Þjóðviljinn - 28.12.1944, Blaðsíða 8
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarbarnaskólanum.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
ÚTVARPPIÐ í DAG:
19.25 Hljómplötur: Jólalög leikin á
harmoniku og bíó-orgel.
19.35 Lesin dagskrá næstu viku.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar):
a) Lög úr óperettunnni „Mat-
söluhúsið" eftir Suppé.
b) „Töfrablómið", — vals
eftir Waldteufel.
c) „Gladiator", — marz eftir
Fucik.
20.50 Upplestur: Úr Fornsögum
Norðurlanda (Guðni Jónsson
magiteter).
21.15 Hljómplötur: Foster Riehard-
son syngur indversk ástalög.
21.30 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son).
21.50 Hljómplötur: íslenzkir söngv-
arar.
Leikfélag Reykjavíkur vill vekja
athygli leikhúsgesta á því, að af J
alveg sérstökum ástæðum getur .
félagið sýnt franska gamanleikinn
HANN einu sinni ennþá, annað '
kvöld kl. 8. Er þetta tilvalið ’tæki-
færi fyrir þá, sem ekki ennþá hafa
séð þennan skemmtilega leik. En
þetta verður allra síðasta sýning.
Ennfremur vill félagið vekja at-
hygli á því, að þriðja sýning á
jólaleiknum „Álfhóll" verður á
nýj ársdagsk völd.
FLOKKURINN
SKRIFSTOFA
SÓSÍALISTAFÉLAGS
REYKJAVÍKUR
Skólavörðustíg 19
er opin alla virka daga kl. 4—7.
Þeir félagsmenn, sem eiga ó-
greidd félagsgjöld fyrir árið, sem er
að líða, eru vinsamlega beðnir að
koma í skrifstofuna sem fyrst og
gera skil.
Ennfremur eru þeir nýir félags-
menn, sem hafa ennþá ekki vitjað
félagsskírteina sinna, beðnir að gera
það einhvem næstu daga.
Lifði á bjúgaldinum
118 ár
I
Maður að nafni Jesus Maria
Alban dó fyrir skömmu í bæn-
um Ibague í suðurameríska
lýðveldinu Kolombía, 118 ára
að aldri.
Hann þakkaði langlífi sitt
því, að hann hafði alla æfi borð-
að bakaða banana á hverjum
deg-i.
Jugoslövum bannað-
ar bjargir
Jugoslavneska hjálpamefndin í
London skýrir svo frá, að skiprúm
fáist ekki fyrir flutning á vefnaðar-
vöru til Jugoslavíu.
780 ballar af fataefni, sem kana-
dislci rauði krossinn sendi Jugo-
slövum, hafa nú legið í BretLandi
í ]>rjá mánuði og beðið flutnings.
Jugoslavneska stjórniri hefur beð
ið, fyrir hönd jugoslavneska rauða
krossins, brezka stríðsflutninga-
ráðuneytið að Jeyfa jugoslavnesk-
um skipum að flytja ]>essa vöru.
Beiðninni var hafnað.
Kunnugt er af fyrri fréttum, að
auk hungursins cr klœðleysið hin j
voðalegasta plágu mjög margra ]
hjólkursalan tvöfaldast á 5 árum
Góð afkoma vínnandí stéttanna víð
sjóínn tryggír jafnframt hag bænda
Mjólkursalan hér í bænum hefur um það bil tvöfaldast frá
því sem hún var fyrir 5 árum.
Þrjá dagana fyrir jólin seldust um 100 000 lítrar mjólkur.
Hinsvegar seldust ekki nema
tæplega 1500 lítrar rjóma, en á
sama tíma fyrir þremur árum
seldust um 10 000 lítrar rjóma.
Ef rjómasalan hefði haldizt í
hlutfalli við aukningu mjólk-
ursölum hefði átt að vera hægt
að selja hér þéssa þr já daga fyr-
ir jólin 15—20 þús. lítra, og
sézt bezt á því hve alltof lítið
er af þeirri vöru á markaðinum.
Þessi mikla aukning mjólk-
ursölunnar síðustu árin stafar
fyrst og fremst af rýmri fjár-
hag og aukinni velmegun al-
mennings hér í bænum og sýnir
að það eru engu síður hagsmun-
ir bændanna fyrir austan að
Búðaklettsstrandið
Eins og frá Oar sfyýrt í síSasta
tbl. ÞjóÖoiljans strandaSi tí. b.
BúðaJilettur tíiS sunnantíert
Reyfýanes s. I. laugardagsmorg- 1
un. Sl^ipshöfnin bjargaðist, en 2
farþegar fórust.
Þessir tveir farþegar voru
Björn Benediktsson, aldraður
verkamaður úr Reykjavík og
Friðrik Sigurjónsson, ungur sjó-
maður úr Vestmannaeyjum.
Ströndin, þar sem skipið
strandaði, er stórgrýtt og brima-
söm, og hefur ekkert rekið úr
skipinu nema hálfeyðilagðir
póstpokar.
íslenzkir fulltrúar
komnir heim
Agnar Kofoed Hansen lög-
reglustjóri, sem var einn af
fulltrúum íslands í flugmála-
ráðstefnunni í Chicago er ný-
kominn heim.
Ennfremur eru komnir heim
tveir af fulltrúunum sem sátu
verzlunarþingið í New York,
þeir Haraldur Árnason og
Magnús Kjaran.
„Rússlandshjálp“
brezku alþýðunnar
næstum 18 millj.kr.
■ í september s.l. höfðu á
þrem árum safnazt 717191
sterlingspund í „Rússlands-
hjálpar“ — sjóð Bretlands. —
Þar með eru taldar gjafir frá
verklýðsfélögum, verklýðs-
flokkum og samvinnufélögum.
Jugoslava. — 1 mörgurn sveitum
cr ncktin svo milcil, að flest Kejm-
ilin eiga ckki /clœðnað nema á einn
fjölskyldumeðlim, þegar allt cr lagt
saman.
vinnandi stéttimar í Reykja-
vík hafi viðunandi kaup og
sómasamleg lífskjör.
Brotizt inn í Iíron
í Sandgerði
I jyrrinótt tíar brotizt inn í sölu-
búð Kron í Sandgerði.
Var þar stolið eitthtíað á annað
hundrað kf. i skiptimynt og all-
miklu af tíindlingum.
Þjófarnir höfðu farið inn um
glugga á bakhlið hússins og skor-
ið sig á rúðubrotum, og var blóð-
ferill víða um búðina.
Auk skiptimyntarinnar höfðu
þjófarnir tekið alla vindlinga sem
í búðinni voru, auk þess eitthvað
af coca-cola, en inn í vöru-
geymsluna inn af höfðu þeir ekki
farið.
Næsta hús við Kronbúðina var
símstöðin, en alllangt óbyggt
svæði á milli.
Friðsöm jól hjá lög-
reglunni
Jólin voru að þessu sinni
mjög friðsöm og róleg, að því
er Erlingur Pálsson yfirlög-
regluþjónn tjáði Þjóðviljanum
í gær.
Á Þorláksmessu var að vísu
mikið um ölvun, en lögreglan
þurfti óvenjusjaldan að sker-
ast í leikinn-
En lögreglan hafði samt nóg
að gera, því á jólanóttina fór
hún 70 ferðir til þess að flytja
gamalmenni, konur og böm,
sem þurftu að fá bíl, en þá voru
bifreiðarstöðvamar lokaðar.
Á annan dag jóla var einnig
mikið um ölvun, en þó rólegt.
Engin íkviknun né slys urðu
hér í bænum um jólin og er
það óvenjulegt.
r
Uthlutun matvæla-
seðla
Afhending matvælaseðla fyrir
næsta úthlutunartímabil, hefst í
dag í Hótel Heklu. Verða þeir
afhentir frá kl. 10—6 í dag og á
morgun, en aðeins frá kl. 10—12
á laugardaginn.
Húsavíkarkirkja
skemmist af eldi
Eldur kom upp í Húsavíkur-
kirkju fyrir jólin og gátu jóla-
messur því ekki farið þar fram
að þessu sinni.
Eldurinn kom upp í suðaustur-
horni kirkjunnar. Skemdir urðu
ekki mjög miklar.
NÝJA BÍÓ
TJARNARBÍÓ
SKEMMTISTAÐURINN
CONEY ISLAND
Dans- og söngvamynd í eðli-
legum litum. Aðalhlutverk
leika:
BETTY GRABLE,
CESAR ROMERO,
GEORGE MONTGOMERY.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Stássmey
Cover Girl)
Skrautleg og íburðar-
mikil söngva- og dans-
mynd í eðlilegum litum.
RITA HAYWORTH
GENE KELLY
Sýning kl. 5, 7 og 9.
VUWVUVWyWIAVVWUWWlVWUVVWVVWVVUWWWUVVUWW^
ÁLFHÓLL
Sjónleikur í 5 þáttum eftir
J. L. Heiberg.
2. sýning í kvöld kl. 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í Iðnó
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
getur af sérstökum ástæðum haft enn eina. sýningu á
franska gamanleiknum
ft
HANN
annað kvöld kl. 8 síðdegis
Aðgöngumiðar að þeirri sýningu verða seldir í dag kl. 4—7.
ywwwvwwvwwwvww^wwwwwwwwwwwwvwww^fw^rtrt^^jww"
wwvwwwwv
ÍWWWWÍ
TONLISTARFELAGEÐ
0
0
eftir Jóh. Seh. Bach.
Stjómandi dr. Urbantschitsch
verður flutt annað kvöld kl. 8,15 í Fríkirkjunni
Síðasta sínn
Aðgöngumiðar hjá Eymundsen, Sigríði Helgadóttur og
Hljóðfærahúsinu
wwwvwwvvwwwwvwvwwwwwwwwwwww^jwvwwwí
Sálir ð vegamútum
Framhald af 5. síðu.
léttur ber fyrst að greiða þurftar-
laun, það, sem fram yfir er, á að
bíða, hver sem í hlut á og jafnt
fyrir það þó viðkomandi telji sig
kjörinn til sérréttinda. Það hæfir
illa íslendingum, sem fyrst og
fremst byggja tilveru sína sem
þjóð á menntunarþrá og menning-
arafrekum, að svelta þá menn, sem
falin eru fræðslustörfin. Bezta
landvörn íslenzka lýðveldisins er
menntun þegnanna, hún verður
aldrei of dýru verði keypt. lslend-
ingar greiða ekkert fé til herkostn-
aðar og ætti þeim því að vera ljúft
að verja þeim mun meira til upp-
eldismála.
Bjargráð þeirra tíma, sem í hönd
fara, koma ekki úr herbúðum
þeirra manna, sem þvælast vilja
fyrir öllum framkvæmdum og ný-
ungum á sviðum atvinnulífs og fé-
lagsmála. Það verður ekki lifað
menningarlifi í þessu landi, mfeð
þeim tekjum þjóðarbúsins, sem lir-
eltir atvinnu'hættir skapa. At-
vinnuleysi og ósæmandi lífskjör
verður þá það, sem kemur.
Málaflutningskrifstofa
Áki Jakobsson
Sigurhjörtur Pétursson.
Lögfræðingar
Jakob J. Jakobsson
Klapparstíg 16-
Sími 1453.
Málfærsla, innheimta,
reikningshald, endur-
skoðun.
Stórfelld nýsköpun á þessum
sviðum er óhjákvæmileg og verður
að takast.
Þeir menn, sem nú gera gælur
við anda kyrrstöðunnar, eiga um
tvennt að velja — sálir þeirra eru
á vegamótum — annaðhvort að
gera andlegan uppskurð á sjálfum
sér og vérða heilir þátttakendur í
baráttunni fyrir bjartari og betri
'timum eða að stinga höfðinu ofan
í sandinn, breiða yfir sig feld sér-
hyggjunnar, og láta sig dreyma um
liðna tíma. En þá dagar þá uppi
eins og tröllin til forna.
Slcúli Þorsteinsson.