Þjóðviljinn - 06.01.1945, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. janúar 1945.
ÞJÓÐVILJINN
3
smnnamíl Iðnnema
| TNDANFAR-
IN 2 ár hafa
nemar í ýms-
um iðngreinum
bundizt félags-
samtökum til
vemdar hags- !
munum sínum,
og nii fyrir
Hallgrimsson , ..
skommu stofn-
uðu þessi félög samband sín á
milli. Tíðindamaður Æskulýðs-
síðunnar hefur nú hitt að máli
forseta sambandsins, Óskar
Hallgrímsson, og spurt hann
um ýmislegt gagnvart hinu ný-
stofnaða sambandi.
— Hvert er aðaltakmark sam-
bands ykkar?
— Markmið sambandsins er
fyrst og fremst að gæta hags-
muna iðnnemanna og auka fé-
lagsþroska þeirra og samheldni
með fræðslu og öðru menning-
arstarfi.
— Það er auðvitað mjög mik-
il nauðsyn á slíku stéttarfélagi?
— Já, iðnnámslöggjöfin er
þannig úr garði gerð að ekki
verður lengur við unað, t. d.
var það ákvæði sett inn í lög-
in árið 1940, áð banna iðnnem-
um að vera í sveinafélögunum,
en það höfðu þeir áður verið,
og þar með taka réttinn af
sevinafélögunum til þess að
semja fyrir nemana.
— Það er auðvitað þessi breyt
ing á iðnnámslöggjöfinni, sem
fyrst og fremst varð þess vald-
andi að iðnnemar hófust handa
um stofnun sjálfstæðra sam-
taka?
— Já, þegar þetta ákvæði var
sett inn í lögin fengu meistar-
ar vald til að semja við nema
upp á eigin spýtur án tilhlut-
unar nokkra stéttarfélaga og
notuðu þá oft og tíðum aðstöðu
sína, til þess að þvinga upp á
nemendur algerlega óviðunandi
kjör.
— Hvað segir þú mér um af- i
stöðu ýkkar til þeirra breytinga I
á iðnnámslöggjöfinni, sem nú
liggja fyrir Alþingi?
— Sú fyrri þessara breytinga
er þess efnis, að taka á af svein
um og meisturum þann rétt,
sem þeir hafa, til þess að semja
sín á milli um fjölda nema í
hverri iðngrein. Við álítum hins
vegar að engir hafi betri aðstæð
ur en þessir aðiljar, til þess að
ákveða hvað marga menn þurfi
í hverri iðngrein, til þess að af-
kasta þeirri vinnu, sem um er
að ræða.
Síðari breytingin er sú, að ,
fellt verði burtu úr lögum á- !
kvæðið um'að ekki megi fleiri
nemar vera í hverri iðngrein
en fullgildir sveinar. Þessu at-
riði höfum við lýst okkur mót-
fallna af þeirri ástæðu, að við
álítum námsskilyrði svo slæm, )
Viðtcil við Óskar Hallgrímsson,
forseta íðnnemasambandsins
með þeim fjölda nema, sem
fyrir er, að við sömu skilyrði
sé ókleift að fjölga nemum.
En hefur viðhorf ykkar til
þessara mál ekki breytzt eftir
að hip nýja ríkisstjóm tók við
völdum og lýsti yfir nýbygging-
ar- og endurreisnaráformum
sínum?
— Jú, við lítum nú langtum
bjartari augum á framtíðina en
áður, og gætum fallizt á ýmsar»
rýmk^iir í þá átt, sem þessar
breytingatillögur stefna að, en
við álítum að um leið og breyt-
ingar verði gerðar á iðnnáms-
löggjöfinni beri að endurskoða
hana sem heild.
— Hvað er þar helzt sem þarf
að breyta að ykkar dómi?
— Það er mjög margt, en
fyrst og fremst munum við
leggja áherzlu á að komið verði
á atvinnutryggingu fyrir nýút-
skrifaða sveina í þrjú ár eftir
að þeir hafi lokið prófi, því þá
fyrst geta þeir öðlast meistara- j
réttindi. Meistarar hafa oft og
tíðum leikið þann leik að segja
nýsveinunum upp og taka nem-
endur í þeirra stað. öðru lagi
að námsskilyrðin verði bætt,
því að eins og þau eru nú, mega
þau teljast óviðunandi.
Um verklega námið er það að
segja, að þótt meistari sé skyld-
ur að láta nema ávallt fylgj-
ast með fullgildum sveini til
vinnu, er það atriði óspart brot-
ið, en er hinsvegar mjög nauð-
synlegt nemunum eins og gef-
ur að skilja. Bóklega námið er
nemunum mjög erfitt. Þeir hafa
svo að segja engan tíma til lest-
urs og skólatíminn er ríær allur
á kvöldin eftir vinnu. Við telj-
um að þjóðfélaginu beri að
skapa þegnum sínum aðgengi-
legri skilyrði til mennta.
— Er það ekki eitthvað fleira,
sem þið leggið sérstaka áherzlu
á?
— Við munum vinna að því
að fá samræmt kaup ,nema í
hinum einstöku iðngreinum, en
nú er mjög mikið ósamræmi í
kaupgreiðslu til iðnnema, og
veldur það oft óánægju, sem
vonlegt er. Svo er það annað,
sem við munum leggja höfuð-
áherzlu á nú til að byrja með,
og það er, að ná sambandi við
þau iðnnemafélög, sem kunna
að vera starfandi úti um land
og ekik hafa enn gengið í sam-
bandið, og stofna ný félög í
þeim greinum, þar sem ekki eru
félög fyrir.
Það hefði verið gaman að
spjalla meira við Óskar um mál
efni iðnnema, en hahn er að
flýta sér á stofnfund nýr iðn-
nemafélags og má því ekki tefja
lengur. En áður en ég skil við
lesendur vil ég beina því til
iðnnema, sem ekki hafa sett
sig í samband við hið nýstofn-
aða hagsmunasamband sitt að
gera það hið fyrsta.
G.
Nýtt ár - Nýr tími
K I ÝTT ár er að halda innreið
* * sína. Árið sem leið verður
okkur lengi minnisstætt, því á því
ári vorum við þátttakendur í þeim
mikilvægustu átökum, sem þjóðin
hefur gert, frá því hún glataði
frelsi sínu, fyrir sjö öldum. Á ár-
inu, sem le*ð, varð ísland frjálst
og fullvalda lýðveldi. Héðan af
verða örlög okkar ákveðin af okk-
ur sj'álfum, svo fremi sem hnefa-
rétturinn er ekki eini rétturinn
sem heimurinn viðurkennir.
Á þessum einstæðu tímamótum
er okkur sniðinn of þröngur stakk-
ur, ef við miðum þau við venju-
legt ár. Eg leyfi mér því að skyggn
ast lengra aftur í tímann. Eg sé í
anda dimma og óvistlcga moldar-
kofa!, sem þjóðin varð að hírast í
öld fram af öld. i þúsundum þess-
,ara hrörlegu híbýla gérist sama
sorgarsagan. Fólkið verður hung-
urvofunni áð bráð og flosnar upp
af heimilum sínum. Á tveimur
ja'fnfljótum leituðu þessir menn
svo yfií veglausar heiðar og óbrú-
uð vötn, unz dauðinn batt enda
á þjáningar þeirra.
„Líknaðu oss eða láttu sökkva
í leg þitt aftur forna mær“.
Þannig mælir okkar frægasta al-
þýðuskáld. í mínum augum lýsir
það betur en löng ræða, hversu
högum þjóðarinnar var komið.
Svo tekur smásaman að birta.
Fleiri og fleiri fá nýja trú á landi
og þjóð. Þjóðin fær sitt cigið lög-
1 gjafarvald og árangurinn verður
strax heilladrjúgur fyrir land og
! lýð. Híbýli manna batna til stórra
muna, stærstu samgöngutorfærun-
um er rutt úr vegi og það sem á-
unnizt hefur í verklegum framför-
um hefur unnizt síðan þjóðin fékk
sjálf hönd í bagga með sjálfstæði
sitt.
Nú langar mig að skyggnast inn
' í framtíðina og lýsa hinu r.ýja
íslandi, eins og' það stendur mér
fyrír hugskotssjónum. Fiskimiðin
eru eingöngu notuð af Islending-
um sjálfum. Fleiri og fullkomnari
fiskiskip sigla héðan út á miðin,
en áð.ur hefur þekkzt. Sjómennirn-
ir eiga sjálfir þennan glæsilega
flota. Þeir eru því sinir eigin hús-
Rósoerg G. Snœdal;
Erl það þú?
i
Hvað ber þú, nýja ár, í örmum þér,
mun okkur fámað? spyr hinn þögli her,
— þœr milljónir, þœr mœður og þau bóm,
sem mœna á þig og biðja um frið og vörn
gegn ógnum þeim, sem árið liðna fœrði
gegn öllu því, sem hjörtun kramdi og sœrði.
Er starf vor allra/ unnið fyrir gýg?
er árangurinn fleiri bróðwrvíg?
— Rís jörð vor kannske úr blóði björt og fögur?
Já, margir spyrja: — Mun hið nýja ár
hér morgni lýsa — þerra blóð og tár,
sem lauga vanga þess er hildi heyir,
og hungur, nekt og vinamissir beygir?
Mun grimmdin enn í efsta sœti sett
og svíkaranum upp í hendur rétt
mitt heimaland, mitt heimili — og lif? —
Og svarið er: Já ennþá geisar stríð
og enn er lýðnum stefnt gegn lcúlnahríð!
En enginn veit nœr dagsins röðlar renna,
raunum linnir — friðarljósin brenna,
kúgaðir lýðir bönd sín brotið fá,
bíðandi fangar heimalandið sjá. ,
— Um ár né dag er engu hœgt að spá.---
Ó, nýja ár, sem heimi heilsar nú!
' Mun hjálpin koina? Er það kannske þú?
bændur og engurn háðir og arður-
inn rennur óskertur í þeirra vasa.
Ný flutninga- og farþegaskip af
fullkomnustu gerð sigla um úthöf-
in undir íslenzkum fánum, skipuð
íslenzkum mönnum. Stórvirkar ný
tízku verhsmiðjur lcnúnar af orku
fossa og hvera, taka að vinna úr
hráefnum, sem lögur og láð leggja
okkur í skaut og er þar um auð-
ugan garð að gresja.
Landbúnaðurinn færist saman í
sveitaþorp, þar sem ræktunarskil-
yrði eru bezt og hægast er að koma
vörunum á markað. Þar ríkir hin
fullkomnasta atvinnutækni, sem
nútíminn þekkir, bæði' utan húss
og innan. Hvert sveitaþorp á sitt
kvikmyndahús, leikfélög, kóra og
leslrarafélög. í stuttu máli sagt:
Allt það fullkomnasta, sem nú-
tíminn hefnr fram að bjóða.
Nýir skólar og uppeldisstofnanir
rísa upp, sem tryggja hverjum ein-
asta íslending aðstöðu til þess að
nota hæfileika sína og verða sem
nýtastur þegn.
Þetta yfirlit, sem hér hefur ver-
ið gert með því að seilast all-
langt, bæði aftur og fram í tím-
ann, er gert vegna þess, að á þess-
um áramótum stöndum við á merk
um tímamótum. Nýi tíminn er að
halda innreið sína í landið. Sú rík-
isstjórn, sem nú situr að völdum,
hefur þegar hafið undirbúning að
þeim stórfelldustu framkvæmdum
til nýsköpunar atvinnulífsins, sem
nokkurntíma hefur átt sér stað.
Árið 1945 sker úr um það, hvort
þessar glæsilegu fyrirætlanir tak-
ast eða ekki. Æskulýðurinn, sem
að mestu leyti er áhorfandi að því,
sem er að gerast,' en á innan fárra
ára að taka þunga dagsins á sín-
ar herðar, lilýtnr að bíða meði ó-
þreyju cftir þeirri reynslu, sem ár-
ið 1945 felur í skauti sínu.
Við bíðum þess í sterkri trú á
styrk okkar framsýnustu og djörf-
ustu framfaramanna, að hið ný-
byrjaða ár marki ekki síður tíma-
mót í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn-
ar, en árið sem leið og er þá mik-
ið sagt.
1. janúar 1945
G. B.