Þjóðviljinn - 28.12.1944, Qupperneq 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 28. desember 1944„
Umsköpun atvinuuhátta á Hnsavík
Viðtal við Pál Kristjánsson, ritara verkamannafélagsins á Húsavtk
Þjóðviljinn hitti Pál Kristjánsson, ritara. Verkamannafélags Húsa-
víkur, meðan hann dvaldist hér í bamum fyrir jólin og spurði hann um
fyrirœtlanir og áhugamál Húsvíkinga, og fer frásögn Páls hér á eftir.
— Fyrir mikinn fjölda Húsvík-
inga er atvinnuleysi á þessum tíma
árs og raunar allan veturinn, því
að það getur naumast talizt til at-
vinnu, þó að hirt sé ein kýr eða
öríáar kindur. En á Húsavík er
mjög mikill landbúnaður og að ég
hygg meirr en í nokkru öðru sam-
bærilegu þorpi á landinu.
— Af hverju stafar þessi mikli
landbúnaður?
— A því stendur svo, að hafn-
leyvsi staðarins hefur staðið vexti
útgerðarinnar fyrir þrifum. En af
því Húsvíkingar eru dugandi
menn, þá sneru þeir sér að jarð-
rækt og landlbúnaði, þegar ekki
voru skilyrði til aukinnar útgerð-
ar. Þetta eru ástæðurnar fyrir því,
að útgerð er hlutfallslega lítil á
staðnum en landbúnaður hlut-
fallslega mikill. Auðvitað hefur
landbúnaðurinn verið rekinn á
mjög frumstæðan hátt, svo frum-
stæðan að eitt aðalatriði nýsköp-
unarinnar í Húsavík verður að
gerbreyta rekstri landbúnaðarins.
A Húsavík þarf að verða mikil
nýbygging. Og aðaiáhugamál Hús-
víkinga er líka aukin atvinna,
meiri atvinnurekstur.
Það sem byrja þarf á er það að
gera örugga höfn á staðnum. Það
er skilyrði þess, eins og áður er
sagt, að hægt sé að auka útgerð-
ina, en í sam'bandi við útgerðina
þarf svo að koma iðnaður, bæði
síldar- og fiskiðnaður.
VÉLANOTKUN
ÞARF AÐ AUKA.
Samhliða þessu þarf svo að yfir-
gefa hinn frumstæða rekstur land-
búnaðarins. Húsvíkingar eiga nóg
ræktað land og ræktanlegt, svo að
það sem gera þarf er þá það, að
skipa svo þeim málum, að hægt sé
að koma að sem mestri vélnýtingu
við landbúnaðinn. Það sem gera
þarf fyrir landbúnað Húsvíkinga,
er það sama og gera þarf fyrir all-
an landbúnað í þessu landi: að
innleiða vélknúin tæki og skipa
landbúnaðinum að öðru leyti svo
að þau vélknúnu tæki notist.
BYGGINGAMÁL.
—: Auðvitað þarf svo að gera
margt fleira. Það þarf að byggja
íþróttaheimili knatt
spyrnufél. Fram
Bæjarráð samþykkti fyrir
nokkru síðán að gefa félaginu kost
á æfingasvæði í norðanverðri
Vatnsgeymishæðinni í stað svæðis
á Mómýrarbletti, sem félagið taldi
ekki eins hentugt. Nú hefur félag-
ið farið fram á að fá byggingarlóð
við svæðið, til að reisa á henni
félags- og íþróttaheimili. Hús-
byggingarsjóður félagsins hefur nú
þegar nægilega > sterkan fjárhags-
grundvöll til að hefjast handa að
fengnu byggingarleyfi. Engin end-
anleg ákvörðun var tekin um þetta
og er verið að athuga málið.
PáU Kristjánsson.
mörg íbúðarhús og það sem fyrst,
því að íbúðir ýmist skortir eða eru
svo lélegar að ekki er sæmandi, þó
að ennþá hafi verið í þeim búið
af gömlum vana. Það er annars
merkilegt, að ýmsir virðast gleggri
á húsnæði í sambandi við hús-
gögn cn sjálfa mennina, eða rétt-
ara sagt gera meiri kröfur um góð
híbýli fyrir húsgögnin en menn-
ina. Þetta keinur fram í því, að
enginn léti sér detta í hug að fara
með góð húsgögn inn í ýms manna-
híbýli af ótta við að þar yrðu þau
ónýt.
RAFMAGNSMÁL.
— Hvað er að frétta af raf-
magnsmálum ykkar?
— Um rafmagnsmál Húsavíkur
er það að segja að eins og nú
standa sakir, er rafmagnsskortur
mjög tilfinnanlegur, ekki einu sinni
rafmagn til Ijósa hvað þá rneira.
Vonandi verður hægt að bæta úr
þessu áður en langt líður, með raf-
magni frá Laxárvirkjuninni.
HITAVEITA.
— Hvað er að frétta af hita-
veitufyrirætlunum ykkar?
— Enginn vafi er á því, að heitt
vatn er í jörðu rétt við sjálft þorp-
ið, hvort sem í það næst eða ekki.
Gerð hefur verið tilraun til þess að
bora eftir vatninu, en það bar eng-
an árangur. Af því verður þó ekk-
ert ráðið, því að þessi tilraun var
svo lítilfjörleg.
Þá má og benda á, að Uxahver
í Reykjahverfi er svo nærri Húsa-
vík og landslag þannig að sýnt
þykir, að þaðan megi leiða heitt
vatn til Húsavíkur. Ég held að
þetta ætti að athuga sem fyrst og
^ækilegast, því að ef heitt vatn
yrði leitt frá Reykjahverfi til
Ilúsavíkur, myndu meðfram þeirri
hitavatnslínu skapast ágæt skil-
yrði fyrir byggðahverfi.
Af öllu þessu getur þú séð, að
Húsvíkingar hafa nóg nýbygging-
arverkefni, enda hygg ég að Hús-
víkingar hafi fagnað mjög hinni
nýju ríkisstjórn og hennar nýsköp-
unaráformum, það má líka öllum
Ijóst vera, að efla verður stórkost-
íega atvinnulíf á Húsavík, enda
öll náttúrleg skilyrði til þess.
ALÞÝÐUSAM-
BANDSÞINGIÐ.
— Þú varst hér fulltrúi á AI-
þýðusambandsþinginu ?
— Þetta er fyrsta Alþýðusam-
bandsþing, sem ég hef verið á.
Auðvitað þótti mér fróðlegt og
merkilegt að vera þar. Ég tók eftir
því að sameiningarmönnum varð
tíðrætt um stefnuskrá ríkisstjórn-
arinnar og töldu að öllu máli skipti
um framkvæmd hennar. Hinir
virtuSt láta sér fátt um finnast þá
hluti. Mér þótti þetta undarlegt,
því að ég hólt að allir heiðarlegir
menn teldu stefnuskrá ríkisstjórn-
arinnar mál málanna eins og sakir
standa. Ég hafði ennfremur hugs-
að mér, áður en ég kom á þingið,
að þetta mál mundi verða aðal-
mál þingsins. En auðvitað var ekki
hægt að meina hinum að koma að
sínum áhugamálum, sem raunar
fólust öll í ákalli Helga Hannes-
sonar til Alþýðuflokksmanna,
Sjálfstæðismanna og Framsóknar-
manna um að sameinast gegn
kommúnistum, eins og hann orð-
aði það.
Fríkirkjan og
Herðubreið
Frá þvi hefur verið skýrt áður,
að Samband ísl. samvinnufélaga
hafi farið þess á leit við bæjar-
stjórn, að leyft verði að breyta
frystiliúsinu Herðubreið í kvik-
myndahús. Þar sem frystihiisið
stendur á næstu lóð sunnan við
Frfkirkjuna, hefur stjórn Frí-
kirkjusafnaðarins sent bæjarstjórn
áskorun um það, að ekki verði
leyfð nein starfræksla í frystihús-
inu, sem truflað geti kirkjulegar
atlhafnir, sem fram fara í kirkj-
unni. Er safnaðarstjórninni þetta
mikið áhugamál.
Skemmtifundur Fél.
Suðurnesjamanna
Félag Suðumesjamamia í Reykja
vílc hélt almennan félags- og
skemmtifund í Tjamarcafé, þann
29. f. m. Er það annar skemmti-
fundur félagsins á þessum vetri, og
var húsið fullskipað.
Að loknum almennum fundar-
störfum skemmtu þeir bræðurnir
Ársæll og Magnús Árnasynir með
upplestri og framsögn. Síðan fór
fram samleikur þeirra Þórhalls
Árnasonar á cello og Eggerts Gilfer
á píanó. Var skemmtiatriðunum
tekið mcð miklum fögnuði.
Þá fór fram bögglauppboð og
gekk það mjög vel og var andvirð-
inu varið til sto'fnunar Fram-
kvæmdasjóðs félagsins, er nota á í
framtíðinni til ýmissa menningar-
mála á Suðurnesjum, er síðar verð-
ur tekin nánari ákvörðun um.
Félagið ráðgerir að halda jóla-
trésfagnað fyrir börn félagsmanna
hinn 3. janúar n. k. í Tjarnarcafé.
Nýjársfagnaður félagsins verður
haldin að Hótel Borg laugardag-
inn 13. janúar n. k.
Málefni dagsins rædd á
vinnustöðvunum
„Verkamaður" skrifar mér bréf
um hin daglegu umtalsefni verka-
manna á vinnustöðvunum. Um leið
og ég þakka honum fyrir bréfið, vil
ég mælast til að hann og aðrir
verkamenn og verkakonur skrifi
Baejarpóstinum sem oftast smágrein
ar um svipað efni. Eg veit að þeim
sem lesa þessi orð mín er það full-
Ijóst hvaða þýðingu það hefur fyrir
þá sjálfa og verkalýðsstéttina í
heild, að þær skoðanir og tillögur
sem fram koma á vinnustöðvunum,
berist út fyrir kaffiskúranna. Bæj-
arpósturinn er sá rétti vettvangur
fyrir þær raddir.
Vilja ekki afnema kaffi-
tímana
„Eg er að hugsa um að koma
með ykkur í nokkra kaffitíma í hug
anum, og lofa ykkur sem lesið Bæj-
/ arpóstinn, að fá sýnishorn af á
hvern hátt við verkamennirnir not-
um kaffitímana jafnframt því að
drekka kaffið og mjólkina sem við
höfum með okkur í vinnuna.
Við höfum haft nóg umræðuefni
í kaffitímunum undanfarið og sum
málin hafa enst okkur oft og mörg-
um sinnum, einkum þau sem varðað
hafa verkalýðsstéttina í heild.
í einum kaffitímanum ræddum
við um grein sem birtist í „Vinn-
unni“, hún var um að afnema kaffi
tímana okkar. Flestir í mínum
vinnuflokki voru á móti því að af-
nema kaffitímana, töldu að þeir
hefðu menningarlegt gildi fyrir okk-
ur, og veittu auk þess nauðsynlega
hvíld og tima til að nærast. Enda
væri tillagan ekki framkomin frá
okkur verkamönnum, heldur ætti
upptök sín hjá atvinnurekendum og
miðuð við þeirra hagsmuni.
Byggingamálatillögur Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar
Okkur hefur orðið skrafdrjúgt
| um byggingamálatillögur Sigfúsar
Sigurhjartarsonar sem birtust í
Þjóðviljanum fyrir nokkru síðan.
Þar þykjumst við eygja von og vissu
um að rætist fram úr húsnæðis-
vandræðunum, og sjá hvaða leið
verður að fara ef bót á að fást á
því öngþveiti sem nú ríkir í þeim
efnum. En það er: að einstaklingar,
bæjarfélagið og peningavaldið búist
til samstiltra átaka í þessum mál-
um. Það er víst, að við verkamenn
munum verða einhuga um þetta
mál og veita því allan þann stuðn-
ing er í okkar valdi stendur, svo
ekki líði langt þangað til við sjá-
um árangurinn af þeim framkvæmd
um sem við vonum að fylgi í kjöl-
far þessara tillagna.
Við fögnuðum stjórnarmyndun-
inni, og tókum þá ákvörðun sem
einstaklingar að vinna að framfara-
málunum sem hin nýja ríkisstj. er
mynduð til að koma í framkvæmd,
en við munum ekki missa sjónar á
því takmarki að í þjóðskipulagi
framtíðarinnar eru það við sem
vinnum, sköpum verðmætin, sem
eigum að ráða.
Verður honum fyrirgefið?
Við höfum fundið að það er mik-
ið starf sem býður okkar að skapa
og varðveita einingu fjöldans. Al-
þýðusambandsþingið síðasta mun
marka tímamót í íslenzkri verka-
lýðshreyfingu. Eg hef aldrei orðið
var við, að við sósíalistar værum
eins sterkir og núna í hugum manna
almennt, menn hafa orðið opinská-
ari að fordæma framkomu þeirra
manna sem gengu af þingi verka-
lýðsins.
Einn úr Sjómannafélaginu sagði
við mig nýlega: „Heldurðu að Guð
! fyrirgefi mér að hafa kosið Sæ-
mund Ólafsson og hans féélaga á
Alþýðusambandsþingið? Þeir rugl-
uðu mig stéttarlega séð, svo ég vissi
ekki hvað var að gerast“. Þannig
hugsa margir sem líta hlutlaust á
málin, og eru ekki opinberlega
deiluaðilar“.
Óheppilegt útvarpsefni
Reykvíkingur skrifar mér að
hann hafi átt tal við bónda í Árnes-
sýslu um lestur draugasagna í út-
varpið og lýsti bóndinn því hvaða
áhrif lesturinn hefði á börn og ung-
linga á hans heimili. En bréfið er
svona:
„Vill Bæjarpósturinn birta þessar
línur fyrir góðan og greindan bónda
austan úr Árnessýslu, um drauga-
sögur í útvarpinu?
Bóndinn sagði svo frá: Það var'
hér um daginn að sagðar voru ó—
venjulega kröftugar og sannfærandi
draugasögur í útvarpinu. Ræðu—
maður sagði frá, af skáldlegri fimi
og útmálaði áhrif og háttalag
draugsins. Ekki var annað að skilja,
en sagan væri alls nakinn veru-
leiki, því engin skýring kom á sög—
unni, önnur en sú, að þetta hafi
hlotið að vera draugur og ekkert
annað. Á bænum þar sem ég bý er
tvíbýli, og mörg börn. Á öðru bú-
inu voru aðeins börn heima og ungl
ingar, sem hlustuðu á draugasöguna.
með vaxandi ath. Þau voru háttuð
hvert í sitt rúm, og myrkrið grúfðj
yfir. Loks kom að því að hræðsla
greyp þau, þau máttu ekki mæla
og vart anda. Allsstaðar voru draug
ar, undir rúmunum, og í hverjtt
skoti. Og að síðustu ruku þau upp
eitt af öðru og stukku yfir í eitt
rúmið í haug, og hjúfruðu sig
hvert að öðru, hjá hinu stærsta
þeirra. Þannig var komið að þeim
seinna um kvöldið. Bóndi bætti við:
Eg efast ekki um að draugasögur
eigi að teljast til þjóðlegra bók-
mennta, og hef ekkert persónulega
út á það að setja að þær séu flutt-
ar í útvarpi; en frá sjónarmiði
barna og unglinga vítt um dimmar
sveitir þessa lands, held ég að þær
séu mjög varhugaverðar. Hugmynda
flug manna, býr til ópin og skelf-
ingu ef sagt er frá af sannfæringu
og list, og ég held að áhrif þeirra
séu því fremur ill en góð“.
Bræðslustöð skemmd
í þriðja sinn
Frá Svíþjóð berst sú fregn sain-
kvæmt upplýsingum frá Osló, að
stóra bræðslustöðin í Eydeliavn,
nálægt Arendal, háfi, í þriðja sinn
verið gerð óvirk, með því að raf-
magnsskiptistöð verksmiðjunnar
hefur verið eyðilögð af skemmda-
verkamönnum.
Nazistar myrtu 700
þúsund í Lvoff
Nefnd sú, sem rannsakað hefur
glœpaverlc Þjóðverja í Lvoff-hér-
aði, liefur birt skýrslu sína. — Hún
telur að nazistar hafi myrt um
700.000 manns í liéraðinu á her-
námsárunum.
Á meðal þeirra voru brezkir og
bandarískir borgarar og menn frá
ýmsum löndum Evrópu.
Néfndin telur Himmler meðal
aðalsökudólganna. — Kom hann
oft til Lvoff til að horfa á aftökur.