóm vinnur ótrautt að því
marki að hindra atvinnuleysi í
landinu þá mun íslenzk alþýðu-
æska styðja hana.
Gísli Ilalldórsson.
■
Ávarp frá Noregssoínuninni
Daglega berast nú hörmvleg tíðindi af frœndþjóð vorri
Norðmönnum. Alsaklaust fólk, gamalmenni, konur, sem b'órn,
heilbrigðir og sjúkir, er, eftir því sem fregnir herma, hrakið frá
heimilum sínum út í vetrarkuldann og rekið í hópum eftir
ströndum landsins eða heiðum, klœðlítið, svangt og örmagna,
á meðan heimili þess eru brcnnd til ösku. Við, sem lifum við
góð kjör og sœmilegt öryggi, getum eðlilega ekki gert okkur
fulla grein fyrir, hvað það fólk líður, sem svo grátt er leikið.
Við viljum að sjálfsögðu reyna að rétta hjálparhönd, að svo
mildu leyti sem unní er, enda hafa margir hér á íslandi sýnt
vilja sinn í.þvi efm.
Nú, er jólahátíðin gengur í garð, fœri vel á því að við
minntumst frœndþjóðarínnar, er hefur nú við svo harða kosti
að búa, og við fómum nokkru af því, sem við myndum annars
nota til þe-ss að gleðja okkur sjálf og okkar nánustu og gœfum
til hjálpar hinu nauðstadda fólki. Með því getum við án efa
glatt margan góðan vin.
Noregssöfnunin gefur út kort, sem œtluð eru til þess að
senda kunningjum og vinum, en jafnframt greiðir sá er kortið
kaupir einhverja upphœð til Noregssöfnunarinnar, á nafn þess,
sem hann œtlar að gefa kortið, og verður því fé varíð, svo fljótt
sem verða má_, til styrktar þeim, er nú verða að þola kúgun og
hörmungar í Noregi. — Kortin eru seld í bókabúðum, hjá blöð-
unum og skólum í Reykjavík. Jafnframt verða kortin send út
um land allt, eftir því sem tök verða á.
Reykjavík, 6. desember 1944.
NOREGSSÖFNUNARNEFNDIN:
Guðl. Rósinkranz form.
Earald Faaberg. Sigurður Sigurðsson.
1
i
Daglega koma fram
Telpukjólar
á 1—12 ára, einnig
TELPUKÁPUR og
DRENGJAFRAKKAR
Verzlunin BARNAFOSS
Skólavörðustíg 17.
Allskonar viðgerðir
framkvæmdar
Dvergasteinn
Haðarstíg 20.
Sími 5085.
AUGLVSIÐ
í ÞJÖÐVILJANUM
Unglinga vantar
til að bera út Þjóðviljann
í nokkur hverfi í Vestur-
bænuin.
AFGR. ÞJÓÐVILJANS
Skólav.st. 19. Sími 2184.
Fjársöfnun !ií fcygg-
ingar bírnaspítala í
Hafnarfnði
Kvenfélagið Ilringurinn í Ilafn-
arfirði vinnur að því að koma hér
upp barnaspítala í sambandi við
væntanlegt fæðingarheimili. Vænta
félagskonur þess að Hafnfirðingar
bregðist vel við og styrki okkur
í þessu þarfa ináli með gjöfum og
áheitum, því um nauðsyn slíkrar
stofnunar eru ekki skiptar skoðan-
ir meðal bæjarbúa.
Listar fyrir gjafir og áheit liggja
frammi í bókabúðum bæjarins.
Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem
þegar hafa gefið:
Bjarni Snæbjörnsson kr. 1000.00
Loftur Bjarnason — 1000.00
Elísabet Egilson — 1000.00
Ásgeir G. Stefánsson — 1000.00
Beinteinn Bjarnason — 1000.00
Geir Zoega — 1000.00
Ólafur T. Einarsson — 1000.00
Sören Kampmann — 1000.00
Þorsteinn Eyjólfsson — 1000.00
Þorgils G. Einarsson — 500.00
Jón Gíslason — 500.00
Vélsmiðja Hafnarfj. h.f. — 300.00
Júlíus J. Nýborg — 500.00
Emil Jónsson — 300.00
Bergur Jónsson — 300.00
Eyjólfur Kristjánsson — 100.00
Stefán Sigurðsson — 100.00
Þ. J. — 50.00
Guðm. Guðmundsson — 50.00
N. N. — 100.00
Vélsmiðjan Klettur h.f. — 100.00
Þórður B. Þórðarson — 25.00
Þórður Gíslason — 25.00
Steingrímur Torfason — 100.00
P. G. — 50.00
II. Björnsson — 50.00
Jón Sigurgeirsson — 10.00
Sigurþór Sigfússon — 10.00
Kristján Kristinsson — 200.00
Jóh. Ól. Jónsson — 100.00
Á. Þorsteinsson — 100.00
N. Árnason — 50.00
Bj. Þórðarson — 50.00
Samtals kr. 12570.00
Innilegt þakklæti,
Stjóm Hringsins.
'A/wwwft/wwwyvwi/tfwuvwk
Lelt eg saDur til liinda
ÆVINTÝRI OG HELGISAGNIR FRÁ MIÐÖLDUM
DR. EINAR ÓLAFUR SVEINSSON, háskólabókavörður
hefur tekið bókina saman og ritað inngang að henni.
Myndir hefur gert frú Barbara Ámason listmálari. Efni
bókarinnar er margþætt, sumt íslenzkt, annað erlent að
uppruna. Hér eru helgisögur af íslenzkum dýrlingum,
ævintýri, er minna á Þúsund og eina nótt, strengleikar
af frönskum toga, fyrirmyndin að allri rómantík. Þó að
efnið sé víða sunnan úr löndum, er búningur alls stað-
ar íslenzkur og stíllinn oft með afbrigðum fagur. Bók-
in er hliðstætt verk við Fagrar heyrði ég raddirnar,
sem kom út 1942 og seldist upp á örskömmum tíma.
Tryggið yður strax eintak af LEIT EG SUÐUR TIL LANDA.
Bókabúð Máís og menníngar
Laugavegi 19. — Vesturgötu 21.
Síðusfu eintökío
Laugardagur 9. desember 1944. — ÞJÓÐVILJINN
Sósíalistar!
í
Erskine Caldwell:
Hetjur á heljarslóð
Skáldsaga um hetjubaráttu
rússneskra skæruliða.
Þjóðviljann vantar nú þegar unglinga eða
eldra fólk til að bera blaðið til kaupenda í eftir-
talin hverfi.
Vesturbær:
Framnesvegur
Bræðraborgarstígur
Ásvellir.
Hjálpið til að útvega blaðbera. Talið strax við
afgreiðsluna.
AFGR. ÞJÓÐVILJANS
Skólavörðustíg 19 — Sími 2184
'
II
Vicki Baum:
Hótel Berlín 1943
Ein af nýjustu skáldsögum
þessarar mikilhæfu og vinsælu
skáldkonu-
TILKYNNING
Opnum í dag verzlun undir nafninu „Búslóð"
Munum við þar kaupa og selja flest alla vel með
fama húsmuni. Höfum nú þegar fyrirliggjandi:
ísskápa, gólfteppi, útvarpstæki, • ryksugur, ný
maghoní sóffaborð, dívana og margt fleira.
Sækjum. — Sendum
;
Verzlunin
BOSLÓÐ
Njálsgötu 86, sími 2469.
vvwwvwwvvwwvwwvvvv<
Sam K. Cowan:
York liðþjálfí
Víðkunn skáldsaga um hetju-
dáðir í síðustu heimsstyrjöld.
IltPHNIHG
Til húseigenda í
lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur.
Með tilvísun til laga nr. 1, 26. marz 1924 og
laga nr. 87, 16. desember 1943 tilkynnist hér með
öllum húseigendum í lögsagnarumdæmi Heykja-
víkur, að ógreidd brunatryggingariðgjöld fyrir
tímabilið 1. apríl 1944 til 1. apríl 1945 verða send
til lögtaks, ef þau verða eigi greidd fyrir 15. þ. m.
Reykjavík, 6. desember 1944.
HAtmennar Tryggingar h. f.
Austurstræti 10 3. hæð. Símar 5693 og 2704.
I
Fatasofnun Noregssöfnun-
árinnar heldur áfram
Fatasöfnun Noregssöfnunarinnar heldur áfram.
Tekið er á móti fatnaði, notuðum sem nýjum, hjá
öllum deildum Rauða krossins, hvar sem eru á
landinu, og deildum Norræna félagsins á Akur-
eyri, Siglufirði og ísafirði, en í Reykjavík á skrif-
stofu Harald Faabergs, Hafnarstræti 5.
.
Wanda Wassllewska:
Regnboginn
Verðlaunaskáldsaga um örlög
hertekins þorps í Úkrainu og
íbúa þess undir ógnarstjórn
hins þýzka innrásarhers.
Skálholtsprentsmiðja h. f.
Tveír UDglíngspíltar
geta fengið atvinnu um tíma. Vinnu-
tími: Nokkrir tímar fyrir hádegi.
Afgr. Þjóðviljans, Skólavörðustíg 19. Sími 2184. !;